Fréttablaðið - 03.05.2019, Qupperneq 4
Fáðu blað dagsins í tölvupósti
kl. 5.00 á morgnana.
Skráðu þig á póstlista Frétta-
blaðsins á www.frettabladid.is/
nyskraning. Það kostar ekkert.
Vertu fyrst/ur
að lesa blaðið
UMHVERFISMÁL Mörg hundruð
sjálf boðaliðar sem tóku þátt í
Stóra plokkdeginum síðastliðinn
sunnudag söfnuðu rusli í nærri
1.500 poka.
Skipuleggjendur segja það sam-
svara sem nemur tíu tonnum af
rusli sem annars hefði legið óhreyft
í íslenskri náttúru.
Samkvæmt talningu vefsíðunnar
Plokkari.is hreinsuðu þátttak-
endur svæði sem nemur um 17,32
ferkílómetrum.
Er bent á í þessu samhengi að
f latarmál Vestmannaeyja er um
17 ferkílómetrar. – smj
Tíndu tíu tonn
FJÖLMIÐLAR Þórhallur Gunnarsson
hefur verið ráðinn framkvæmda-
stjóri Miðla hjá Sýn. Undir Miðla
heyra meðal annars Stöð 2, Stöð 2
Sport, Bylgjan, FM957, Xið977 og
Vísir.
Þórhallur hefur undanfarin sex
ár verið framkvæmdastjóri hjá
Sagafilm. Áður var hann meðal
annars dagskrárstjóri RÚV og rit-
stjóri Kastljóss.
Signý Magnúsdóttir hefur verið
ráðin fjármálastjóri Sýnar. Hún
hefur starfað hjá Deloitte frá 2006
og varð meðeigandi á endurskoð-
unarsviði félagsins 2013.
Miklar breytingar hafa orðið á
stjórnendahópi Sýnar að undan-
förnu en í síðustu viku var Heiðar
Guðjónsson ráðinn forstjóri. – sar
Ráðin til Sýnar
VIÐSKIPTI Isavia þarf ekki að
afhenda bandaríska flugvélaleigu-
salanum ALC farþegaþotu sem
WOW air notaði sem tryggingu.
Þetta kom fram í úrskurði Héraðs-
dóms Reykjavíkur sem féll í gær.
WOW air notaði vélina sem trygg-
ingu fyrir tveggja milljarða króna
skuld flugfélagsins við Isavia.
Odd ur Ástráðsson og Eva B.
Helga dótt ir, lög menn ALC, sögðu
málatilbúnað Isavia valdníðslu þar
sem ekki sé lagaheimild fyrir því að
kyrrsetja eign þriðja aðila. Það hafi
verið einbeittur ásetningur að leyfa
WOW air að safna skuldum þrátt
fyrir að það brjóti í bága við eigin
reglur Isavia. Lagaákvæði loftferða-
laga næði ekki yfir vélina þar sem
ALC hefði umráðin yfir henni.
Hlyn ur Hall dórs son, lögmaður
Isa via, sagði á móti að vélin hefði
verið skráð í umráði WOW air
þegar hún var kyrrsett 28. mars
síðastliðinn af Samgöngustofu.
Skúli Mogensen, þáverandi forstjóri
WOW air, hafi staðfest móttöku á
kröfunni. Stjórn Isavia heimilaði
skuldsetningu WOW air í þeirri
vissu að hún gæti kyrrsett vél.
Í úr sk urðinum seg ir að Isa via sé
heim ilt að kyrrsetja vélina þangað
til búið sé að greiða öll gjöld sem
snúa að vélinni sjálfri, en ekki
öðrum skuldum WOW air við
Isavia. Umrædd gjöld nema 87 millj-
ónum króna, en WOW air skuldaði
greiðslur vegna fjölmargra annarra
flugvéla. Þarf Isavia að sækja afgang
skuldanna í þrotabú WOW air. Lög-
menn ALC hafa tvær vikur til að
kæra úrskurðinn. – ab
Þurfa ekki að afhenda vélina
Vél ALC var kyrrsett vegna skulda WOW air við Isavia. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
mánudaga-föstudaga 7.30 -17.30
laugardaga 8.00 -16.00
sunnudaga 9.00 -16.00
Austurströnd 14 • Hringbraut 35
Fálkagata 18
....................................................Sími: 561 1433
www.bjornsbakari.is
MUNDU EFTIR GÖMLU GÓÐU
AFMÆLISKRINGLUNNI
- fyrir 25-30 manns
PREN
TU
N
.IS
REYK JAVÍK Borgarráð staðfesti í
gær nýjan samning borgarinnar
við Útlendingastofnun um þjón-
ustu við umsækjendur um alþjóð-
lega vernd. Í hinum nýja samningi
er kveðið á um þjónustu við 220
einstaklinga í senn sem er fjölgun
um tuttugu frá síðasta samningi
en fjöldi einstaklinga sem samið
er um við Reykjavíkurborg hefur
verið árviss frá árinu 2015 þegar
samið var um aðstoð við 70 manns
í senn.
Allir f ulltr úar í borgar ráði
studdu bókun um málið að undan-
skildum þeim Mörtu Guðjónsdótt-
ur í Sjálfstæðisflokknum og Vigdísi
Hauksdóttur í Miðf lokknum.
„Málið var samþykkt með öllum
greiddum atkvæðum og var bók-
unin sett fram af borgarráði í heild,
þvert á alla f lokka enda einföld
staðfesting á afgreiðslu málsins.
Tveir fulltrúar kusu að styðja ekki
bókunina,“ segir Hildur Björns-
dóttir borgarfulltrúi Sjálfstæðis-
f lokksins.
