Fréttablaðið - 09.05.2019, Page 8

Fréttablaðið - 09.05.2019, Page 8
NÁNARI UPPLÝSINGAR Í SÍMA 564 2488 OG skarpur@simnet.is Veslun ásamt skerpingarverkstæði, sem þjónustað hefur byggingariðnaðinn í 36 ár, er nú til sölu Reksturinn er tvískiptur, Innflutningur, sala á sagarblöðum, fræsitönnum og öðrum verkfærum fyrir tré- og málmiðnaðinn annars vegar og hins vegar skerping á sagarblöðum og ýmsum bitverkfærum fyrir einstaklinga og fyrirtæki. Fyrirtækið hefur ávallt verið leiðandi á sínu sviði og hefur yfir að ráða fullkomnum tölvustýrðum skerpingarvélum fyrir flestar gerðir sagarblaða og verkfæra. Velta fyrirtækisins var um 40 miljónir á síðasta ári og felast talsverðir stækkunarmöguleikar í auknum innflutningi. Allur núverandi rekstur er til sölu ásamt vélum, vörubirgðum og viðskiptasamböndum. Í dag starfa tveir starfsmenn hjá fyrirtækinu. VEGNA SÉRSTAKRA AÐSTÆÐNA ER NÚ TIL SÖLU VERSLUNAR- OG ÞJÓNUSTUFYRIRTÆKI Litli prinsinn ÍRAN Hassan Rouhani, forseti Írans, greindi frá því í gær að ríkið væri tímabundið hætt að framfylgja skil- málum Íranssamningsins svokall- aða. Það er að segja samnings sem Bandaríkin, Frakkland, Þýskaland, Rússland, Kína og Bretland gerðu við Íran um að ríkið myndi leggja kjarn- orkuáætlun sína niður í skiptum fyrir afléttingu viðskiptaþvingana. Frá því að Donald Trump Banda- ríkjaforseti rifti samningnum af hálfu Bandaríkjanna í maí á síðasta ári hefur framtíð plaggsins verið óljós. Þau aðildarríki sem eftir stóðu hétu því að vinna áfram eftir samn- ingnum en Bandaríkjamenn settu hins vegar á ný viðskiptaþvinganir gegn Írönum. Þessar nýju þvinganir hafa haft neikvæð áhrif á íranskt hagkerfi og var því ómögulegt að halda áfram að framfylgja samningnum, að því er Javad Zarif, íranski utanríkisráð- herrann, sagði á Twitter í gær. Samkvæmt Rouhani er hugsanlegt að Íranar muni nú framleiða meira af auðguðu úrani til einkanota. Samn- ingurinn kveður á um að Íranar þurfi að selja úr landi allt auðgað úran sem framleitt er við almenna orkuframleiðslu en efnið er hægt að nýta í framleiðslu kjarnorkuvopna. Forsetinn sagði hins vegar að þetta yrði ekki gert á næstu sextíu dögum og fór fram á það sérstaklega við aðildarríki samningsins að þau myndu vinna með Írönum að því að aflétta hinum bandarísku viðskipta- þvingunum. Annars myndu Íranar vinna auðgað úran fyrir sjálfa sig. Zarif tók í sama streng í tísti sínu og skoraði sérstaklega á evrópsku aðildarríkin. Þau hefðu nú þröngan tímaramma til þess að athafna sig og halda lífi í samningnum. „Ef þessi fimm ríki koma að borð- inu og við komumst að samkomu- lagi, og ef þau samþykkja að vernda olíu- og fjármálageira íranska hag- kerfisins, getum við komist aftur á byrjunarreit. Íranska þjóðin og heimurinn allur þurfa að vera með- vituð um það að þetta markar ekki endalok samningsins,“ sagði Rouh- ani. Ákvörðun Íransstjórnar féll í nokkuð grýttan jarðveg hjá aðildar- ríkjunum. Dmítríj Peskov, upp- lýsingafulltrúi Vladímírs Pútín Rússlandsforseta, kenndi Banda- ríkjamönnum um hvernig farið hefur fyrir samningnum. Hann sagði að Pútín hefði spáð fyrir um afleiðingar „vanhugsaðrar“ riftunar Bandaríkja- manna. „Nú erum við að sjá þessar spár verða að raunveruleika.