Morgunblaðið - Sunnudagur - 29.12.2018, Page 40

Morgunblaðið - Sunnudagur - 29.12.2018, Page 40
40 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 30.12. 2018 LESBÓK Myndlistarsýningar ársins Myndlistarrýnar Morgunblaðsins, Aldís Arnardóttir, Anna Jóa og Margrét Elísabet Ólafsdóttir, fylgdust með blómlegu mynd- listarlífinu á árinu. Þær benda hér á margt það áhugaverðasta sem þær sáu og fjölluðu um oftast nær, í gagnrýni eða pistlum. Listasafn Reykjavíkur - Kjarvalsstaðir og Hafnarhús: Einskismannsland – Ríkir þar fegurðin ein? Allir salir Listasafns Reykjavíkur, á Kjarvalsstöðum og í Hafnarhúsi, hafa verið lagðir undir sýn- ingu sem hverfist um öræfi Íslands […] Sennilega er þetta fyrsta stóra samsýningin sem spannar íslenska nútímalistasögu og beinir sjónum sérstaklega að hálendinu […] Sýningin gefur tilefni til vangaveltna um gildi öræfanna sem staðar í þjóðarvitundinni og þátt listarinnar þar. Við skoðun verka kvikna minningar, hugrenningar og þankar sem tengjast því að rýna í staði og kennileiti, sem og spekúlasjónir um efnistök listamannanna og útfærslu verka… Sýningin Einskismannsland – Ríkir þar fegurðin ein? dregur saman merkingarþræði, sjónarmið listarinnar og kveikjur – og safnar saman hálendinu – í farveg samræðu sem varðar okkur öll. (AJ) Hálendið í söfnunum Nýlistasafnið: Ragna Róbertsdóttir – Milli fjalls og fjöru bbbbm Á sýningunni hefur Ragna komið á stefnumóti áhorfand- ans við hið kvika hreyfiafl náttúrunnar, en hún vekur einnig hugleiðingar um skeytingarleysi mannsins gagnvart náttúr- unni. Samspil verkanna við rýmið hefur tekist afar vel og list Rögnu er allt í senn margslungin, falleg og beinskeytt í einfaldleika sínum. Óhætt er að hvetja áhorfendur til að […] upplifa tímann sem lifir í verkunum, tíma náttúruafl- anna sem umbreytt hefur verið með natni og tíma lista- mannsins. (AA) Síkvikt hreyfiafl náttúrunnar Listasafnið á Akureyri: Sigurður Árni Sigurðs- son – Hreyfðir fletir bbbbn Blekkingin byggist á því að skapa form og dýpt á tví- víðum fleti, en Sigurður Árni tekst ekki síst á við þær skynrænu villur sem slíkur blekkingarleikur býður upp á. […] Fínleg áferð litar og teikningar í verkum hans og meðferð hans á notkun ljóss og skugga tengir málverk hans við verk fyrri tíma, ekki síst franska 17. aldar mál- arann Georges de la Tour, sem var meistari í meðferð ljóss og skugga […] Verkin á sýningunni í heild draga fram látleikann í verkum Sigurðar Árna, verkum sem búa jafnframt yfir dýpt sem virðist endalaus þegar byrjað er að kafa og vekja heimspekilegar vangaveltur um grundvallarþætti málverksins og sjónrænnar blekkingar. (MEÓ) Endurnýjun sjónrænna blekkinga Listasafn Reykjavíkur - Kjarvalsstaðir: Har- aldur Jónsson – Róf bbbbn Verkin teygja sig út fyrir rými safnsins, á Flókagöt- una, Klambratúnið, salerni og ganga Kjarvalsstaða, – eru á mörkum hins hefðbundna sýningarrýmis. Í stað krónólógískrar yfirferðar er verkum Haraldar skipt upp eftir þeim viðfangsefnum sem hann hefur snert á í gegnum tíðina; líkami, tilfinningar, skynjun og tungu- mál… Verkin rúma þetta róf eða bil sem er á mörk- um myndlistarinnar og tilverunnar sem Haraldur er svo næmur á. Róf er forvitnileg og margræð sýning sem þarf helst nokkrar heimsóknir til að skoða, skynja og upplifa alltaf eitthvað nýtt. (AA) Mörk myndlistar og tilveru Nýlistasafnið: Katrín Agnes Klar og Lukas Kindermann – Fjarrænt efni bbbbn Sýningin […] ferðast með áhorfandann til hins óræða og óhöndlanlega sem vísindamenn reyna að beisla með böndum þekkingar. Fyrirbæri úr náttúr- unni […] vekja áhorfandann til umhugsunar og skörun hversdagslegra hluta verður óhjákvæmileg. Fjarrænt efni er hrífandi og falleg sýning. (AA) Ferðalag um alheiminn Svipmót mennskunnar Nýlistasafnið: Elizabeth Peyton – Universe of the World-Breath Peyton er tæknilega fær listamaður, jafnvíg á ólíkar að- ferðir og sýnir olíumálverk, vatnslitamynd og blýants- teikningu, einþrykk, dúkristur og mjúkgrunnsætingu … Verk Elizabeth Peyton birta og spegla veruleika þar sem ótal mannamyndir skarast í sífellu og með þessum myndum leitast hún við að ná tangarhaldi á slíkum veru- leika – og hvetja áhorfandann til að staldra við og rýna eftir svipmóti mennskunnar undir yfirborðinu í hröðu, ímyndamótuðu fjölmiðlaumhverfi. (AJ) Berg Contemporary: John Zurier – Sometimes (Over Me the Mountain). Í látleysi sínu og einfaldleika framkallar sýning Zurier töfra málverksins – ríki- dæmi efniskenndar og birtu litanna.“(AJ) Töfrar mál- verksins Verksmiðjan á Hjalteyri: Minjar af mannöld. Sýningarstjóri: Pétur Thomsen. Verk eftir Pétur, Ívar Brynjólfsson, Svavar Jónatansson, Þorsteinn Cameron og Pharoah Marsan. Afburðavel uppsett sýning á vel völdum ljós- myndum sem sýna hver á sinn hátt áhrif mannsins á umhverfið. Staðsetning sýningarinnar í yfirgefinni síldarverksmiðju undirstrikaði enn frekar viðfangs- efni sýningarinnar. (MEÓ) Afburðavel uppsett Listasafn Íslands: Elina Brotherus – Leik- reglur. Ný ljósmynda- og myndbandsverk með marglaga frásögnum. Heildstæð, falleg og látlaus, en áhrifamikil sýning á verkum eins fremsta ljósmyndara samtímans. (MEÓ) Látlaus en áhrifamikil Listasafn Reykjavíkur - Hafnarhús: Tak i lige måde: Samtímalist frá Danmörku. Sýn- endur: Jeannette Ehlers, Jesper Just, John Kørner og Tinne Zenner. Vel til fundin og áleitin sýning á verkum danskra samtímalistamanna; sýning sem gaf tilefni til íhug- unar um sögu og sjálfsmynd Íslendinga í samhengi nýlendustefnunnar og eftirmála hennar allt fram á líðandi stund. (AJ) Í samhengi nýlendustefnu

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.