Fréttablaðið - 09.05.2019, Síða 46

Fréttablaðið - 09.05.2019, Síða 46
The House That Jack Built (ice sub) 17:30 Yuli-Carlos Acosta Story (eng sub) 17:45 Całe szczęście (polish w/eng sub) . 17:45 Everybody Knows (ice sub) ........ 20:00 Að sjá hið ósýnilega (icelandic) .. 20:00 The Wild Pear Tree (ice sub) ......20:30 Girl (ice sub) ............................................ 22:00 Mug // Twarz (eng sub) ......................22:30 HAPPY HOUR Á BARNUM 17-19 NÁNAR Á BIOPARADIS.IS KVIKMYNDIR Avengers: Endgame Leikstjórn: Anthony Russo, Joe Russo Aðalhlutverk: Robert Downey Jr., Chris Evans, Mark Ruffalo, Chris Hemsworth, Scarlett Johansson Útlitið var ekki gott, eiginlega bara von-lau st , þegar v ið skildum við Marvel-het ju r na r ok k a r í lok Avenger s : Infinity War fyrir ári síðan. Þrátt fyrir að hafa snúið bökum saman í baráttunni við sturlaða títaninn Thanos máttu Hefnendurnir, mestu hetjur jarðarinnar, og varðhundar vetrarbrautarinnar, Guardians of the Galaxy, lúta í gras. Og það sem verra er, drjúgur hluti þeirra varð að ryki ásamt helmingi alls lífs í alheiminum þegar Thanos afgreiddi öll helstu vandamál sem að okkur steðja með því að smella fingrum. Þegar Thanosi hafði tekist að safna saman sex töfrasteinum af mikill einurð og skelfilegri festu tókst honum, þrátt fyrir hetjulega andspyrnu hetjanna okkar, að leysa öll vandamál tengd hnattrænni hlýnun, hungursneyð, háskalegri fólksfjölgun og öllum þeim óleys- anlegu vandamálum sem steðja að heimsbyggðinni. „Þetta var skrítinn endir,“ sagði rígfullorðinn maður við mig þegar Infinity War kláraðist, þar sem hann sat við hliðina á mér í bíó. Ég gat ekki annað en tekið undir það en með tárin í augunum reyndi ég að hugga hann með því að þetta væri nú bara hálfleikur. En þar sem allt almennilegt fólk hefur beðið í ofvæni í heilt ár eftir að Hefnendurnir myndu leiðrétta þessa skelfingu í framhaldinu, Endgame, sem er vitaskuld að slá öll aðsóknarmet, er kannski ágætt að byrja á smá upprifjun: „Myndin er löðrandi í Marvel- húmor og bröndurum, notalegri væmni ásamt fjölda stórfenglegra bardagaatriða þannig að gæsa- húðin hríslast um mann með reglu- Lokauppgjörið við smelludólg eilífðarinnar Mikið mæðir á Captain America og Iron Man í endataflinu við Thanos og til þess að eiga einhverja von verða þessar kempur að leggja gamlar væringar til hliðar. Karlarnir eru frekir til fjörsins en konurnar hafa aldrei verið jafn margar og öflugar og í lokauppgjörinu þar sem Captain Marvel mætir sterk til leiks. Iron Man er sem fyrr aðalgæinn. Hann byrjaði þetta ævintýri fyrir áratug og hlýtur að klára það líka. legu millibili á þessari rúmlega tveggja og hálfrar klukkustundar rússí banareið um Marvel-heima og geima.“ Þetta hafði ég að segja á þessari síðu í Fréttablaðinu þann 1. maí 2018 og gæti í raun bara endurtekið þetta en þó með þeim fyrirvara að Endgame er hálftíma lengri, mikl- um mun tilkomumeiri og betri og skilur við mann fullnægðan, alsæl- an og í algeru andlegu kjötfarsi. Ég færi létt með að fjalla um þessa mikilfenglegustu ævintýramynd sem sögur fara af í löngu og ítarlegu máli en nú til dags má víst ekkert segja án þess að einhverjir tauga- sjúklingar með spilliefnisþráhyggju fari yfirum. Læt því bara duga að lýsa því yfir að þessi mynd uppfyllir allar væntingar, stenst allar kröfur og er frábær skemmtun. Löðrandi í húmor, hasar, spennu og undir öllum djöfulganginum ólga heitar tilfinningar, bæði milli persónanna innbyrðis og ekki síður þeirra og áhorfenda. Sagan heldur auðvitað engu vatni og götin í plottinu eru svo stór að útblásinn Ant-Man gæti þrammað í gegnum þau. Það bara skiptir engu máli og þeir vitleysingar sem nenna að spila sig svaka töff og klára með því að standa í sparðatíningi út af þessu ættu að leita sér sérfræði- aðstoðar og reyna að vinna aðeins í eigin komplexum. Þar fyrir utan var líka ekkert verið að slá upp þessu rosalega partíi fyrir slíka hrímþursa. Þetta er veisla fyrir okkur hin sem erum stolt af því að vera hrifnæmir nördar og höfum borið gæfu til þess að varðveita barnið innra með okkur. Endgame markar, eins og titillinn ber með sér, ákveðin kaflaskil í rúm- lega tíu ára og 22 mynda sigurgöngu hugarfóstra Stans heitins Lee á hvíta tjaldinu og það segir allt sem segja þarf um hversu of boðslega útpælt og vel þetta er gert hjá Marvel að aðeins tvær af þessum myndum geta talist undir meðallagi. Þessi magnaði bálkur hófst í maí 2008 með Iron Man en í þeirri goð- sagnakenndu málmbrynju leyndist snillingurinn, hrokagikkurinn og aðalgæinn, Tony Stark, sem Robert Downey Jr. hefur túlkað af stakri snilld í tíu myndum og þótt allar persónur og leikendur toppi sig í þessum lokakaf la er ekki á neinn hallað þótt fullyrt sé að Tony er enn aðalgæinn. Hann hefur verið hjartað, sálin og sementið í þessu öllu saman enda varla við öðru að búast af persónu sem kinnroðalaust getur sagt: „I am Iron Man.“ Þórarinn Þórarinsson NIÐURSTAÐA: Endgame er stórkostleg kvikmynd og frábær skemmtun þar sem blautustu draumar allra Marvel- nörda rætast með tilheyrandi gæsa- húð, tárum og hlátri. Sem betur fer varð enginn úr upprunalega Avengers-genginu að ryki í lok Infinty War þannig að enn er von og „ef við getum ekki varið jörðina munum við, fjandinn hafi það, hefna hennar“. MYNDIR/MARVEL STUDIOS 9 . M A Í 2 0 1 9 F I M M T U D A G U R34 M E N N I N G ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð BÍÓ 0 9 -0 5 -2 0 1 9 0 7 :4 9 F B 0 5 6 s _ P 0 5 1 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 4 6 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 0 6 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 1 1 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 2 2 F 5 -C 8 6 C 2 2 F 5 -C 7 3 0 2 2 F 5 -C 5 F 4 2 2 F 5 -C 4 B 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 5 B F B 0 5 6 s _ 8 _ 5 _ 2 0 1 9 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.