Morgunblaðið - 09.01.2019, Page 4

Morgunblaðið - 09.01.2019, Page 4
4 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 9. JANÚAR 2019 TANGARHÖFÐA 13 VÉLAVERKSTÆÐIÐ kistufell.com Það er um 80% ódýrara að skipta um tímareim miðað við þann kostnað og óþægindi sem verða ef hún slitnar Hver er staðan á tíma- reiminni í bílnum þínum? Hringdu og pantaðu tíma í síma 577 1313 Veður víða um heim 8.1., kl. 18.00 Reykjavík 5 alskýjað Hólar í Dýrafirði 6 súld Akureyri 3 alskýjað Egilsstaðir 1 heiðskírt Vatnsskarðshólar 4 rigning Nuuk -5 snjókoma Þórshöfn 2 léttskýjað Ósló 1 skýjað Kaupmannahöfn 2 skúrir Stokkhólmur 0 snjókoma Helsinki 0 snjókoma Lúxemborg 3 skúrir Brussel 6 skúrir Dublin 7 léttskýjað Glasgow 6 léttskýjað London 7 léttskýjað París 8 skýjað Amsterdam 7 léttskýjað Hamborg 5 skýjað Berlín 5 rigning Vín 2 snjókoma Moskva -9 snjókoma Algarve 16 heiðskírt Madríd 14 heiðskírt Barcelona 10 heiðskírt Mallorca 13 léttskýjað Róm 9 rigning Aþena 1 léttskýjað Winnipeg -13 skýjað Montreal -1 þoka New York 4 þoka Chicago 6 þoka Orlando 21 heiðskírt  9. janúar Sólarupprás Sólsetur REYKJAVÍK 11:08 16:03 ÍSAFJÖRÐUR 11:45 15:36 SIGLUFJÖRÐUR 11:29 15:17 DJÚPIVOGUR 10:45 15:24 VEÐUR KL. 12 Í DAG Á fimmtudag Vestan 18-23 m/s úti við N-ströndina um morgun. Hvöss vestanátt og þurrt fyrir austan. Á föstudag Gengur í sunnan og suðaustan 10-18 m/s með slyddu eða rigningu. Hlýnar í veðri. Suðvestanátt, 18-25 m/s á norðanverðu landinu, hvassast á Ströndum og Tröllaskaga, en mun hægari syðra. Rigning á vestanverðu landinu, en þurrt að kalla eystra. Hiti 5 til 14 stig. Höskuldur Daði Magnússon hdm@mbl.is „Við viljum reyna að gera allt fyrir þau í þessum erfiðu aðstæðum, gera lífið eins gott og hægt er þessi fáu ár sem Elwíra á eftir,“ segir Monika Kalucka, einn aðstandenda fjársöfnunar fyrir Elwíru Koł- akowska. Elwíra greindist með alvarlegan taugasjúkdóm sem kallast Amyot- rophic Lateral Sclerosis (ALS) með Pseudobulbar Syndrome, eða blandaða hreyfitaugahrörnun sem er algengasta form MND-sjúk- dómsins og Pseudobulbar Affect (PBA) sem einnig leggst á tauga- kerfi fólks. Þessir tveir sjúkdómar hafa gjörbreytt lífi Elwíru og munu á endanum gera hana algerlega ósjálfbjarga. Læknar hafa sagt að lífslíkur hennar séu frá tveimur ár- um og upp í nokkur ár. Á nokkur ár ólifuð Elwíra og maður hennar, Czarek, bjuggu á Íslandi í tæp ellefu ár en fluttu aftur til Póllands síðasta sumar vegna veikinda Elwíru. Að sögn Moniku starfaði Elwíra hjá J.M. ræstingum í Brimborg í um það bil áratug. Czarek er aftur á móti vélsmiður og starfar enn í törnum hjá Vélafli ehf. Þau bjuggu í Árbænum, fyrst í Reykási en síðar í Rauðási en seldu íbúð sína þegar þau fluttu til Póllands. Nú búa þau hjá foreldrum Elwíru í Plonk, sem er 70 kílómetra frá Varsjá. Elwíra og Czarek eiga tvö börn, Emiliu Leu, sem er sex ára og var á leik- skólanum Rofaborg, og Jakub Alan, sem er tveggja og hálfs árs og var