Víkurfréttir


Víkurfréttir - 21.02.2019, Qupperneq 11

Víkurfréttir - 21.02.2019, Qupperneq 11
11FRÉTTIR Á SUÐURNESJUM f immtudagur 21. febrúar 2019 // 8. tbl. // 40. árg. Verið velkomin á samkomu alla sunnudaga kl. 11.00 Hvítasunnu- kirkjan í Keflavík, Hafnargötu 84   Bílaviðgerðir Smurþjónusta    Varahlutir Brekkustíg 38 - 260 Njarðvík sími 421 7979 www.bilarogpartar.is Sóley Sigurjóns GK aflahæsti ísfisks- togari landsins í febrúar „Mikið gaman, mikið fjör“, segir einhvers staðar. Þannig er það búið að vera nú í vikunni í Grindavík og Sandgerði því mjög vel hefur veiðst og bátar koma með fullfermi í land, þó aðallega neta- og dragnótabátarnir. Ennþá eru þrír minni línubátar á veiðum skammt utan við Þjórsárs- ósa, þeir Von GK sem hefur landað 81,5 tonni í átta róðrum og mest 14 tonn í róðri. Bergur Vigfús GK sem er með 38,3 tonn í sex og mest 10,7 tonn og Beta GK sem er með 25 tonn í fjórum róðrum og mest 10,1 tonn. Hinir línubátarnir hafa líka fiskað vel og má segja að þeir skiptist í tvo hópa. Annar hópurinn er á veiðum utan við Grindavík og landar þar og hinn hópurinn er á veiðum utan við Sandgerði og landar þar. Ef litið er til Grindavíkur þá er t.d. Sævík GK með 80 tonn í níu róðrum og mest 14,5 tonn. Dúddi Gísla GK 49 tonn í sjö og mest 10 tonn. Gísli Súrsson GK 80 tonn í sjö. Ef litið er til Sandgerðis þá er t.d. Dóri GK 58 tonn í níu, Daðey GK 57 tonn í tíu. Addi Afi GK 18,5 tonn í sex róðrum, Guðrún Petrína GK 14,6 tonn í fjórum, Birta Dís GK 9,3 tonn í þremur og Ölli Krókur GK 3,8 tonn í þremur. Haf- dís SU 62 tonn í átta og Hulda GK 63 tonn í átta. Þess má geta að Hulda GK kom til Sandgerðis með öll kör full um daginn og eftir endurvigtun þá var aflinn 12,6 tonn. Blautt úr bátnum þá var aflinn um 16,5 tonn. Sjá má myndband af Huldu GK koma til lands inn á Youtube-rásinni Icel- andlukka, sem er í eigu þess sem skrifar þennan pistil. Sóley Sigurjóns GK hefur fiskað vel í trollið og landað 425 tonnum í fjórum löndunum og er þegar þetta er skrifað aflahæsti ísfiskstogari landsins í febrúar. Berglín GK er með 177 tonn í tveimur róðrum. Fyrst við erum kominn í togarana þá erum við komin í Nesfisksflotann en í Sandgerði hafa dragnótabátarnir þeirra mokveitt. Benni Sæm GK er með 113 tonn í ellefu róðrum og þar af kom báturinn með 25,6 tonn í land í einni löndun eftir aðeins tvö köst. Í fyrra kastinu fengust 20 tonn og um 6 tonn í því seinna. Siggi Bjarna GK er með 107 tonn í ellefu róðrum og mest 21 tonn. Sigurfari GK 76 tonn í átta og mest 29,4 tonn. Aðalbjörg RE 41 tonn í sex róðrum og mest 10 tonn. Öfugt við hina bátana þá reyna áhafnarmeðlimir Aðalbjargar RE að veiða kola og eru því með lítinn hluta af þorski í aflanum, en þó hefur það gengið brösuglega að losna við þorskinn því mjög margt hefur verið af honum á miðunum sem þeir eru á, dragnótabátarnir. Þess má geta að á þessum dragnóta- miðum sem bátarnir eru á, sem er undir Hafnarbjarginu á stað sem kallast Hafnarleir, hefur Hásteinn ÁR verið að veiðum. Hásteinn ÁR er að fiska í sig, eins og það kallast, og landar öllum sínum afla í Þor- lákshöfn. Þá eru það netabátarnir. Mikið mok hefur verið hjá þeim og Erling KE færði sig skammt utan við Grinda- vík og hefur landað þar. Erling KE er kominn með 231 tonn í þrettán róðrum, af þessum afla eru þrjár landanir í Grindavík. Grímsnes GK er með 111 tonn í tólf róðrum, Maron GK 81 tonn í tólf, Halldór Afi GK 38 tonn í tíu. Bergvík GK 37 tonn í níu og Þorsteinn ÞH, sem er elsti eikar- báturinn sem er gerður út. Báturinn var smíðaður árið 1946 og hefur heitið Þorsteinn alla sína lífstíð. Fyrst sem Þorsteinn EA 15, en árið 1956 var báturinn seldur til Grindavíkur og fékk þar nafnið Þorsteinn GK 15. Árið 1972 þá var báturinn svo seldur til Raufar- hafnar en