“ Florence Parly, franski varnar- málaráðherrann, sagði við franska miðilinn BFM TV að Frakkar vildu ólmir halda lífi í plagginu, ella myndi frekari þvingunum verða beitt gegn Íran. „Það myndi ekkert koma sér verr fyrir Íran í dag en að rifta samn- ingnum.“ Bretar, Kínverjar og Þjóðverjar ræddu sömuleiðis um mikilvægi samningsins. Theresa May, for- sætisráðherra Breta, sagði að það væri lykilatriði að samningurinn yrði virtur og upplýsingafull- trúi þýska utanríkisráðuneytis- ins sagði Þjóðverja staðráðna í því að framfylgja samningnum. thorgnyr@frettabladid.is Íran krefst verndar gegn Bandaríkjunum Forseti Írans hefur tilkynnt að ríkið ætli tímabundið að hætta að framfylgja kjarnorkusamningnum vegna þvingana Bandaríkjamanna. Íranar vilja vernd gegn þvingununum annars ætli þeir að framleiða auðgað úran. Rouhani er ekki sáttur við viðskiptaþvinganirnar. NORDICPHOTOS/AFP Harry Bretaprins og Meghan Markle, hertogahjónin af Sussex á Bretlandi, sýndu heimsbyggðinni í gær sinn glænýja, tveggja daga gamla son. „Ég hef tvo bestu drengi veraldar mér við hlið þannig að ég er afar ham- ingjusöm,“ sagði hertogaynjan við fjölmiðlafólk. Prinsinn fær nafnið Archie Harrison. NORDICPHOTOS/AFP SUÐUR-AFRÍKA Þingkosningar fóru fram í Suður-Afríku í gær. Niður- stöður lágu ekki fyrir þegar Frétta- blaðið fór í prentun. Það munu þær líklegast ekki gera fyrr en um helgina, að því er Reuters hafði eftir suðurafrískum embættismönnum í gær. Kosningarnar koma í kjölfar afsagnar Jacobs Zuma forseta. Zuma neyddist til að segja af sér í febrúar á síðasta ári vegna þrýstings innan flokks síns, Afríska þjóðarráðsins (ANC). Hann hafði verið ákærður fyrir spillingu og átti von á van- trausti á þingi. Cyril Ramaphosa tók við af Zuma, jafnt sem forseti og leiðtogi ANC. Hann leiddi flokkinn í kosn- ingum gærdagsins og miðað við skoðanakannanir verður að teljast líklegt að hann hafi unnið stórsigur. Könnun IRR frá því í lok apríl sýndi ANC með 49,5 prósenta stuðning og könnun Ipsos frá því viku fyrr sýndi ANC með 56,9 pró- sent. Stuðningurinn hafði verið álíka mikill mánuðina á undan. Til samanburðar hafði Lýðræðisbanda- lagið (DA), undir forystu Mmusi Mai- mane, 21,3 prósent í könnun IRR og 15,2 hjá Ipsos. Hagfrelsishreyfingin (EFF), undir forystu Julius Malema, hafði 14,9 hjá IRR, 9,5 hjá Ipsos. Þessar niðurstöður yrðu þær lök- ustu í sögu Afríska þjóðarráðsins allt frá því að flokkurinn bauð fyrst fram með Nelson Mandela í fararbroddi árið 1994. Þá fékk þjóðarráðið 62,65 prósent en í síðustu kosningum, undir forystu Zuma, fékk flokkurinn 62,15 prósent. – þea Suður-Afríkumenn velja sér nýtt þing Frá kjörstað í Suður-Afríku í gær. Ekki er búist við því að niðurstöður úr kosningunum liggi fyrir fyrr en um helgina. NORDICPHOTOS/AFP 9 . M A Í 2 0 1 9 F I M M T U D A G U R8 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 0 9 -0 5 -2 0 1 9 0 7 :4 9 F B 0 5 6 s _ P 0 4 9 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 4 8 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 0 8 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 0 9 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 2 F 5 -D C 2 C 2 2 F 5 -D A F 0 2 2 F 5 -D 9 B 4 2 2 F 5 -D 8 7 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 7 B F B 0 5 6 s _ 8 _ 5 _ 2 0 1 9 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.