Morgunblaðið - Sunnudagur - 29.12.2018, Page 39

Morgunblaðið - Sunnudagur - 29.12.2018, Page 39
30.12. 2018 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 39 Leiksýningar ársins Margar af bestu leiksýningum ársins komu úr smiðju sjálfstæðra leikhópa. Viðfangsefnin spönnuðu allt frá fíkn til frygðar. Silja Björk Huldudóttir og Þorgeir Tryggvason völdu úr þeim rúmlega þrjátíu sýningum sem þau sáu á árinu. Ahhh … Ástin er að halda jafn- vægi. Nei fokk. Ástin er að detta í Tjarnarbíói Eftir Elísabetu Kristínu Jökulsdóttur í leikstjórn Charlotte Bøving. „Texti Elísabetar er allt í senn fallegur, fyndinn og erót- ískur – en fyrst og fremst ávallt ljóðrænn og frumlegur. […] Undir stjórn Charlotte Bøving leikstjóra skapar leikhópurinn röð smámynda sem birtast eins og litríkir flugeldar sem springa út hver á fætur öðrum áhorfendum til mikillar ánægju. [… Ahhh er] mein- fyndin, ögrandi, harmræn og ósæmileg, en síðast en ekki síst hjartastyrkjandi sýning – enda gerir það okkur aðeins gott að fá vænan skammt af húmor, losta og ást á nöprum vetrar- kvöldum.“ „Píkan er vöðvi sem slær eins og hjartað“ Oddur og Siggi í Þjóðleikhúsinu Eftir Odd Júlíusson, Sigurð Þór Óskarsson og Björn Inga Hilmarsson í leikstjórn þess síðastnefnda. „Oddur og Siggi eru einstaklega hæfileika- ríkir listamenn með mikinn sviðssjarma. [… Sýningin] er fyrirtaksleið til að brjóta ísinn í umræðunni um einelti og mikilvægi þess að geta sett sig í spor annarra. Minnt er á að gerendur eineltis stjórnast yfirleitt af ótta og eigin vanlíðan sem vinna þarf með af fullri al- vöru eigi að vera hægt að uppræta eineltið […]“ Að geta sett sig í spor annarraFyrsta skiptið í GaflaraleikhúsinuEftir Arnór Björnsson, Berglindi Öldu Ástþórs- dóttur, Ingu Steinunni Henningsdóttur, Mikael Emil Kaaber og Óla Gunnar Gunnarsson í leik- stjórn Bjarkar Jakobsdóttur. „Höfundarnir byggja verkið að stórum hluta á eigin reynslu og sýna aðdáunarvert þor og einlægni í umfjöllun sinni um málefni sem mörgum finnst vandræðalegt og jafn- vel óhugsandi að ræða. [… Björk tekst sem leikstjóra] að laða fram það besta í þessum hæfileikakrökkum, sem ekki aðeins skrifa heldur leika öll hlutverk sýningarinnar. […] Það er ljóst að framtíðin er björt í íslensku leikhúsi og gaman verður að sjá hvað leik- hópurinn tekur sér næst fyrir hendur.“ Einu sinni verður allt fyrst Í skugga Sveins í Gaflaraleikhúsinu Eftir Karl Ágúst Úlfsson í leikstjórn Ágústu Skúladóttur. „Karl Ágúst þekkir söguna eins og lófann á sér [og] gerir efniviðinn algjörlega að sínum með ýmsum út- úrdúrum, breytingu á tengslum lykilpersóna og stór- skemmtilegum vísunum jafnt í nútímann og hefðina. […] Í meðförum leikhópsins fær frásagnarlistin að njóta sín til fulls […] Hér ræður leikgleðin ríkjum undir hugmyndaríkri leikstjórn og sjónræn útfærsla öll gleð- ur augað.“ Margt býr í þokunni Fólk, staðir og hlutir í Borgarleikhúsinu Eftir Duncan Macmillan í leikstjórn Gísla Arnar Garðarssonar. „Sýningin hvílir á herðum Nínu Daggar Filippusdóttur sem er á sviðinu nær allan tímann. Þetta er einstaklega krefjandi hlutverk þar sem persónan sveiflast frá yfir- gengilegum hroka yfir í botnlaust sjálfshatur fíkilsins sem býr yfir baneitraðri blöndu af lélegu sjálfsmati og mikil- mennskubrjálæði. […] Lokauppgjör mæðgnanna var eitt það áhrifaríkasta sem rýnir hefur séð á síðustu misserum […] Nestuð safaríkum efnivið vinnur Nína Dögg sannkall- aðan leiksigur í hlutverki fíkilsins […]“ Að lifa einn dag í einu Allt sem er frábært í Borgarleikhúsinu Eftir Duncan Macmillan ásamt Jonny Donahoe í leikstjórn Ólafs Egils Egilssonar. „Spunaformið og uppröðun salarins minna áhorf- endur á hvað við sem samfélag erum í raun tengd og vitum aldrei nema sessunautur okkar glími við depurð, kvíða eða sjálfsvígshugsanir hvort heldur er á eigin skinni eða sem aðstandandi. […] efniviðurinn er mat- reiddur af hlýju og húmor. [… Valur Freyr] býr yfir mikilli breidd sem leikari […] Sviðssjarmi hans og áreynsluleysi, en ekki síst einlægni, henta einstaklega vel í Öllu sem er frábært.“ Það er alltaf von Kvenfólk Leikfélags Akureyrar í Borgarleikhúsinu Eftir Eirík G. Stephensen og Hjörleif Hjartarson í leikstjórn Ágústu Skúladóttur. „[Ó]hætt er að segja að Eiríkur og Hjörleifur séu nokkurs konar hirðfífl þjóðarinnar sem leyfist að gagnrýna menn og málefni með bros á vör og sakleysisblik trúðsins í augum áhorfendum til ómældrar skemmtunar […] Kyns síns vegna ná Eiríkur og Hjörleifur vafa- lítið eyrum sem kvenkyns femínistar eiga erfiðara með að ná og það er jákvætt. Á sama tíma eru tvímenningarnir meðvitaðir um mikilvægi þess að raddir kvenna heyrist. Það birtist skýrt í lokakafla sýningarinnar sem er ótvíræður hápunktur hennar.“ Áfram stelpur

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.