Morgunblaðið - 08.01.2019, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 08.01.2019, Blaðsíða 18
18 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 8. JANÚAR 2019 Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/ Flest virðistlúta lög-málum tísku eða því sem mest líkist tísku. Mestur mannamunur er gerður meðal þeirra sem njóta upphefðar fjöl- miðla. Oft birtast myndir frá Ír- an þar sem menn á besta aldri dingla í vír byggingarkrana borganna. Þessir ólánsömu menn eru sagðir hafa brotið lög landsins eða lögmálanna. Hafa braskað með eiturlyf, verið staðnir að samkynhneigð eða hafa storkað helgiritum trúar- innar, jafnvel gengið af trúnni. Sjaldnast er reynt að grafast fyrir um nöfn þeirra eða hvort þeim hafi gefist færi á að verj- ast „sakargiftum“. Þeir dingla bara þarna í alfaraleið öðrum til viðvörunar. Annars staðar eru menn höggnir eða fyrir minni „brot,“ eins og framhjáhald kvenna, barðir til blóðs undir fagnaðarhrópum fjöldans. Í apríl árið 2014 rændu hryðjuverkamenn Boko Haram 200 ungum skólastúlkum í þorp- inu Chibok í Nígeríu. Málið vakti óhug og helstu valdamenn veraldar birtust í þingsölum og á skjáum og sögðu að þetta yrði aldrei liðið. Bandaríska forseta- frúin skipaði sér fremst í bar- áttusveitina: Heimurinn allur gerir nú sameiginlega kröfu: „Skilið stúlkunum okkar strax til baka.“ En það gerðist lítið og nötur- lega hægt. Nú fjórum árum síð- ar hafa nærri hundrað stúlkur sloppið úr prísundinni. Fant- arnir sem rændu þeim og héldu föngnum eru frægir ribbaldar fyrir barsmíðar og nauðganir. Stúlkurnar sem náðu heim á ný eru nú fullveðja konur og er reynt að bæta þeirra böl eins og hægt er. En þeim var ekki að- eins rænt heldur var farið ráns- hendi um sakleysi þeirra og persónu og slík skemmdarverk verða aldrei bætt. Og enn, fjórum árum eftir að helstu valdamenn veraldar, Cameron, Obama, Merkel og fleiri tilkynntu sameiginlega kröfu alheimsins eru nærri 100 stúlkur enn í höndum ræningj- anna en allmargar eru látnar. Morðið á Jamal Khashoggi á sendiskrifstofu Sádi-Arabíu í Istanbúl var ekki aðeins ósvífið heldur virðist verknaðurinn hafa verið viðurstyggilegur. Khashoggi er oft titlaður blaða- maður þar sem hann skrifaði síðustu misseri pistla um stjórnmálaleg áhugamál sín í Washington Post. Áður hafði hann tengsl við fjölmiðla á heimaslóð. En Khashoggi var meira en það. Hann var gerandi í stjórnmálabaráttu og löngum öflugur stuðningsmaður Músl- ímska bræðralagsins sem hefur margt á samviskunni, t.d. morð á kristnum Egyptum. En at- hyglin sem hann fær umfram þúsundir annarra sem mæta þungum örlögum ráðast af því að hann var mjög vel tengdur og þá ekki síst inn í konungsfjölskyld- una í Riyadh. Afi hans, Muham- mad Khashoggi, var líflæknir Al Saud konungs, stofnanda Sádi- Arabíu. Adnan Khashoggi, sem var mjög í fréttum áratugum saman, var náfrændi hans, um- svifamikill vopnasali og einn allra ríkasti maður heims. Ann- ar náfrændi hins myrta var Dodi Fayed, ástmaður Díönu prinsessu og lést með henni í bílslysi í París. Þá var Khas- hoggi lengi í nánum tengslum við Osama