Víkurfréttir


Víkurfréttir - 21.02.2019, Side 1

Víkurfréttir - 21.02.2019, Side 1
Háhraða internet og hágæða sjónvarp EKKERT LÍNUGJALD, FRÍR ROUTER ENGIR AUKAREIKNINGAR Kapalvæðing • Hafnargata 21 • 421 4688 • kv@kv.is www.kv.is • www.facebook.com/kapalvaeding frá 6.560 Kr/mán. Ráðgjöf og förðun 22. febrúar kl. 12-18, ráðgjöf 23. febrúar kl. 11-17, ráðgjöf og förðun 20% afsláttur Lya Reykjanesbæ, tímapantanir í förðun í síma 421 6565. Appelsínur 129KR/KG ÁÐUR: 258 KR/KG Blandað hakk 1 kg 959KR/PK ÁÐUR: 1.598 KR/PK -40% KalkúnaleggirLausfrystir 359KR/KG ÁÐUR: 898 KR/KG Helgin byrjar í Nettó -50% -60% Tilboðin gilda 21. - 24. febrúar 2019 Mesta framboð á flugsætum verður til og frá Kaupmannahöfn að því er fram kemur í ferðaáætlunum flugfélaganna sem fljúga um Kefla- víkurflugvöll á komandi sumri sem kynnt var í gær. Framboð á sætum til og frá Kaupmannahöfn eykst um níu prósent frá því sem var í fyrra. Heildarframboð á flugsætum minnkar þó – fer úr 7,9 milljón flugsætum á sumaráætlun í fyrra niður í 7,1 milljón flugsæta í ár. Það er samdráttur upp á tíu prósent. Hafa ber þó í huga að þessi flugáætlun, sem og aðrar, geta tekið breytingum hjá flugfélögunum. Þessar tölur gilda fyrir tímabilið apríl til október 2019 og gildir samanburðurinn fyrir sama tímabil í fyrra. Sumartíma- bilið samkvæmt skilgreiningu Alþjóðasamtaka flug- félaga, IATA (International Air Tran- sport Association), nær frá lok mars ár hvert til loka októbermánaðar. Icelandair áformar að auka sæta- framboð sitt yfir sumartímann um 14% nú í ár frá því sem var í fyrra. Áætlanir gera ráð fyrir að framboð sæta hjá WOW air dragist saman um 44%. Hjá öðrum flugfélögum sem fljúga um Keflavíkurflugvöll verður samanlagt um 4% samdráttur. Mis- munandi er þó hvort félögin eru að minnka sætaframboð eða auka það. Wizz air eykur sætaframboð sitt um 15%, SAS um 22% og Finnair um 10% á meðan easyJet minnkar framboðið um 11%, British Airways um 23% og Norwegian um 14%, samkvæmt tilkynningu Isavia. Samkvæmt áætlunum félaganna fyrir næsta sumar er útlit fyrir að flugsætum til og frá Bandaríkjunum fækki um 29% og til og frá Bretlandi um 22%. Sætaframboð til og frá Þýskalandi eykst hins vegar um 10%, til og frá Noregi og Sviss um 16% og Kanada um 18%. Helsta skýringin á minna framboði bandarískra flug- sæta er fækkun áfangastaða í Banda- ríkjunum og færri flugsæti til og frá Bretlandi geta skýrst af minna sætaframboði hjá bæði easyJet og British Airways í sumar. Sætaframboð eykst á leiðum til og frá Kaupmannahöfn, eða um 9% milli ára. Þá eykst framboðið um 16% til og frá Ósló. Það dregst saman um 18% til og frá JFK-flugvelli í New York og um 9% til og frá París. Lokun skapi tæki- færi fyrir aðra „Stjórn Reykjaneshafnar skilur ákvörðun Síldarvinnslunnar hf. um að hætta starfsemi fiskimjöls- verksmiðunnar í Helguvík enda hafa rekstrarforsendur verksmiðjunnar verið mjög veikar undanfarin ár. Fiskimjölsverksmiðjan hefur verið rekin í Helguvík í rúm 20 ár í góðu samstarfi milli aðila og er eftir- sjá í þeim viðskiptum. Er það von stjórnarinnar að sú aðstaða sem losnar í Helguvík við þessa ákvörðun skapi þar með tækifæri fyrir aðila sem vilja hefja rekstur sem tengist hafnaraðstöðu.“ Þetta kemur fram í bókun stjórnar Reykjaneshafnar vegna þeirra tíðinda að Síldarvinnslan muni hætta starf- semi fiskimjölsverksmiðju fyrirtækis- ins við Helguvíkurhöfn á komandi vormánuðum. 10% SAMDRÁTTUR Á KEFLAVÍKURFLUGVELLI Sköpunarsaga á vegg Listasafns Reykjanesbæjar Listasafn Reykjanesbæjar hefur opnað sýningu á verkum Guðjóns Ketilssonar í listasal Duus Safna- húsa. Á sýningunni er meðal annars stórt verk sem byggt er á sköpunar- sögu gamla testamentisins. Verkið er málað á vegg safnsins og þess bíða þau örlög að málað verður aftur yfir verkið. Mikil vinna liggur að baki verkinu en glöggir geta lesið sköpunarsöguna sem skrifuð er í verkið. Nánar er fjallað um opnun sýninga í Duus Safnahúsum á vf.is og í Suðurnesjamagasíni. Knattspyrnukonur framtíðarinnar Um 500 stúlkur á aldrinum sjö til tólf ára tóku þátt í Keflavíkurmóti geoSilica sem fram fór í Reykjaneshöll um síðustu helgi. Á mótinu mátti sjá góð tilþrif og ljóst að þarna voru örugglega margar af knattspyrnukonum framtíðarinnar. Í blaðinu í dag eru fleiri myndir frá mótinu en hér að ofan má sjá Njarðvíkinga taka nokkrar teygjur áður en flautað var til leiks. fimmtudagur 21. febrúar 2019 // 8. tbl. // 40. árg. S T Æ R S T A F R É T T A - O G A U G L Ý S I N G A B L A Ð I Ð Á S U Ð U R N E S J U M ■ A Ð A L S Í M A N Ú M E R 4 2 1 0 0 0 0 ■ A U G L Ý S I N G A S Í M I N N 4 2 1 0 0 0 1 ■ F R É T T A S Í M I N N 4 2 1 0 0 0 2

x

Víkurfréttir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.