Morgunblaðið - 09.01.2019, Side 10
10 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 9. JANÚAR 2019
Kristján H. Johannessen
khj@mbl.is
„Mér finnst þetta sjálfdautt og að
borgarstjóri hafi farið illa að sínu
ráði. Eins og málum er háttað núna
þá á sú vinna sem framundan er al-
farið að vera í höndum borgarráðs.
Best hefði verið ef Dagur [B. Egg-
ertsson borgarstjóri] hefði farið út
og inn hefði komið hlutlaus aðili,
enda krefst þessi vinna ekki póli-
tísks meirihluta,“ segir Hildur
Björnsdóttir, borgarfulltrúi Sjálf-
stæðisflokksins, við Morgunblaðið.
Vísar hún í máli sínu til þeirrar
ákvörðunar borgarstjóra að víkja
ekki úr þriggja manna hópi sem á
að rýna í niðurstöður skýrslu innri
endurskoðunar Reykjavíkurborgar
um kostnað vegna endurgerðar
bragga við Nauthólsveg í Reykja-
vík. Er skýrslan sögð varpa ljósi á
gríðarlega sóun á fjármunum borg-
arbúa. Vegna ákvörðunar borgar-
stjóra hefur Hildur ákveðið að segja
sig frá hópnum og verður hann ein-
göngu skipaður Degi og Þórdísi
Lóu Þórhallsdóttur, oddvita Við-
reisnar og formanni borgarráðs.
„Ef við viljum fá góð málalok í
þetta braggamál og einhverja nið-
urstöðu sem hægt er að bera traust
til þá hefði átt að haga þessum mál-
um með allt öðrum hætti en Dagur
kýs að gera,“ segir Hildur og bætir
við að Dagur hefði sýnt af sér
ákveðna háttvísi með því að segja
sig frá rýnihópnum. „Braggamálið
er birtingarmynd af stærri vanda
sem er vanvirðing við skattfé. Við
erum að sjá ítrekaðar framúr-
keyrslur og ef við eigum að koma í
veg fyrir það þá þarf að taka
braggamálið föstum tökum,“ segir
hún.
Braggamálinu er ekki lokið
Í viðtali við Rás 1 í fyrrakvöld sló
Dagur því föstu að braggamálinu
væri lokið sem og framkvæmdum
vegna braggans.
„Braggamálinu er lokið. Fram-
kvæmdum er lokið. Óháðri úttekt er
lokið. Núna bíða umbætur og ég
held að það sé skylda okkar allra að
vinna að því. Þar er stjórnkerfið
undir og við berum öll ábyrgð á því
að tryggja að ferlar séu fyrir hendi,
þeim sé fylgt og svona gerist ekki
aftur,“ sagði hann.
Vigdís Hauksdóttir, oddviti Mið-
flokksins, segir málinu hins vegar
hvergi nærri lokið og að enginn til-
gangur sé með vinnu tveggja
manna hóps Dags og Þórdísar Lóu.
„Þetta átti að vera enn einn hvít-
þvotturinn. Það sjá það allir að það
gengur ekki að sá sem hvað mest er
fjallað um í skýrslunni sé að skoða
sjálfan sig og eigi svo að koma með
úrbætur á eigin verkum,“ segir hún.
Þá segist Vigdís hafa orðið undr-
andi á ummælum borgarstjóra þeg-
ar sá lýsti því yfir að braggamálinu
væri nú lokið.
„Þetta eru bara ósannindi því
braggamálið er bara rétt að byrja
og svo má nú ekki gleyma því að
framkvæmdum er ekki einu sinni
lokið því náðhúsið stendur enn fok-
helt,“ segir hún og bætir við að nú
þegar sé búið að „skrifa 450 millj-
ónir á braggann“ með fé frá
Reykjavíkurborg og Háskólanum í
Reykjavík.
Eyþór Laxdal Arnalds, oddviti
Sjálfstæðisflokksins, tekur í svip-
aðan streng og segir rýnihópinn
hafa verið „vanhugsaðan frá upp-
hafi“ því enginn geti dæmt eigin
verk.
„Svo er það rangt að braggamálið
sé búið. Það er ekki búið að vinna
úr niðurstöðu innri endurskoðunar
né niðurstöðu borgarskjalasafns
sem benti á að lög voru brotin,“
segir Eyþór og vísar þar til tölvu-
póstsamskipta sem horfin eru án
skýringa.
Borgarstjóri vísar á Viðreisn
Dagur vísaði á Þórdísi Lóu þegar
Morgunblaðið leitaði viðbragða hjá
honum. Hún segir rangt að tala um
rýnihóp.
„Þetta er nú hvorki hópur né
nefnd heldur bara þrír borgarráðs-
fulltrúar sem fengu það verkefni að
draga saman tillögur að úrbótum og
leggja fyrir borgarráð. Og sú vinna
byrjaði strax fyrir jól og hluti vinn-
unnar verður lagður fyrir borgar-
ráð næsta fimmtudag,“ segir hún.
