Fréttablaðið - 09.05.2019, Síða 2
Hugsunin mín er
farin úr því að
treysta stjórnvöldum til að
vernda og passa okkur í það
að almenningur
muni gera það
með sinni
umhverfis-
hugsun.
Axel Sæland
blómabóndi
Veður Malbikunarsumarið hafið
Malbikunarframkvæmdir í höfuðborginni hófust nú í vikunni en slíkar framkvæmdir eru eitt af merkjum þess að sumarið sé í þann mund að
ganga í garð. Þessi f lokkur var að störfum í Eikjuvogi í gær en alls verða 67 götur malbikaðar í borginni í sumar. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK
Norðlæg átt, 5-13 m/s, hvassast
vestantil á landinu. Él norðan
og austan til, en skýjað með
köflum eða bjartviðri sunnan- og
vestanlands. Sums staðar skúrir
eða slydduél sunnanlands síð-
degis. Hiti 2 til 8 stig að deginum,
mildast suðvestan til, en hiti.
SJÁ SÍÐU 26
Original Formula
styður við og styrkir
• eðlilega starfsemi hjarta-
og æðakerfisins
• ónæmiskerfið
100% lífrænn, lyktarlaus
og fer vel í maga
fylgdu
hjartanu
LANDBÚNAÐUR Innf lutningur á
afskornum blómum skilur eftir sig
mun stærra kolefnisspor en inn-
lend ræktun blóma. Kolefnisspor
innlendrar ræktunar er einungis
18 prósent af innfluttum afskornum
blómum.
Axel Sæland, blómabóndi á Espi-
f löt, segir innf lutning afskorinna
blóma ekki nauðsynlegan. Hann
segir þau blóm sem f lutt eru inn
langf lest vera af sömu tegundum
og þau sem ræktuð eru hér á landi
og að innlend framleiðsla geti vel
staðið undir íslenskum blóma-
markaði. „Mest er verið að flytja inn
tegundir sem eru í ræktun á Íslandi,
það er það sem blómabúðirnar og
kúnnarnir þekkja. Það er rosalega
lítið um það að verið sé að flytja inn
eitthvert framandi efni sem enginn
þekkir því þá þorir enginn að nota
það.“
Óskað var eftir umsóknum um
tollkvóta vegna innf lutnings á
blómum seinni hluta ársins 2019 á
vef atvinnu- og nýsköpunarráðu-
neytisins í lok síðasta mánaðar.
Ekki liggur fyrir niðurstaða útboðs-
ins en samkvæmt niðurstöðum
útboða síðastliðinna tveggja ára má
gera ráð fyrir því að um 300 þúsund
afskorin blóm séu flutt inn til lands-
ins á ári hverju.
Axel segir tollkvótann ekki hvetj-
andi fyrir íslenska blómabændur.
„Það var settur tollkvóti fyrir ein-
hverjum árum síðan, tollur settur á
hvert stykki, einhver krónutala. Sú
krónutala hefur alls ekki haldið
gildi sínu þar sem hún fylgir ekki
verðlagi en það hefur breyst síðast-
liðin 20 ár. Tollverndin heldur því
ekki lengur, verndunin er ekki
fyrir innlendan markað. Við getum
því ekki leyft okkur verðhækkanir
á innlendum blómum sem þýðir
bara minna í kassann fyrir íslenska
framleiðendur og meiri óvissu á
markaði“.
Meirihluti þeirra blóma sem
seljast hér á landi er framleiddur
hér en Axel framleiðir um tvær
milljónir blóma á ári hverju. Hann
segir neytendur á Íslandi vera með-
vitaða um þær vörur sem þeir kaupa
og treystir á þá frekar en stjórnvöld
til að halda lífi í íslenskum blóma-
bændum.
