Fréttablaðið - 09.05.2019, Page 54

Fréttablaðið - 09.05.2019, Page 54
SÍMAR AUGLÝSINGADEILDIR – AUGLÝSINGASTJÓRI: Jóhanna Helga Viðarsdóttir johannahelga@frettabladid.is ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 550 5050: Gústaf Bjarnason gustaf@frettabladid.is, Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Sigfús Örn Einarsson sigfus@frettabladid.is, Svava O’Brien svava@frettabladid.is, Örn Geirsson orn.geirsson@frettabladid.is FÓLK/SÉRBLÖÐ SÍMI 550 5077: Atli Bergmann atli@frettabladid.is, Arnar Magnússon arnarm@frettabladid.is, Jóhann Waage johannwaage@frettabladid.is, Jón Ívar Vilhelmsson jonivar@frettabladid.is, Ruth Bergsdóttir ruth@frettabladid.is. FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Benedikt Bóas Hinriksson benediktboas@frettabladid.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 550 5056: Hrannar Helgason hrannar@frettabladid.is, Viðar Ingi Pétursson vip@frettabladid.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 550-5055: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@frettabladid.is, Guðrún Inga Grétarsdóttir gudruninga@frettabladid.is Næsta laugardag fer útf lutningsskrif­stofa íslensk rar tónlistar, ÚTÓN, í fer ð upp  að Hekluskógum að planta trjám. Tilefnið er verkefni sem snýst um að kolefnisjafna fót­ spor fyrirtækisins sem vill með því reyna að axla ábyrgð á sínum þætti í stöðu mála. Ákváðu þau því að skipuleggja tvær ferðir, annars vegar núna um helgina, á laugar­ dag, og hins vegar laugardaginn 1. júní. Veitingar verða á staðnum fyrir þátttakendur og ÚTÓN mun skipuleggja rútuferðir fram og til baka úr borginni. „Þessi hugmynd kom upphaflega frá Cheryl sem vinnur hérna hjá ÚTÓN. Hún er nemi í umhverfis­ fræði hjá háskólanum og varð fyrst til að benda á hvað mikil mengun væri óhjákvæmilega tengd starf­ seminni. Við erum náttúrulega í útf lutningi, og þá kom upp sú hugmynd að reyna í það minnsta að jafna út kolefnisfótsporið eftir bestu getu,“ segir Sigtryggur Bald­ ursson, tónlistarmaður og fram­ kvæmdastjóri ÚTÓN. Cheryl, sem verkefnastjóri hjá ÚTÓN, ákvað sjálf að gera mælingu á kolefnisspori skrifstofunnar. „Við reiknuðum hve marga kíló­ metra við höfum ferðast með flugi. Við sjálf, starfsmennirnir, erum að ferðast oft á tónlistartengdar ráð­ stefnur. Við reiknuðum líka með flugi fólks sem hefur komið hingað á okkar vegum til að kynna sér íslenska tónlist, til dæmis á Air­ waves. Mér reiknaðist til að það væru næstum 300.000 kílómetrar, sem er rosalega mikið,“ segir Cheryl. „Það kom sem sagt í ljós að þetta var miklu meira en við gerðum okkur grein fyrir. Þá kom þessi hugmynd, að bjóða tónlistarfólki sem er að ferðast mikið að koma í öðruvísi ferðalag með okkur. Ferðalag í Hekluskóga að gróður­ setja tré til þess að hamla aðeins gegn þessu,“ bætir Sigtryggur við. Cheryl fór líka í það að rann­ saka hvaða lausnir væru í boði fyrir fyrirtæki eins og þeirra til að leggja sitt af mörkum og leiðrétta sín eigin fótspor. Hún hafði sam­ band við umhverfisráðuneytið en niðurstaðan úr því var að frekar lítið væri í boði. „Við vildum gera eitthvað til að minnka okkar kolefnisspor og okkur langar til að gera enn þá meira. Það er nauðsynlegt fyrir okkur öll að skoða þetta og við ætlum að reyna að f ljúga minna eftir bestu getu. Auðvitað er það ekki algjörlega raunsætt að ætla alveg að hætta f ljúga þar sem ÚTÓN er útf lutningsskrifstofa. Ég er ekki að segja að þetta sé nóg og réttlæti allt, en þetta er allavega skref í rétta átt.“ segir Cheryl. „Ferðin á laugardaginn er nánast sprungin því svo margir hafa skráð komu sína. En við förum aftur 1.  júní og vonumst til að sjá sem f lesta þá,“ bætir Sigtryggur við að lokum. steingerdur@frettabladid.is ÚTÓN reynir að jafna kolefnisporin Útflutningsskrifstofa íslenskrar tónlistar hefur skipulagt tvær gróðursetningarferðir til að kolefnisjafna þann fjölda flugferða sem eru á þeirra vegum. Verkefnastýra ÚTÓN segir þetta vissulega ekki vera nóg, en sé þó mikilvægt skref í rétta átt. „Við vildum gera eitthvað til að minnka okkar kolefnisspor og okkur langar til að gera enn þá meira,“ segir Cheryl Ang, verkefnastjóri ÚTÓN, sem er hér ásamt framkvæmdastjóranum, Sigtryggi Baldurssyni. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI ÞESSI HUGMYND KOM UPPHAFLEGA FRÁ CHERYL SEM VINNUR HÉRNA HJÁ ÚTÓN. HÚN ER NEMI Í UMHVERFISFRÆÐI HJÁ HÁ- SKÓLANUM OG VAR FYRST TIL AÐ BENDA Á HVAÐ MIKIL MENGUN VÆRI ÓHJÁKVÆMI- LEGA TENGD STARFSEMINNI. Sigtryggur Baldursson 9 . M A Í 2 0 1 9 F I M M T U D A G U R42 L Í F I Ð ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 0 9 -0 5 -2 0 1 9 0 7 :4 9 F B 0 5 6 s _ P 0 5 4 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 4 3 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 0 3 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 1 4 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 2 2 F 5 -A F B C 2 2 F 5 -A E 8 0 2 2 F 5 -A D 4 4 2 2 F 5 -A C 0 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 3 A F B 0 5 6 s _ 8 _ 5 _ 2 0 1 9 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.