Víkurfréttir


Víkurfréttir - 21.02.2019, Síða 12

Víkurfréttir - 21.02.2019, Síða 12
12 UMRÆÐAN Á SUÐURNESJUM f immtudagur 21. febrúar 2019 // 8. tbl. // 40. árg. NENNI EKKI FÉSBÓKARVÆLI! Eitthvað virðast lokaorð mín í Víkurfréttum í vikunni hafa snert háttvirtan þingmann Oddnýju Harðar- dóttur illa. Bara að minnast á Klausturbarinn þykir skammarlegt. Við skulum alveg hafa það á hreinu að Klausturbarinn sjálfur er bara ljómandi góður staður þó umræða ónefndra þingmanna á staðnum í nóvember síðastliðnum hafi verið þeim illa sæmandi. Eins og venja er í dag þá þykir best að svara fyrir sig á Fésbókinni. Ég nenni illa svoleiðis en ég er þakklátur Odd- nýju fyrir að láta í sér heyra, svara mér fullum hálsi og bjóða til fundar við Samfylkinguna. Ég hef hrifist af málflutningi bæjar- stjóra Reykjanesbæjar, Kjartans Más Kjartanssonar, þar sem ítrekað hefur verið bent á að Suðurnesjamenn sitja aftast á merinni í fjárveitingum ríkis- valdsins. Það er ólíðandi. Um leið og ég þakka Oddnýju fyrir heimboðið til Samfylkingarinnar þá vil ég einnig að íbúar á Suðurnesjum fái að njóta umræðunnar og legg til að Oddný og aðrir þingmenn Suðurkjör- dæmis mæti til opins borgarafundar í Reykjanesbæ. Þar geti sveitar- stjórnarmenn og almenningur fengið að spyrja þingmenn spjör- unum úr. Það er tími til kominn að þingmenn okkar svæðis fari að vinna saman að hag Suðurnesja, óháð flokkadráttum. Ég geri ráð fyrir að Ásmundur, Birgir, Silja, Vilhjálmur og aðrir þingmenn svæðisins mæti vinnuveitendum sínum, sem oft eru kallaðir kjós- endur, augliti til auglitis og geri grein fyrir sínum málum. Það er óásættanlegt að Suður- nesin séu í einhverjum ruslflokki í landsmálapólitíkinni. Því ætlum við að breyta, helst ekki seinna en strax! Bæjarstjóri Reykjanesbæjar skipu- leggi fundartíma og staðsetningu. Áfram Suðurnes. Margeir Vilhjálmsson Íþrótta- og tómstundastefna Reykjanesbæjar Öll börn og ungmenni eiga að fá tækifæri til að stunda skipulagt íþrótta- starf undir leiðsögn þjálfara og stunda íþróttir óháð fjölskylduaðstæðum. Einnig er mikilvægt að börn kynnist fjölbreyttum íþróttagreinum og þau hvött til frumkvæðis og virkrar þátttöku. Hlutverk foreldra er líka afar mikilvægt. Stuðningur, hvatning og aðhald er undirstaðan sem þau þurfa til að blómstra og þessi nálgun er talin hafa jákvæð áhrif á þroska barnsins. Æfingatími barna er mis- jafn og er mikilvægt að íþróttir og tómstundir miði við hefðbundið skólastarf hjá börnum. Dagarnir eru oft langir og samþætting skóla og íþróttastarfs er eitthvað sem þarf að skoða í þeirri stefnumótunarvinnu sem er framundan. Það eru ekki allir foreldrar í þeirri aðstöðu að geta skutlað á æfingu á vinnutíma og margir óska eftir því að frístundaskólinn bjóði upp á þessa þjónustu. Það er mikilvægt að skoða samþættingu skóla- og íþróttastarfs og létta þannig undir því álagi sem foreldrar glíma við. Þarna erum við aftur komin að þeim punkti að börn geti stundað íþróttir óháð fjölskylduaðstæðum. Á næstu mánuðum er umfangsmikil stefnumót- unarvinna að fara af stað og mun íþrótta- og tóm- stundaráð leggja mikla áherslu á að vinna saman, þvert á alla flokka, vinna sem heild og umfram allt gera þarfa- greiningu í takt við þær breytingar sem hafa átt sér stað á síðastliðnum árum. Við munum vinna með íþrótta- félögunum og fá álit fagmanna á þessu sviði. Uppi eru óskir um bætta æfingaað- stöðu fyrir knattspyrnuiðkun, bæði í Keflavík og Njarðvík, framtíðarað- stöðu fyrir körfuknattleik hjá UMFN, stuðning við innra starf félaganna og þannig mætti lengi telja. Vænlegast til árangurs er að leggja ekki af stað í langferð nema að undirbúningurinn sé góður og allar forsendur á hreinu, þannig viljum við vinna. Í lokin verður afurðin heildstæð íþrótta- og tóm- stundastefna Reykjanesbæjar sem inniheldur framtíðarsýn um upp- byggingu íþróttamannvirkja í bæjar- félaginu. Eva Stefánsdóttir, formaður íþrótta- og tómstundaráðs Reykjanesbæjar Rótarýsjóðurinn er kraftur Rótarýhreyfingarinnar