Morgunblaðið - 09.01.2019, Síða 30
30 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 9. JANÚAR 2019
Silja Björk Huldudóttir
silja@mbl.is
„Titilinn á ég Sigurbjörgu Þrastar-
dóttur ljóðskáldi að þakka enda hefði
mér aldrei dottið svona fallegur titill í
hug. Hann er að finna í ljóði sem hún
samdi fyrir diskinn,“ segir Berglind
María Tómasdóttir flautuleikari um
geisladiskinn Herberging sem hún
sendi nýverið frá sér. Hlusta má á
styttri útgáfu disksins á vefnum
berglindtomasdottir.bandcamp.com/
album/herberging auk þess sem
hann er senn væntanlegur inn á
tónlistarveituna Spotify.
„Að herbergja er frekar gömul
sögn sem treystir á veggi, glugga og
dyr og algilt leyfi,“ segir Berglind og
bendir á að titilverk disksins fjalli að
stórum hluta um herbergið sem
flauturöddin var tekin upp í. „Stór
partur af verkinu felst í því hvernig
rýmið hljómaði. Þetta var tekið upp
að hausti og fyrir vikið er mikið af
náttúrulegum vindhljóðum sem skila
sér inn í upptökuna,“ segir Berglind.
Snærri hljóð flautunnar heilla
Diskurinn inniheldur þrjú verk eft-
ir Berglindi fyrir flautu og rafhljóð.
„Efnið var í raun tilbúið fyrir tveimur
árum, en útgáfan dróst af því að mig
langaði til að gefa þetta út á áþreifan-
legu formi líka en fann ekki strax
réttu leiðina til þess,“ segir Berglind
og bætir við: „Í raun er frekar fárán-
legt að gefa út efni á geisladiski enda
fáir undir fertugu sem eiga geisla-
spilara nú til dags. Þetta er sambæri-
legt við það þegar vínylplatan hvarf á
sínum tíma og varð að rusli í huga al-
mennings áður en hún varð vinsæl
aftur,“ segir Berglind og tekur fram
að sér þyki skemmtilegra að gefa út
áþreifanlegan hlut hvort sem það er
súkkulaðistykki eða hálsmen sem
geymi vefslóð fyrir niðurhal tónlist-
arinnar. „Mér finnst gaman að halda
í útgáfu geisladisksins meðan hann
er á þessu deyjandi stigi. Ég fékk
Kjartan Hreinsson, sem er ungur
grafískur hönnuður, til liðs við mig og
er mjög ánægð með útkomuna. Þetta
er stílhrein og falleg útgáfa.“
Spurð um tilurð tónlistarinnar á
diskinum rifjar Berglind upp að hún
hafi fyrir örfáum árum haldið ein-
leikstónleika með eigið efni fyrst í
Mengi og í framhaldinu í Los Angel-
es. „Þannig spilaðist prógrammið
áfram þar sem ég var að blanda
flautuleik saman við rafhljóð. Svo
kom að því að ég ákvað að fá Ólaf
Björn Ólafsson til að taka þetta að-
eins lengra og ég tók þetta upp í upp-
tökuverinu hans í Gufunesi,“ segir
Berglind, en Ólafur Björn sá ekki að-
eins um upptökur heldur er hann
meðhöfundur að lokaverkinu.
„Hljóðheimur plötunnar hverfist í
kringum smærri hljóð flautunnar,
lofthljóð, flaututónar sem á ensku
nefnist „whistle tones“, effektar og
ýmislegt flautukurr í stað hefðbund-
ins flautuhljóðs,“ segir Berglind og
bendir á að saman við þennan hljóð-
heim sé blandað rafhljóðum sem öll
eru unnin upp úr flautuhljóðum, and-
ardrætti og rödd, en lokaverkið flyt-
ur hún ásamt söngkonunni Mörtu
Guðrúnu Halldórsdóttur.
