Fréttablaðið - 03.05.2019, Page 1
— M E S T L E S N A DAG B L A Ð Á Í S L A N D I * —1 0 1 . T Ö L U B L A Ð 1 9 . Á R G A N G U R F Ö S T U D A G U R 3 . M A Í 2 0 1 9
Fréttablaðið í dag
SKOÐUN Þórlind
ur Kjartansson
skrifar um lyga
laupa. 11
SPORT Sunna
Davíðsdóttir snýr
aftur inn í
búrið í kvöld
eftir langa
fjarveru. 18
TÍMAMÓT
Er að verða hundgamall segir
Gunnar Guðmundsson sem
verður sjötugur í dag. 16
MENNING Bæng! er þriggja
stjörnu leikrit. 20
LÍFIÐ Glæsileg tískusýning
útskriftarnema. 24
PLÚS SÉRBLAÐ l FÓLK
*Samkvæmt prentmiðlakönnun Gallup apríl-júní 2015
1x
Brennari kW/h
3,51 3x
Brennarar kW/h
10,6 3x
Brennarar kW/h
11,0
WEBER
Q-2200F GASGRILL
WEBER
E-310 ORIGINAL GASGRILL
WEBER
S-310 GASGRILL52.995 88.995 129.995
DÓMSMÁL „Greining tónlistar
sérfræðings staðfestir, í ljósi þess
hversu aðgengileg eldri lög eru, að
stefnandi [Jóhann] getur ekki kom
ist nálægt því að sýna fram á mark
Lögmenn hafna fullyrðingum
Jóhanns um stuld á Söknuði
Lögmenn fyrirtækja
sem stefnt er í máli
Jóhanns Helgasonar
vegna meints stuldar á
laginu Söknuði með út-
gáfu á laginu You Raise
Me Up segja bæði lögin
byggð á írsku þjóðlagi.
verð líkindi,“ segja lögmenn banda
rískra fyrirtækja í lagastuldarmáli
Jóhanns Helgasonar vegna laganna
Söknuðar og You Raise Me Up.
Þetta kemur fram í skjali sem lagt
var fyrir alríkisdómstól í Los Angel
es fyrir viku. Eins og fram hefur
komið hefur Jóhann Helgason stefnt
lagahöfundinum Rolf Løvland og
stórfyrirtækjum á borð við Warner
og Universal vegna meints stuldar
á laginu Söknuði frá árinu 1977.
Það hafi verið gert með laginu You
Raise Me Up sem varð heimsfrægt í
f lutningi Josh Groban.
Lögmenn sem fara með málið
fyrir hönd Universal, Warner Bros,
UMG Recordings og Peermusic, Ltd.,
segja að þau smávægilegu tónlistar
legu líkindi sem séu með lögunum
tveimur megi einnig finna í vin
sælum eldri lögum, sérstaklega í
írska þjóðlaginu Danny Boy.
„Jafnvel þótt stefnandi gæti sýnt
fram á að Løvland hafi einhvern
tíma heyrt Söknuð þá væri það ekki
nóg til að setja fram kröfu um laga
stuld þegar markverð líkindi eru
ekki fyrir hendi,“ segja lögmenn
irnir og boða kröfu um frávísun.
Þá setja lögmenn fyrirtækjanna
fram efasemdir um lagið Söknuð.
Segja þeir Jóhann „halda því fram“
að hann hafi samið Söknuð sem
„hafi að sögn“ komið út á Íslandi
árið 1977.
Fram kemur í skjalinu að ekki hafi
tekist að birta Rolf Løvland sjálfum
stefnuna. Lögmaður Jóhanns segir
Løvland í tvígang hafa endursent
stefnuna óundirritaða.
Lögmaður Jóhanns óskar eftir að
kviðdómur verði skipaður í málinu.
Búist er við að réttarhöld verði eftir
um eitt ár. – gar / sjá síðu 6
Ekki hefur tekist að
birta Rolf Løvland stefnu.
Lögmaður Jóhanns segir
Løvland tvisvar hafa endur-
sent stefnuna óundirritaða.
Prúðbúnir nemendur Verzlunarskóla Íslands létu úrhellisrigningu ekki á sig fá og dönsuðu um Ingólfstorg á
árlegum Peysufatadegi. Mikill fjöldi nemenda og áhorfenda var saman kominn í miðborg Reykjavíkur um
hádegisbilið til að berja sýninguna og hin glæsilegu ungmenni augum. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI
Fleiri myndir frá Peysufatadeginum má sjá á +Plús-
síðu Fréttablaðsins. Fréttablaðið +Plús er í Frétta-
blaðs-appinu og PDF-útgáfu á Fréttablaðið.is.+PLÚS
0
3
-0
5
-2
0
1
9
0
8
:3
8
F
B
0
3
2
s
_
P
0
3
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
3
2
s
_
P
0
2
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
3
2
s
_
P
0
0
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
3
2
s
_
P
0
0
8
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
2
E
B
-C
D
4
4
2
2
E
B
-C
C
0
8
2
2
E
B
-C
A
C
C
2
2
E
B
-C
9
9
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
A
F
B
0
3
2
s
_
2
_
5
_
2
0
1
9
C
M
Y
K