bin Laden og hitti hann oft í Tora Bora hellakeðj- unni í Afganistan þar sem bin Laden leyndist. Vafalaust er talið að þá hafi Khashoggi geng- ið erinda leyniþjónustu Sáda. Hann dró ekki úr vinskap við bin Laden fyrr en eftir árás- irnar á tvíburaturnana. Áhugi og hróp heimsleiðtoga vegna Boko Haram sem ekkert kom út úr og yfirspenntur áhugi á „blaðamanninum“ Khashoggi stingur mjög í stúf við ofbeldið sem ESB-ríkið Spánn fær að komast upp með gagnvart þeim sem studdu sjónarmið um að Katalónía yrði sjálfstæð. Um helgina birti Fréttablaðið viðtal Þórgnýs E. Albertssonar við Jordi Cuixart sem er einn af 9 sem fangelsaðir voru að boði Hæstaréttar Spánar (!) sem fyrsta dómstigs og hafa verið geymdir í fangelsi síðan án þess að réttað hafi verið í máli þeirra. Íslensk stjórnvöld hafa ekki sýnt neina merkjanlega andúð á þessum ósvífnu brotum á mann- réttindum. Í viðtalinu er þetta haft eftir Jordi Cuixart um ásakanir saksóknara: „Við erum að tala um grundvallarréttindi í lýðræðisríki. Tjáningarfrelsið, frelsið til að mótmæla, til að greiða atkvæði. Þannig að sak- sóknarinn sakar mig fyrst um uppreisn og fer fram á sautján ára fangelsisdóm. Hin raun- verulega ástæða þess að ég er í fangelsi er sú að ég er forseti Omnium Cultural, samtaka sem telja rúmlega 130.000 meðlimi og einbeita sér að því að verja katalónska tungu, menningu og samheldni. Þau hafa verið virk í þessari hreyfingu sem snýst um sjálfsákvörðunarrétt Kata- lóna,“ og og hann bætir við: „Ég er pólitískur fangi á Spáni á 21. öldinni. Það er hneyksli fyrir Evrópu.“ Í Bretlandi kröfðust Skotar þess að fá að stofna sjálfstætt ríki. Leiðtogum þeirra var boðið að halda þjóðaratkvæði og yrði þar meirihluti fyrir kröfunni gengi hún eftir. Það er skiljan- legt að Bretar vilji fara úr ESB og jafnóskiljanlegt að nokkur vilji selja sig þangað inn. Sláandi dæmi um hversu misjafnlega er við órétti brugð- ist} Ólík viðbrögð H inn 16. október 2018 var umræða á Alþingi um forvarnir sem und- irritaður stóð fyrir. Sú ágæta umræða þann dag og undirbún- ingur hennar sannfærði mig enn frekar um hversu mikilvægt það er að for- varnir eins víðfeðmt og orðið gefur til kynna eru ekki átaksverkefni heldur leiðarstef mann- eskjunnar frá vöggu til grafar. Það hefur átt sér stað vitundarvakning í samfélaginu undan- farin ár um bætta lýðheilsu og þá ábyrgð hjá hverjum og einum að huga að eigin heilsu og bera ábyrgð á henni. Sú ábyrgðartilfinning bætir hag allra. Sá lærir sem lifir og það samfélag sem við lifum í dag er annað en í gær. Heilbrigðiskerfið og ábyrgð þess hefur þanist út meðal annars vegna þeirra tækniframfara sem orðið hafa á hinum margvíslegu þáttum heilbrigðissviðsins. Við alþingismenn, kjörnir fulltrúar þjóðarinnar meðal annars til þess að stýra þeim fjármunum sem hið opinbera hefur úr að moða, berum mikla ábyrgð; að gera það eins skynsamlega og kostur er. Í dag er það lýðum ljóst að bætt lýðheilsa með heilbrigðu líferni sparar pening fyrir alla aðila málsins. Ef við verðleggjum heilsufar sparar það peninga að setja peninga í forvarnir. Stytting biðlista á