Morgunblaðið - 09.01.2019, Blaðsíða 17
FRÉTTIR 17Erlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 9. JANÚAR 2019
Suðurlandsbraut 26 Sími: 587 2700
Opið: 11-18 virka daga, 11-16 laugardaga www.alno.is
Bogi Þór Arason
bogi@mbl.is
Kim Jong-un, leiðtogi Norður-
Kóreu, fór til Peking í gær til að
ræða við Xi Jinping, forseta Kína,
og viðræður þeirra auka líkurnar á
því að Kim eigi annan fund með
Donald Trump Bandaríkjaforseta,
að mati stjórnmálaskýrenda. Þeir
telja einnig hugsanlegt að markmið
Kims með viðræðunum við kínversk
stjórnvöld sé að auka þrýstinginn á
Trump í von um að hann fallist á að
slaka á viðskiptaþvingunum gegn
Norður-Kóreu til að greiða fyrir
frekari viðræðum um kjarnorku-
afvopnun á Kóreuskaga.
Hvorki hefur gengið né rekið í
viðræðum Bandaríkjanna og
Norður-Kóreu um kjarnorku-
afvopnunina frá fundi Kims með
Donald Trump í Singapúr 12. júní,
fyrsta leiðtogafundi ríkjanna
tveggja. Þeir undirrituðu óljóst
samkomulag um að færa Kóreu-
skaga nær kjarnorkuafvopnun en
ríkin hefur greint á um hvað felist í
afvopnuninni. Stjórnvöld í Norður-
Kóreu hafa krafist þess að Banda-
ríkjastjórn slaki á viðskiptaþving-
unum þegar í stað en Bandaríkja-
stjórn hefur neitað því og sagt að
ekki komi til greina að gera það fyrr
en Norður-Kóreumenn eyði kjarna-
vopnum sínum. Kínverjar og Rússar
hafa hins vegar léð máls á því að
dregið verði úr refsiaðgerðunum
gegn Norður-Kóreu.
Enn á byrjunarreit
Kim sagði í nýársávarpi í vikunni
sem leið að Norður-Kóreumenn
hefðu þegar lofað að beita ekki
kjarnavopnum, hætta framleiðslu
þeirra og selja ekki öðrum löndum
slík vopn og gert ráðstafanir til að
koma samkomulaginu í framkvæmd.
Hann kvaðst einnig vera tilbúinn að
eiga annan fund með Trump hve-
nær sem væri. Hann varaði þó við
því að Norður-Kóreumenn kynnu að
breyta afstöðu sinni til viðræðnanna
um kjarnorkuafvopnun og „leita
nýrra leiða til að verja fullveldi
landsins“ ef Bandaríkjastjórn héldi
áfram að beita Norður-Kóreu við-
skiptaþvingunum. Evans J.R. Rev-
ere, bandarískur sérfræðingur í
málefnum Kóreuríkjanna, segir að
nýársávarp Kims sýni að stjórn
Trumps sé í raun enn á byrjunarreit
í tilraunum sínum til að knýja
Norður-Kóreumenn til að afsala sér
kjarnavopnum.
Fjölmiðlar í Kína sögðu að Kim
Jong-un væri í Peking í boði Xi
Jinping og þetta er fjórða heimsókn
hans til landsins frá mars á liðnu
ári. „Kim er umhugað um að minna
stjórn Trumps á að hann hefur aðra
kosti í efnahagsmálum og sam-
skiptum við önnur lönd en þá sem
stjórnvöld í Bandaríkjunum og Suð-
ur-Kóreu geta boðið,“ hefur frétta-
veitan AFP eftir Harry Kazianis,
sérfræðingi í bandarískum öryggis-
málum í tengslum við Norður-
Kóreu, Kína og fleiri Asíuríki. Hann
telur að Bandaríkjastjórn þurfi að
hafa áhyggjur af hvers konar til-
raunum stjórnvalda í Norður-Kóreu
til að styrkja tengsl sín við Kína
sem hefur lengi verið helsta sam-
starfsríki þeirra. Hann telur að
bætt samskipti Norður-Kóreu-
manna og Kínverja geti grafið und-
an refsiaðgerðunum og þeirri stefnu
stjórnar Trumps að halda áfram að
beita Norður-Kóreu „hámarks-
þrýstingi“ til að knýja fram kjarn-
orkuafvopnun.
Kim fór til Peking þegar
embættismenn frá Bandaríkjunum
voru í borginni til að ræða við ráða-
menn í Kína um viðskiptadeilur
landanna. Kazianis segir að heim-
sókn Kims hefði ekki getað verið á
betri tíma fyrir Kínverja. „Þetta
sýnir greinilega að Kínverjar geta
spilað út Norður-Kóreutrompinu ef
þeir telja það henta,“ hefur AFP
eftir Kazianis.
Óskað eftir stuðningi
Kínverjar hafa verið helstu
bandamenn Norður-Kóreustjórnar
en samskipti ríkjanna versnuðu
vegna kjarnorku- og eldflaugatil-
rauna Norður-Kóreumanna eftir að
Kim Jong-un tók við völdunum árið
2011. Samskipti ríkjanna hafa þó
batnað frá því að Kim fór í fyrstu
ferð sína af þremur til Kína á liðnu
ári eftir að hafa tilkynnt í nýárs-
ávarpi að hann vildi hefja viðræður
við stjórnvöld í Suður-Kóreu og
Bandaríkjunum.
Fjórða heimsókn Kims til Peking,
sem hófst í gær, eykur líkurnar á
því að hann eigi annan fund með
Trump í næsta mánuði, að sögn
Cheongs Seong-chang, sérfræðings
í málefnum Norður-Kóreu, í samtali
við hugveituna Sejong-stofnunina í
Seoul. Hann bendir á að Kim fór til
Peking skömmu áður en hann átti
fund í apríl með Moon Jae-in, for-
seta Suður-Kóreu, og einnig fyrir
fundinn með Donald Trump í júní.