hélt þar sínu nafni og númeri. Það var ekki fyrr enn árið 2013 sem báturinn fékk númerið og skráninguna Þorsteinn ÞH 115, sem hann hefur í dag. Nokkur kvóti er á bátnum og er hann núna á vertíðinni að veiða kvóta sinn og leggur upp hjá Hólmgrími sem ansi oft hefur verið minnst á hér í þessum pistlum. Þessi gamli bátur, sem er alger mubla að sjá, kom til Sandgerðis með um 17 tonn í sínum fyrsta túr eftir aðeins fimm trossur. Öll kör voru kjaftfull þegar í land kom. Í þremur róðrum þá landaði hann um 35 tonnum. Þess má geta að inn á Youtube-rás- inni Icelandlukka má finna mynd- band af Þorsteini ÞH koma til hafnar í Sandgerðis. Munið bara að gerast áskrifendur að þeirri rás. AFLAFRÉTTIR Á SUÐURNESJUM Gísli Reynisson gisli@aflafrettir.is AFLA FRÉTTIR Samþykkt með tilvitnuðum fyrirvara bæjarstjórnar Verkís ehf. hefur óskað eftir því fyrir hönd Stakksbergs ehf. að skipu- lags- og matslýsing frá 30. janúar 2019 verði tekin til meðferðar hjá bæjaryfirvöldum í Reykjanesbæ. Jafnframt er óskað eftir heimild til að vinna deiliskipulagsbreytingu í samræmi við skipulags- og mats- lýsinguna. Bæjarstjórn Reykjanesbæjar féllst á það, á fundi sínum þann 22. janúar síðastliðinn, „fyrir sitt leyti á að Stakksberg ehf. hefji vinnu við skipulags- og matslýs- ingu og deiliskipulagsbreytingu í samræmi við beiðni þeirra þar að lútandi. Það skal þó áréttað að Reykjanesbær hefur skipulagsvald á svæðinu og tekur skipulagstil- lögur fyrirtækisins til afgreiðslu þegar málsmeðferð skv. lögum er lokið. Þar áskilur sveitarfélagið sér rétt til að hafna tillögunum, enda byggi sú ákvörðun á lögmætum sjónarmiðum.“ Á fundi Umhverfis- og skipulags- ráðs Reykjanesbæjar þann 15. febrúar var erindið samþykkt með tilvitnuðum fyrirvara bæjar- stjórnar. Gunnar Felix Rúnarsson full- trúi Miðflokksins bókar: „Mið- flokkurinn hafnar sem fyrr upp- byggingu/endurræsingu kísilverk- smiðjunnar í Helguvík. Slíkt er þvert gegn vilja meginþorra íbúa Reykjanesbæjar. Einnig skal á það minnt að slík andstaða er við málið að nú þegar hafa andstæðingar verksmiðjunnar skilað inn undir- skriftarlistum með lögbundnu lág- marki íbúa til að knýja fram íbú- akosningu. Fulltrúi Miðflokksins setur sig alfarið upp á móti þessari tillögu að breyta deiliskipulagi á þessu svæði.“ Engin kísilversskoð- unarferð framundan „Þetta er hefðbundin vinnu- ferð til vinabæjar okkar þar sem starfsmönnum gefst kostur á að fræðast um hin ýmsu samfélagsverkefni sem efst eru á baugi hverju sinni. Hér er um að ræða sameiningu sveitarfélaga, fræðslu- og velferðarmál, ferðaþjónustu og atvinnumál sem og rekstur sveitarfélaga. Það er mikil einföldun að halda því fram að hér sé um sérstaka ferð starfsmanna til að skoða kísilver í Noregi,“ sagði Friðjón Einarsson, formaður bæjar- ráðs Reykjanesbæjar, en í síðasta tölublaði Víkurfrétta kom fram að Margrét Þórarinsdóttir, bæjar- fulltrúi Miðflokksins, gagnrýndi í bókun á bæjarstjórnarfundi það fjáraustur bæjarins að senda átta fulltrúa Reykja- nesbæjar til vinabæjarins Kristiansand í lok maí. „Nýverið samþykkti meiri- hluti bæjarstjórnar Reykja- nesbæjar áskorun til lögaðila, sem hyggjast byggja kísilver í Helguvík, um að hætta við þau verk- efni. Það væri því ansi skondið að á sama tíma værum við svo að senda sendinefnd til að skoða kísilver. Þessi bókun Miðflokksins er því varla svara- verð og eingöngu ætluð til að koma Miðflokknum á forsíðu dagblaða enda óskaði bæjarfulltrúinn engra upp- lýsinga um málið áður en umrædd bókun var sett fram.“ Konudagur 2019 Spennandi tilboð alla helgina Max’s Restaurant & Aurora Floating Northern Light inn · Norðurljósavegi · 240 Grindavík Hafðu samband í síma 426-8650 eða kíktu á Facebook síðuna okkar

x

Víkurfréttir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.