Morgunblaðið - Sunnudagur - 29.12.2018, Qupperneq 35
aldar um þessar mundir, eins og utanríkisráðherra
Breta vakti athygli á nýlega.
Guðfræðin er einnig iðkuð sem vísindagrein með sín-
um hætti enda á hún margar hliðar. Grundvöllur trúar-
innar veltur þó ekki á því.
Þar er rýnt í texta. Kirkjuþing úrskurða og kennslu-
stólar leggja einnig línur. En svo hefur hver og einn
kristinn maður sitt svigrúm og á þá úrlausn ekki við
annan og það sem honum þykir óhætt að lesa út úr
vitneskju sinni og trúarvissu.
Mega þau líka?
Sem lítið dæmi sem litlu skiptir má nefna að kennivald-
ið hefur viljað hafa það svo, að þær skepnur sem fólk
bindur einatt ekki síðri vináttu við en við suma af eigin
dýrategund eigi þess ekki kost á að komast á sléttur ei-
lífðarinnar. Ganga má út frá því sem vísu að „hinn að-
ilinn“ í þessu hlýja vináttusambandi dvelji aldrei við þá
spurningu. Gerðu þau það myndi kötturinn vilja fá að
vita hvort mýs fengju ekki örugglega inngöngu líka.
Og manneskjunni sem á í hlut liggur ekkert á að fá úr
málinu skorið, enda lífsins skeið stutt, eins og bent hef-
ur verið á. Eilífðin er á hinn bóginn eins drjúg og hægt
er að hugsa sér. Eitthvað mun þessi örlagadómur eiga
með sálina að gera, meint sálarleysi dýranna og aug-
ljósa annmarka varðandi töku trúar, iðkun hennar, iðr-
un og bæn. En á hinn bóginn er hið augljósa. Að miklu
fátæklegra er í himnaríki ef þennan þátt vantar.
Winston Churchill var stundum spurður um líf eftir
dauða og var stundum óljóst um sannfæringu hans en
afstaðan styrktist eftir því sem frá leið.
Sjálfur sagðist hann ekki hafa gert nein sérstök
ferðaplön um þann þátt nema þó það að hann ætlaði
sér að nýta fyrstu milljón árin þar til að iðka málaralist
og svo myndi hann sjá til með næstu verkefni.
Íslendingum þótti ekkert að því þá kerling Jóns
bónda lagði ekki bara land undir fót með sál hans í poka
til að tryggja honum himnaríkisvist, þótt eitt og annað
mælti gegn, og sá þá kunnuglegar og velhaldnar hjarð-
ir í heimahögum himnanna er styttist í hliðið góða.
Kvæði höfundarins, Davíðs Stefánssonar, bera mörg
með sér sterka trúarvissu skáldsins en hvorki honum
né öðrum þótti neitt að þessu hliðarskrefi. Auðvitað
stendur hvergi að skáld viti meira um hulin mál en
aðrir, en það er þó sterk hefð fyrir því í þessu landi að
gera hendingar skáldanna að stóra sannleik henti það
málstaðnum.
Annað ljúft skáld og ekki lakara í afstöðu sinni til
guðdómsins, Tómas Guðmundsson, úrskurðaði beinlín-
is um álitaefnið í miklu kvæði sínu um hundinn Stubb,
sem birtist þjóðinni fyrst í þessu góða blaði:
Lát mannsins hroka trúa á það enn,
að eilífðin sé bara fyrir menn.
En hvaða afl fær anda drottins bundið
og eilífð hans í viðjar dauðans hrundið?
Nei, vit að allt er ein og sama hjörð,
sem andað fær í lofti, sjó og jörð.
Og allt á samleið heim til hinztu tíða,
og hvers kyns dauða skyldum við þá kvíða?
Nei, vinur min, það örugg trú mín er,
að úthýst verður hvorki þér né mér.
Því glöggt ég veit - þann guð er ekki að finna,
sem gerir upp á milli barna sinna.
Tapi þeir þá skal svindla
Günther Oettinger, einn af helstu komisserum ESB,
sagði í vikunni að „yrði endirinn þrátt fyrir allt sá að
Bretar færu án samnings úr Evrópusambandinu þá
myndi landið breytast í Marokkó!“
Það var eitthvað notalegt við það að sjá þá spá.
Helsti spekingurinn af nokkrum slíkum í hræðslu-
tryllingi vegna Icesave sællar minningar hélt því fram
að Ísland myndi breytast í „Kúbu norðursins“ ef ís-
lenska þjóðin myndi ekki láta kúgast. Sá mun enn vera
að kenna svo hann getur þá bætt „Marokkó“ við kenn-
ingar sínar. Í Kúbu svara meðallaunin til 3.000 króna á
mánuði svo gamaldags kommarnir sem náðu Eflingu
með fáeinum atkvæðum virðast þrátt fyrir allt ekki að
leita fyrirmynda til fyrirmyndarríkja á borð við það. En
gáleysistal þeirra hefur þegar veikt efnahagslífið og
hægt á því.
Kjósa aftur. Vitlaust gefið.
Þjóðverjinn Oettinger sem heldur að Bretar breytist í
Marokkó norðursins án leiðsagnar frá honum og öðrum
búrókrötum í Brussel telur nauðsynlegt að fá nýtt þjóð-
aratkvæði um Brexit. Það vilja breskir Evrópusinnar
líka. Áhrifamenn í þessum hópi, t.d. Tony Blair og John
Major, gefa upp þá ástæðu í fullri alvöru að þau 52%
sem unnu atkvæðagreiðsluna hafi ekki vitað hvað fælist
í því að fara úr ESB.
