Morgunblaðið - 09.01.2019, Síða 12

Morgunblaðið - 09.01.2019, Síða 12
12 DAGLEGT LÍF MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 9. JANÚAR 2019 Viðarhöfða 1, 110 Reykjavík | Sími 566 7878 | rein.is Bakteríuvörn Kvarts steinn frá Silestone er fáanlegur í fjölbreyttum áferðum og litum. Silestone bjóða einir upp á borðplötur með varanlegri bakteríu- og sveppavörn. Gefðu heimilinu ferskleika og líf á þínum forsendummeð Silestone. Blettaþolið Sýruþolið Högg- og rispuþolið Kvarts steinn í eldhúsið silestone.com Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is H eimsmarkmið Samein- uðu þjóðanna er að finna á veggspjöldum sem að undanförnu hafa verið send í alla skóla og menntastofnanir landsins. Útgáfa spjaldanna er sameiginlegt verkefni Félags Sameinuðu þjóð- anna á Íslandi og verkefnastjórnar stjórnvalda um heimsmarkmiðin sem vilja að nemendur og starfslið skóla kynnist betur mikilvægum skilaboðum sem kallast geta leiðar- stef fyrir lífið í veröldinni. Mannréttindi og sjálfbær lífsstíll „Svo heimsmarkmiðin, sem eru háleit, nái fram að ganga verða allir að leggjast á eitt,“ segir Harpa Júl- íusdóttir, starfandi framkvæmda- stjóri Félags Sameinuðu þjóðanna á Íslandi. „Sérhver áfangi sem næst er sigur. Þar er skemmst að minn- ast þúsaldarmarkmiða Sameinuðu þjóðanna sem giltu 2000-2015. Með þeim náðist að fækka þeim jarð- arbúum sem lifa við sára fátækt um helming, verulega dró úr ung- barnadauða og miklir sigrar unnust í baráttu við hungur og sjúkdóma á borð við malaríu og berkla. Í þessu tilliti getum við verið bjartsýn um árangur. Að skapa veröld fyrir alla þar sem friður, mannréttindi og sjálfbærni eru leiðarljós er verkefni sem við eigum öll að geta tekið þátt í af heilum hug þó að við náum ekki að skapa hinn fullkomna heim.“ Heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna tóku gildi fyrir þremur ár- um og samkvæmt þeim verður starfað til ársins 2030. Sjálfbærni og sterkari mannréttindi eru áberandi á þessu plaggi þar sem á blaði eru sautján markmið með 169 undir- greinar. Boðskapurinn er annars í stórum dráttum sá að útrýma fá- tækt og hungri, draga úr ójöfnuði, sporna gegn loftslagsbreytingum, vernda líf sem og að efla mannrétt- indi og ýta undir sjálfbæran lífsstíl. Íslensk stjórnvöld hafa nú þegar hafið innleiðingu á heimsmark- miðum inn í stefnu sína og er útgáfa veggspjaldsins styrkt af verk- efnastjórn Heimsmarkmiða Samein- uðu þjóðanna sem skipuð er af rík- istjórninni en öll ráðuneyti eiga fulltrúa í verkefnastjórninni auk Hagstofu Íslands og Sambands ís- lenskra sveitarfélaga. Unga fólkið fái fræðslu og tækifæri „Við höfum fengið talsverð við- brögð eftir að veggspjöldin voru send þar sem skólastjórnendur og kennarar eru að leita leiða til að samþætta heimsmarkmiðin við kennslu og almennt skólastarf,“ seg- ir Harpa. Samhliða afhendingu veggspjalda var kynntur undirvefur á un.is, þar sem má nálgast talsvert af efni sem nýtist við kennslu á heimsmarkmiðunum. Í skólum hef- ur fræðsla um heimsmarkmiðin ver- ið tvinnuð inn í almenna kennslu og námsáætlanir. Í öðrum tilvikum er hún viðfangsefni þemadaga. Og allt skiptir þetta máli og þar tiltekur Harpa að eitt af undirmarkmiðunum sé að allir nemendur skóla heimsins öðlist nauðsynlega þekkingu og færni til þess að ýta undir sjálfbæra þróun og hlúa að friðsamlegri menn- ingu, þar sem allir geta notið sín. „Það er lykilatriði að unga kyn- slóðin fái fræðslu og tækifæri til að leggja sitt af mörkum. Ég hef komið inn í skóla til að ræða heimsmark- miðin við nemendur og má greina einlægan áhuga. Krakkarnir búa yf- ir endalausum