á leikskólanum Heiðarborg. Elwíra uppgötvaði veikindi sín í byrjun árs 2017 og daginn sem hún varð 33 ára fékk hún greininguna. Þá var henni tilkynnt að hún ætti aðeins nokkur ár eftir ólifuð. „Læknarnir sögðu að hún myndi kannski lifa í tvö ár og kannski í nokkur ár. Stephen Hawking var með þessa sjúkdóma og hann lifði með þeim í 55 ár,“ segir Monika í samtali við Morgunblaðið. Eftir greiningu hafa hlutirnir gerst hratt. Fyrir ári gat Elwíra keyrt bíl en í dag er hún með nær- ingu í æð, þarf umönnun allan sól- arhringinn og aðstoð við allt. „Læknar geta ekki gert mikið fyrir hana en það er hjálp í talmeina- fræðingum og sjúkraþjálfurum. Mamma hennar Elwíru var með þeim í hálft ár á Íslandi en þeim þótti betra að fara aftur til Póllands og vera með allri fjölskyldunni.“ Vinir á Íslandi safna peningum Það er engin lækning við ALS/ MND-sjúkdómnum, aðeins er hægt að reyna að hægja á honum. Nýlega kom þó lyf á markaðinn í Banda- ríkjunum sem virðist geta hægt á og jafnvel stöðvað PBA-sjúkdóminn sem einnig lagðist á Elwíru. Að sögn Moniku er þetta lyf ekki fáan- legt í Evrópu og fæst því ekki nið- urgreitt af tryggingum en mánað- arlegur skammtur kostar um 200 þúsund krónur. Lyfið hefur virkað vel á Elwíru og eftir mánaðarnotk- un batnaði ástand hennar til muna. Vinir Elwíru á Íslandi hafa efnt til söfnunar fyrir hana til að fjöl- skyldan eigi möguleika á að kaupa áðurnefnt lyf og rafmagnshjólastól til að auðvelda henni ferðir. Þegar hafa safnast 282 þúsund krónur að sögn Moniku. Hægt er að kynna sér söfnunina á Facebook-síðunni Vinir Elwíru á Íslandi og leggja söfnuninni lið með frjálsum fram- lögum. Bankanúmer er 0133-26- 020335 og kennitala 701118-0730. Þarf stöðuga umönnun  Elwíra Kolawska greindist með alvarlegan taugasjúkdóm daginn sem hún fagn- aði 33 ára afmælinu  Hefur hrakað hratt síðasta ár  Safnað fyrir dýrum lyfjum Veikindi Elwíru Kołakowska hefur hrakað mikið síðasta árið. Á Íslandi Elwíra og Czarek með börnum sínum Emiliu og Jakub. „Þau sakna Íslands og tala oft um hvað það var yndislegt að búa hér.“ Mennta- og menningarmála- ráðherra hefur staðfest að fallist verði á tillögu Minjastofnunar um friðlýsingu Víkurgarðs, gamla kirkju- garðsins við Aðal- stræti. Nær frið- lýsingin til leifa af kirkju og kirkjugarðs og annarra fornminja innan lóðarmarka Víkur- garðs eins og hann er skilgreindur í lóðauppdrætti. Friðlýsingartillaga Minjastofn- unar hefur verið til umfjöllunar í mennta- og menningarmálaráðu- neytinu um tíma. Tekið er fram í til- kynningu ráðuneytisins að svæðið teljist nú þegar til friðaðra forn- minja sökum aldurs en það er mat Minjastofnunar Íslands að aldurs- friðun Víkurgarðs hafi ekki verið virt með fullnægjandi hætti og því sé nauðsynlegt að efla vernd minjanna. Unnið er að byggingu hótels á eða við Víkurgarð og hefur framkvæmd- in verið umdeild. 