Morgunblaðið - Sunnudagur - 29.12.2018, Blaðsíða 31
Instgaram upplýsti um ýmis-
legt í frétt sem fyrirtækið birti
undir lok árs eins og helstu tákn-
in og stærstu samfélögin og síðast
en ekki síst staðinn þar sem fólk virðist ham-
ingjusamast en það er Disneyland í Tókýó í
Japan. Að sögn sérfræðinga Instagram er
hvergi annars staðar í heiminum notaðir
eins margir broskallar í texta við mynd.
Nýbúið er að stækka þetta Disneyland og
meira er á leiðinni. Um vorið 2020 munu
hafa bæst við enn fleiri tæki, verslanir og
matsölustaðir við þennan skemmtigarð í
Tókýó. Ennfremur er verið að fara að opna
nýtt hótel sem verður með þema úr teikni-
myndinni Leikfangasögu.
Kimonoklædd
Mikki og Mína
mús í Disney-
landi í Tókýó.
DISNEYLAND Í TÓKÝÓ
GettyImages/iStockphoto
Fáir lögðu leið sína um þetta svæði, Delta-vatnið í Grand Te-
ton-þjóðgarðinum í Wyoming áður en áhrifavaldar fóru að
merkja það inn á myndir á Instagram.
GettyImages/iStockphoto
New York er á toppi listans
yfir vinsælustu staðina á
árinu samkvæmt Instagram.
Lukas Stefanko @LukasStefanko vakti athygi á Twitter á samfélagsmiðlaröð-
inni við Roys Peak. Á myndinni sem birtist á Instagram virðist fólk vera eitt í
heiminum en í raun og veru er örtröð á þessum fallega stað.
Ekki er ólíklegt að margir ferðamenn hafi tekið mynd af sér
með ís í Róm, borginni eilífu, á árinu. Róm er í 5. sæti listans.
GettyImages/iStockphoto
30.12. 2018 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 31
Landslag kr. 5.400
Snúrusnilld kr. 2.000 Hreðkuskálar kr. 2.900-13.500
Íslensk hönnun - Íslenskt handverk
Vesturgötu 4, 101 Reykjavík, s. 562 8990
www.kirs.is,
Kirsuberjatréð Íslensk Hönnun
Opið: Mán.-fös. 10-18, lau. 10-17, sun 10-17
Fagnaðar–
fundir
af öllum
stærðum
og gerðum
Bókaðu 8–120 manna fundarými.
Nánar á harpa.is/fundir
Flestu bros-
kallarnir