Fréttablaðið - 09.05.2019, Page 52

Fréttablaðið - 09.05.2019, Page 52
500 KR/STK. 350 KR/STK. 600/750 KR/STK. 750 KR/6 STK. 20% afsláttur 10.-12. maí Vinsælir kínverskir réttir sem þekktir eru um allan heim CHINESE FLAVOUR | VIÐ HLEMM Opið 11:30 - 19:30 ( lokað í vondu veðri ) Ítalska sólgleraugnamerkið SOYA og íslenska listakonan og ilmvatnshönnuðurinn Andrea Maack tilkynntu um samstarf sitt á dögunum. Sólgleraugun eru einstaklega flott og koma í þremur mismunandi útgáfum. „Ég hitti aðstandendur merkisins fyrst fyrir tilviljun úti í Mílanó. Svo heyrðu þau í mér í kjölfarið, þeim fannst Instagrammið hjá mér f lott og heilluðust af merkinu mínu og hvað ég hef verið að gera,“ segir Andrea. Andrea hafði verið aðdáandi merkisins og fylgst með því frá stofnun. Því var gaman að upplifa að aðstandendur merkisins hefðu gagnkvæman áhuga á henni og hennar hönnun. „Þau sendu mér gleraugu úr fyrri línum til að vera með á myndum. Þá sá ég betur hvað það voru mikil gæði í sólgleraugunum og að þessi tvö merki áttu margt sameiginlegt. Þótt  mitt merki sé frá Íslandi var margt líkt. Stærð fyrirtækjanna, gæði framleiðslunnar og hug- myndafræðin var allt eitthvað sem mér fannst svipað.“ Andrea er vinsælasti ilmvatnshönnuður Íslands en ilmirnir hennar eru seldir í 22 löndum. MYND/BENJAMIN HARDMAN Matteo hannaði gleraugun með ilm- vatnsflöskur úr línu Andreu í huga Andrea segist sjálf nota sólgler augu allan ársins hring og því hafi sam- starfið verið skemmtilegt. MYNDIR /AMY HASLEHURST í samstarf Næsta laugardag, 11. maí, fer fram dansviðburður til styrktar neyðaraðgerðum UNICEF í Mósambík. Þar hafa  á stuttum tíma riðið yfir tveir felli- byljir og eiga gríðarlega margir um sárt að binda. Viðburðurinn fer fram í World Class Laugum. Það er Friðrik Agnar zúmbakennari sem stendur að baki skipulagningunni, en hann hefur áður séð um svipaða viðburði til styrkar UNICEF. Síðast var frábær stemning og alls 70 manns mættu og dönsuðu. Nú er stefnan tekin á að alls fimm kennarar haldi zúmbakennslu í hundrað manna sal og planið er að fylla hann. Dansað verður í alls 90 mínútur. „Ég fékk hugmyndina að Dansa fyrir lífinu jólin 2017, þegar ég rakst á einhverja auglýsingu frá UNICEF þar sem kallað var eftir aðstoð vegna ástandsins í Sýrlandi. Ég hugs- aði með mér að mig langaði til að leggja mitt af mörkum.“ segir Agnar. Hann segist helst hafa viljað fara sjálfur til Sýrlands og huga að þeim sem áttu um sárt að binda. Hann hafi viljað gera það sem í hans valdi stæði, og fannst liggja beint við að halda viðburð til styrktar fórnar- lömbunum. „Mér fannst eitthvað fallegt við að sameina þessa ástríðu fyrir dans- inum og andlegri heilsu og að gefa af sér til þessa málefnis. Auðvitað vildi ég bara endurtaka leikinn því þetta var svo vel sótt og gaf held ég öllum sem tóku þátt rosa mikið,“ bætir hann við. Friðrik Agnar segist vonast til að sjá sem flesta í World Class á laugar- daginn klukkan 11.30. „Ég vil helst gera þetta að árlegum viðburði,“ segir Friðrik Agnar að lokum. Dansað fyrir fórnarlömb fellibylja Síðasti viðburður var einstaklega vel sóttur og höfðu allir gaman af. Sólgleraugun koma í þremur litum. Andrea Maack með ítölskum sólgleraugnarisa Andrea kynntist stofnandanum fyrir tilviljun í Mílanó. Hann hefur hannað gleraugu fyrir helstu tískufyrir- tæki heims. Hálfu ári seinna hafði eigandinn og aðalhönnuðurinn, Matteo Pon- tello, samband við Andreu með samstarf í huga. „Hann stofnaði merkið árið 2015. Hann vann áður hjá stærstu tísku- merkjum heims á borð við Tom Ford, Emporio Armani, Roberto Cavalli og Celine. Hann hafði verið í gleraugnabransanum í ein 20 ár en vildi stofna sitt eigið merki út frá sinni reynslu.“ Matteo langaði að gera sólgler- augu í samstarfi við Andreu. „Svo hann byrjar að koma með hugmyndir og þessi týpa var ein af fyrstu hugmyndunum sem hann kom með. Mér fannst þessi gler- augu túlkandi fyrir merki okkar beggja. Þau passa líka útlitslega við ilmvatnsflöskurnar frá mér, það var einmitt hans hugmynd á bak við hönnunina.“ Litunum þremur sem gleraugun prýða svipar um margt til norður- ljósa, myrkurs og elds, allt sem hefur skírskotun í landið og er lýs- andi fyrir það. „Okkur fannst líka áhugavert að eins ólík og þessi lönd eru, Ítalía og Ísland, þá notum við líka oft sól- gleraugu. Ég nota mikið sólgleraugu á veturna því sólin er svo sterk. Það er ákveðin menning fyrir því hér- lendis þó það hljómi undarlega í fyrstu,“ segir Andrea að lokum. Gleraugun koma í sölu á vefsíðu Andreu, andreamaack.com, í lok maí. steingerdur@frettabladid.is 9 . M A Í 2 0 1 9 F I M M T U D A G U R40 L Í F I Ð ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð LÍFIÐ 0 9 -0 5 -2 0 1 9 0 7 :4 9 F B 0 5 6 s _ P 0 5 2 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 4 5 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 0 5 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 1 2 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 2 2 F 5 -C 3 7 C 2 2 F 5 -C 2 4 0 2 2 F 5 -C 1 0 4 2 2 F 5 -B F C 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 5 A F B 0 5 6 s _ 8 _ 5 _ 2 0 1 9 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.