Spurð hvort verið sé að gera of
mikið úr veru Dags í „hópnum“
svarar Þórdís Lóa: „Mér finnst
braggaskýrslan ekki kalla á þessi
viðbrögð. Mér finnst þessi viðbrögð
vera frekar mikil. Við eigum frekar
að setja áhersluna á það sem stend-
ur í braggaskýrslunni og þær um-
bætur sem við verðum að fara í.“
Líf Magneudóttir, borgarfulltrúi
Vinstri grænna, segir það engin
áhrif hafa á vinnuna þó að Hildur
segi sig frá hópnum. „Mér finnst
það hins vegar mjög leiðinlegt að
hún ákvað að segja sig frá þessu
verki. Það fylgir því ábyrgð að taka
þetta verk að sér og vinna úr
skýrslunni. Og í þeirri vinnu hefði
ég viljað sjá áhrif og sýn Hildar,“
segir hún og bætir við: „Það þarf að
vinna úr skýrslunni, draga fram það
sem aflaga fór og koma því í réttan
farveg. Og því er gott að borg-
arstjóri og formaður borgarráðs
geri það.“
Rýnihópur um braggamálið
nú sagður vera sjálfdauður
Borgarstjóri segir braggamálið búið Borgarfulltrúar eru þó á öðru máli
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Braggakofi Á sama tíma og borgarstjóri segir braggamálinu svonefnda vera lokið segja borgarfulltrúar það rétt að
byrja. Nýverið var kynnt skýrsla um uppbyggingu bragga og varpar hún ljósi á gríðarlega sóun á fjármunum.
Hildur
Björnsdóttir
Vigdís
Hauksdóttir
Líf
Magneudóttir
Eyþór L.
Arnalds
Þórdís Lóa
Þórhallsdóttir
Dagur B.
Eggertsson
Hulda Hólmkels-
dóttir hefur ver-
ið ráðin upplýs-
ingafulltrúi þing-
flokks Vinstri-
hreyfingarinnar
– græns fram-
boðs. Hulda mun
annast samskipti
við fjölmiðla fyr-
ir hönd þing-
flokksins og að-
stoða þingmenn við störf.
Hulda lauk stúdentsprófi frá
Menntaskólanum á Akureyri árið
2012 og BA-gráðu í stjórnmála-
fræði frá Háskóla Íslands árið
2016. Hún hefur frá 2016 starfað
sem fréttamaður á fréttastofu
Stöðvar 2. Samhliða námi við HÍ
tók Hulda þátt í starfi Röskvu,
bæði í stjórn félagsins og sem
kosningastýra. Þá var hún tals-
kona Ungra vinstri grænna 2014-
2015.
Fyrir eru starfsmenn þing-
flokksins þeir Kári Gautason fram-
kvæmdastjóri þingflokks og Leifur
Valentín Gunnarsson ritari.
Ráðin upp-
lýsinga-
fulltrúi VG
Hulda
Hólmkelsdóttir
Hulda verður þing-
flokki til aðstoðar
Lögreglan á
Akureyri var
með eftirlit við
Giljaskóla í
gærmorgun í
kjölfar þess að
tilkynnt voru
tvö atvik þar
sem maður
reyndi að fanga
athygli stúlkna í
og við skólann í gær. Að sögn lög-
reglu er ómögulegt að segja til um
hvort um sama mann er að ræða.
Fyrst var greint frá málinu á vef
Fréttablaðsins.
„Það komu tvær tilkynningar til
okkar í gær [í fyrradag]“ sagði
Sigurður Sigurðsson, varðstjóri
lögreglunnar á Akureyri, í samtali
við mbl.is í gær. Hann sagði lög-
reglu fylgjast með skólasvæðinu.
Lýsingar á manninum, eða
mönnunum, væru ekki sérlega
greinargóðar. Í öðru tilvikinu var
um að ræða dökkklæddan mann
sem reyndi að ná sambandi við
stúlkur á skólalóðinni. Hitt atvikið
sneri að manni sem kom akandi að
stúlkum rétt utan skólans og vildi
ræða við þær. Sigurður sagði að
lögregla tæki tilkynningar sem
þessar að sjálfsögðu alvarlega.
Lögregla með
eftirlit í kjölfar
tilkynninga
Fjölbreytt úrval af gæða viftum frá Vent-Axia fyrir eldhúsið, baðherbergið, skrifstofuna,
verkstæðið eða hesthúsið. Við aðstoðum ykkur við rétta valið.
Lo-Carbon Silhouette 125 Centrif-duo Silent
12in Wall fan Hi-line Sabre Plate
DALVEGI 10-14 | 201 KÓPAVOGI | SÍMI 540 7000 | FALKINN.IS
Hreint loft og vellíðan
Það borgar sig að nota það besta
VENT–AXIA VIFTUR