Cheong segir að meginmarkmiðið
með viðræðum Kims við kínverska
ráðamenn sé að samstilla stefnu
þeirra í viðræðunum um kjarnorku-
afvopnunina. „Ég býst við því að
Kim óski eftir matvælaaðstoð og
efnahagsstuðningi ásamt því að
ræða kjarnorkuafvopnun Kóreu-
skaga,“ hefur The Wall Street
Journal eftir Cheong.
Efast um að N-Kóreustjórn
afsali sér kjarnavopnum
Koh Yu-hwan, prófessor í
Norður-Kóreufræðum við Dong-
guk-háskóla í Suður-Kóreu, telur að
„tilslakanir“ af hálfu Kínverja geti
greitt fyrir friðarsamningi milli
Kóreuríkjanna. „Norður-Kóreu-
stjórn gæti talið öryggi sitt í hættu
afsalaði hún sér kjarnavopnum al-
gerlega,“ hefur AFP eftir Koh. „En
ef Kínverjar lofa stjórninni í Pjongj-
ang að hún fái efnahagsaðstoð og
ábyrgjast öryggi hennar ef hún af-
salar sér kjarnavopnum gæti það
orðið til þess að hún teldi sig örugg-
ari.“
Aðrir fréttaskýrendur eru efins
um að einræðisstjórnin í Norður-
Kóreu sé í raun tilbúin að afsala sér
kjarnavopnum nú þegar hún hefur
orðið sér úti um slík vopn og smíðað
langdrægar eldflaugar. Þeir telja að
hún sé staðráðin í að öðlast viður-
kenningu sem kjarnorkuveldi og
notfæra sér þessa stöðu sína út í
ystu æsar, meðal annars til að binda
enda á refsiaðgerðirnar gegn land-
inu. Hún hefur alltaf haldið því fram
að hún þurfi á kjarnavopnum að
halda til að koma í veg fyrir að
Bandaríkjamenn og samstarfsþjóðir
þeirra geri árásir á landið og reyni
að steypa einræðisstjórninni af stóli.
Ekkert hefur komið fram sem bend-
ir til að þessi afstaða hennar hafi
breyst, að mati margra sérfræðinga
í málefnum Norður-Kóreu.
Reynir að knýja fram tilslökun
Heimsókn Kims Jong-un til Peking talin auka líkurnar á því að hann eigi annan fund með Trump
Talinn vilja knýja Trump til að fallast á eftirgjöf í deilu um hvort slaka eigi á viðskiptaþvingunum
Kim Jong-un í Kína
Leiðtogi einræðisstjórnar Norður-Kóreu hefur farið fjórum sinnum til Kína frá mars 2018
Heimildir: CCTV/KCNA/KNS
Mars 2018
Kim ræddi við Xi
Jinping, forseta Kína,
í Peking í fyrstu
utanlandsferð sinni
frá því að hann varð
leiðtogi Norður-Kóreu
Maí
Kim ræddi aftur
við Xi Jinping í
ferð til kínversku
borgarinnar
Dalian
Kim Jong-un (t.v.) og
Xi Jinping. Ljósmynd
birt 28.mars
Kim og Xi ámynd
sembirt var 9.maí
Júní Janúar 2019
Kim skýrði Xi Jinping
frá niðurstöðum fundar
síns með Donald Trump
Bandaríkjaforseta sem
var haldinn 12. júní
Kim fór í fjögurra
daga heimsókn
til að ræða
við Xi Jinping í
Peking
Kim á leið til
Kína ámynd
sembirt var í gær
Kimog Xi ámynd
frá 20. júní
AFP
Heimsókn Herþjálfaðir lögreglumenn við lestastöð í miðborg Peking eftir
að Kim Jong-un kom þangað með járnbrautarlest frá Norður-Kóreu í gær.
Óttast að Bandaríkin
styrki stöðu sína
» Kínverjar hafa haft áhyggjur
af því að fall stjórnarinnar í
Norður-Kóreu eða aðrir at-
burðir geti leitt til glundroða í
landinu og verði til þess að
hundruð þúsunda eða jafnvel
milljónir flóttamanna streymi
þaðan yfir landamærin til Kína.
» Kínverjar óttast einnig að
fall Norður-Kóreustjórnar geti
orðið til þess að Kóreuríkin tvö
sameinist fyrir atbeina Banda-
ríkjanna sem styrki stöðu sína
á Kóreuskaga með bandarískri
herstöð við landamærin að
Kína.
Rahaf Moham-
med al-Qunun, 18
ára gömul kona
frá Sádi-Arabíu,
hefur óskað eftir
því að fá hæli í
Kanada, Banda-
ríkjunum, Ástr-
alíu eða Bret-
landi eftir að
hafa flúið frá fjölskyldu sinni í Kú-
veit. Qunun fór með flugvél til
Bangkok á sunnudaginn var, lokaði
sig af inni í hótelherbergi við al-
þjóðaflugvöll borgarinnar og neit-
aði að fara aftur til Kúveit. Hún
kveðst hafa verið beitt ofbeldi
heima fyrir og óttast um líf sitt
vegna þess að hún hafi afneitað ísl-
am, sem varðar dauðarefsingu í
Sádi-Arabíu.
Yfirvöld í Taílandi ætluðu í fyrstu
að vísa Qunun úr landi en þegar mál
hennar vakti athygli fjölmiðla víða
um heim var hætt við það.
TAÍLAND
Sækir um hæli eftir
flótta frá Kúveit