Þeir sleppa að nefna það, en gefa sér það augljóslega,
að þau 48% sem töpuðu hafi á hinn bóginn vitað út í æs-
ar hvað fælist í þeirra atkvæði. En þegar þessir menn,
ásamt þriðja og fjórða forsætisráðherranum Cameron
og May, voru að leggja sín lóð á að tryggja kyrrsetu-
mönnum sigur var meginþema þeirra þetta: „Það má
enginn gleyma því að þessi atkvæðagreiðsla verður
aldrei endurtekin.“
Um þær mundir sýndu skoðanakannanir að góður
meirihluti virtist ætla að segja nei. En þótt svo hefði
ekki verið er ekki líklegt að fjórmenningarnir fræknu
hefðu lagt í að segja upphátt að tapaði „rétti mál-
staðurinn“ þjóðaratkvæðinu yrðu menn að muna að
ESB áskildi sér ætíð að láta endurtaka rangar at-
kvæðagreiðslur.
Hefði fjórmenningaklíkan fína haft þrek til að koma
slíku út úr kjaftvikinu þá er vafalítið að ósigur hennar
hefði orðið enn meiri.
Erfiðara að komast inn en út
Vissulega hefur verið óþolandi ruglandi í uppgjöri um
það sem ætti að vera formsatriði fyrir Breta um að
koma sér út úr ormagryfjunni.
Eins og í minni er haft tók fólk þátt í því á Íslandi að
láta eins og það væri „í samninganefnd“ fyrir Íslands
hönd við ESB, á jafnréttisgrundvelli. Á daginn kom
eins og næsta augljóst var að engir raunverulegir
samningar áttu sér stað. Íslensku „samningamenn-
irnir“ mættu eins og órólegir nemendur í munnleg próf
til að fara yfir hvaða mál landið ætti eftir að laga að
reglum ESB og hversu langan tíma það myndi taka.
Prófdómararnir voru einskis spurðir. Og þeir stimpl-
uðu stjörnur í skrifbók heimamanna ættu þeir það skil-
ið. Þetta var lítillækkandi og ömurlegt í senn. En þessi
þáttur var einn af mörgum sem undirstrikaði undir-
málin gagnvart íslensku þjóðinni og öllum til skammar
sem lögðust svo lágt.
Hvaða Bretar hefðu getað ímyndað sér fyrir fram þá
meðferð sem þeir hafa fengið eftir sitt fágæta þjóðar-
atkvæði? Um það var barist mánuðum saman. Báðar
fylkingar virtust trúa því að þar væri barist til úrslita.
Það gat ekki flögrað að neinum að ESB myndi þvælast
fyrir í „samningum um útgöngu“ með hótunum og
hræðsluáróðri, sem ekki er þó síst beint að þeim sem
ESB óttast að kunni að vilja burt næst. Enn síður datt
nokkrum í hug að þegar Cameron hætti sætu Bretar
uppi með svartapéturinn May sem virðist komin áleiðis
með að hafa ákvörðun bresku þjóðarinnar að engu.
Engum manni datt í hug að það væri flóknara samn-
ingaferli að fara út en inn í ESB!
Ógæfa Breta er að sitja uppi með einhvern lélegasta
forystumann í sögu sinni, þegar nokkuð liggur við að
hafa öflugan mann í brúnni. En jafnvel slík óheppni
átti aldrei að geta ráðið úrslitum. Þjóðin hafði tekið
sína hugrökku ákvörðun og hún á að standa.
Lykillinn að langlífi
Þegar sígur á jólahátíð og áramótafögnuð er mjög
haldið að fólki hvernig skrokkur hátíðargesta megi
rétta sinn hlut í framhaldinu.
Þegar hefur birst slíkur fjöldi uppskrifta að hátíðar-
fréttum í mat og drykk að enginn maður lifir það af að
fara eftir svo sem helmingnum.
Sagt var frá því í fréttum að síðasta fimmtudag lést
Richard Overton, elsti bandaríski hermaðurinn sem
barðist í seinni heimsstyrjöldinni, 112 ára gamall.
Overton var sprækur fram til hins síðasta. Spurður
fyrir nokkru um hvað hann þakkaði þetta langlífi og
góða heilsu sagðist hann telja að Guð ætti sinn þátt í
því. En hann bætti því þó við að óneitanlega hefði
hjálpað að hann fengi sér viskí þegar þyrsti og reykti
vindil. Hann reykti nú orðið að jafnaði 12 vindla á dag.
Þetta svar hefur glatt gamlan stríðsmann hafi hann
litið upp frá trönum himnaríkis.
Viskíglösin hans voru jafnmörg eyjum Breiðafjarðar
og vindlarnir hólunum í Vatnsdal. Þess utan skóflaði
hann í sig mat hratt og hömlulítið og náði sér í allt það
stress sem fáanlegt var, nær eða fjær.
En við, þessi venjulegu, megum ekki láta þetta rugla
okkur neitt.
Þessir fáu eru undantekningarnar, þessar sem sanna
reglurnar.
Yfirgnæfandi líkur standa til þess að við hin verðum
að lúta þeim.
Þar fór það.
Morgunblaðið/RAX
30.12. 2018 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 35