Fréttablaðið - 03.05.2019, Side 14
NýjastAllt undir í Vesturbænum annað kvöld
KR náði að knýja fram oddaleik í úrslitum Domino’s-deildar karla með 80-75 sigri á ÍR í Seljaskóla í gærkvöldi. ÍR gat með sigri tryggt sér titilinn í
fyrsta sinn í 42 ár en reynslumikið lið KR lét það ekki á sig fá. KR var með frumkvæðið stærstan hluta leiksins og leiddi eftir alla fjóra leikhlutana
í gærkvöld. Þessi tvö sigursælustu lið íslenska karlakörfuboltans mætast því í hreinum úrslitaleik annað kvöld. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK
ÍBV - Breiðablik 0-2
0-1 Agla María Albertsdóttir (11.), 0-2 Ingi-
björg Lúcía Ragnarsdóttir, sjálfsm. (28.).
Stjarnan - Selfoss 1-0
1-0 Birna Jóhannsdóttir (24.)
.
Fylkir - Keflavík 2-1
1-0 Ída Marín Hermannsdóttir (2.), 1-1
Sveindís Jane Jónsdóttir (3.), 2-1 Marija
Radojicic (52.).
.
HK/Víkingur - KR 1-0
1-0 Þórhildur Þórhallsdóttir (38.)
Pepsi-deild kvenna
1. umferð
ÍR - KR 75-80
ÍR: Kevin Capers 17, Matthías Orri Sigurðar-
son 17, Sigurður Gunnar Þorsteinsson
12, Sigurkarl Róbert Jóhansson 8, Trausti
Eiríksson 7, Gerald Robinson 6, Sæþór Elmar
Kristjánsson 4, Daði Berg Grétarsson 2,
Hákon Örn Hjálmarsson 2.
KR: Kristófer Acox 18, Finnur Atli Magnús-
son 15, Björn Kristjánsson 14, Julian Boyd
12, Michele DiNunno 12, Jón Arnór Stefáns-
son 9.
Staðan í einvíginu er 2-2 og fer því odda-
leikur fram um Íslandsmeistaratitilinn í
DHL-höllinni á laugardaginn.
Domino’s-deild karla
Úrslit
ÍBV - Haukar 32-30
ÍBV: Hákon Daði Styrmisson 8, Gabríel
Martinez Róbertsson 6, Kristján Örn Krist-
jánsson 5, Dagur Arnarsson 5, Fannar Frið-
geirsson 4, Sigurbergur Sveinsson 2, Kári
Kristján Kristjánsson 1, Daníel Örn Griffin 1.
Haukar: Adam Haukur Baumruk 8, Daníel
Þór Ingason 7, Orri Freyr Þorkelsson 5,
Heimir Óli Heimisson 4, Atli Már Báruson
3, Ásgeir Örn Hallgrímsson 2, Halldór Ingi
Jónasson 1.
Staðan í einvíginu er jöfn 1-1 eftir sigur ÍBV.
Vinna þarf þrjá leiki til að komast áfram.
Liðin mætast á ný á sunnudaginn.
Olís-deild karla
Undanúrslit
MMA Bardagakonan Sunna Davíðs-
dóttir, kölluð Sunna Tsunami, snýr
aftur í búrið í kvöld eftir tuttugu
mánaða fjarveru á Phoenix Rising
bardagakvöldinu sem fer fram í
Kansas City. Að baki er barátta við
erfið meiðsli á hendi og er Sunnu
eflaust farið að þyrsta í fjórða sigur-
inn í röð sem atvinnubardagakona.
Bardagakvöldið er skipulagt af
Invicta-bardagasamsteypunni sem
Sunna hefur verið að berjast í sem
atvinnumaður. Allir þrír sigrarnir
hafa komið eftir einróma dóm-
araúrskurð og var Sunna sérstak-
lega verðlaunuð fyrir frammistöðu
sína í bardaganum gegn Mall ory
Martin þegar bardagi hennar var
valinn besti bardagi kvöldsins.
Sá bardagi átti eftir að hafa eftir-
mál því Sunna reif öll liðbönd í
hnúanum sem hún beitir hvað
mest og bein fór úr lið sem sást
ekki á myndatökum hjá lækni. Það
stöðvaði því ekki Sunnu sem barðist
stuttu síðar gegn Kelly D’Angelo.