hinar ýmsu stofnanir heilbrigðiskerfisins hefur forvarnar- gildi sem í flestum tilfellum má kalla annars stigs forvörn. Að veikir einstaklingar þurfi að bíða svo vikum eða mán- uðum skiptir, jafnvel lengur, á biðlista er óboðlegt. Unga fólkið okkar er mun kvíðafyllra í dag en fyrir einhverjum árum og að sjálfsögðu er ekki ein skýring á því, þó er aukin neysla lyfja og fíkniefna stór þáttur með fylgikvillum eins og geðhvarfasýki og öðrum geðröskunum. Lyfjaávísanir vegna hinna ýmsu greininga hafa aukist og flest lyf hafa einhverjar auka- verkanir. Ef maður spyr unga fólkið hvað geti valdið auknum kvíða er svarið oftar en ekki: Samfélagsmiðlarnir! Þær ótrúlegu tækni- framfarir sem átt hafa sér stað og gert okkur kleift að fást við vandamál sem áður voru örð- ug en eru í dag leysanleg með tilkomu tækn- innar. Um leið er sú hætta á ferðum að við gleymum því hver við erum og hvaðan við er- um. Við erum jú manneskjur af holdi og blóði með sál og líkama. Trú von og kærleikur hefur forvarnargildi í mínum huga og bænin til æðri máttar hjálpar þeim sem trúa á bænina. Þeir sem segjast vera trúlausir trúa því engu að síður. Í allri þessari umræðu og talandi um forvarnir er þáttur skólanna stór. Þann tíma frá því ég kom í stjórnmál verð ég enn sannfærðari um að við sem þjóðfélag verðum að hlúa betur að kennarastéttinni. Öll sú sérkennsla sem hef- ur aukist í skólum vegna aukinnar þekkingar og úrræða er ánægjuefni en henni hefur ekki fylgt nægt fjármagn. Þau lönd sem við berum okkur saman við hafa náð góðum ár- angri í þessum efnum. sigurdurpall@althingi.is Sigurður Páll Jónsson Pistill Forvarnir Höfundur er alþingismaður Miðflokksins. STOFNAÐ 1913 Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík. Ritstjóri: Davíð Oddsson Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal Ritstjóri og framkvæmdastjóri: Haraldur Johannessen FRÉTTASKÝRING Guðrún Erlingsdóttir ge@mbl.is Árið 2018 höfðu mislinga-tilfelli ekki verið fleiri íEvrópu í 20 ár. Sam-kvæmt frétt á vefsíðu Gu- ardian frá 21. desember sem byggist á skýrslu Alþjóðaheilbrigðismála- stofnunarinnar, WHO, er reiknað með að mislingasmit hafi verið rúm 60.000 árið 2018 en það er meira en tvöfalt fleiri til- felli en greindust árið 2017. Dauðs- föll af völdum mislinga 2018 voru helmingi fleiri en 2017 eða 72. Þórólfur Guðnason sótt- varnarlæknir segir að í kjölfar stríðsátakanna í Úkraínu hafi þátttaka í bólsetningum þar í landi dottið niður og mislingar blossað upp. Dánartala vegna mislinga sé svipuð og verið hefur, einn af hverj- um 1.000 sem sýkist. Þórólfur segir að Landlæknisembættið birti reglu- lega fréttir af útbreiðslu mislinga. „Við erum enn sem komið er í góðum málum og höfum ekki orðið vör við mislinga hér á landi nema í einu og einu tilfelli sem upp koma vegna tengsla við útlönd. Við erum með ýmsar aðgerðir í gangi til þess að auka hlutfall bólusetninga, m.a. með meiri skilvirkni, bættri skrán- ingu, betra innköllunarkerfi og svo höfum við leitað nýrra leiða í fræðslu um nauðsyn bólusetninga. Árangur úr þessum aðgerðum liggur vonandi fyrir