Morgunblaðið - 09.01.2019, Síða 6
6 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 9. JANÚAR 2019
spennandi, eitthvað sem mögulega
vantar í miðbæinn.“
Í útrás til Portland
Að sögn Ólafs Ágústssonar mun
nýr staður verða opnaður á Hverfis-
götu 12 á morgun. Hefur hann fengið
nafnið Systir með vísan í að hann
verður systurstaður Dill. „Þarna
verður smáréttafílingur í norrænum
stíl. Okkur langar að sækja meira á
Dill restaurant enda finnst okkur við
eiga meira inni þar,“ segir hann.
Fleira nýtt er í bígerð því Ólafur og
félagar hans munu opna Kex hostel í
Portland í Oregon-fylki í október.
„Þetta verður í sama anda og Kexið
en ný borg og nýtt land og við erum í
samstarfi við mjög sterkan aðila
þarna. Það gerist örugglega eitthvað
stórkostlegt í Portland. Samhliða
þessu ætlum við að koma Kex Brew-
ing fyrir þar,“ segir Ólafur Ágústsson.
sem okkur finnst skemmtilegt,“ segir
Ólafur Ágústsson í samtali við Morg-
unblaðið.
Miklar framkvæmdir
Kex hostel er eins og áður segir í
meirihlutaeigu Fiskisunds ehf. Eig-
endur þess félags eru eignarhalds-
félög í eigu þeirra Einars Arnar
Ólafssonar, Höllu Sigrúnar Hjartar-
dóttur og Kára Guðjónssonar. Þau
hafa verið umsvifamikil í fjárfest-
ingum hér á landi síðustu ár. Aðrir
eigendur Kex hostels eru félag í eigu
Birkis Kristinssonar ásamt tveimur af
upprunalegum eigendum, þeim Pétri
Hafliða Marteinssyni og Degi Sig-
urðssyni.
„Þetta er orðinn einfaldari rekst-
ur,“ segir Pétur. „Að vísu eru miklar
framkvæmdir á lóðinni og í kjallar-
anum og þar gæti komið nýr rekstur
með vorinu. Það verður eitthvað
Höskuldur Daði Magnússon
hdm@mbl.is
Rekstri veitingaveldisins í kringum
KEX hostel hefur verið skipt upp. Í
dag er annars vegar um að ræða Kex
hostel við Skúlagötu og veitingastað-
inn og barinn þar sem er í meirihluta-
eigu Fiskisunds ehf. Hins vegar er
um að ræða veitingastaði við Hverfis-
götu 12; Michelin-staðinn Dill, barinn
Mikkeller & friends og nýjan stað
sem tekur við af nafnlausa pitsa-
staðnum þar auk KEX Brewing og
bjórhátíðarinnar The Annual Ice-
landic Beer Festival. Þessi hluti er í
eigu Kristins Vilbergssonar og veit-
ingamannanna Ólafs Ágústssonar,
Hinriks Carls Ellertssonar, Gunnars
Karls Gíslasonar og hönnuðarins
Hálfdanar Pedersen.
„Þetta er allt í hinu mesta bróðerni.
Við ætlum að einbeita okkur að því
Morgunblaðið/Þórður
Vinsæll staður KEX hostel hefur notið mikilla vinsælda síðasta áratuginn, bæði sem veitinga- og tónleikastaður.
Veitingaveldi KEX
hostels skipt í tvennt
Nýr veitingastaður opnaður á Hverfisgötu 12 á morgun
Eftirhreytur áramótagleði sjást
víða á götum borgarinnar þessa
dagana, þar sem enn liggur flug-
eldarusl frá gamlárskvöldi. Rétt
eins og litadýrð rakettanna veitir
gleði er sóðaskapurinn mörgum til
ama, eins og sást í gær á göngustíg-
um í Laugarnesinu í Reykjavík.
