Morgunblaðið - 08.01.2019, Síða 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 8. JANÚAR 2019
ol pium 350Nú jóðum við til sölu hestakerrur frá reyndum framleiðenda
Fautrax sem eru nú að bjóða upp á nýja línu af kerrum sem
eru sérhannaðar fyrir íslenska hestinn.
8 ára ábyrgð á grind og lífstíðarábyrgð á gólfplötu.
Einnig mikið úrval aukabúnaða.
Leitið tilboða hjá sölumönnum okkar í síma 480 0400
Austurvegur 69 - 800 Selfoss
Lónsbakk i - 601 Akureyr i
Sólvangi 5 - 700 Egilsstaðir
Sími 480 0400 // jotunn@jotunn.is // www.jotunn.is
maxipodium 500
Hestakerrur frá Fautras
ym
maxipodium 500
b
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is
Viðskipti Stefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
Gunnlaugur Snær Ólafsson
gso@mbl.is
Framkvæmdastjóri Nýs landspítala
ohf. (NLSH), Gunnar Svavarsson,
segist vona að hægt verði að afhenda
heilbrigðisráðuneytinu nýtt sjúkra-
hótel nú í janúar, en félagið tók við
verkinu ókláruðu 30. nóvember af
verktakanum Munck Íslandi ehf.
vegna ágreinings. Fór NLSH fram á
tafarlausa afhendingu þrátt fyrir að
verkið stæði óklárað.
Spurður hver staða verksins sé nú
svarar Gunnar að staðan sé nokkuð
góð og að vikuna eftir að NLSH tók
við húsinu var rýnt í stöðumat húss-
ins og kortlagt hvað væri eftir að
framkvæma og í kjölfarið var samið
við undirverktaka um að klára verk-
ið.
Hann telur ekki langt í að húsið
verði fullklárað. „Búnaðurinn er eig-
inlega allur kominn inn og það eru
stillingar á hússtjórnunarkerfinu í
gangi og vantar líka smáatriði varð-
andi svalirnar,“ segir framkvæmda-
stjórinn og bætir við að „allt sem var
eftir í samningnum er á lokastigi í
þessari viku“.
Næstu skref
Enn er mikið eftir af fram-
kvæmdum við byggingu nýja spítal-
ans, en næst tekur við gatnagerð og
jarðvinna fyrir meðferðarkjarnann
sem er þriggja milljarða króna fram-
kvæmd. Þá verður næsta stóra út-
boð uppsteypan á meðferðarkjarn-
anum, en ekki er ljóst hvort það
verður boðið út í heilu lagi eða með
fleiri útboðum.
„Við erum búin að fá byggingar-
nefndarteikningar fyrir það hús og
erum búin að fá fjárheimildir í fjár-
lögum til að fara í útboð. Þá er stefnt
að því að fara í útboð í byrjun sum-
ars og er unnið að hönnun á með-
ferðarkjarnanum ásamt hönnun á
rannsóknarhúsinu,“ segir Gunnar.
Deilan ekki leyst
NLSH og Munck Íslandi ehf.
gerðu milli sín gerðardómssamning
og gerir hann ráð fyrir að gerðar-
dómur fjalli um ágreiningsatriðin
með bindandi hætti. Aðilar að deil-
unni hafa sagt að þeir muni ekki tjá
sig um kröfur sínar fyrr en kostn-
aðaruppgjör framkvæmdarinnar
liggur fyrir að lokinni niðurstöðu
gerðardóms.
Gunnar segist enn ekki geta tjáð
sig um málið vegna trúnaðar, en
staðfestir að deilan sé óleyst.
Samkvæmt lögum um hlutafélög
ber opinberum hlutafélögum að
birta meðal annars samþykktir fé-
lagsins ásamt ársreikningum á vef
sínum. Fyrsta desember barst skrif-
legt svar frá Gunnari vegna fyrir-
spurnar Morgunblaðsins um hvers
vegna þessar upplýsingar væru ekki
aðgengilegar á vef félagsins.
Tölvuþrjótar
Í svarinu sagði að ráðist hefði ver-
ið á heimasíðuna og póstþjóninn síð-
astliðið sumar og fór hvort tveggja á
hliðina þrátt fyrir öryggisvarnir.
Ákveðið var að setja upp lágmarks-
síðu en fá hugbúnaðarhús til að setja
saman nýja síðu en sú fyrri var kom-
in til ára sinna. Vonað var að síðan
yrði klár um áramótin, að því er
fram kom í svarinu.
Upplýsingarnar sem um ræðir
liggja þó enn ekki fyrir á vef félags-
ins og segir Gunnar nýjan vef félags-
ins fara í loftið á næstunni. „Það er á
lokastigum og átti að detta inn um
áramótin, en við fréttum fyrir ára-
mótin að það yrði ekki alveg klárt.
Ég á von á því að þetta verði klárt þá
og þegar.“
Hann bætir við að fyrri síða hafi
byggst á eldra vefmóti og að hin
nýja muni einfalda framsetningu og
birtingu þeirra upplýsinga sem lög
kveða á um að félaginu beri að birta.
Sjúkrahótel afhent á næstu vikum
Leystu til sín óklárað sjúkrahótel vegna ágreinings Framkvæmdastjórinn segir stöðuna góða
Deilan enn óleyst Upplýsingar um samþykktir og ársreikninga ekki birtar í samræmi við lög
Morgunblaðið/Eggert
Tafir Upphaflega stóð til að sjúkrahótelið yrði afhent vorið 2017.
