Fréttablaðið - 09.05.2019, Blaðsíða 44

Fréttablaðið - 09.05.2019, Blaðsíða 44
TÓNLIST Vortónleikar Kvennakórs Reykjavíkur HHHHH Stjórnandi: Ágóta Joó. Hljómsveit: Ari Bragi Kárason, Zbigniew Dubik, Þorvaldur Þór Þorvaldsson, Hávarður Tryggva- son og Vilberg Viggósson. Kynnir: Silja Aðalsteinsdóttir. Langholtskirkja laugardaginn 4. maí Fu rðu leg a útg á f u s á l msins Hærra, minn Guð, til þín eftir Mason Lowell mátti heyra á tón- leikum Kvennakórs Reykjavíkur á laugardaginn. Útsetningin var eftir James L. Stevens, sem lést nýverið. Sálmurinn var allt að því óþekkjanlegur, fullur af rembingi og yfirborðslegum trúarhita. Því miður eru menn sífellt að reyna að gera eitthvað „merkilegt“ úr sálminum og átta sig ekki á að hann hljómar best einfaldur og látlaus. Flest annað á dagskránni var sem betur fer áheyrilegt, og sumt magn- að. Ágóta Joó stjórnaði kórnum, en hún er ungversk og hefur verið búsett hér á landi síðan árið 1988. Hún er greinilega frábær kórstjóri, því söngur kórsins var í hvívetna tær og fágaður. Jafnvægið á milli ólíkra radda var eins og best verður á kosið. Túlkunin var nánast alltaf sannfærandi, þrungin lífi og inn- lifun. Stöppuðu til áhersluauka Eins og oft er raunin á kórtónleikum þá var fyrri hluti dagskrárinnar helgaður „gáfulegu“ efni, en létt- metið og fjörið var eftir hlé. Eitt skemmtilegasta lagið í fyrri hálf- leik var Spinna minni eftir Mist Þorkelsdóttur við ljóð eftir Þórarin Eldjárn. Það var í frumstæðum stíl, enda um völu sem sér í gegnum holt og hæðir. Lagið er með afar ein- földu hljómferli, sami hljómurinn var svo til út allt lagið. Innan þessa þrönga ramma var þó allt mögulegt að gerast í blæbrigðum og rytma. Þegar allar konurnar stöppuðu til að leggja áherslu á tiltekna setningu var það svo áhrifaríkt að maður fékk gæsahúð. Hvílíkur kraftur! Annað eftirminnilegt lag fyrir hlé var Ejala eftir Jan Magne Førde. Þetta var djass og með kórnum lék Ari Bragi Kárason á trompet. Hann gerði það forkunnarfallega. Hljóm- urinn í trompetinum var einstak- lega mjúkur og ávalur, gæddur alls konar litbrigðum sem unaður var að upplifa. Þriðja lagið sem einnig sló í gegn í fyrri hlutanum var sérsamið fyrir kórinn af Péter Tóth við ljóð eftir Þórunni Guðmundsdóttur. Það bar nafnið Eldur og var fjarska- lega kraftmikið, hnitmiðað og með glæsilegri stígandi í takt við yrkis- efnið. Konurnar voru of þægar Margt eftir hlé var líka reglulega f lott, en Banvæn ást eftir Jakob Gade var það þó ekki. Í saman- burðinum við ódauðlegan söng Guðrúnar Á. Símonar var söngur kórsins full virðulegur, funann og ástríðuna vantaði. Það var eins og konurnar væru allt of þægar og vel upp aldar! Hvar var krafturinn í stappinu fyrir hlé? Auk þess var fiðlusóló Zbigniews Dubik ekki hreint í byrjun, sem var hálfgerður antíklímax. Zbigniew hefur margsannað að hann er mjög góður fiðluleikari, en hann var ekki upp á sitt besta á tónleikunum. Annað lag þar sem hann var í veigamiklu hlutverki, heppnaðist ekki sem skyldi. Þetta var Shallow eftir Lady Gaga og þrjá aðra höfunda úr kvikmyndinni A Star Is Born. Í útgáfunni sem hér hljómaði hefði fiðluleikurinn mátt vera hreinni, og því kom lagið í heild ekki vel út. Annað eftir hlé var betra, þar má nefna Boogie Woogie Bugle Boy eftir Hughie Prince, Ef leiðist mér heima eftir Lee og Manners og Dansinn dunar eftir Van Slee. Öll lögin voru flutt af sannfærandi til- þrifum og tæknilegum yfirburðum. Í heild voru þetta f lottir tónleikar með oftast vandaðri, fjölbreyttri dagskrá, enda var kórnum ákaft fagnað í lokin. Jónas Sen NIÐURSTAÐA: Vandaður flutn- ingur og fjölbreytt efnisskrá sem yfirleitt alltaf hitti í mark. Lady Gaga á tónleikum Kvennakórs Í heild voru þetta flottir tónleikar segir Jónas Sen um vortónleika Kvennakórs Reykjavíkur. Þú þarft meira en orðin tóm Þú getur talað eins og þú vilt, en þegar upp er staðið gerir síminn þinn takmarkað gagn án gagnamagns. Ef þú ert í færðu 50 GB fyrir sama verð. Ótakmarkaðar mínútur og SMS 2.990 kr. á mánuði +5 GB = Ekki vera gagnslaus Framtíðin er spennandi. Ertu til? 9 . M A Í 2 0 1 9 F I M M T U D A G U R32 M E N N I N G ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 0 9 -0 5 -2 0 1 9 0 7 :4 9 F B 0 5 6 s _ P 0 5 3 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 4 4 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 0 4 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 1 3 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 2 2 F 5 -B 4 A C 2 2 F 5 -B 3 7 0 2 2 F 5 -B 2 3 4 2 2 F 5 -B 0 F 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 3 B F B 0 5 6 s _ 8 _ 5 _ 2 0 1 9 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.