Morgunblaðið - 09.01.2019, Page 1

Morgunblaðið - 09.01.2019, Page 1
Útlit er fyrir að „vorinu“ ljúki um helgina og við taki hefðbundn- ara og svalara janúarveður. Áður en til þess kemur er þó von á suðvestanstormi sem ætti að ná hámarki í kvöld og hefur Veður- stofan gefið út gula viðvörun fyrir allt norðanvert landið vegna hans. Hiti á Austfjörðum gæti nálgast 15 stig, hlémegin fjalla. Einar Sveinbjörnsson veðurfræðingur segir að líkur séu á því að fyrirstöðuhæðin sem verið hefur yfir Bretlandi koðni niður um helgina og það breyti veðrinu hér. Sunnanvindarnir langt sunnan úr hafi sem hæðin hefur beint hingað yfir hætti að berast. Þá eigi kaldara loft greiðari aðgang að landinu. Lægðirnar verði svalari. Búast má við úrkomu sem frekar fellur sem snjór en regn. „Hægt og bítandi nálgast veðrið að vera það sem við eigum að venjast í janúar, ef það er þá eitthvað til sem heitir janúarveður,“ segir Einar. Fólkið sem leitaði skjóls fyrir regni við Ráðhúsið í gær gæti þurft að bíða af sér snjóél á næstu vikum. Morgunblaðið/Eggert Hefðbundið janúarveður er að taka völdin M I Ð V I K U D A G U R 9. J A N Ú A R 2 0 1 9 Stofnað 1913  7. tölublað  107. árgangur  FLAUTUKURR Í STAÐ HEFÐBUNDINS FLAUTUHLJÓÐS ÞYNGDI SIG UM 18 KG FYRIR HLUTVERKIÐ FYRSTI LEIKUR ÍSLANDS ER Á FÖSTUDAGINN EVA MELANDER 33 SÉRBLAÐ UM HM 2019BERGLIND MARÍA 30 Greina þarf frekari úrræði  Fyrstu tölur benda til að flutningur hjartagáttar á bráðamóttöku hafi lánast vel  Forstjóri Landspítala segir að öryggi sjúklinga sé tryggt og þjónustan betri Í skýrslunni er fjöldi ábendinga til stjórnvalda og Landspítalans (LSH). Meðal annars er lagt til að Landspít- alinn skoði innan skamms tíma áhrif flutnings Hjartagáttar á gæði þjón- ustu og starfsemi bráðamóttöku og endurmeti ákvörðun ef svo ber und- ir. Páll Matthíasson, forstjóri LSH, segir að fylgst sé náið með árangri flutnings hjartagáttar á bráðamót- töku. Fyrstu tölur bendi til þess að þessi aðgerð hafi heppnast vel og ör- yggi hjartasjúklinga sé tryggt. Á sama tíma hafi verið byggð upp öflug dagdeild sem þjóni hjartasjúklingum betur og unnið á biðlistum í hjarta- þræðingum og öðrum hjartaaðgerð- um. Ástæðan fyrir flutningi hjarta- gáttar nú var skortur á sérhæfðum hjúkrunarfræðingum. Páll segir að vissulega hafi álag á bráðamóttöku aukist en verkefnið fari vel með ann- arri bráðastarfsemi. Einvala lið starfsfólks þar leysi verkefni sín frá- bærlega. Helgi Bjarnason Kristján H. Johannessen Opnun hjúkrunarheimilis á Seltjarn- arnesi í næsta mánuði og sjúkrahót- els Landspítalans 1. apríl mun létta álagið á Landspítalanum og sérstak- lega bráðamóttöku hans. Í skýrslu um úttekt landlæknisembættisins um alvarlega stöðu deildarinnar er heilbrigðisráðherra bent á að greina frekar áhrif af þessu tvennu og meta hvort grípa þurfi til frekari úrræða, eins og að koma upp fleiri rýmum. Úttekt á bráðamóttöku » Meðaldvalartími sjúklinga sem bíða eftir útskrift á aðrar deildir er 23,3 klukkustundir en æskilegt viðmið er 6 tímar. » Ekki er töf á því að þeir sem eru veikastir fái þjónustu. Meðaldvalartími þeirra er 4-5 klst. sem er innan viðmiða. MVerri staða þrátt fyrir úrræði »4 „Læknarnir sögðu að hún myndi kannski lifa í tvö ár og kannski í nokkur ár,“ segir Monika Kalucka, einn aðstandenda fjársöfnunar fyr- ir Elwíru Kołakowska og fjölskyldu hennar. Elwíra fékk þau tíðindi daginn sem hún fagnaði 33 ára afmæli sínu að hún væri með alvarlegan tauga- sjúkdóm sem kallast Amyotrophic Lateral Sclerosis (ALS) með Pseudobulbar Syndrome, eða blandaða hreyfitaugahrörnun sem er algengasta form MND-sjúk- dómsins og Pseudobulbar Affect (PBA) sem einnig leggst á tauga- kerfi fólks. Þessir tveir sjúkdómar hafa gjörbreytt lífi Elwíru og munu á endanum gera hana algerlega ósjálfbjarga. Fyrir ári gat Elwíra keyrt bíl en í dag er hún með næringu í æð og þarf umönnun allan sólarhringinn. Hún og eiginmaður hennar ákváðu að flytja aftur til Póllands síðasta sumar eftir ellefu ára búsetu hér til að geta notið stuðnings fjölskyldu sinnar. »4 Söfnun Elwíra Kolakowska með börnum sínum, Jakub Alan og Emiliu Leu. Hefur hrakað mikið á einu ári  Vinir Elwíru á Íslandi safna fyrir dýrum lyfjum og rafmagnshjólastól Hefðbundnir afgreiðslukassar með starfsmanni munu hverfa meira og minna á næstu árum að mati Þórarins Ævarssonar, framkvæmdastjóra IKEA. Hann segir þá þróun vera af hinu góða þar sem verið sé að gera það sjálfvirkt sem á að vera sjálfvirkt. Sjálfsafgreiðslukassar eru orðnir algeng sjón í verslunum hér á landi en af 23 verslunum Krónunnar eru sjö þeirra búnar afgreiðslukössum. Stefnt er að því að slíkir kassar verði í öllum Krónuverslunum á höfuðborg- arsvæðinu á næstu 18 mánuðum en í minni verslunum fyrirtækisins kýs meira en helmingur viðskiptavina að nota slíka kassa. Af 33 verslunum Bónuss eru fimm með slíka kassa og hyggst fyrirtækið tvöfalda þann fjölda á þessu ári. Allir þessir sjálfs- afgreiðslukassar voru settir upp á ný- liðnu ári en IKEA setti upp sína fyrstu sjálfsafgreiðslukassa árið 2010. »16 Sjálfsafgreiðslu- kössum fjölgar  Í fyrsta sinn frá árinu 1997 tekur íslenska karla- landsliðið í hand- knattleik þátt í stórmóti án Guð- jóns Vals Sig- urðssonar. Af 17 leikmönnum landsliðsins sem tekur þátt í HM eru sex fæddir 1997 eða síðar. Guðjón hafði tekið þátt í tveimur mótum þegar sá yngsti, Haukur Þrastarson, kom í heiminn vorið 2001. » Íþróttir Ekki með í fyrsta sinn á öldinni Guðjón Valur Sigurðsson

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.