Morgunblaðið - Sunnudagur - 29.12.2018, Qupperneq 48
SUNNUDAGUR 30. DESEMBER 2018
„Þetta er okkar ferðalag í gegnum þessar borgir, Moskvu, Volgograd og Rostov.
Auðvitað snýst myndin um fótbolta en samt sem áður er enginn fótbolti sýndur í
henni. Eigum við ekki að segja að þetta sé HM utan vallar,“ segir Guðmundur
Björn Þorbjörnsson, fréttamaður og höfundur heimildarmyndarinnar Gerska æv-
intýrið ásamt Grími Jóni Sigurðssyni myndatökumanni. Þriðja hjólið undir vagn-
inum er svo Karl Newman, sem klippti efnið.
Guðmundur flutti fréttir frá HM fyrir RÚV sl. sumar og þeir Grímur voru með
daglegan hlaðvarpsþátt, sem einnig hét Gerska ævintýrið. Í þættinum í kvöld er
saga keppnisstaðanna sögð í bland við stemningslýsingu en að vonum hverfðist allt
um fótbolta þar eystra á þessum tíma. „Auk þess að skoða borgirnar var það okkar
hlutverk að finna andann í fólkinu á götunni; hvaða væntingar fór það með og
hvernig upplifði það mótið? Ég held að við höfum verið einu íslensku fjölmiðlamenn-
irnir sem ekki ferðuðust með landsliðinu og bjuggu í bænum sem þeir æfðu í við
Svartahafið. Við fórum út í þetta verkefni með það að augnamiði að nálgast þetta frá
svolítið öðru sjónarhorni en venjulega íþróttaumfjöllun, kannski með smá snert af
kaldhæðni. En svo þegar nær dró leikdegi breyttumst við báðir í harða stuðnings-
menn og allur töffaraskapur hvarf samstundis,“ segir Guðmundur sposkur.
Úr heimildarþættinum
Gerska ævintýrinu.
Morgunblaðið/Eggert
HM utan vallar
Guðmundur Björn Þorbjörnsson
á leið á völlinn ásamt stuðnings-
manni Argentínu.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Gerska ævintýrið nefnist heimildarþáttur sem sýndur verður á RÚV í kvöld,
sunnudagskvöld, og fjallar um ævintýri Íslendinga á HM í Rússlandi í sumar.
„„Augað horfði svo illilega á
mig, að ég vissi hreint ekki mitt
rjúkandi ráð,“ sagði sá, sem
kom til rannsóknarlögreglunnar
í gærmorgun að skila þýfi sínu –
gerviauga, sem hann hafði stolið
nóttina áður. Virtist maðurinn
þeirri stundu fegnastur, þegar
rannsóknarlögreglan hafði tekið
þetta illa auga í sína vörzlu.“
Þessa óvenjulegu frétt var að
finna í Morgunblaðinu á gaml-
ársdag fyrir fimmtíu árum, 1968.
Ennfremur sagði: „Í fyrrinótt
brauzt þessi maður ásamt kunn-
ingja sínum inn í fjögur fyrirtæki
að Hverfisgötu 46; Prentsmiðj-
una Ásrún, Bókamiðstöðina,
Brynju og Kassagerð Georgs &
Co. Brutu þeir félagar upp fjórar
hurðir og brutu sér að auki leið í
gegnum eitt þil. Upp úr krafsinu
höfðu þeir eitthvað af skipti-
mynt, sígarettur og svo gervi-
augað, sem þeir tóku úr skrif-
borðsskúffu í skrifstofu
kassagerðarinnar.
Þegar heim kom skiptu þeir
með sér fengnum og féll gervi-
augað í hlut þessa manns. Stillti
hann því upp á náttborðinu hjá
sér og hugðist síðan hverfa á vit
svefnsins. Úr því varð þó ekkert
og skildi manntetrið fyrst í stað
ekkert í því, hversu erfiðlega
honum gekk eftir sofna. Þá varð
honum litið í augað á náttborð-
inu. Og sjá! Þvílíkt augnaráð,
sem það sendi honum! Mann-
inum varð um og ó.“
GAMLA FRÉTTIN
Stal illu
auga
Gerviaugu geta skotið mönnum skelk í bringu, eins og þjófurinn komst að
árið 1968. Þetta tiltekna auga tengist ekki fréttinni með beinum hætti.
ÞRÍFARAR VIKUNNAR
Melissa Rauch
leikkona (Big Bang Theory)
Erna Gísladóttir
eigandi BL
Una Sighvatsdóttir
heimshornaflakkari
GLEÐILEGT
NÝTTÁR!
TAKK FYRIR AÐ TAKA FLUGIÐ MEÐ OKKUR
Sendum viðskiptavinum okkar og
landsmönnum öllum okkar bestu
óskir um farsælt komandi ár með
bestu þökkum fyrir stuðninginn
á því liðna.
WOWAIR.IS WOWAIR@WOWAIR.IS