Fréttablaðið - 03.05.2019, Page 24
LEIKRIT
Bæng!
HHHHH
eftir Marius von Mayenburg
Borgarleikhúsið
Leikstjórn: Gréta Kristín Ómars-
dóttir
Leikarar: Björn Thors, Brynhildur
Guðjónsdóttir, Hjörtur Jóhann
Jónsson, Davíð Þór Katrínarson,
Katrín Halldóra Sigurðardóttir og
Halldór Gylfason
Þýðing: Hafliði Arngrímsson
Leikmynd: Börkur Jónsson
Búningar: Eva Signý Berger
Lýsing: Kjartan Þórisson
Myndband: Ingi Bekk
Tónlist og hljóð: Garðar Borg-
þórsson
Leikgervi: Elín S. Gísladóttir
Heimurinn virðist fara versnandi
með hverjum degi. Vígvellirnir eru
ekki einungis í framandi löndum
heldur einnig í laglegum úthverfa
eldhúsum höfuðborgarinnar. Allt
liggur undir og framtíðin er í hönd
um undrabarnsins Hrólfs Bæng,
mannkynið á sér enga von. Leikritið
Bæng! eftir Þjóðverjann Marius von
Mayenburg var frumsýnt síðastlið
inn föstudag á Nýja sviði Borgar
leikhússins í leikstjórn Grétu Krist
ínar Ómarsdóttur, og er tilraun til
að rannsaka orsökina fyrir þessum
óskapnaði, afleiðingum sem hann
ber í skauti sér og hvort eitthvað sé
til ráða.
Vægðarlaus höfundur
Stílbragð von Mayenburg ein
kennist af uppbrotum, byggðum á
sterkum vísunum í eldri leikform.
Klassískir harmleikir, melódrama
og hurðafarsar eru grunnurinn
að þessari póstmódernísku árás á
þægindalíf vestrænna smáborgara,
þar sem sérhannaðar hirslur eru
troðfullar af lífrænu góðgæti og öll
heimilisáhöld eru dýr merkjavara.
Hrólfur er hryllilegt útsæði feðra
veldisins sprottið ljóslifandi fram
í risaeðlusamfellu. Höfundurinn
er vægðarlaus og oft á tíðum bráð
fyndinn en grínið um heimilis
ofbeldi nágrannahjónanna fór fyrir
ofan garð og neðan.
Stórskotalið leikara er mætt á
svið í Bæng! og valin manneskja í
hverju hlutverki. Byrjum á Bæng;
prinsinum á bauninni, verðandi
konungi veraldarinnar, einræðis
herra og fegurðardrottningu. Björn
Thors ber mikinn þunga sýningar
innar á sínu baki. Hrólfur er í byrjun
öfgafullt sakleysið uppmálað en
fljótlega umbreytist frekjan í tilætl
unarsemi og valdníð. Björn hefur
sterk tök á ólíkindatólinu Hrólfi
og eftirtektarvert er að sjá hversu
góð líkamsbeiting hans er, á einni
stundu ungbarn og á þeirri næstu
fullvaxta maður. Sömuleiðis er til
finningaleg nálgun hans kitlandi
og köld afstaða til samfélagsins
vel ígrunduð. Þó, líkt og með aðra
leikara, virðist hann vera fjarlægur
kjarna verksins, upptekinn af að
koma línunum frá sér frekar en að
vinna heildrænt með leikhópnum.
Falleg dýpt
Foreldra Hrólfs leika þau Brynhild
ur Guðjónsdóttir og Hjörtur Jóhann
Jónsson. Algjör afneitun Viktoríu,
móður Bæng, fær fallega dýpt í leik
Brynhildar, nánast eins og hún viti
hræðilega sannleikann um einka
soninn. Samvinna hennar og Hjart
ar er sömuleiðis góð á köf lum en
dettur of oft úr sambandi. Örvænt
ing heimilisföðurins er sjón að sjá í
leik Hjartar, sérstaklega þegar Dóm
iník missir tökin á aðstæðum, sem
er ansi oft. Þá hverfur hann aftur til
klassíkurinnar, og á endanum alla
leið í frummanninn. Hér leikur stór
fín þýðing Hafliða mikilvægt hlut
verk, þar sem skýrt talmál ræður
ríkjum þangað til að Dóminík fer
að ókyrrast og þá tekur rímið við.
Hægt og rólega hefur Davíð Þór
Katrínarson verið að skapa sér sér
stöðu á leiksviðinu, einlægni hans
er hressandi. Hann situr uppi með
fremur óáhugaverðan karakter
en vinnur ágætlega úr honum, þó
mætti orkustigið vera hærra. Það
verður forvitnilegt að sjá hans
næstu skref. Orka er ekki vandamál
hjá Katrínu Halldóru Sigurðardótt
ur og Halldóri Gylfasyni sem sjá um
heilan her af smærri karakterum.
