Morgunblaðið - 09.01.2019, Page 25

Morgunblaðið - 09.01.2019, Page 25
Sumarhús Sumarhús – Gestahús – Breytingar  Framleiðum stórglæsileg sumarhús í ýmsum stærðum.  Tökum að okkur stækkun og breytingar á eldri húsum.  Smíðum gestahús – margar útfærslur.  Sjáum um almennt viðhald á sumarhúsum og sólpöllum.  Setjum niður heita potta og smíðum palla og skjólveggi. Áratugareynsla – endilega kynnið ykkur málið. Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn, sími 892-3742 og 483-3693, www.tresmidjan.is Bílaþjónusta GÆÐABÓN Stofnað 1986 • Ármúla 17a Opið mán.-fös. 8-16. S. 568 4310 Það besta fyrir bílinn þinn Alþrif, djúphreinsun, mössun, teflon, blettun, bryngljái, leðurhreinsun. Húsviðhald Hreinsa þakrennur, og tek að mér ýmis smærri verkefni. Uppl. í síma 847 8704 manninn@hotmail.com Smáauglýsingar Raðauglýsingar Auglýsing um skipulagsmál í Rangárþingi eystra Samkvæmt 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, eru auglýstar eftirfarandi tillögur að breytingum á deiliskipulagi í Rangárþingi eystra. Hellishólar – Deiliskipulagsbreyting Deiliskipulagsbreytingin tekur til svæðis innan jarðarinnar Hellishólar, Rangárþingi eystra, þar sem að núverandi frístundabyggð (F) er breytt í íbúarbyggð (ÍB). Einungis er um breytingu á landnotkun að ræða og halda því aðrir skilmálar gildandi deiliskipulags. Eyvindarholt – Deiliskipulagstillaga Deiliskipulagstillagan nær til 36,2 ha lands Eyvindarholts – Langhólma, Rangárþingi eystra. Tillagan felst í því að landbúnaðarsvæði (L) verður breytt í frístundabyggð (F). Gert er ráð fyrir allt að 14 byggingarreitum undir frístundahús. Ráðagerði – Deiliskipulagstillaga Deiliskipulagstillagan nær til 16,8 ha lands úr jörðinni Steinmóðarbær, Rangárþingi eystra. Tillagan felst í því að landbúnaðarlandi (L) verður breytt í frístundabyggð (F). Gert er ráð fyrir allt að 8 byggingarreitum undir frístundahús. Drangshlíðardalur – Deiliskipulag Deiliskipulagstillagan tekur til um 3,6 ha af jörðinni Drangshlíðardalur ln 163652 og íbúðarhúsalóðarinnar Drangshlíðardalur 2 ln.178810. Í deiliskipulaginu eru skilgreindar lóðir, byggingarreitir, heimarafstöð með inntaksstíflu og vatnspípu, ásamt nýjum vegslóða. Vegna mistaka, er tillaga að deiliskipulagi fyrir Miðbæ Hvolsvallar auglýst aftur. Mistökin fólust í því að greinargerð, sem fylgja átti deiliskipulagsuppdrættinum, vantaði inn á heimasíðu sveitarfélagsins. Hvolsvöllur miðbær – Deiliskipulagstillaga Deiliskipulagstillagan tekur til svæðis sem er beggja vegna þjóðvegar nr. 1 þar sem hann fer um Hvolsvöll. Skipulagssvæðið afmarkast til norðurs að aðveitustöð Rariks. Til vesturs afmarkast skipulagssvæðið af beinni línu samhliða langhlið kyndistöðvar Orkuveitu Reykjavíkur. Til suðurs afmarkast skipulagssvæðið af Austurvegi 1 og til austurs af Vallarbraut. Stærð skipulagssvæðisins er um 14 ha. Samkvæmt 1. mgr. 