Morgunblaðið - 09.01.2019, Síða 26

Morgunblaðið - 09.01.2019, Síða 26
26 ÍSLENDINGAR MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 9. JANÚAR 2019 Ármúla 26 | 108 Reykjavík | Sími 578 4400 | heimilioghugmyndir.is Afmælisdagurinn verður sjálfsagt flestum öðrum líkur; fjöl-breytt verkefni í vinnunni og góð stund með fjölskyldunni,“segir Björn Valdimarsson, sölustjóri hjá Ramma í Fjalla- byggð, sem er 64 ára í dag. „Annars er við hæfi að byrja daginn með Bítlunum og laginu góða When I’m 64. Sem strákur heillaðist ég af Bítlunum, sem með músík breyttu minni veröld. Þessu fylgdi síðan eðlilega að í fótboltanum fór ég að halda með Liverpool og geri enn.“ Björn er Reykvíkingur að uppruna, uppalinn í Hlíðunum. „Í fjöl- býlishúsinu þar sem ég ólst upp voru skemmtilegir strákar sem áttu eftir að láta að sér kveða í músík. Þarna vaknaði svo áhugi minn á tón- list og í fjögur ár vann ég hjá Fálkanum; var verslunarstjóri í plötu- búðum fyrirtækisins og sá um hljómplötuútgáfu,“ segir Björn sem ár- ið 1981 flutti norður í land. Starfaði fyrst á Blönduósi og Hvamms- tanga við ullariðnað. Flutti svo til Siglufjaðar og var þar bæjarstjóri frá 1990 til 1997. Réðst eftir það til Ramma og starfar þar enn í dag við sölu sjávarafurða. „Ég komst vel af við alla sem bæjarstjóri. Lenti aldrei í neinu líku því sem nú sést í Ófærð á RÚV,“ segir Björn sem síðustu árin hefur gert mikið af því að mynda fólk og umhverfi sittt. Afrakstur þess má m.a. sjá á vefnum bjornvald.is. „Í leit að myndefnum tekur maður eft- ir ýmsu sem annars vekti ekki eftirtekt. Þetta er gjöfult tómstunda- gaman,“ segir Björn sem er kvæntur Marisku van der Meer. Þau eiga tvö börn á þrítugsaldri og barnabörnin eru líka tvö. Morgunblaðið/Sigurður Bogi Siglfirðingur „Ég komst vel af við alla sem bæjarstjóri,“ segir Björn. Byrjar afmælisdag- inn með Bítlunum Björn Valdimarsson er 64 ára í dag B öðvar Guðmundsson fæddist á Kirkjubóli í Hvítársíðu 9. janúar 1939 og ólst þar upp. Hann lauk stúdents- prófi frá MR 1962 og Cand.mag.- prófi í íslenskum fræðum við HÍ 1969. Böðvar var stundakennari við Réttarholtsskólann í Reykjavík 1962-63, við Christians Albrechts Universitãt í Kiel 1964-65, við MR 1965-66, við heimspekideild HÍ 1970-72 og 1983, við Leiklistar- skóla Íslands 1981-83, var settur kennari við MH 1969-74, við MA 1974-80 og síðan íslenskur sendi- kennari við Háskólann í Bergen 1983-87. Auk þess hefur hann lengst af stundað ritstörf og þýðingar. Fyrsta bók Böðvars kom út árið 1964, ljóðabókin Austan Elivoga. Aðrar ljóðabækur Böðvars eru: Í mannabyggð, 1966, Burtreið Alex- anders, 1972, Vatnaskil, 1986, Heimsókn á heimaslóð, 1989, Þrjár óðarslóðir 1994 og síðasta frum- samda ljóðabók Böðvars til þessa nefnist Krakkakvæði og kom út ár- ið 2002. Sú bók er myndskreytt af Áslaugu Jónsdóttur. Skáldsögur Böðvars eru orðnar fjórar; Bændabýti kom út 1990, bækurnar vinsælu um ferðir Ís- lendinga til Vesturheims; Híbýli vindanna og Lífsins tré, komu árin 1995 og 1996 en fyrir þá seinni hlaut Böðvar Íslensku bókmennta- verðlaunin í flokki fagurbók- mennta. Híbýli vindanna og Lífs- ins tré voru síðar færðar í sviðsbúning og settar upp á sviði Borgarleikhússins leikárið 2004- Böðvar Guðmundsson rithöfundur – 80 ára Morgunblaðið/Styrmir Kári Afmælisbarnið Böðvar í heimsókn uppi á Íslandi fyrir nokkrum misserum en hann hefur lengi búið í Danmörku. Býr í Danmörku en gleymir ekki rótunum Morgunblaðið/Kristinn Rithöfundurinn Böðvar með bæk- urnar með bréfum vesturfara. Nýr borgari Reykjavík Sara Björk Steinarsdóttir fæddist 3. júlí 2018 kl. 06.20. Hún vó 4.315 g við fæðingu og var 54,5 cm löng. Foreldrar hennar eru Katrín Þuríður Pálsdóttir og Steinar Geirdal Snorrason. Íslendingar Pétur Atli Lárusson islendingar@mbl.is Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.  Unnið í samvinnu við viðmælendur. Á opnunni „Íslendingar“ í Morgunblaðinu er sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks, svo sem stórafmælum, hjónavígslum, barnsfæðingum og öðrum tímamótum. Börn og brúðhjón Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd af brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð. Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.