Við það versnuðu meiðslin en hún
er mætt öflug til leiks á ný.
„Ég hef beðið eftir að fá að sleppa
dýrinu lausu mjög lengi og hlakka
rosalega til að komast aftur í búrið
þar sem ég er best geymd. Mér líður
eins og skógarbirni sem er að vakna
eftir langan vetrardvala, hungraður
og hættulegur,“ sagði Sunna þegar
bardaginn var kynntur.
Bardagakvöldið í kvöld fer fram
með breyttu sniði, í stað þess að
Sunna fari í einn bardaga er um
útsláttarkeppni að ræða. Kvöldið
byrjar á fjórum bardögum sem
endast eina lotu. Fjórar fara áfram í
undanúrslitin og berjast á ný í einni
lotu þar sem sæti í úrslitunum verð-
ur undir. Sami háttur er á í úrslita-
bardaganum.
Sunna byrjar kvöldið gegn Kailin
Curran sem á að baki sjö bardaga
innan UFC-bardagasamtakanna.
Líkt og Sunna hefur Curran ekkert
barist síðan 2017 þegar hún tapaði
síðasta UFC-bardaga sínum.
Þá var það tilkynnt á dögunum að
sigurvegari kvöldsins myndi hljóta
að launum strávigtarbelti sam-
takanna og verða með því heims-
meistari samtakanna.
„Ég hafði grun um að það yrði
óvæntur glaðningur fyrir sigur-
vegara mótsins að fá beltið þar sem
handhafi þess yfirgaf samtökin
nýlega og gerði samning við UFC.
Stuttu síðar komst ég að því að þetta
var raunin og hjartað tók kipp því
ég sé fyrir mér að draumur minn sé
í þann mund að rætast,“ sagði Sunna
þegar það var tilkynnt.
kristinnpall@frettabladid.is
Sunna snýr aftur inn í búrið
Bardagakonan Sunna Davíðsdóttir snýr aftur í búrið á bardagakvöldi Invicta í kvöld eftir tuttugu mán-
aða fjarveru. Barist er eftir breyttu fyrirkomulagi en sigur tryggir Sunnu strávigtarbelti samtakanna.
Sunna hefur verið ein öflugasta bardagakona landsins undanfarin ár og vakið athygli erlendis. FRÉTTABLAÐIÐ/EYÞÓR
CROSSFIT Alþjóðlega CrossFit-mótið
Reykjavík CrossFit Championship
hefst í hádeginu í dag við Esjurætur
þegar fyrsta þrautin (e. WOD) fer
fram þar sem keppendur þurfa
að hlaupa upp að Steini á Esjunni.
Um er að ræða fyrri æfingu fyrsta
keppnisdags en seinni æfingin fer
fram í Laugardalshöll í kvöld.
Alls fara átta æfingar fram um
helgina og tryggir sigurvegarinn
sér þátttökurétt á heimsleikunum
í Madison í sumar en fari svo að
keppandi sem hefur þegar tryggt
sér þátttökurétt, líkt og Björgvin
Karl Guðmundsson og Þuríður Erla
Helgadóttir, vinni, færist
þátttökurétturinn á
næsta þátttakanda.
Þá munu Katr ín
Tanja Davíðsdóttir og
Annie Mist Þórisdótt-
ir, sem báðar hafa
hlotið nafnbót-
ina hraustasta
kona hei m s
tvívegis, taka
þát t í s ér-
stakri keppni
á laugardeg-
inum. – kpt
Keppnin hefst
við Esjurætur
3 . M A Í 2 0 1 9 F Ö S T U D A G U R14 S P O R T ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
SPORT
0
3
-0
5
-2
0
1
9
0
8
:3
8
F
B
0
3
2
s
_
P
0
2
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
3
2
s
_
P
0
1
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
3
2
s
_
P
0
1
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
3
2
s
_
P
0
1
4
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
2
E
B
-E
A
E
4
2
2
E
B
-E
9
A
8
2
2
E
B
-E
8
6
C
2
2
E
B
-E
7
3
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
A
F
B
0
3
2
s
_
2
_
5
_
2
0
1
9
C
M
Y
K