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, er auglýst tillaga að breytingum á aðalskipulagi Rangárþings eystra 2012-2024. Hellishólar – Aðalskipulagsbreyting Aðalskipulagsbreytingin tekur til hluta af jörðinni Hellishólar, Rangárþingi eystra. Breytingin felst í því að landnotkun á 6,6 ha landi jarðarinnar er breytt úr frístundabyggð (F) í íbúðarbyggð (ÍB). Samkvæmt drögum að deiliskipulagi eru á svæðinu gert ráð fyrir 13 lóðum af mismunandi stærðum, allt frá 3.500 m2 í rúmlega 6.000 m2, fyrir einlyft einbýlishús. Ofangreindar tillögur að skipulagsbreytingum er hægt að skoða á heimasíðu Rangárþings eystra www.hvolsvollur.is og á skrifstofu skipulags- og byggingarfulltrúa frá 9. janúar 2019. Hverjum þeim sem telur sig eiga hagsmuna að gæta er gefinn kostur á að gera athugasemdir við tillögurnar, og er frestur til að skila inn athugasemdum til 20. febrúar 2019. Athugasemdum skal skila skriflega á skrifstofu skipulags- og byggingarfulltrúa Rangárþings eystra, Austurvegi 3, 860 Hvolsvelli. F.h. Rangárþings eystra Guðmundur Úlfar Gíslason Fulltrúi skipulags- og byggingarmála Félagsstarf eldri borgara Bústaðakirjka Félagsstarfið hefst á miðvikudaginn 9. jan kl 13. Spi- lað skrafað og Jónas þórir mætir við píanóið. Framhaldssaga og sóknarprestur verður með hugleiðingu og bæn. Kaffið góða frá Sigurbjörgu á sínum stað. Allir hjartanlega velkomnir. Starfsfólk Bústaðakirkju. Félagsmiðstöðin Lönguhlíð 3 Upplestur kl.10.10. Boccia kl.13.30. Kaffiveitingar kl.14.30. Allir velkomnir! Félagsmiðstöðin Vitatorgi 9-13 Bókband, 9-12 Postulínsmálun, 13- 17 Bókband, 13-16.30 Frjáls spilamennska, 13.30-16.30 Myndlist, 14. Dansleikur með Vitatorgsbandinu. Hádegisverður frá 11.30-12.30 og kaffisala frá 14.30-15.30. Verið velkomin til okkar á Vitatorg, Lin- dargötu 59, sími 4119450 Garðabæ Vatnsleikf. Sjál. kl.7.30/15. Kvennaleikf. Sjál. kl.9.30. Liðstyrkur. Sjál. kl.10.15. Kvennaleikf. Ásg. kl.11.30. Gönguhópur fer frá Jónshúsi kl. 10. Bridge í Jónshúsi kl. 13. Zumba í Kirkjuhv kl. 16:15. Gjábakki Kl. 9. Handavinna, kl. 9. Boccia - opinn tími, kl. 9.30 Glerlist, kl. 13. Félagsvist. Grensaskirkja Samvera eldri borgara kl. 14-15.30. Helgistund, bingó (fyrsta miðvikud. í mánuði) fræðsla, söngur og kaffiveitingar Verið hjartanlega velkomin. Gullsmári Miðvikudagur Myndlist kl 9. Postulínsmálun/ Kvenna- bridge / Silfursmíði kl 13. Hraunbær 105 Kaffiklúbbur og spjall, allir velkomnir í frítt kaffi kl. 9. Útskurður með leiðbeinanda, kl. 9-12, 500kr skiptið, allir velkomnir. Hádegismatur kl. 11.30. Hvassaleiti 56-58 Félagsmiðstöðin er opin frá 8-16, blöðin og púsl liggja frammi. Morgunkaffi kl. 8.30-10.30, jóga með Carynu kl. 9, útvarpsleikfimi kl. 9.45, zumba og leikfimi með Carynu kl. 10 og hádegismatur kl. 11.30. Handavinna kl. 13, liðleiki á stólum og slökun með Önnu kl. 13.15 og eftirmiðdagskaffi kl. 14.30. Hæðargarður Félagsmiðstöðin opnar kl. 8.50. Við byrjum daginn við hringborðið, kaffi á boðstólum. Ljóðahópur Soffíu Jakobsdóttur kl. 9.45-11.45, línudans kl. 10-11. Núvitundarstund 10:45, hádegismatur kl. 11.30. Síðdegiskaffi kl. 14.30, tálgun með Valdóri kl. 13. -16. Allir vel- komnir. Nánari upp. í s. 411-2790. Korpúlfar Stjórnar og nefndarfundur Korpúlfa kl. 10. í Borgum Gönguhópur Korpúlfa kl. 10. gengið frá Borgum og inni í Egilhsöll. Keila í Egilshöll kl. 10. Hópsöngur með Jóhanni Helgasyni kl. 13. í Bor- gum. Allir velkomnir sungin verða m.a. þorralögin upphitun fyrir Þorrablót Korpúlfa 6. febrúar. Norðurbrún 1 Morgunkaffi kl.8.30, trésmiðja kl.9-12, morgunleikfimi kl.9.45, viðtalstími hjúkrunarfræðings kl.10-12, upplestur kl.11, félagsvist kl.14, ganga m.starfsmanni kl.14, bónusbíllinn