„Hugsunin mín er farin úr því að
treysta stjórnvöldum til að vernda
og passa okkur í það að almenn-
ingur muni gera það með sinni
umhverfishugsun. Það er það sem
mun halda okkur á lífi í þessum
bransa,“ segir Axel og bætir við að
stjórnvöld stjórnist af markaðsöfl-
um frekar en lýðheilsu og náttúru-
vernd: „Það eru ekki lýðheilsa eða
náttúruvernd sem stjórna ákvörð-
unum stjórnvalda. Því bindur
maður hreinlega vonir við íslenska
kúnnann, að hann sé nógu vel upp-
lýstur til að taka ákvarðanir um það
hvað hann vill“.
birnadrofn@frettabladid.is
Innflutningur blóma
mengandi og óþarfur
Íslensk blómaframleiðsla gæti staðið undir öllum blómamarkaði hér á landi.
Þó eru flutt inn um 300 þúsund afskorin blóm á ári, jafnvel þótt blóm af sömu
tegund séu ræktuð hér á landi. Innflutningurinn er sagður mjög mengandi.
Árlega eru flutt 300 þúsund afskorin blóm til landsins. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
VIÐSKIPTI Viðskiptavinir tveggja
af þremur stóru bönkunum gátu
tengt kortin sín við Apple Pay í
gær. Um er að ræða greiðsluleið
sem gerir eigendum iPhone-síma
kleift að borga með símanum í
stað hefðbundinna greiðslukorta.
Bankarnir hafa undirbúið komu
Apple Pay um nokkurt skeið og í
gær kynntu Arion banki og Lands-
bankinn greiðsluleiðina fyrir við-
skiptavinum sínum. Íslandsbanki
tilkynnti hins vegar sínum við-
skiptavinum að opnað yrði fyrir
greiðsluleiðina innan tíðar.
„Þetta er enn þá í vinnslu hjá
okkur, þetta er bara enn í ferli
hjá Apple,“ segir Edda Hermanns-
dóttir, sviðsstjóri samskipta hjá
Íslandsbanka. Hún segir þetta
ekki stranda á því að Íslandsbanki
notar MasterCard en hinir bank-
arnir Visa. Edda getur ekki gefið
neinar nákvæmar tímasetningar á
því hvenær viðskiptavinir bankans
geta notað þjónustuna. „Þetta er
væntanlegt innan tíðar. Mjög f ljót-
lega.“ – ab
Tveir af þremur
bönkum opnað
á Apple Pay
Edda Hermanns-
dóttir, sviðsstjóri
samskipta hjá
Íslandsbanka.
DÓMSMÁL Hæstiréttur féllst á
beiðni Barnaverndarstofu um að
taka fyrir mál Freyju Haraldsdóttur
gegn stofnuninni. Freyja sótti um
að verða fósturforeldri en Barna-
verndarstofa hafnaði umsókn
hennar um að sækja námskeið þar
sem hæfni hennar yrði metin. Hér-
aðsdómur sýknaði Barnaverndar-
stofu í málinu en Landsréttur sneri
niðurstöðunni við. Taldi Lands-
réttur að Barnaverndarstofa hefði
mismunað Freyju á grundvelli fötl-
unar hennar.
Barnaverndarstofa óskaði eftir
heimild til að áfrýja til Hæstarétt-
ar þar sem málið varðaði hagsmuni
barna. Freyja segir það vonbrigði.
„Þetta er mjög dapurt. Dómur
Lands réttar var mjög skýr og
maður hefði haldið að hann ætti að
duga en fyrst hann gerir það ekki
þá verð ég bara að halda á fram. Það
er ekkert annað í stöðunni,“ segir
Freyja. – la
Mál Freyju
fyrir Hæstarétt
9 . M A Í 2 0 1 9 F I M M T U D A G U R2 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
0
9
-0
5
-2
0
1
9
0
7
:4
9
F
B
0
5
6
s
_
P
0
5
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
5
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
0
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
0
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
2
F
5
-A
0
E
C
2
2
F
5
-9
F
B
0
2
2
F
5
-9
E
7
4
2
2
F
5
-9
D
3
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
B
F
B
0
5
6
s
_
8
_
5
_
2
0
1
9
C
M
Y
K