Víkurfréttir


Víkurfréttir - 07.03.2019, Síða 16

Víkurfréttir - 07.03.2019, Síða 16
Dagskrá Opnunarhátíð Safnahelgi í Rokksafni Íslands (Hljómahöll) Laugardag 9. mars kl 11:30 Sérstök opnun Safnahelgar á Suður- nesjum fer fram í Rokksafni Íslands (Hljómahöll) laugardaginn 9. mars kl. 11:30. Þar verður flutt brot af því besta úr Söngvaskáldum á Suðurnesjum, en sú sýning hefur hitt í mark hjá heima- mönnum. Reykjanesbær Söfn og setur Duus Safnahús Duusgötu 2-8, Keflavík Opið laugardag og sunnudag kl. 12 – 17 duusmuseum.is; sofn.reykjanesbaer.is 7 ólíkar sýningar í 7 sýningarsölum Bátasalur: Bátafloti Gríms Karlssonar (Föndursmiðja fyrir börn alla helgina) Rúmlega 100 bátalíkön úr skipaflota lands- manna sem Grímur Karlsson fyrrverandi skipstjóri og líkanasmiður hefur gert. Föndursmiðja fyrir börn alla helgina. Þau læra að búa til gamaldags pappírsbáta. Viðburður: 10.mars kl. 13.00 og 16.00: Félag harmonikkuunnenda á Suðurnesjum leikur sjómannalög. Við munum tímana tvenna - Gryfjan Afmælissýning Byggðasafns Reykjanes- bæjar í Gryfjunni í Duus Safnahúsum. Á sýn- ingunni er farið yfir 40 ára sögu safnsins og dregin upp mynd af fjölbreyttum verkefnum safnsins í þeim miklu breytingum sem orðið hafa á samfélaginu á þessum árum. Viðburður: 10. mars kl. 14.00: Leiðsögn safnstjóra Eiríks P. Jörundssonar. Listasalur: Einkasýning Guðjóns Ketils- sonar Guðjón er með allra markverðustu mynd- listarmönnum þjóðarinnar og hefur haldið yfir þrjátíu einkasýningar og tekið þátt í samsýningum um allan heim. Hann hefur hlotið margar opinberar viðurkenningar og gert verk sem finna má í á opnum svæðum á ýmsum stöðum. Verk hans er að finna í helstu listasöfnum landsins. Sýningin, sem nefnist „Teikn“ er samsett úr nýjum verkum sem öll fjalla með einum eða öðrum hætti um tákn, táknmerkingu og „lestur“ í víðasta skilningi. Verkin eru uppfull með vísbend- ingar, tákn og tilvitnanir sem mynda eins konar huglæg rými sem áhorfandinn gerist þáttakandi í og upplifir á eigin skinni. Viðburður: 10.mars kl. 15.00: Leiðsögn listamannsins Guðjóns Ketilssonar. Bíósalur: Gluggamenn eða spegil- menn? Ljósmyndir úr safneign Listasafns Reykja- nesbæjar. John Szarkowski, yfirmaður ljósmyndadeildar Nútímalistasafnsins í New York (M.O.M.A) og helsti sérfræðingur í bandarískri ljósmyndun setti einu sinnu fram athyglisverða kenningu um ljósmyndun þar sem hann skipti ljósmyndurum í tvo flokka; þá sem litu á ljósmyndun sem tæki til tjáningar á persónulegum viðhorfum, sem sagt „speglamenn“, og þá sem litu á hana sem tæki til hlutlausrar frásagnar af hinu séða, þ.e. „gluggamenn“. Og nú er það spurningin í hvorn flokkinn falla þeir lista- menn sem eiga verkin á sýningunni í Bíósal Duus Safnahúsa? Eða fara þeir kannski bil beggja? Gestir geta velt fyrir sér þessari spurningu um leið og þeir njóta listaverka eftir nokkra af helstu ljósmyndurum þjóðar- innar. Gestastofa Reykjanesjarðvangs Sýning um myndun og mótun Reykjanes- skagans, lífríki og náttúrufar. Reykjanes Geopark er á jarðvangaskrá UNESCO ásamt 119 öðrum svæðum í heiminum. Fólk í kaupstað - Stofan Á sýningunni gefur að líta sýnishorn af ljósmyndum í eigu Byggðasafns Reykja- nesbæjar. Þema sýningarinnar er fólk og fjölbreytt mannlíf í kaupstaðnum Keflavík og nágrannabænum Njarðvík á árunum 1944 til 1994. Sýningin er önnur sýning safnsins sem sett er upp í tilefni þess að 40 ár voru liðin frá formlegri stofnun sameiginlegs byggðasafns Keflavíkur og Njarðvíkur á síðasta ári. Á þessu ári eru jafnframt liðin 80 ár frá því að Ungmennafélagið setti á stofn Byggðasafn Keflavíkur þann 17. júní 1944 og 75 ár liðin frá því að Keflavík fékk kaupstaðarréttindi árið 1949. Viðburður: 10. mars kl. 15.00: Sýningar- stjóri og ljósmyndari vera á staðnum og ræða við gesti og gangandi. Miðloft: Þyrping verður að þorpi Grunnsýning Byggðasafns Reykjanesbæjar á Miðlofti í Bryggjuhúsi þar sem stiklað er á stóru um sögu svæðisins frá níundu öld til miðrar síðustu aldar. Ljós og tími - Ljósmyndir úr safneign Listasafns Reykjanesbæjar Á síðustu 15 árum hefur Listasafn Reykja- nesbæjar eignast fjölda listrænna ljós- mynda sem nú má sjá á sýningu í Bíósal Duus Safnahúsa. Þar má m.a. sjá verk eftir bæði innlenda og erlenda ljósmyndara s.s. Einar Fal Ingólfsson, Spessa, Katrínu Elvars- dóttur, Tom Sandberg, Vigdísi Handhammer. Titill sýningarinnar vísar í helstu frumþætti miðilsins, þ.e. ljós og tíma. Einnig má velta fyrir sér orðum John Szarkowski, yfirmanns ljósmyndadeildar Nútímalistasafnsins í New York (M.O.M.A) og helsta sérfræðings í bandarískri ljósmyndun, sem setti fram athyglisverða kenningu um ljósmyndun þar sem hann skipti ljósmyndurum í tvo flokka; þá sem litu á ljósmyndun sem tæki til tjáningar á einkalegum viðhorfum, sem sagt „speglamenn“, og þá sem litu á hana sem tæki til hlutlausrar frásagnar af hinu séða, þ.e. „gluggamenn“. Sýningin opnaði föstudaginn 15.nóvember og stendur til 22.apríl. Rokksafn Íslands Hljómahöll Hjallavegi 2, Ytri-Njarðvík Opið laugardag og sunnudag kl. 11 – 18 rokksafn.is Geggjaður gagnvirkur plötuspilari Rokksafn Íslands er safn um sögu popp- og rokktónlistar á Íslandi. Þar er saga tónlistar á Íslandi sögð allt frá árinu 1830 til dagsins í dag. Safnið frumsýnir um þessar mundir nýjan hluta safnsins sem unnin var í sam- starfi við fyrirtækið Gagarín sem sérhæfir sig m.a. í gagnvirkum lausnum fyrir söfn. Í nýja hlutanum geta gestir skoðað sögu íslenskra tónlistarmanna og hljómsveita í gegnum gagnvirka plötuspilara. Sjón er sögu ríkari. ÓKEYPIS Á ÖLL SÖFN

x

Víkurfréttir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.