kl.14.40, heimildarmyndasýning kl.16. Seltjarnarnes Gler og glerbræðsla á neðri hæð félagsheimilisins kl. 9. og 13. Leir Skólabraut kl. 9. Botsía Skólabraut kl. 10. Kaffispjall í króknum kl. 10.30. Kyrrðarstund í kirkjunni kl. 12. Timburmenn Valhúsaskóla kl. 13. Handavinna Skólabraut kl. 13. Vatnsleikfimi í sundlauginni kl. 18.40. Ath. á morgun fimmtudag verður bingó í sal- num á Skólabraut kl. 13.30. Allir velkomnir. Sléttuvegur 11-13 Selið á Sléttuvegi er opið frá kl. 10–16. Heitt á könnunni frá kl. 1 –11 og hægt er að líta í blöðin. Hádegismatur er frá kl. 11.30–12.15 og panta þarf matinn daginn áður. Handavinnuhópur hittist kl. 13. Kaffi og meðlæti er til sölu frá kl. 14.30–15.30. Allir velkomnir. Síminn í Selinu er: 568-2586. Stangarhylur 4 Göngu-hrólfar ganga frá Ásgarði Stangarhyl 4, kl. 10. kaffi og rúnstykki eftir göngu. Ensku námskeið hefst 9.janúar kl. 13. leiðbeinandi Margrét Sölvadóttir. Árbæjarkirkja Kyrrðarstund í kirkjunni kl.12 og léttur hádegisverður á eftir gegn vægu gjaldi. Opið Hús, félagsstarf fullorðinna, í saf- naðarheimili kikrjunnar kl. 13. til 16. Stólaleikfimi með Öldu Maríu verður á sínum stað kl. 13.30, kaffi og spjall á eftir. Allir hjartanlega velkomnir. Árskógar Handavinna með leiðb. kl. 9-16. Opin smíðastofa kl. 9-16. Opið hús, t.d. vist og bridge kl. 13-16. Opið fyrir innipútt. Hádegismatur kl. 11.40-12.45. Kaffisala kl. 15-15.45. Heitt á könnunni, Allir velkomnir. s: 535-2700. Boðinn Miðvikudagur: Handavinnustofa opin frá 9.-15. Vatnsleikfimi kl. 14.30. Bólstaðarhlíð 43 Opin handverksstofa kl. 9-16. Morgunkaffi kl. 10- 10.30. Boccia kl. 10.40-11.20. Spiladagur, frjáls spilamennska kl. 12.30- 15.50. Opið kaffihús kl. 14.30-15. Breiðholtskirkja Maður er manns gaman, hefst kl. 12 með kyrrðarstund. Léttur hádegisverður og félagsstarf í framhaldi. Allir velkomnir. Félagslíf Samkoma kl. 20 í Kristni- boðssalnum. Skúli Svavarsson og Vigfús Ingvarsson segja frá ferð til Keníu. Allir velkomnir. Uppboð Einnig birt á www.naudungarsolur.is. Framhald uppboðs á eftirfarandi eignum verður háð á þeim sjálfum, sem hér segir: Gerðavegur 16, Garður, fnr. 209-5500 , þingl. eig. María Elísa Hauksdóttir og Ronald Ereno Viray, gerðarbeiðandi Íbúðalánasjóður, þriðjudaginn 15. janúar nk. kl. 09:15. Gauksstaðavegur 4, Garður, fnr. 209-5475 , þingl. eig. Rachida El Gach og Ólafur Þór Þórðarson, gerðarbeiðendur Gildi - lífeyrissjóður og Sjóvá-Almennar tryggingar hf., þriðjudaginn 15. janúar nk. kl. 09:30. Sýslumaðurinn á Suðurnesjum 8. janúar 2019 Nauðungarsala MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 9. JANÚAR 2019 25 ✝ Ingveldur Sig-urðardóttir fæddist 6. janúar 1928 í Stykkis- hólmi. Hún lést 4. október 2018 í Stykkishólmi. Foreldrar henn- ar voru Sigurður Jónasson bóksali og Svava Odds- dóttir. Eiginmaður Ingveldar 31. des. 1955 var Kristinn Bjarni Gestsson bif- vélavirki, f. 23. nóv. 1932, d. 8. nóv. 2009. Synir Ingveldar og Kristins eru Baldvin, f. 8. ágúst 1954, Gestur, f. 5. ágúst 1956, og Heimir Svavar, f. 7. apríl 1960. Ingveldur lauk kennaraprófi frá Kennaraskólanum árið 1949 og nam sérkennslu við Kennaraháskóla Íslands 1973-74. Hún var kennari við Grunnskólann í Stykkishólmi 1950-1954 og frá 1959 til starfs- loka. Hún var virkur félagi í