Katrín fer á f lug í hlutverki barna
píunnar Glódísar en leitar of mikið í
grínið til að túlka nágrannakonuna
Ússí. Halldór er frábær í hlutverki
hjúkrunarfræðingsins Matthildar
en berst líka við að skila nágrann
anum Reyni nægilega vel frá sér.
Stærsta vandamálið er að persónur
eru kynntar til sögunnar, og þeim
fundinn byrjunarreitur í sýning
unni, en úrvinnslan er sjaldan full
kláruð samanber tilfinningalegt og
líkamlegt samband Hrólfs við Vikt
oríu móður sína.
Hjálp gæðahandrits
Stöðugt rof er á milli leikmyndar
og framvindu sem útskýrist ekki
af formi verksins þar sem uppbrot
ráða ríkjum heldur leikstjórninni.
Gréta Kristín Ómarsdóttir er enn
að finna fætur sína sem leikstjóri
og safna í reynslubankann. Kraftur
handritsins er aldrei leystur úr
læðingi, klassískt handbragð von
Mayenburg hundsað, atriði eru
stöðugt tekin í sundur og ekki
notuð til að byggja eitthvað nýtt.
Seinni hluti sýningarinnar er þó
betri heldur en sá fyrri, þegar hulu
realismans hefur verið algjörlega
svipt af og afbökunin nær hámarki.
Börkur Jónsson hefur hannað
fagur fræðilega áhugaverða leik
mynd sem nýtist ekki nægjanlega
vel. Þar má nefna ofurstóra eld
húsið fyrir hlé og sömuleiðis hljóð
klefann, bæði lipurlega hönnuð
en gæðast sjaldan sviðsrænu lífi.
Aftur á móti eru búningar Evu Sig
nýjar Berger alveg frábærir, jafnvel
hennar bestu á ferlinum. Þeir ríma
bæði við persónurnar og sín á milli,
hver flík sérvalin inn í skýra fagur
fræðilega heildarmynd.
Bæng! skolast fram og til baka án
þess að yfirþyrma. Einstaka senur
ná þó í höfn, þá sérstaklega eftir hlé
þegar frumhvatir persónanna eru
afhjúpaðar og gróteskan yfirtekur
allt. Leikarahópurinn vinnur gott
starf og sýningin, með hjálp gæða
handrits, helst þokkalega á f loti
með þeirra aðstoð. Sigríður Jónsdóttir
NIÐURSTAÐA: Sýning byggð á
góðum grunni en ekki fullbúin.
Forréttindausli og óreiða samtímans
STÓRSKOTALIÐ
LEIKARA ER MÆTT Á
SVIÐ Í BÆNG! OG VALIN MANN-
ESKJA Í HVERJU HLUTVERKI.
Leikarahópurinn vinnur gott starf, segir gagnrýnandi Fréttablaðsins um Bæng! í Borgarleikhúsinu.
Ársfundur EFÍA 2019
Ársfundur Eftirlaunasjóðs FÍA verður haldinn þriðjudaginn 28. maí kl. 11 í Hlíðasmára 8
í Kópavogi. Allir sjóðfélagar eiga rétt til setu á fundinum með umræðu- og tillögurétti.
Fundargögn má nálgast á vefsíðu sjóðsins, efia.is.
Vakin er sérstök athygli á stjórnarkjöri sem fram fer nú í fyrsta sinn. Sjóðfélagar eru
hvattir til að nýta atkvæðisrétt sinn.
Framboðsfrestur rennur út 7. maí kl. 17. Áhugasamir sjóðfélagar geta nálgast
upplýsingar um framboð og framboðsgögn á efia.is eftir að framboðsfrestur rennur út.
Dagskrá
1. Skýrsla stjórnar
2. Ársreikningur kynntur
3. Tryggingafræðileg úttekt
4. Fjárfestingarstefna
5. Stjórnarkjör
6. Skipun stjórnarmanna sem ekki eru
kjörnir á ársfundi og laun stjórnarmanna
7. Val endurskoðanda
8. Önnur mál
3 . M A Í 2 0 1 9 F Ö S T U D A G U R20 M E N N I N G ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
MENNING
0
3
-0
5
-2
0
1
9
0
8
:3
8
F
B
0
3
2
s
_
P
0
2
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
3
2
s
_
P
0
1
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
3
2
s
_
P
0
0
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
3
2
s
_
P
0
1
6
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
2
E
B
-D
7
2
4
2
2
E
B
-D
5
E
8
2
2
E
B
-D
4
A
C
2
2
E
B
-D
3
7
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
2
A
F
B
0
3
2
s
_
2
_
5
_
2
0
1
9
C
M
Y
K