Á vef Reykjavíkurborgar er sagt
mikilvægt að íbúar hreinsi sjálfir
upp leifar af skoteldum í sínu nán-
asta umhverfi. Mælst er til þess að
fólk skili rusli þessu á endur-
vinnslustöðvar Sorpu en setji ekki í
tunnur við heimili sín, sem ein-
hverjir munu sjálfsagt freistast til
að gera. Þangað á einnig að skila
jólatrjám en þau eru flokkuð með
trjágreinum, kurluð og fá þannig
framhaldslíf.
Sóðaskapur inn
við Sundin blá
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Flugfarþegar njóta mikilla réttinda í
flugi til og frá Evrópska efnahags-
svæðinu og Sviss, að því er fram
kemur á heimasíðu Samgöngustofu.
Þar er fjallað sérstaklega um rétt-
indi samkvæmt tiltekinni reglugerð
ESB. Til að þau séu í gildi þarf flugið
annaðhvort að fara frá EES-landi og
á það við um öll flugfélög, eða að
koma til EES með EES-flugrek-
anda. Sé fluginu aflýst á farþeginn
rétt á vali á milli annars flugs sem
flugfélagið útvegar eða endur-
greiðslu farmiðans, svo lengi sem
EES-reglur ná yfir flugið. Farþeg-
inn gæti eftir atvikum einnig átt rétt
á skaðabótum.
Neytendasamtökin hafa fengið
nokkurn fjölda fyrirspurna um rétt-
arstöðu flugfarþega vegna þess að
WOW air hefur aflýst flugferðum til
Indlands, að því er segir á heimasíðu
félagsins (ns.is).
„Farþegar hafa þá kvartað undan
því að þeim hafi eingöngu verið boð-
inn sá valkostur að fá endurgreiðslu
á farmiðum, þá ýmist í formi peninga
eða gjafabréfs. Þeir einstaklingar
sem leitað hafa til samtakanna hafa
þá velt fyrir sér hvort aðrir mögu-
leikar ættu ekki að standa þeim til
boða,“ segir í fréttinni.
Endurgreiðsla, gjafabréf
eða breyting á flugi
Hjá WOW air fengust þær upplýs-
ingar að farþegum sem lentu í því að
flugi þeirra væri aflýst stæði þrennt
til boða: Að fá flugfarið endurgreitt,
að fá gjafabréf með WOW air að
hærri fjárhæð en sem nemur and-
virði flugfarsins eða að breyta flugi
sínu yfir á annan áfangastað WOW
air eða á aðra dagsetningu til sama
áfangastaðar, sé það í boði. Þá sagði í
skriflegu svari WOW air:
„Sem alþjóðlegt flugfélag, þá ber
okkur skylda til að vinna eftir
reglum hvers ríkis fyrir sig. Á milli
Indlands, Evrópu og Norður-Amer-
íku gilda mismunandi reglur um
réttindi farþega. Á það sérstaklega
við þegar um aflýsingar af þessu tagi
er að ræða. Til dæmis má nefna að
farþegar sem eiga flug frá Banda-
ríkjunum til Indlands í gegnum
Keflavík eiga aðeins rétt á endur-
greiðslu en ekki að vera komið fyrir í
flugi með öðrum flugrekanda.
Evrópska reglugerðin sem Sam-
göngustofa vísar í gengur út frá því
farþegum sé komið á leiðarenda með
sambærilegum flutningsskilyrðum
eins fljótt og auðið er eða seinna
meir við fyrsta hentugleika. Þetta
hefur ekki verið skilgreint með ná-
kvæmari hætti í framkvæmd. Flug-
rekendur hafa ákveðið svigrúm til
þess að koma farþegum fyrir í öðru
flugi í sínu eigin leiðakerfi en ef það
er ekki mögulegt þá geta farþegar
krafist þess að fá farmiða með öðrum
flugrekendum. Meti WOW air að-
stæður svo að farþegar eigi rétt á því
að vera komið á áfangastað af hálfu
WOW air, þá gerir félagið allt sem í
okkar valdi stendur til þess að verða
við beiðni farþega.“ gudni@mbl.is
Ólíkar reglur um
réttindi flugfarþega
Þrír kostir standa til boða hjá WOW air ef flugi er aflýst