„Þessi smærri hljóð flautunnar
höfða sterkt til mín. Þetta er líka leið
til að endurhugsa eða uppgötva
hljóðfærið sem ég er búin að spila á
mjög lengi og lengst af innan mjög
þröngs ramma sem einkennist af
klassískri hljóðfærahugsun. Þetta er
því leið til að búa til nýja sýn á hljóð-
færið,“ segir Berglind og tekur fram
að tónsmíðarnar lýsi allar ástandi eða
tilfinningu. „Þær hreyfast hægt og
eru sjaldnast á leiðinni eitthvað.
Þetta er hugleiðslukennd stemnings-
tónlist.“
Innt eftir því hvernig hún hafi valið
samstarfsfólkið til liðs við sig segir
Berglind það stjórnast af tilfinningu.
„Mér finnst Marta Guðrún hafa svo
ótrúlega fallega rödd og heyrði hana
strax fyrir mér þegar við sömdum
verkið sem hún syngur svo fallega
víbratólaust.
Sigurbjörg er svo slyng með orð
fyrir utan að hún er góð kunningja-
kona mín. Hún hlustaði á diskinn og
skrifaði stemningsljóð.“
Spurð hvort hún muni fylgja útgáf-
unni eftir með tónleikum segir Berg-
lind ýmsa tónleika framundan, þó að
hún muni ekki leika efnið af nýút-
komna diskinum. „Annað kvöld kl. 20
erum við Tinna Þorsteinsdóttir
píanóleikari og Einar Torfi Einars-
son gítarleikari að halda okkar
Vínartónleika í tónleikaröðinni Verpa
eggjum í Norræna húsinu,“ segir
Berglind og rifjar upp að hún hafi
farið af stað með tónleikaröðina í
Mengi á sínum tíma með það að
markmiði að kynna og flytja tilrauna-
tónlist sem sæki innblástur að
stórum hluta í arfleifð Johns Cage,
Pauline Oliveros, Christians Wolff og
fleiri sem settu svip sinn á tónlistar-
sögu 20. og 21. aldar.
Skapandi fyrirmynd
„Á tónleikunum annað kvöld mun-
um við flytja verk eftir austurríska
tónskáldið Peter Ablinger, rafverk
eftir danska tónskáldið Else Marie
Pade og breska tónskáldið James Sa-
unders sem krefst þátttöku áheyr-
enda auk þess sem Einar Torfi samdi
nýtt verk fyrir okkur Tinnu,“ segir
Berglind en þess má geta að aðgang-
ur er ókeypis.
Frumsamin tónlist hefur verið
áberandi á þeim diskum sem Berg-
lind hefur sent frá sér áður og það á
einnig við um þá diska sem hún seg-
ist vera með í smíðum sem tengjast
hljóðfærinu lokkur sem hún bjó til
fyrir nokkrum árum. „Áhugi minn á
diskaútgáfu hefur verið að aukast að
undanförnu, en lengst af hef ég frem-
ur einbeitt mér að tónleikahaldi,“
segir Berglind sem var ein sjö flautu-
leikara í hópnum viibra sem lék inn á
nýjustu plötu Bjarkar og fylgdi henni
í tónleikaferð.
„Mér finnst mjög mikilvægt að
verið sé að semja nýja tónlist og að
þeir sem flytji tónlist séu sjálfir líka
að semja sína eigin tónlist, hvort sem
það er gegnum spuna eða með því að
skrifa hana niður. Af hverju ættum
við alltaf að vera að spila eitthvað
sem var samið fyrir mörgum árum,
áratugum og öldum nema til þess að
hjálpa okkur að fá samhengi í það
sem við erum að gera í dag. Tónlist er
frábrugðin öðrum listgreinum í því
að krafist er sífelldrar endur-
tekningar á gömlu efni án þess að
setja það í nýtt samhengi. Við erum
ekki að reyna að setja upp Shake-
speare eins og hann var settur upp á
tímum höfundarins,“ segir Berglind
og tekur fram að sér þyki mikilvægt
sem kennari að vera sjálf skapandi
fyrirmynd, en Berglind er dósent í
flutningi og miðlun samtímatónlistar
við Listaháskóla Íslands. „Það eru
mikil forréttindi að fá að vinna í þess-
um skóla og gefandi að fá að vera
partur af þessu samfélagi.“
Morgunblaðið/Eggert
Heimur „Hljóðheimur plötunnar hverfist í kringum smærri hljóð flautunnar,“ segir Berglind María Tómasdóttir.
