Morgunblaðið - Sunnudagur - 29.12.2018, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - Sunnudagur - 29.12.2018, Blaðsíða 30
Margir láta sig dreyma umað ferðast og fá til þessinnblástur frá Instagram. Samfélagsmiðillinn er líka góður til þess að fylgjast með hvert fólk er í raun og veru að ferðast og eru sumir staðir meira áberandi en aðrir. Vef- urinn Refinery29 fékk markaðs- fyrirtækið Dash Hudson, sem sér- hæfir sig í öllu sem viðkemur Instagram til þess að skoða ferða- árið sem er að líða og finna út hverj- ir voru 40 vinsælustu áfangastað- irnir á Instagram á árinu 2018. Niðurstöðurnar eru fengnar með því að skoða bæði þá staði sem fólk hef- ur merkt inn á myndir og líka lyk- ilorð. Athygli vekur að Reykjavík er í áttunda sæti á þessum lista enda tekur vefurinn fram að svo virðist sem allir og amma þeirra hafi verið að ferðast um Portúgal og Ísland á árinu. Lissabon í Portúgal er í 25. sæti. Áhugavert er að allar Norður- landahöfuðborgirnar ná inn á listann, Osló er í 16. sæti, Kaup- mannahöfn í 19., Stokkhólmur í 33. og loks Helsinki í 40. sæti. Sívinsælar og sígildar borgir eru á listanum eins og New York, London, París og Róm og það eru aðeins stór- borgir sem komast ofar en Reykja- vík en til viðbótar við þessar fjórar eru aðeins Toronto, Barcelona og Sydney ofar á listanum en höfuð- borg Íslands. Allur listinn er birtur hér til hliðar. Skugghliðin á ferðalögum á Instagram Ljóst er að Instagram hjálpar til við að kynna nýja áfangastaði fyrir fleiri ferðalöngum og hefur þetta greini- lega virkað vel fyrir Ísland. Á sam- félagsmiðlinum fær fólk að kynnast nýrri menningu og löndum í gegnum augu annarra. Þetta getur auðvitað verið til góðs en líka getur verið hætta á því að of margir fari að sækja á staði þar sem land er við- kvæmt. Einn af þeim stöðum þar sem ferðamönnum fjölgaði mjög hratt eftir að áhrifavaldar á Instgram fóru að merkja staðsetninguna þar er vatnið Delta í Grand Teton- þjóðgarðinum í Wyoming í Banda- ríkjunum. Að því er fram kemur í The New York Times bað ferða- mannaráðið á svæðinu nýverið ferðamenn um að hætta að merkja staðsetninguna nákvæmlega inn á Instagram til þess að reyna að varðveita betur skógana og vötnin á svæð- inu. Fyrir nokkrum árum lögðu aðeins einn eða tveir ferðamenn það á sig á dag að ganga upp að Delta-vatninu en þetta er um 15 km leið. Núna eru þetta um 145 manns á dag og eru margir til dæmis að taka trúlof- unarmyndir. Mikil umferð er um áður óþekkta slóða á svæðinu og eru þeir að eyð- ast og þjóðgarðurinn hefur vart efni á að halda þeim við. Víða er kvartað yfir ferðamönnum að taka sjálfur. Í Hong Kong hefur verið vinsælt að taka myndir við fé- lagslegt húsnæði, í óþökk íbúa. Sól- blómabóndi í Kanada þurfti nýlega að banna gesti eftir að ferðafólk olli skemmdum á engjum hjá honum. Ljóst er að gestir Louvre eyða meiri tíma í að mynda sjálfa sig við Monu Lisu en að skoða þetta þekkta mál- verk. Hætta er á því að viðkvæmir stað- ir spillist þegar staðsetning er merkt inn á mynd. Til dæmis er fólk beðið um að merkja alls ekki nákvæma staðsetningu þegar það tekur mynd- ir af nashyrningum í þjóðgörðum í Suður-Afríku því það geti hjálpað veiðiþjófum. Mikið álag hefur verið á svæðinu í kringum Roys Peak við Wanaka- vatn á Nýja-Sjálandi. Það er þriggja tíma ganga á toppinn sem verð- launar fólk með frábærri fjallasýn. Fyrir lok árs munu um 73 þúsund manns hafa gengið þessa leið, sem er 12% meira en árið áður. Þetta er ekki ólík þróun og sú sem hefur verið hér á Íslandi og deila Nýsjálendingar ýmsum áhyggjum með Íslendingum. Gilbert Van Ree- nen, landslagsljósmyndari frá svæð- inu, sagði í samtali við Guardian að myndirnar sem birtust á Instagram með merkinu #royspeak segðu ekki sannleikann. Ferðamenn væru að taka áhættu og stefna lífríkinu í hættu, aðeins til þess að ná hinni fullkomnu sjálfu. Roys Peak er með fimm stjörnu einkunn á TripAdvisor og þar ráðleggja sumir ferðalangar fólki að leggja af stað klukkan þrjú um nótt til að reyna að sleppa við mestu umferðina. Sveitarfélagið stækkaði bílastæð- ið við tindinn á síðasta ári og setti upp salerni, til þess að ná stjórn á fjöldanum, en fólk frá svæðinu segir að það hafi aðeins hvatt fleiri til að koma. Instagram virðist komið til að vera en áskorunin fyrir komandi ár er að dreifa álaginu og passa upp á að fólk stefni ekki sjálfum sér eða viðkomandi stöðum í hættu við myndatökuna. Ferðalaga- árið á Instagram Reykjavík er í 8. sæti yfir áfangastaði ársins 2018 á Instagram, samkvæmt markaðsfyrirtækinu Dash Hudson sem greindi staðina sem fólk hefur merkt inn á myndir auk lykilorða. Inga Rún Sigurðardóttir ingarun@mbl.is Frá @flashman á Twitter en þar segir að mynd- in endurspegli samfélag 21. aldarinnar. 30 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 30.12. 2018 FERÐALÖG Húðfegrun ehf | Vegmúli 2 | Sími 533 1320 | www.hudfegrun.is Láttu fagfólkið á Húðfegrun sjá um þína húð á nýju ári! 1. New York, Bandaríkjunum 2. Toronto, Kanada 3. London, Bretlandi 4. París, Frakklandi 5. Róm, Ítalíu 6. Barcelona, Spáni 7. Sydney, Ástralíu 8. Reykjavík, Íslandi 9. Berlín, Þýskalandi 10. Tulum, Mexíkó 11. Amsterdam, Hollandi 12. Santorini, Grikklandi 13. Honolulu, Bandaríkjunum 14. Balí, Indónesíu 15. Dúbaí, Sameinuðu arabísku furstadæmunum 16. Osló, Noregi 17. Vín, Austurríki 18. Bangkok, Taílandi 19. Kaupmannahöfn, Danmörku 20. Hanoí, Víetnam 21. Mumbai, Indlandi 22. Singapúr 23. Kýótó, Japan 24. Maldívur 25. Lissabon, Portúgal 26. Zürich, Sviss 27. Hong Kong 28. Búdapest, Ungverjalandi 29. Cartagena, Kólumbíu 30. Sjanghæ, Kína 31. Moskva, Rússlandi 32. Dubrovnik, Króatíu 33. Stokkhólmur, Svíþjóð 34. Prag, Tékklandi 35. Dublin, Írlandi 36. Luang Prabang, Laos 37. Marrakesh, Marokkó 38. Istanbúl, Tyrklandi 39. Höfðaborg, Suður-Afríku 40. Helsinki, Finnlandi Topp 40

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.