Fréttablaðið


Fréttablaðið - 09.05.2019, Qupperneq 4

Fréttablaðið - 09.05.2019, Qupperneq 4
Fáðu blað dagsins í tölvupósti kl. 5.00 á morgnana. Skráðu þig á póstlista Frétta- blaðsins á www.frettabladid.is/ nyskraning. Það kostar ekkert. Vertu fyrst/ur að lesa blaðið NÝR RAM 3500 2019 - FRUMSÝNDUR 11. MAÍ UMBOÐSAÐILI RAM TRUCKS Á ÍSLANDI • ÞVERHOLT 6 • 270 MOSFELLSBÆR • S. 534 4433 WWW.ISBAND.IS • ISBAND@ISBAND.IS • OPIÐ VIRKA DAGA 10-18 • LAUGARDAGA 12-16 UMBOÐSAÐILI RAM Á ÍSLANDI VERÐ FRÁ: 6.967.745 KR. ÁN VSK. VERÐ FRÁ: 8.640.000 KR. M/VSK. ramisland.is SAKAMÁL Rannsókn morðsins á Gísla Þór Þórarinssyni er enn í fullum gangi í Noregi og segir í til­ kynningu lögreglunnar í Noregi að alls hafi 50 vitni verið yfirheyrð. Karl mennirnir tveir sem grunaðir eru um morðið hafa þó ekki verið yfir heyrðir frekar. Lög regla bíður enn niður staðna úr greiningum á vopninu, raf­ tækjum og öðru. Fram kemur í til­ kynningunni að hvorugur þeirra sem grunaðir eru hafi verið skráðir fyrir vopni og lög regla hafði á þeim tíma sem morðið var framið engar upp lýsingar um að þeir hafi haft að gang að skot vopni. Rann sóknin sýnir að þeir grunuðu urðu sér úti um byssuna sama dag og morðið var framið. Fyrstu niður stöður krufningar Gísla Þórs Þórarins sonar sýna að Gísli lést vegna blóð missis í kjöl­ far þess að vera skotinn í lærið. Sam kvæmt upp lýsingum frá lög­ reglunni í Noregi hefur utan ríkis­ ráðu neytið verið látið vita að krufningu sé lokið og að hægt sé að flytja lík hins látna heim til Ís lands. Að stand endum Gísla hefur verið skipaður lög maður. Gunnar Jóhann Gunnars son, hálf bróðir Gísla Þórs, sem er grun­ aður um að hafa myrt Gísla að fara­ nótt laugar dagsins 27. apríl, var úr­ skurðaður þann 29. apríl í fjögurra vikna gæslu varð hald. Lög regla segir í til kynningu að þegar gæslu­ varð hald hans rennur út muni hún krefjast þess að það verði fram­ lengt. – la Lést af völdum blóðmissis eftir skotsár á læri EUROVISION Fram undan er langur og strangur dagur fyrir meðlimi hljómsveitarinnar Hatara. Æft verður stíft í Expo­höllinni í Tel Avív í Ísrael. Er þetta önnur æfingin, en sú fyrsta fór fram á sunnudaginn. Samkvæmt upplýsingum innan úr herbúðum Hatara verður atriðið útfært nánar og verður nálægt því sem sjónvarpsáhorfendur fá að sjá þegar hljómsveitin keppir fyrir Íslands hönd í fyrri undanúrslita­ riðlinum á fimmtudaginn í næstu viku. Í gær var frjáls dagur og fékk hljómsveitin, ásamt öllu sínu fríða föruneyti, að slaka á og fara í skoð­ unarferðir. „Hatari fór í fróðlega ferð til Betlehem,“ segir Matthías Tryggvi Haraldsson, annar söngv­ ara Hatara. „Hópurinn vildi nýta tímann til að kynnast krókum og kimum samfélagsins, ræða við Ísra­ elsmenn og Palestínumenn, til að átta sig betur á þversagnakenndum raunveruleika landsins og komast nær sannleikanum.“ Eftir æf ingar á morgun mun Hatari mæta á blaðamannafund. Blaðamönnum hefur fjölgað tölu­ vert í Tel Avív síðustu daga og má búast við miklu fjölmenni á morg­ un. Meðlimir Hatara hafa vakið mikla athygli fyrir að vilja nota dagskrárvaldið til að ræða málefni Ísraels og Palestínumanna. Eftir að það barst í tal á síðasta blaða­ mannafundi var spyrlinum skipað af yfirboðurum sínum að ljúka fundinum. – ab Hatari nýtti tímann og heimsótti Betlehem Meðlimir Hatara hafa í nógu að snúast í Ísrael en æft verður í dag. FJÖLMIÐLAR „Þetta er auðvitað margbrotið mál sem margir hjá okkur hafa áhuga á og þurfa að tjá sig um. Þannig tekur það smá tíma að