Kvenfélagi Stykkishólms, varaformaður Kvenfélagasambands Snæ- fells- og Hnappadalssýslu í sex ár og síðan formaður í sex ár. Útför Ingveldar fór fram 20. október 2018. Mörgum er það nokkur lífs- reynsla að flytjast úr borgar- umhverfi, þar sem hægt er að falla í fjöldann, í lítinn bæ þar sem flestir þekkja næstum alla og margir eru skyldir, komnir af sömu ætt. Þessi var reynsla mín er við fjölskyldan fluttumst til Stykk- ishólms haustið 1975. Þá var gott að njóta stuðnings af góðu fólki sem þekkti til staðhátta og mannlífs. Þetta haust hóf ég kennslu við Miðskólann í Stykkishólmi sem varð Grunn- skólinn í Stykkishólmi um það bil ári síðar. Skólinn var all- fjölmennur, stórir bekkir í hverjum árgangi, og sama haust fluttist unglingadeild hans í húsnæði sem síðar urðu salir Hótels Stykkishólms. Kennarahópurinn skiptist á milli gamla skólahússins, sem enn stendur hæst í bænum, og nýju vistarveranna. Fyrsta árið kenndi ég á báðum stöðum og hljóp á milli húsanna, ung en taldi mig þó allreynda, hafði þegar kennt í áratug í ýmsum skólum syðra. Kennarahópurinn var eins og þá gerðist. Kröfur um menntun kennara á unglingastigi voru enn í mótun. Þar var nokkur fjöldi ungs fólks með ýmsan bakgrunn að stíga sín fyrstu skref út í lífið. Mörg þeirra áttu eftir að hasla sér völl á sviði menningar, menntunar og vel- ferðar og verða þjóðþekkt. Hins vegar var kjarni reyndra kennara sem starfað hafði við skólann árum saman. Fljótlega féllum við elstu nýliðarnir inn í þann góða hóp og áttum marga stund saman yfir kaffibollum og molasykri á örsmárri kenn- arastofunni. Mörg eru þau nú horfin yfir móðuna miklu sem var okkur svo fjarlæg þá. Flest eldra fólkið þjónaði unglingadeildinni í nýja hús- næðinu en vettvangur elsta og reyndasta kennarans, Ingveld- ar Sigurðardóttur, Stellu, var í gamla skólahúsinu þar sem hún hafði sjálf verið nemandi og kennt börnum um áratuga skeið. Hlutskipti mitt þar var að kenna ellefu og tólf ára gömlum börnum reikning sam- kvæmt nýju stærðfræðinni svo- nefndri, viðfangsefni sem var mér nýtt þrátt fyrir reynsluna. Stella reyndist mér þá betri en enginn. Hún þekkti börnin og allar aðstæður og með okkur tókust góð kynni. Kennslu minni á barnastiginu lauk eftir þennan vetur en sambandið við Stellu hélst. Við áttum saman ófáar göng- ur um Þórsnesið og spjall- stundir um málefni daganna. Eitt sinn var ég dregin inn í kosningabaráttu. Þá hlustaði Stella á það sem ég hafði að segja og færði gjarnan til betri vegar þótt mér sé enn ókunnugt um hvort hún hafi kosið listann sem ég stóð fyrir. Hún reyndist mér ætíð vel og við áttum eftir að leita hvor til annarrar löngu eftir að ég var flutt burtu. Stella var fulltrúi þess mæta fólks sem er máttarstólpi síns samfélags. Hún kenndi kynslóð eftir kynslóð barna í Stykkis- hólmi, ekki síst sem sérkennari þeirra sem áttu í námserfiðleik- um. Hún hlynnti að fjölskyldu sinni; öldruðum foreldrum til dánardægra og sonum sínum og þeirra fólki, og hún vann samfélaginu öllu með starfi sínu í kvenfélaginu. Megi minning Stellu lifa um ókomna tíð. Þakkir fyrir allt og allt fylgja henni nú er hún hef- ur verið borin til hvílu í bænum sínum, Stykkishólmi. Kristín Bjarnadóttir. Ingveldur Sigurðardóttir

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.