fljótlega,“ segir Þórólfur og bendir á að þátttaka í bólusetningum gegn mislingum á Íslandi sé undir væntingum heilbrigðisyfirvalda sem gjarnan hefðu viljað sjá hærri bólu- setningatölur sérstaklega í kringum 18 mánaða aldurinn. Áróður gegn bólusetningum Þórólfur segir að í Rúmeníu, Ítalíu og Grikklandi hafi hópar fólks ekki viljað láta bólusetja börn sín. Hann segir rannsóknir staðfesta að þegar hlutfall bólusettra minnki þá gjósi upp mislingafaraldrar. „Það sést um leið þegar bólu- setningum fækkar enda koma 90% mislingatilfella upp í óbólusettum einstaklingum. Það er ekki spurning um að bólsetningin verndar í lang- flestum tilfellum,“ segir Þórólfur. Í grein Guardian kemur fram að í Bandaríkjunum, Póllandi, Frakklandi og Ítalíu hafi áróður gegn bólusetningum barna aukist og í kjölfarið hafi mislingatilfellum fjölgað. Vegna færri bólusetninga í Frakklandi 2010 hafi mislingar auk- ist þar jafnt og þétt. Eftir fækkun bólusetninga á Ítalíu 2014 hafi misl- ingatilfellum fjölgað úr nokkrum á mánuði í hundrað. Í Rúmeníu fækk- aði bólusetningum um 90% árið 2014 og 2017 fóru mislingatilfelli yfir 1.000 á mánuði í stað eins til tveggja. Flest smit á Ítalíu í október Í samantekt Evrópsku sótt- varnarmiðstöðvarinnar ECDC kem- ur fram að af 29 löndum sem sendu inn upplýsingar um mislingasmit í október hafi 279 smit verið tilkynnt í 15 löndum. Ítalía, Frakkland og Rúmenía voru með flest smitin. Ítalía með 75 Frakkland með 68 og Rúmenía 54. Mesta fækkun misl- ingasmita milli mánaða var í Slóvak- íu, í október var tilkynnt um 16 til- felli á móti 87 í ágúst og í Þýskalandi var tilkynnt um 13 smit í stað 29 frá því í ágúst. Pólland, Slóvakía og Bretland tilkynntu um 16 smit í október. Frá nóvember 2017 til október 2018 var tilkynnt um eitt mislinga- smit á Íslandi sem er það lægsta í Evrópu og tvö í Litháen. Síðasta smitið á Íslandi var til- kynnt í nóvember 2017. Mislingatilfelli tvöfalt fleiri í Evrópu 2018 Fjöldi mislingatilfella í Evrópu 1999-2018 Þúsundir tilkynntra tilfella H ei m ild : W H O 60 50 40 30 20 10 0 ’99 ’00 ’01 ’02 ’03 ’04 ’05 ’06 ’07 ’08 ’09 ’10 ’11 ’12 ’13 ’14 ’15 ’16 ’17 ’18 Árið 2018 var metár í fjölda tilfella á þessari öld í Evrópu Þórólfur Guðnason Mislingar eru mjög smitandi veirusjúkdómur sem getur verið hættulegur og jafnvel valdið dauða. Misl- ingar einkenn- ast af háum hita og út- brotum um all- an líkamann. Þetta kemur fram á heimasíðu, Embættis landlæknis. Þar kem- ur einnig fram að mislingar hafi verið algengur sjúkdómur á meðal barna á árum áður en dregið hefur úr algengi hans í vestrænum löndum eftir að far- ið var að bólusetja gegn misl- ingum. 10% þeirra sem sýkjast af mislingum fá alvarlega fylgi- kvilla eins og heilahimnubólgu eða lungnabólgu en að öllu jöfnu fer sjúkdómurinn mildi- lega með hin 90%. Mislingaveiran berst með úða frá öndunarfærum milli manna. Veiran getur smitað í allt að tvær klst. eftir að hún berst út í andrúmsloftið. 90% fá væg einkenni HVAÐ ERU MISLINGAR? Ekki eru allir á eitt sáttir um bólusetningar.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.