30 kynslóðir Reykvíkinga Í rökstuðningi með friðlýsingar- tillögunni segir Minjastofnun meðal annars að undir hellulögðu yfirborði Víkurgarðs liggi saga rúmlega 1100 ára búsetu í Reykjavík. Ætla megi að í kirkjugarðinum sjálfum hvíli jarðneskar leifar um 30 kynslóða Reykvíkinga. Friðlýsing Víkurgarðs staðfest  Saga rúmlega 1100 ára búsetu í Reykjavík Víkurgarður Efla ber vernd minja. Kristján H. Johannessen khj@mbl.is „Það sem helst kemur á óvart er hversu mikið staðan hefur versnað þrátt fyrir að búið sé að grípa til margvíslegra úrræða síðustu árin. Ár- ið 2014 var farið að tala um vanda við útskriftir og þá voru Vífilsstaðir opnaðir sem biðpláss, en staðan hefur farið versnandi síðan þá,“ segir Alma D. Möller landlæknir við Morgunblaðið. Vísar hún í máli sínu til hlutaúttektar sem Embætti landlæknis gerði á stöðu bráðamót- töku Landspítalans eftir að hafa borist ábend- ing um alvarlega stöðu þar í desember sl. Fram kemur í niðurstöðum úttektar að mikill vandi liggi í þjónustu við sjúklinga sem bíða eftir innlögn og er meðaldvalartími sjúklinga sem bíða innlagnar á deildir spítalans 23,3 klukkustundir, en æskilegt viðmið er 6 klukku- stundir. „Ástæður þessa eru einkum tvær og endur- speglast í skorti á virkum legurýmum; annars vegar sú að einstaklingar sem lokið hafa með- ferð á spítalanum geta ekki útskrifast þar sem úrræði skortir utan hans og er þar einkum um að ræða hjúkrunarrými fyrir aldraða. Þannig bíða nú 53 einstaklingar á bráðadeildum og endurhæfingu. Hins vegar hefur þurft að loka legurýmum á bráðalegudeildum vegna skorts á hjúkrunarfræðingum og eru nú 35 rúm lokuð vegna þess,“ segir í úttekt landlæknis sem birt er á heimasíðu embættisins. Þá er þess einnig getið í niðurstöðum úttekt- ar að bráðamóttöku Landspítala „tekst vel að sinna bráðahlutverki sínu. Ekki er töf á því að þeir sem veikastir eru fái þjónustu og meðal- dvalartími þeirra sem útskrifast heim hefur ekki lengst, er 4-5 klst. sem er innan viðmiða.“ Í skýrslunni eru lagðar fram ábendingar til Landspítala sem einkum fjalla um starfsum- hverfi og mönnun, slípun innri ferla, eflingu dag- og göngudeilda og endurmat á því hvort rétt var að loka Hjartagátt. Í ábendingum til heilbrigðisráðuneytis er bent á að opna þurfi án tafar fleiri hjúkrunarrými, efla heimahjúkr- un, heimaþjónustu og dagdvalarrými. Þá þarf einnig að efla mönnun, sérstaklega hjúkrunar- fræðinga og sjúkraliða með öllum tiltækum ráðum. Mikið álag og augljós undirmönnun Í úttekt embættisins var meðal annars rætt við starfsfólk bráðamóttöku og tveggja legu- deilda, A-6 og 12-E. „Starfsandinn er ótrúlega góður miðað við mjög erfiðar aðstæður. Fólk sagði álagið vera of mikið og það er ekki hægt að loka augunum fyrir því. Undirmönnun er augljós,“ segir hún. Verri staða þrátt fyrir úrræði  Embætti landlæknis gerði hlutaúttekt á stöðu bráðamóttöku Landspítala og tveggja legudeilda Morgunblaðið/Ómar Spítali Bráðamóttaka LSH er í Fossvogi.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.