Morgunblaðið - 09.01.2019, Qupperneq 14
BAKSVIÐ
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Skipulagsyfirvöld í Garðabæ hafa
kynnt tillögu að deiliskipulagi
nýrrar íbúðabyggðar á Lyngási.
Hugmyndir eru um nokkur hundruð
íbúðir á reitnum.
Kynningarfundur um uppbygg-
inguna fer fram í Flataskóla klukk-
an 17.15 í dag,
miðvikudag.
Gunnar Ein-
arsson, bæjar-
stjóri Garða-
bæjar, segir um
forkynningu að
ræða. Frestur til
að senda ábend-
ingar sé til 28.
janúar. Þar sem
um forkynningu
sé að ræða verði
athugasemdum ekki svarað form-
lega. Eftir úrvinnslu ábendinga frá
íbúum verði auglýst nýtt deiliskipu-
lag og þá fari athugasemdir og svör
við þeim í formlegan farveg. Raun-
hæft sé að því ferli ljúki í byrjun
sumars. Að því loknu verði farið í
lokahönnun svæðisins.
Fullbyggður innan fjögurra ára
„Þá fara hönnuðir að hanna götur
og verktakinn sem á hluta svæðis-
ins, Mótás Garðabær ehf., fer að
undirbúa niðurrif á gömlum húsum
og hefja byggingu íbúða,“ segir
Gunnar sem telur mögulegt að
framkvæmdir hefjist fyrir áramót.
Ef allt gangi að óskum geti reiturinn
verið fullbyggður innan fjögurra
ára. Stefnt er að því að byggja allt
að 400 íbúðir í þessum áfanga og
munu þær rúma í kringum eitt þús-
und íbúa. Síðar kemur til greina að
fjölga íbúðum á svæðinu með frekari
breytingum á atvinnuhúsnæði.
Suður af Sjálandshverfinu
Svæðið sem um ræðir kallast
Lyngásvæði 1 og 2 í skipulaginu.
Það afmarkast af Lyngási til norð-
urs, Ásabraut til vesturs og suðurs
og Stórási til austurs. Svæðið er suð-
ur af Sjálandshverfinu og vestan við
Hafnarfjarðarveg. Með uppbygg-
ingunni er íbúðabyggðin á Lyng-
ásnum stækkuð á kostnað atvinnu-
lóða.
Áður en uppbyggingin hefst
verður gamalt atvinnuhúsnæði rifið.
Stærsta byggingin er gamla Héðins-
húsið á Stórási 4-6 en það er um
5.400 fermetrar samkvæmt fast-
eignaskrá. Atvinnulóðin sem húsið
stendur á er skráð 26.800 fermetrar.
Það er stór lóð í svo grónu hverfi. Þá
verður meðal annars gamli fjöl-
brautaskólinn rifinn.
Tillaga að deiliskipulaginu er
byggð á rammaskipulagi fyrir
Lyngássvæðið og Hafnarfjarðarveg
frá október 2017. Var hún unnin af
Batteríinu Arkitektum, Landslagi
og Mannviti á grundvelli tillögu sem
hlaut fyrstu verðlaun í opinni hug-
myndasamkeppni árið 2016.
Áhersla á hagkvæmar íbúðir
Verktakafyrirtækið Mótás Garða-
bær mun byggja íbúðahverfið. Það á
lóðir á reitnum, ásamt Garðabæ.
„Allar íbúðirnar í tveggja og
þriggja hæða húsum munu hafa sér-
inngang. Þar verða hvorki bílakjall-
arar né lyftur. Við vonum því að
þetta falli vel að þeirri hugsun að
vera með hagkvæmt húsnæði fyrir
ungt fjölskyldufólk. Það verða
sveigjanlegar stærðir á íbúðum og
til dæmis verður auðvelt að breyta
þriggja herbergja íbúðum í fjögurra
og svo öfugt. Við allar íbúðirnar
verða raftenglar fyrir rafbíla. Þá
verða djúpgámar í hverfinu en með
þeim verða sorpgeymslur í húsunum
óþarfar,“ segir Gunnar.
Má í þessu efni benda á að stæði í
bílakjallara hefur verið verðlagt á
6-10 milljónir, eftir staðsetningu og
lóðarverði. Slíkar upphæðir hafa
auðvitað áhrif á íbúðarverð.
Gunnar rifjar upp að samkvæmt
rammaskipulaginu séu hugmyndir
um að setja Hafnarfjarðarveg í
stokk. Með því skapist möguleikar á
enn frekari þéttingu byggðar. Rætt
hafi verið um allt að 1.200 íbúðir.
Vegurinn síðar settur í stokk
„Áður en Hafnarfjarðarvegur
verður settur í stokk erum við að
tala um 600 íbúðir í Lyngáshverfinu.
Síðar munum við setja veginn í
stokk og koma fyrir aukaakrein
fyrir almenningsvagna. Þá verður
stutt í almenningssamgöngur. Þetta
er kærkomið í okkar byggða-
mynstur,“ segir Gunnar og bendir á
að svæðið sé vel staðsett og hentugt
fjölskyldufólki. Skólar og íþrótta-
mannvirki séu í næsta nágrenni.
Horft til norðurs Fyrirhuguð íbúðabyggð er fyrir miðju myndarinnar, suður af Sjálandshverfi.
Teikningar/Batteríið Arkitektar
Horft til vesturs Hraunið og fjaran verða í göngufæri við hverfið. Stutt er í Stjörnusvæðið.
Kynna íbúðabyggð á Lyngásnum
Deiliskipulag 400 íbúða hverfis á Lyngási í Garðabæ í forkynningu Uppbygging gæti hafist í ár
Gamalt atvinnuhúsnæði víkur Bæjarstjóri boðar hagkvæmar íbúðir fyrir ungt fjölskyldufólk
Drög Svona gæti nýja byggðin litið út á horni Lyngáss og Stóráss. Drög Allar íbúðirnar verða með sérinngangi og djúpgámar við húsin.
Gunnar
Einarsson
1724 28.12.2018 4 MÓTÁS GARÐABÆR
Núverandi skipulag Skipulagstillaga
Kortagrunnur:
OpenStreetMap
Teikning:
Batteríið Arkitektar
Lyngás 1 og 2
Svæðið afmarkast
af Lyngási, Stórási
og Ásabraut
G A R Ð A B Æ R
Arnarnes-
vogur
Ásahverfi í Garðabæ
14 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 9. JANÚAR 2019
Fagleg og persónuleg húsfélagaþjónusta
Eignarekstur leggur áherslu á að einfalda
og hagræða málin fyrir húsfélög
Traust - Samstaða - Hagkvæmni
eignarekstur@eignarekstur.is • www.eignarekstur.is • Sími 566 5005
Ráðgjöf
Veitum faglega ráðgjöf
til húsfélaga
Bókhald
Höfum umsjón með
bókhaldi fyrir húsfélög
Þjónusta
Veitum persónulega þjónustu
sem er sérsniðin að hverju
og einu húsfélagi