fara í gegnum þær umræður,“ segir Birgir Ármannsson, þing­ f lokksformaður Sjálfstæðisf lokks­ ins, um frumvarp um stuðning við einkarekna fjölmiðla. Lilja Alfreðsdóttir, mennta­ og menningarmálaráðherra, kynnti frumvarpið fyrir þingf lokki Sjálf­ stæðisf lokksins í gær en það var afgreitt úr ríkisstjórn síðastliðinn föstudag. Birgir segir málið í áframhald­ andi meðferð hjá þingf lokknum. „Við kláruðum það ekki á þessum fundi en fengum fína kynningu á því frá ráðherra. Við eigum eftir að ræða það betur í okkar hópi.“ Frá því að fyrstu drög frum­ varpsins voru kynnt í lok janúar síðastliðins hefur það verið til vinnslu í ráðuneytinu. Bætt hefur verið við ákvæði um sérstakan stuðning við einkarekna fjölmiðla sem nemur allt að 5,15 prósentum af launakostnaði sem fellur undir lægra skattþrep tekju­ skatts. Gert er ráð fyrir að árlegur kostnaður ríkissjóðs vegna þessa nemi um 170 milljónum króna. Þá hefur verið bætt við greinar­ gerð frumvarpsins stuttri máls­ grein sem kemur inn á stöðu RÚV. Þar segir að athuga eigi hvort breyta skuli tekjuuppbyggingu RÚV, þar á meðal hvort draga skuli úr umsvifum á auglýsinga­ markaði eða að fjármögnun verði aðeins byggð á opinberum fjár­ munum. Stefnt er að því að ljúka þeirri athugun fyrir árslok þegar samningur RÚV og ráðuneytisins um fjölmiðlaþjónustu í almanna­ þágu rennur út. Alls bárust 29 umsagnir um málið meðan það var í samráðsferli í Samráðsgátt stjórnvalda. Flestar þeirra voru frá fjölmiðlum og sneru að skilyrðum fyrir styrkveitingum. Fram kemur í greinargerð með frumvarpinu nú að ekki hafi þótt ástæða til að breyta einstökum ákvæðum þess. Þó hafi verið tekið tillit til umsagna og athugasemda eftir atvikum í endanlegri greinar­ gerð. sighvatur@frettabladid.is Sjálfstæðismenn munu skoða fjölmiðlafrumvarpið betur Frumvarp um stuðning við einkarekna fjölmiðla var kynnt fyrir þingflokki Sjálfstæðisflokksins í gær en breytingar hafa verið gerðar á málinu frá því það kom fram í lok janúar. Bætt hefur verið við ákvæði um aukinn fjárhagslegan stuðning vegna launakostnaðar og athugun á stöðu RÚV boðuð í greinargerð. Lilja Alfreðsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra, vill efla einkarekna fjölmiðla. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK Þurfa að uppfylla skilyrði Frumvarpið gerir ráð fyrir að einkareknir fjölmiðlar geti að ákveðnum skilyrðum uppfylltum fengið endurgreiddan allt að fjórðung ritstjórn- arkostnaðar. Hámarksstyrkur hvers aðila á ári verður 50 milljónir króna en heildarstuðningurinn er áætlaður á bilinu 300-400 milljónir á ári. Meðal skilyrða sem sett eru er að fjölmiðill hafi það sem aðalmark- mið að miðla fréttum og fréttatengdu efni, hann hafi starfað í að minnsta kosti tólf mánuði, eignarhald hans liggi fyrir og að miðillinn sé ekki í vanskilum með opinber gjöld. Þá eru gerðar kröfur um hlutfall ritstjórnarefnis og ákveðna lágmarks útgáfu. 9 . M A Í 2 0 1 9 F I M M T U D A G U R4 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 0 9 -0 5 -2 0 1 9 0 7 :4 9 F B 0 5 6 s _ P 0 5 3 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 4 4 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 0 4 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 1 3 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 2 F 5 -B 4 A C 2 2 F 5 -B 3 7 0 2 2 F 5 -B 2 3 4 2 2 F 5 -B 0 F 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 3 B F B 0 5 6 s _ 8 _ 5 _ 2 0 1 9 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.