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
„Ég tel afskaplega mikilvægt að vest-
ræn ríki sýni samstöðu og vinni sam-
an á sem flestum sviðum. Þar er
stærsta og öflugasta ríkið lykilatriði,“
sagði Guðlaugur Þór Þórðarson utan-
ríkisráðherra í gærkvöldi eftir fund
með Michael Pompeo, utanríkisráð-
herra Bandaríkjanna, í Washington.
„Við fórum yfir málin almennt en
einnig samskipti Íslands og Banda-
ríkjanna sem byggjast á gömlum
grunni og ganga mjög vel. Bandarík-
in eru okkar helsta viðskiptaland,
þaðan koma flestir ferðamennirnir
sem sækja Ísland heim, við erum með
tvíhliða varnarsamning og erum sam-
starfsaðilar í Atlantshafsbandalaginu
og Norðurskautsráðinu. Við ræddum
þau mál sérstaklega,“ sagði Guðlaug-
ur Þór.
Fundurinn í Washington er fyrsti
tvíhliða fundur utanríkisráðherranna
frá því Pompeo tók við embætti í
fyrrasumar. Guðlaugur kvaðst
ánægður með fundinn. Sagði að Pom-
peo þekkti vel til Íslands og hefði
áhuga á landi og þjóð. „Það er mik-
ilvægt að vera í beinum samskiptum
við utanríkisráðherra helstu sam-
starfsríkja og Bandaríkin eru sann-
arlega í þeim hópi,“ sagði utanríkis-
ráðherra.
Aukið samstarf í varnarmálum
Í lok fundar samþykktu ráðherr-
arnir sameiginlega yfirlýsingu sem
tekur til aukins samstarfs á sviði ör-
yggis- og varnarmála, sérstaklega í
ljósi breyttra aðstæðna á Norður-
Atlantshafi og á norðurslóðum, að því
er fram kemur á vef utanríkis-
ráðuneytisins. Þá er undirstrikað í yf-
irlýsingunni að ríkin ætli að kanna
leiðir til að bæta aðstæður fyrir við-
skipti og fjárfestingar sem og sam-
vinnu á vettvangi Norðurskautsráðs-
ins.
Guðlaugur sagði, spurður um
þetta, að mikilvægi Norðuratlants-
hafsins hefði verið að aukast. Vegna
breyttra aðstæðna hefðu Bandaríkja-
menn og aðrar bandalagsþjóðir aukið
viðveru flugsveita hér á landi auk
þess sem Bandaríkjamenn hefðu ver-
ið að endurnýja aðstöðuna á
Keflavíkurflugvelli.
Samvinna í Norðurskautsráði
Íslendingar taka við formennsku í
Norðurskautsráðinu í maí. Guðlaug-
ur Þór sagði að Bandaríkjamenn
þekktu vel áherslur Íslands. „Öllum
er ljóst mikilvægi þessa vettvangs.
Við leggjum mikla áherslu á að eiga
góða samvinnu við þá, eins og önnur
lönd í Norðurskautsráðinu, og sá
áhugi er gagnkvæmur. Þetta er það
svæði sem ríki heimsins líta sífellt
meira til,“ sagði hann.
Skjáskot/Utanríkisráðuneyti Bandaríkjanna
Utanríkisráðherrar Guðlaugur Þór Þórðarson og Michael Pompeo stilltu sér upp fyrir myndatöku í ráðuneytinu.
Mikilvægt að vestræn
ríki sýni samstöðu
Utanríkisráðherrar Íslands og Bandaríkjanna funduðu
„Dagur B. Eggertsson las rang-
lega í stöðuna þegar hann hélt að
braggamálið gleymdist þegar því
var vísað til innri endurskoðunar,“
skrifaði Eyþór Arnalds, oddviti
sjálfstæðismanna í borgarstjórn, á
Facebook-síðu sína í gærkvöldi
eftir að Dagur lýsti því yfir í sam-
tali við Ríkisútvarpið að hann
myndi ekki verða við kröfu Hildar
Björnsdóttur, borgarfulltrúa Sjálf-
stæðisflokksins, um að víkja úr
starfshópi sem falið er það hlut-
verk að rýna skýrslu innri endur-
skoðunar Reykjavíkurborgar um
braggamálið.
Hildur sagði í kjölfarið að hún
myndi standa við fyrri yfirlýsingar
og segja sig úr hópnum vegna þess
að forsendur fyrir trúverðugri
vinnu hans væru brostnar.
Eyþór segir að Degi hafi þótt
tilvalið að fela sjálfum sér að fara
yfir niðurstöður skýrslunnar þar
sem hann sé talinn hafa brugðist
skyldum sínum. Langflestir hafi
litið málið öðrum augum. „Þegar
ljóst var að vinnuhópur með Degi
nyti ekki trausts með hann innan-
borðs hefði verið eðlilegast fyrir
Dag að víkja sæti. Ekki bara
vegna þess að hann væri þá að
bregðast við áfellisdómi yfir sjálf-
um sér, líkt og brotamaður gerðist
dómari í eigin sök. Heldur líka
vegna þess að hann er algerlega
vanhæfur. Ráðherrar víkja iðulega
sæti vegna vanhæfis þó þeir séu
ekki sjálfir beinlínis til rannsókn-
ar, eins og borgarstjóri,“ skrifar
Eyþór.
Prófmál á samstarfsflokka
Hann segir að braggamálið sé
prófmál; það sé prófmál á stjórn-
sýsluna og prófmál á það hvort
þverbrjóta megi lög og reglur
átölulaust. Þá sé það prófmál sem
sýni hvar samstarfsflokkarnir
standi og spyr hvort Viðreisn ætli
að sætta sig við þetta og hvort Pí-
ratar styðji vinnubrögðin.
Eyþór segir bragga-
málið vera prófmál
Dagur víkur ekki úr starfshópnum