hugmyndum um betri heim fyrir alla,“ segir Harpa. Hún telur það jafnframt mikið fagn- aðarefni að ríkisstjórnin hafi sett sér það að markmiðið að kalla ung- menni sérstaklega að borðinu og hafa í þeim tilgangi stofnað Ung- mennaráð Heimsmarkmiða Samein- uðu þjóðanna. Þar voru valin inn 12 ungmenni á aldrinum 13-18 ára sem vinna að framgangi heimsmarkmið- ana og fundar ráðið einu sinni á ári með ríkisstjórninni til að kynna sín- ar áherslur og hugmyndir. Órjúfanleg heild Hugsjónin á bak við Heims- markmið Sameinuðu þjóðanna er að þau myndi órjúfanlega heild og að eitt styðji annað. Fátækt verði ekki útrýmt án þess að vinna að jafnrétti kynjanna og í baráttu fyrir friði í heiminum sé mikilvægt að huga að efnahagslegri sjálfbærni ríkja. Sam- kvæmt ákvörðun ríkisstjórnar Katr- ínar Jakobsdóttur verður þó sérstök áhersla lögð á loftslagsmálin, enda ljóst að þar stendur Ísland and- spænis ýmsum áskorunum. Einnig að velja úr 65 undirmarkmið af þeim 169 sem fylgja Heimsmarkmiðunum 17. Með framvindunni verðir hægt að fylgjast á www.heimsmarkmid- in.is. Þá stendur til að opna hug- myndagátt þar sem hægt er að leggja orð í belg. „Við hjá Félagi Sameinuðu þjóðanna erum gífurlega spennt fyr- ir þeim vettvangi sem þar myndast til að skiptast á hugmyndum um verkefni og nýsköpun. Og um lofts- lagsmálin vildi ég sagt hafa að brýnt er að öll heimsbyggðin leggist á eitt og finni lausnir. Í því efni kemur vel fram hve samofin markmiðin eru hvert öðru – þó svo að það að sporna við hlýnun jarðar sé sérstaklega mikilvægt,“ segir Harpa. Endalausar hugmyndir um betri heim Allir leggi sitt af mörk- um! Heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna nú kynnt í öllum skólum landsins. Sjálfbærni er lykilatriði. Sérhver áfangi sem næst er sigur. AFP Afríka Víða er neyð og hungur í heimi. Gegn þeirri bitru staðreynd er unnið á vettvangi Sameinuðu þjóðanna. Morgunblaðið/Eggert Samstarf Vettvangur til þess að skiptast á hugmyndum, segir Harpa Júlíus- dóttir, starfandi framkvæmdastjóri Félags Sameinuðu þjóðanna á Íslandi. Útrýma fátækt í allri sinni mynd. Útrýma hungri, tryggja fæðuöryggi og bæta næringu. Stuðla að sjálf- bærum landbúnaði. Stuðla að heilbrigðu líferni og vellíðan fyrir alla frá vöggu til grafar. Tryggja jafnan aðgang að góðri menntun og stuðla að tækifærum til náms alla ævi. Jafnrétti kynjanna verði tryggt og völd allra kvenna og stúlkna efld. Tryggja aðgengi að og sjálfbæra nýtingu á hreinu vatni og salernisaðstöðu. Tryggja öllum aðgang að öruggri og sjálfbærri orku á viðráðanlegu verði. Stuðla að viðvarandi sjálfbærum hagvexti og arðbær- um og mannsæmandi atvinnutækifærum. Byggja upp viðnáms- þolna innviði, stuðla að sjálfbærri iðnvæðingu og hlúa að nýsköpun. Draga úr ójöfnuði innan og á milli landa. Gera borgir og íbúðasvæði öllum auðnotuð, örugg, viðnámsþolin og sjálfbær. Sjálfbær neyslu- og framleiðslu- mynstur verði tryggð. Grípa til aðgerða gegn loftslags- breytingum og áhrifum þeirra. Vernda og nýta hafi ð og auðlindir þess á sjálf- bæran hátt. Vernda, endur- heimta og stuðla að sjálfbærri nýtingu vistkerfa á landi, sjálfbærri stjórnun skóga, berjast gegn eyðimerkurmyndun, stöðva jarðvegseyðingu og endurheimta landgæði og sporna við hnignun líffræðilegrar fjölbreytni. Stuðla að friðsæl- um og sjálfbærum samfélög- um, tryggja jafnan aðgang að réttarkerfi og byggja upp ábyrgar stofnanir fyrir alla. Styrkja framkvæmd og blása lífi í alþjóðlegt samstarf um sjálfbæra þróun. 17 heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna um sjálfbæra þróun

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.