Hún segir þjónustuna að mestu
veitta fjölskyldum og borgin hafi
ekki borið kostnað af henni. „Það
hefur verið eindregin skoðun mín
að borginni beri að taka fagnandi
mót fólki sem leitar hingað eftir
betra lífi og tækifæri til að leggja
sitt af mörkum til samfélagsins,”
segir Hildur.
Fréttablaðið hefur heimildir
fyrir því að Marta Guðjónsdóttir,
sem einnig er fulltrúi Sjálfstæðis-
f lokksins í borgarráði, hafi ekki
viljað styðja málið en sjálf segir
hún einhug hafa verið um það.
„Ég studdi málið en bókunin
hefur ekkert með afstöðu í mál-
inu að gera. Á undirbúningsfundi
okkar í Sjálfstæðisf lokknum fyrir
borgarráðsfundinn samþykktum
við einróma að styðja málið en
bóka ekki um það og að sjálfsögðu
ekki að taka undir bókun meiri-
hlutans,“ segir Marta.
Út lend i ng a stof nu n g reiði r
Reykjavíkurborg og öðrum sveit-
arfélögum sem gera samning við
stofnunina fast daggjald fyrir til-
tekinn fjölda óháð því hvort þjón-
ustan er nýtt eða ekki. Þá er greitt
sérstaklega fyrir hvern og einn ein-
stakling umfram þann fjölda. Borg-
in ber því ekki kostnað af þjónustu
við móttöku fólksins.
Borgin sér fólkinu fyrir húsnæði
og fæðisfé, skólavist fyrir börn,
aðgangi að almenningssamgöng-
um, túlkaþjónustu og tómstund-
um, auk margvíslegrar félagslegrar
ráðgjafar. adalheidur@frettabladid.is
Skrifuðu ekki undir bókun
um þjónustu við flóttafólk
Marta Guðjónsdóttir og Vigdís Hauksdóttir tóku ekki undir bókun borgarráðs. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI
Bókun borgarráðs um samninginn
Reykjavíkurborg hefur undan-
farin ár gert samning við Út-
lendingastofnun um þjónustu
við umsækjendur um alþjóðlega
vernd sem er mikilvægur þáttur
í hlutverki stjórnvalda að tryggja
þjónustu við umsækjendur um
alþjóðlega vernd. Reykjavík
gerir nú samning um þjónustu
við 220 einstaklinga í senn sem
er fjölgun frá síðasta ári, hefur
fjölgun verið árleg frá árinu 2015
þegar samningurinn gerði ráð
fyrir 70 einstaklingum. Opið er
á enn frekari fjölgun og er það í
skoðun.
Borgarráð hefur staðfest
samning borgarinnar
við Útlendingastofnun
um þjónustu við skjól-
stæðinga stofnunarinn-
ar. Marta Guðjónsdóttir
og Vigdís Hauksdóttur
sátu einar hjá við af-
greiðslu bókunar.
ÍÞRÓTTIR Lilja Alfreðsdóttir, mennta-
og menningarmálaráðherra, kynnti
í gær nýja íþróttastefnu fyrir tíma-
bilið 2019-2030. Meðal þess sem
áhersla er lögð á er aukið öryggi
innan íþróttahrey f ingar innar,
aðgengi iðkenda og fagmennska.
„Við höfum séð það að börn með
annað móðurmál en íslensku eru
síður líkleg til að taka þátt í skipu-
lögðu íþróttastarfi og eitt af nýmæl-
um stefnunnar er að hvetja til þátt-
töku þeirra á landsvísu,“ segir Lilja.
Allar rannsóknir sýni að börnum,
sem taka þátt í íþróttum, vegni
betur í skóla og líf þeirra verði upp-
byggilegra fyrir vikið. „Svo leggjum
við sérstaka áherslu á að auka enn
frekar menntun þjálfara því Ísland
hefur náð miklum árangri hvað það
varðar.“
Í stefnunni er lagt til að tillögur
starfshóps um aðgerðir til að koma
í veg fyrir kynferðislega og kyn-
bundna áreitni í tengslum við
#metoo verði samþykktar og þeim
framfylgt. Einnig er lögð til breyting
á íþróttalögum varðandi ráðningar
og upplýsingar úr sakaskrá.
Lilja bendir á að stjórnvöld hafi
aukið framlög til íþróttamála en þau
hafi þrefaldast á síðustu níu árum.
Á yfirstandandi ári nemi fram-
lögin 967 milljónum til samninga
og styrkja vegna íþróttamála.
„Við höfum meðal annars verið
að auka framlögin í Afrekssjóð og
Ferðasjóð íþróttafélaganna. Þetta
sýnir skýran vilja stjórnvalda í
þessum efnum og hvað við teljum
íþróttirnar mikilvægar.“
Þá er í stefnunni sett fram mark-
mið um að f jölga tímum sem
tengjast íþróttum og heilsueflingu
í grunn- og framhaldsskólum. – sar
Áhersla á öruggt umhverfi iðkenda
Lilja á kynningarfundinum í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
3 . M A Í 2 0 1 9 F Ö S T U D A G U R4 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
0
3
-0
5
-2
0
1
9
0
8
:3
8
F
B
0
3
2
s
_
P
0
2
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
3
2
s
_
P
0
2
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
3
2
s
_
P
0
0
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
3
2
s
_
P
0
0
5
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
2
E
B
-E
5
F
4
2
2
E
B
-E
4
B
8
2
2
E
B
-E
3
7
C
2
2
E
B
-E
2
4
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
B
F
B
0
3
2
s
_
2
_
5
_
2
0
1
9
C
M
Y
K