Víkurfréttir - 21.02.2019, Page 1
Háhraða internet og hágæða sjónvarp
EKKERT LÍNUGJALD, FRÍR ROUTER
ENGIR AUKAREIKNINGAR
Kapalvæðing • Hafnargata 21 • 421 4688 • kv@kv.is
www.kv.is • www.facebook.com/kapalvaeding
frá 6.560 Kr/mán.
Ráðgjöf og förðun
22. febrúar kl. 12-18, ráðgjöf
23. febrúar kl. 11-17, ráðgjöf og förðun
20%
afsláttur
Lya Reykjanesbæ, tímapantanir í förðun í síma 421 6565.
Appelsínur
129KR/KG
ÁÐUR: 258 KR/KG
Blandað hakk
1 kg
959KR/PK
ÁÐUR: 1.598 KR/PK
-40% KalkúnaleggirLausfrystir
359KR/KG
ÁÐUR: 898 KR/KG
Helgin byrjar í Nettó
-50%
-60%
Tilboðin gilda 21. - 24. febrúar 2019
Mesta framboð á flugsætum verður til og frá Kaupmannahöfn að því
er fram kemur í ferðaáætlunum flugfélaganna sem fljúga um Kefla-
víkurflugvöll á komandi sumri sem kynnt var í gær. Framboð á sætum
til og frá Kaupmannahöfn eykst um níu prósent frá því sem var í fyrra.
Heildarframboð á flugsætum minnkar þó – fer úr 7,9 milljón flugsætum
á sumaráætlun í fyrra niður í 7,1 milljón flugsæta í ár. Það er samdráttur
upp á tíu prósent. Hafa ber þó í huga að þessi flugáætlun, sem og aðrar,
geta tekið breytingum hjá flugfélögunum.
Þessar tölur gilda
fyrir tímabilið
apríl til október
2019 og gildir
samanburðurinn
fyrir sama tímabil
í fyrra. Sumartíma-
bilið samkvæmt
skilgreiningu Alþjóðasamtaka flug-
félaga, IATA (International Air Tran-
sport Association), nær frá lok mars
ár hvert til loka októbermánaðar.
Icelandair áformar að auka sæta-
framboð sitt yfir sumartímann um
14% nú í ár frá því sem var í fyrra.
Áætlanir gera ráð fyrir að framboð
sæta hjá WOW air dragist saman um
44%. Hjá öðrum flugfélögum sem
fljúga um Keflavíkurflugvöll verður
samanlagt um 4% samdráttur. Mis-
munandi er þó hvort félögin eru að
minnka sætaframboð eða auka það.
Wizz air eykur sætaframboð sitt
um 15%, SAS um 22% og Finnair
um 10% á meðan easyJet minnkar
framboðið um 11%, British Airways
um 23% og Norwegian um 14%,
samkvæmt tilkynningu Isavia.
Samkvæmt áætlunum félaganna
fyrir næsta sumar er útlit fyrir að
flugsætum til og frá Bandaríkjunum
fækki um 29% og til og frá Bretlandi
um 22%. Sætaframboð til og frá
Þýskalandi eykst hins vegar um 10%,
til og frá Noregi og Sviss um 16% og
Kanada um 18%. Helsta skýringin á
minna framboði bandarískra flug-
sæta er fækkun áfangastaða í Banda-
ríkjunum og færri flugsæti til og
frá Bretlandi geta skýrst af minna
sætaframboði hjá bæði easyJet og
British Airways í sumar.
Sætaframboð eykst á leiðum til og
frá Kaupmannahöfn, eða um 9%
milli ára. Þá eykst framboðið um
16% til og frá Ósló. Það dregst saman
um 18% til og frá JFK-flugvelli í New
York og um 9% til og frá París.
Lokun skapi tæki-
færi fyrir aðra
„Stjórn Reykjaneshafnar skilur
ákvörðun Síldarvinnslunnar hf.
um að hætta starfsemi fiskimjöls-
verksmiðunnar í Helguvík enda hafa
rekstrarforsendur verksmiðjunnar
verið mjög veikar undanfarin ár.
Fiskimjölsverksmiðjan hefur verið
rekin í Helguvík í rúm 20 ár í góðu
samstarfi milli aðila og er eftir-
sjá í þeim viðskiptum. Er það von
stjórnarinnar að sú aðstaða sem
losnar í Helguvík við þessa ákvörðun
skapi þar með tækifæri fyrir aðila
sem vilja hefja rekstur sem tengist
hafnaraðstöðu.“
Þetta kemur fram í bókun stjórnar
Reykjaneshafnar vegna þeirra tíðinda
að Síldarvinnslan muni hætta starf-
semi fiskimjölsverksmiðju fyrirtækis-
ins við Helguvíkurhöfn á komandi
vormánuðum.
10% SAMDRÁTTUR Á
KEFLAVÍKURFLUGVELLI
Sköpunarsaga á
vegg Listasafns
Reykjanesbæjar
Listasafn Reykjanesbæjar hefur
opnað sýningu á verkum Guðjóns
Ketilssonar í listasal Duus Safna-
húsa. Á sýningunni er meðal annars
stórt verk sem byggt er á sköpunar-
sögu gamla testamentisins. Verkið
er málað á vegg safnsins og þess bíða
þau örlög að málað verður aftur
yfir verkið. Mikil vinna liggur að
baki verkinu en glöggir geta lesið
sköpunarsöguna sem skrifuð er í
verkið. Nánar er fjallað um opnun
sýninga í Duus Safnahúsum á vf.is
og í Suðurnesjamagasíni.
Knattspyrnukonur framtíðarinnar
Um 500 stúlkur á aldrinum sjö til tólf ára tóku þátt í Keflavíkurmóti geoSilica sem fram
fór í Reykjaneshöll um síðustu helgi. Á mótinu mátti sjá góð tilþrif og ljóst að þarna voru
örugglega margar af knattspyrnukonum framtíðarinnar. Í blaðinu í dag eru fleiri myndir frá
mótinu en hér að ofan má sjá Njarðvíkinga taka nokkrar teygjur áður en flautað var til leiks.
fimmtudagur 21. febrúar 2019 // 8. tbl. // 40. árg.
S T Æ R S T A F R É T T A - O G A U G L Ý S I N G A B L A Ð I Ð Á S U Ð U R N E S J U M ■ A Ð A L S Í M A N Ú M E R 4 2 1 0 0 0 0 ■ A U G L Ý S I N G A S Í M I N N 4 2 1 0 0 0 1 ■ F R É T T A S Í M I N N 4 2 1 0 0 0 2