Fréttablaðið - 09.05.2019, Side 56

Fréttablaðið - 09.05.2019, Side 56
Dreifing dreifing@postdreifing.is Ef blaðið berst ekki 800 1177 Við segjum fréttir Smáauglýsingasíminn og skiptiborð 550 5000 Ritstjórn 550 5070 ritstjorn@frettabladid.is Auglýsingadeild 550 5050 auglysingar@frettabladid.is Prentun Torg. ehf mest lesna dagblað landsins. ÞÚ GETUR NÁLGAST FRÍTT EINTAK AF FRÉTTABLAÐINU VÍÐSVEGAR UM LANDIÐ. Óskir þú eftir því að fá blaðið í áskrift, hafðu samband við Póstdreifingu. FERSKT Á FERÐINNI * FRESH TO GO *FERSKAR NÝJUNGAR* / ÞAÐ ER BARA ÞANNIG SEM VIÐ RÚLLUM / SómaVefjur Flatbrauð, kebab kjúklingur, sósa, tómatar, kál, laukur. KJÚKLINGA *KEBAB* Flatbrauð, falafel, tómatar, jalapeno, rauðlaukur, klettasalat, tzatziki. *FALAFEL* og TZATZIKI BEST GRILLAÐ VEGAN BRÆÐINGUR Þorbjargar Gunnlaugsdóttur BAKÞANKAR Keppnir eru heillandi. Þeir í Monty Python sögðu einu sinni söguna af erfiðustu keppni í heimi, feluleik karla á Ólympíuleikunum. Heimurinn allur var undir í feluleiknum. Gat Francisco Huron slegið met Don Roberts um að vera í felum í 11 ár, 2 mánuði, 26 daga, 9 klukkustundir, 3 mínútur og 27,4 sekúndur? Sem barn elskaði ég keppnir og hélt bók- hald um sigurvegara Evróvisjón og þau lönd sem sviku Ísland (öll). Stúderaði niðurstöður lyfjaprófa í 100 m hlaupi karla. Þekkti helstu titla í hverri keppni Ungfrú Ísland og hvaða keppendur klæddust kjólum frá Jórunni Karls. Fylgdist með hvernig hrossunum hjá Sigurbirni Bárðar vegnaði. Kunni kaloríuinntöku Hjalta Úrsus sem þróaðist síðan út í áhuga á keppni um köku ársins. Það er góð keppni. Núna er það forsetakjörið í Bandaríkjunum. Þar veit enginn hvað þarf til að vinna þó ákveðnar lykilbreytur séu þekktar. Allir sigurvegarar hafa verið með utan- áliggjandi þvagrás. Að öðru leyti er leikurinn opinn. Lítil atriði verða stór. Dijon sinnep ofan á hamborg- ara leiðir til Dijongate. Tölvupóst- ur úr einkanetfangi getur drepið. Dýr jakkaföt eru hættuleg á fundi með kornbændum. Menn þurfa að geta lesið salinn. Alltaf elska amer- íska bíla. Aldrei kunna frönsku, en endilega spænsku. Ekki mæta í baptistamessu án þess að geta sungið. Í þessari keppni geta leik- reglur líka breyst. Alltaf vandað að klökkna í ræðu (Bill Clinton) en ekki í samtali (Hillary Clinton). Í síðustu keppni urðu síðan hin ótrúlegu úrslit að kjósendum tókst ekki að finna forsetann. Lítil atriði urðu að stórum. Enn er sú hætta fyrir hendi. Í tveggja ára keppni þar sem lítil feilspor ráða úrslitum er lykillinn kannski aðallega að láta ekki afhjúpa sig. Sá sigrar sem er bestur í feluleiknum. Feluleikur forsetans 0 9 -0 5 -2 0 1 9 0 7 :4 9 F B 0 5 6 s _ P 0 5 6 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 5 6 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 0 1 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 0 1 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 2 2 F 5 -9 B F C 2 2 F 5 -9 A C 0 2 2 F 5 -9 9 8 4 2 2 F 5 -9 8 4 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 1 A F B 0 5 6 s _ 8 _ 5 _ 2 0 1 9 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.