Rótarýhreyfingin, sem hófst með fjórum mönnum fyrir 114 árum í Chi- cago, hefur látið gott af sér leiða mörgum til gagns. Rótarýsjóðurinn eða „Rotary Foundation“ er tæki hreyfingarinnar til þess að koma góðum verkum í framkvæmd. Sjóðurinn var stofnaður 1917, fyrir meira en einni öld. Hann var ekki burðugur framan af en það breyttist smám saman og nú er Rótarýsjóðurinn orðinn afar öflugur. Hann styður og hefur stutt mörg verkefni víða um heim. Stærsta verkefni hans er, og hefur verið síðan 1985, að útrýma lömunarveiki af jörðinni. Nú er svo komið að mjög fá tilfelli greinast árlega. En þegar verkið hófst dóu þúsundir barna víða um heim og enn fleiri urðu örkumla, lömuð fyrir lífstíð. Nú þegar hillir undir endalok þessa hræðilega sjúkdóms er svo komið að fæstir Íslendingar muna eftir lömunar- veikinni og afleiðingum hennar. En baráttunni lýkur ekki fyrr en staðfest er að ekki hafi greinst fleiri tilfelli lömunarveiki eða „Polio“. Þau voru 32 árið 2018 en þrjú hafa greinst í ár. Verkefnið ber heitið „Polio Plus“. En Rótarýsjóðurinn hefur haft mörg járn í eldinum og hefur enn. Margir Íslendingar hafa notið veg- legra skólastyrkja til meistarnáms á háskólastigi. Enn fleiri hafa notið þess að fá tækifæri til þess að ferðast til landa víða um heim og kynna sér hvernig störf þeirra eru unnin í öðrum löndum. Þetta hafa verið ferðir fámennra hópa undir stjórn reynds Rótarýfélaga. Rótarýsjóðurinn hefur unnið að verkefnum eins og að grafa brunna í Afríku og víðar og frelsað konur, einkum ungar stúlkur, frá þeirri kvöð að sækja vatn langar leiðir á hverjum degi. Sjóðurinn hefur styrkt atvinnurekstur kvenna í fá- tækari löndum og veitt smálán til þess að koma konum af stað í eigin rekstri. Rótarýsjóðurinn hefur styrkt skóla- starf víða í Afríku og Asíu. Það er afar mikilvægt að styðja menntun, einkum ungra stúlkna sem ella eiga ekki kost á henni. Markmið Rotary Foundation er að láta gott af sér leiða, „Doing Good In The World“. Upphafið var 26,5 dollara framlag Rótarýklúbbs Kansas City að undirlagi Arch T. Klumph 1917. Sjóðurinn hefur vaxið síðan og er nú viðurkenndur einn best rekni góðgerðasjóður í heimi. „The Association of Fundrais- ing Professionals“ útnefndi sjóðinn sem framúrskarandi árið 2017. Sú viðurkenning er mikils virði. Nánast hver króna eða dollari sem gefinn er til sjóðsins rennur beint til þeirra verkefna sem honum er ætlað að sinna. Stór hluti af þeim árangri stafar af því að Rótarýfélagar sjá um að féð nýtist og aðkoma þeirra er sjálfboðaliðastarf. Það er ekki greitt fyrir vinnu við að koma verkefnum í gagnið og gang. Þúsundir Rótarý- félaga víða um heim hafa bólusett börn gegn lömunarveiki. Fyrir hvern dollara sem Rótarý leggur til Polio Plus veitir sjóður Bill og Melindu Gates tvo til sjóðsins. Það sýnir mikið traust þeirra á „Rotary Foundation“. Íslenskir Rótarýfélagar hafa veitt meira en einni milljón dollara til sjóðsins á undanförnum áratugum. Þess má geta að Rótarýklúbbur Keflavíkur hefur verið einn öflugasti klúbburinn þegar kemur að fram- lögum til sjóðsins frá Íslandi og sum árin sá allra öflugasti. Markmið „The Rotary Foundation“, sem við nefnum gjarnan sjóðinn okkar, er að gera Rótarýfélögum kleift að efla skilning manna á meðal, góðvild og frið með því að stuðla að bættri heilsu, stuðningi við menntun og útrýmingu fátæktar. Ólafur Helgi Kjartansson, félagi í Rótarýklúbbi Keflavíkur Árangur hefur náðst! Hávær umræða hefur verið um hve ójöfn fjárframlög til opinberra stofnanna á Suðurnesjum séu miðuð við stofnanir víða annars staðar. Málið höfum við þingmenn kjördæmisins rætt á reglulegum samráðs- fundum með Félagi atvinnurekanda á Reykjanesi (SAR) og sveitarstjórnafulltrúum. Samband sveitar- félaga á Suðurnesjum (SSS) tók þetta mál föstum tökum með því að láta óháðan aðila gera skýrslu um málið sem hefur verið markvisst kynnt fyrir ráðu- neytum, stofnunum og þingmönnum. Þessi vinna hefur nú þegar skilað sér vel sem góður stuðningur við þá