Fréttablaðið - 09.05.2019, Side 24

Fréttablaðið - 09.05.2019, Side 24
Starri Freyr Jónsson starri@frettabladid.is Tónskáldið og píanóleikarinn Gabríel Ólafs kemur fram á tónlistarhátíðinni Iceland Airwaves sem haldin verður í Reykjavík í byrjun nóvember. Gabríel vakti talsverða athygli á síðasta ári þegar hann gerði samning við breska útgáfufyrir­ tækið One Little Indi an, þá 19 ára gamall, en útgáfufyrirtækið gefur m.a. út plötur Bjarkar. Á þeim tíma hafði hann ekki enn gefið út tón­ list á plötu en vakið athygli fyrir lagasmíðar sínar sem höfðu birst á netinu. Hann segir tónlist sinni svip a til kvik mynda tón list ar enda eru nokkrir af helstu áhrifa völdum hans Jó hann Jó hanns son og Ludo­ vico Ei naudi sem m.a. samdi tón­ list ina fyr ir hina vinsælu frönsku kvikmynd The Intouchables. „Ég er líka mikill kvikmyndaunnandi og fer oft í bíó auk þess að sækja mikið tónleika. Góður matur með fjölskyldu og vinum er líka Fólk er kynningarblað sem býður aug- lýsendum að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala og umfjallana. Í blaðinu er einnig hefðbundið ritstjórnarefni. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega. Umsjónarmenn efnis: Sólveig Gísladóttir, solveig@frettabladid.is s. 550 5762 | Elín Albertsdóttir, elin@ frettabladid.is, s. 550 5761 | Brynhildur Björnsdóttir, brynhildur@frettabladid.is, s. 550 5765 | Starri Freyr Jónsson, starri@frettabladid.is, s. 550 5763 | Þórdís Lilja Gunnarsdóttir, thordisg@frettabladid.is s. 550 5768 Útgefandi: Torg ehf Ábyrgðarmaður: Kristín Þorsteinsdóttir Sölumenn: Arnar Magnússon, arnarm@frettabladid.is, s. 550 5652, Atli Bergmann, atli@frettabladid.is, s. 550 5657, Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@ frettabladid.is, s. 550 5654, Jóhann Waage, johannwaage@frettabladid.is, s. 550 5656, Ruth Bergsdóttir, ruth@frettabladid.is, s. 550 5653, „Ég kaupi sjaldan föt en kaupi vönduð föt sem duga lengur. Þau eru stundum dýr en þurfa ekki endilega að vera það,“ segir Gabríel Ólafs. Brúnn, gulur og jarðartónar eru áberandi hér hjá Gabríel Ólafs. Framhald af forsíðu ➛ ofarlega á listanum en satt að segja er ég megnið af tíma mínum í stúdíóinu.“ Spenntur fyrir framhaldinu Hann segist afar ánægður og spenntur yfir samningnum við One Little Indi an. „Ég kláraði að semja og taka upp mína fyrstu plötu á liðnu ári sem kemur út bráðlega. Undanfarna mánuði hef ég verið að halda mína fyrstu tónleika í Evrópu með eigið efnið og það hefur gengið nokkuð vel. Á Airwaves í nóvember mun ég bjóða gestum upp á frumsamda ljúfa píanótónlist og verð með framúrskarandi strengjakvartett með í för.“ Hann lýsir fatastílnum sínum sem mínímalískum og snyrti­ legum og segist alltaf hafa laðast að skyrtum, gollum og jökkum síðan hann var lítill. „Ég mundi segja að helstu tískufyrirmyndir mínar séu píanóleikarinn Bill Evans, David Bowie og teiknimyndapersónan Tinni.“ Hvernig hefur tískuáhugi þinn þróast? Í raun hefur klæðnaður minn lítið breyst í gegnum árin. Ég hef alltaf klætt mig eins og mér finnst passa best við mig. Hvar kaupir þú helst fötin þín? Stundum heima á Íslandi en annars ferðast ég mikið til London og þá reyni ég stundum að kaupa föt í leiðinni. Hvaða litir eru í uppáhaldi? Beige/ljósbrúnn, brúnn, gulur, jarðartónar, hvítur og svartur. Hvaða f lík hefur þú átt lengst og notar enn þá? Þótt ekki sé hægt að kalla gler­ augu flík þá hef ég notað sama Oliver Peoples gleraugnaramm­ ann í rúmlega átta ár og er enn sáttur við hann. Áttu þér uppáhaldsverslanir heima og erlendis? Kormákur og Skjöldur og Geysir eru í uppáhaldi hér heima. Erlendis er það Brooks Brothers. Ég reyni samt að leita sem víðast og jafnvel kaupa notuð föt. Ég reyni að velja föt sem ég veit að ég mun nota mikið, frekar en að kaupa mikið og nota fátt. Áttu eina uppáhaldsf lík? Það er ljósi Ben Sherman frakk­ inn minn. Einnig verð ég að nefna Joe Boxer náttbuxurnar mínar því það er mikilvægt að hugsa líka um þægindin. Bestu og verstu fatakaupin? Ég hef gert ákaflega góð kaup á markaði í London þar sem ég keypti m.a. „vintage“ rauða Levi’s jakkann minn sem ég nota mikið. Þegar kemur að slæmum kaupum hef ég átt það til að kaupa ýmiss konar slaufur í herrafataversl­ unum þó að ég noti aldrei slaufur og velji nær alltaf bindi. Eyðir þú miklu í föt miðað við jafnaldra þína? Ég kaupi sjaldan föt en kaupi vönduð föt sem duga lengur. Þau eru stundum dýr en þurfa ekki endilega að vera það. Notar þú fylgihluti? Ég er oftast með belti og Daniel Wellington úr sem ég hef notað mikið. 2 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 9 . M A Í 2 0 1 9 F I M MT U DAG U R 0 9 -0 5 -2 0 1 9 0 7 :4 9 F B 0 5 6 s _ P 0 3 6 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 3 3 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 2 1 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 2 4 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 2 F 5 -E 1 1 C 2 2 F 5 -D F E 0 2 2 F 5 -D E A 4 2 2 F 5 -D D 6 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 8 A F B 0 5 6 s _ 8 _ 5 _ 2 0 1 9 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.