„Leið til að endurhugsa hljóðfærið“
Berglind María Tómasdóttir sendir frá sér geisladiskinn Herberging Hugleiðslukennd stemn-
ingstónlist Kemur fram á nútímalegum Vínartónleikum í Norræna húsinu annað kvöld kl. 20
Bók Ævars Þórs Benedikts-sonar, Þitt eigið tíma-ferðalag, þar sem hægt erað láta söguna enda á 60
mismunandi vegu, gefur tækifæri á
margskonar
spennu bæði fyrir
fullorðna og börn.
Rýnir er kominn
nokkuð langt frá
því að kallast barn
en hann hafði
gagn og gaman af
því að lesa bókina
en jafnframt
nokkurn ama þeg-
ar valkvíðinn tók
völdin. Var best að velja alltaf fyrsta
kost sem endi á söguna eða velja
þann kost sem hugsanlega gaf
öruggasta eða besta endinn? Þetta
voru vangaveltur rýnis við lestur
bókarinnar. Það verður líka að við-
urkennast að rýnir var ekki alveg
viss í lokin hvort hann hefði náð að
lesa alla bókina eða jafnvel verið bú-
inn að lesa hluta hennar oftar en
einu sinni.
Það er erfitt að lýsa söguþræð-
inum þar sem hann er jafn breyti-
legur og lesendur eru margir. Rauði
þráðurinn í bókinni er fræðsla á
spennandi og á köflum húmorískan
hátt. Bókin býður upp á það að hitta
víkinga, risaeðlur, grameðlur, risa-
rottur, Rómverja, fara til Egypta-
lands eða út í geiminn, skoða plast-
eyjar og flakka án mikilla vand-
kvæða þúsundir ára aftur í tímann
og jafnlangt fram í tímann – og
margt fleira. Það góða við bókina er
að ef lesandi lendir í vandræðum
getur hann alltaf valið sér að fara
aðra leið í átt að hamingjuríkari
endi. Þær eru fáar reglurnar sem
fylgja tímavélinni sem lesandinn
getur notað til að ferðast um í tíma
og rúmi. Lesandinn á að læra og
muna, koma til baka og kenna öðr-
um, ekki vera fyrir og ekki breyta
neinu.
Þegar rýnir vildi fá að kíkja inn í
framtíðina stóð honum til boða að
taka sjálfu í geimnum, skoða plast-
eyju eða kíkja á nýjustu tækni og
vísindi. Rýnir valdi að skoða plast-
eyju og var þá sendur á bls. 37. Þar
fékk ég að kynnast afleiðingum
Ævintýraleg fjöl-
breytni á tímaflakki
Barna- og unglingabók
Þitt eigið tímaferðalag bbbbn
Eftir Ævar Þór Benediktsson.
Myndir: Evana Kisa.
Mál og menning, 2018. Innb., 421 bls.
GUÐRÚN
ERLINGSDÓTTIR
BÆKUR
Smiðjuvegi 76 • Kópavogi • Sími 414 1000 • tengi@tengi.is
Baldursnesi 6 • Akureyri • Sími 414 1050 • www.tengi.is
Opið virka daga frá kl. 8-18 og laugardaga kl. 10-15
Gæði, þjónusta, ábyrgð - það er Tengi
ALLT Í BAÐHERBERGIÐ
Tengi hefur mikla og góða reynslu af niðurföllunum frá Unidrain.
Unidrain eru margverðlaunuð dönsk hágæðahönnun.