vinnu sem við þingmenn svæðisins höfum verið að vinna að undanfarin ár. Verkefnin eru mörg og hefur gengið misvel að koma þeim áfram. Góður árangur hefur náðst í mörgum málum og með framtaki SSS hefur komist aukinn kraftur í önnur mál. Hægt væri að skrifa heila grein um hvert mála um sig en mig langar að nefna nokkur þeirra hér til upp- lýsingar. Áfangasigrar hafa náðst á Reykja- nesbrautinni með nýjum hring- torgum, mislægum gatnamótum við Krísuvíkurgatnamótin og nú er í útboði aðskilnaður akstursstefna inni í Hafnafirði. Allt eykur þetta um- ferðaröryggi okkar sem hér búum en lokum framkvæmda þarf að flýta enn frekar. Framkvæmdir við endurbætur á Grindavíkurvegi eru komnar af stað og hefur viðhald á helstu leiðum á Reykjanesinu verið stórbætt. Áherslur í fjármálaáætlun og byggða- áætlun um að meðhöndla Suðurnes sem vaxtarsvæði hefur skilað sér, til að mynda með auknum skilningi á stöðu heilbrigðisstofnunarinnar. Samskipti okkar við heilbrigðis- ráðherra eru góð og finnum við fyrir skilningi á því aukna álagi sem sú fjölbreytta íbúafjölgun og aukni ferðamannastraumur hefur á stofnunina. Aðbúnaður og fjárfram- lög Lögreglunnar á Suðurnesjum hafa verið stórbætt og umfram önnur lögregluembætti. Endurskoðun á málefnum Kadeco eru langt komin í fjármálaráðuneyt- inu í samstarfi við sveitarfélögin og Isavia. Þar hefur, að mínu mati, hjálpað mikið til að heimamenn eru í forsvari stjórnarinnar og félags- ins sjálfs. Gangi þær fyrirætlanir eftir munu mörg tækifæri skapast til uppbyggingar á fjölbreyttari at- vinnustarfsemi og markaðssetn- ingu á svæðinu fyrir verðmætari störf. Ég hef þá trú að þessi vinna hafi skilað auknum skilningi ríkis- valdsins á þeirri innviðaþörf sem hér er til staðar og hvað þarf til svo tækifærin sem okkar öfluga svæði hefur verði nýtt. Fjármagn hefur verið tryggt til að hefja uppbyggingu á félagsaðstöðu við Fjölbrautaskóla Suðurnesja og hefst sú vinna vonandi fljótlega. Það hefur tekið ótrúlega langan tíma að fá fjármagnið en nú sér vonandi fyrir endann á því. Málefni Keilis hafa mörg hver verið leyst og er gaman að fylgjast með eflingu þess skóla rétt eins og Fisktækniskólans í Grindavík eftir að hann fékk þjónustusamning. Velferðarnefnd Alþingis ræðir mál- efni eldri borgara þessa dagana og eru hjúkrunarheimilismálin alltaf á dagskrá, m.a. undirbúningur við fjölgun hjúkrunarrýma í Reykja- nesbæ. Þar þarf að móta stefnu á landsvísu sem tryggir sem besta þjónustu fyrir eldri borgara um land allt með það að markmiði að þeir hafi sem lengst val um búsetu og þjónustu. Skipulag markaðsstofanna hefur verið til endurskoðunar innan Ferða- málastofu og var þá gengið á hlut Markaðsstofu Suðurnesja vegna nálægðar við flugvöllinn. Ferða- málaráðherra tók ekki undir þessa nálgun og varð því ekki af samdrætti hjá markaðsstofunni. Því er ekki að leyna að málflutningi okkar um skert framlög til Suður- nesja er misvel tekið innan kerfisins og er okkur svarað með ýmsum rökum en í þingnefndum Alþingis finnst mér okkur vel tekið. Aðrir benda svo öfundaraugum á okkur vegna þeirra miklu uppbyggingar sem á sér stað á vegum Isavia, fé- lags í opinberri eigu. Við þingmenn kjördæmisins erum samhent í því að fylgja málum áfram fast eftir í þágu Suðurnesja. Vilhjálmur Árnason, þingmaður Sjálfstæðisflokksins. Störf í boði Algalíf leitar að starfsmönnum í mötuneyti sitt og þrif í verksmiðju og á starfsmannaaðstöðu. Algalíf er lifandi og skemmtilegur vinnustaður með um 30 manns í vinnu. Helstu verkefni og ábyrgð: • Undirbúningur fyrir og eftir mat • Uppþvottur og almenn þrif • Þrif á skrifstofu, verksmiðju og starfsmannaaðstöðu Hæfnikröfur: • Lipurð í mannlegum samskiptum • Frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð • Snyrtimennska og stundvísi • Enska skilyrði Um er að ræða 80-100% störf. Umsóknarfrestur er til og með 28. febrúar 2019 Ferilskrá sendist á clara@algalif.com merkt „mötuneyti“

x

Víkurfréttir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.