Morgunblaðið - 15.02.2019, Page 2

Morgunblaðið - 15.02.2019, Page 2
2 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 15. FEBRÚAR 2019 laugavegi 47 www.kokka.is kokka@kokka.is Rösle þeytari Verð 3.490 kr. Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is Viðskipti Stefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf. Kristján H. Johannessen hefur verið ráð- inn fréttastjóri stafrænna áskrifta á Morg- unblaðinu. Um er að ræða nýja stöðu innan Árvakurs, út- gáfufélags Morg- unblaðsins, mbl.is og K100, sem ætlað er að auka enn við þjónustu áskrifenda Morgun- blaðsins. Samhliða þessu verður ný áskriftarleið að stafrænni útgáfu Morgunblaðsins kynnt sem og bætt útlit frétta, greina og ritstjórnar- efnis blaðsins sem birtist á mbl.is. Kristján hefur starfað sem blaða- maður og vaktstjóri á Morgun- blaðinu og mbl.is frá árinu 2011. Hann er með meistaragráðu í opin- berri stjórnsýslu frá stjórnmála- fræðideild Háskóla Íslands og BA- gráðu í stjórnmálafræði frá sama skóla. Ráðinn fréttastjóri stafrænna áskrifta Kristján H. Johannessen SGS fékk sambærilegt tilboð  Bíða eftir aðkomu stjórnvalda  Verkalýðsfélögin svara tilboði SA í hádeginu Magnús Heimir Jónasson mhj@mbl.is Starfsgreinasambandið (SGS) hefur fengið svipað tilboð frá Samtökum atvinnulífsins (SA) og VR, Efling, Verkalýðsfélag Grindavíkur og Verkalýðsfélag Akraness fengu á sáttafundi í fyrradag. Þetta stað- festir Björn Snæbjörnsson, formað- ur SGS, í samtali við Morgunblaðið. „Við höfum fengið alla vega að sjá eitthvað svipað. Við erum bara að hugsa það. Við erum ekkert búin að ákveða hvenær við svörum því. Við litum meira á þetta svona sem kynn- ingu,“ segir Björn. SA og SGS funduðu í gær en Björn býst ekki við að neinar ákvarðanir verði teknar fyrr en að- koma stjórnvalda kemur betur í ljós. „Við vorum að ræða málin í dag [í gær] og héldum fund í samninga- nefndinni. Menn voru að skoða það sem liggur á borðinu. Við bíðum svo- lítið eftir því hvað kemur frá stjórn- völdum. Mér skilst það komi núna eftir helgina. Við erum að velta mál- unum fyrir okkur.“ Tilboði um lausn svarað Klukkan kortér yfir ellefu í dag munu SA og VR, Efling, Verkalýðs- félag Grindavíkur og Verkalýðsfélag Akraness hittast hjá ríkissáttasemj- ara. Samninganefnd VR fundaði fram eftir kvöldi í gær en í dag verð- ur tilkynnt hvort þau taki eða hafni tilboði SA um lausn á kjaradeilunni. „Við fórum bara yfir stöðuna og ræddum þá möguleika sem við erum með og hvernig við getum hugsan- lega tekið afstöðu til þess sem SA lagði á borðið fyrir okkur. Við höfum verið að vinna í því í allan dag [í gær] fram á kvöld og erum enn að,“ sagði Ragnar Þór Ingólfsson, for- maður VR. „Í sjálfu sér er ekki komin endanleg niðurstaða um hvernig við ætlum að bregðast við þessu en það er það sem við erum að ræða. Voða lítið hægt að segja á þessu stigi.“ Iðnaðarmenn funda áfram Iðnaðarmannafélögin funduðu einnig með SA í gær og segir Krist- ján Þórður Snæbjarnarson, formað- ur Rafiðnaðarsambands Íslands, lít- ið að frétta. Farið var yfir ákveðin mál að sögn hans. ,,Þeir fóru yfir ýmsar hugmyndir en það er ekkert mikið nýtt í þessu. Það er verið að vinna í þessu og ósköp lítið að segja. Við munum funda á morgun [í dag] og aðeins taka stöðuna aftur og sjá hvernig landið liggur.“ Kona var handtekin um klukkan sex í gærkvöldi í Breiðholti eftir að hún ógnaði manni með hníf og hafði af honum myndavél. Konan var hand- tekin á staðnum og vistuð í fanga- geymslu lögreglu. Stöðvarstjóri hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu sagði að yfirheyra ætti konuna síðar í gærkvöldi en maðurinn sem varð fyrir árásinni, Björn Ágúst Magnús- son, sagði í samtali við mbl.is að hann ætlaði að kæra árásarkonuna. Björn var gangandi á leið heim til sín þegar konan kallaði á eftir hon- um. Hann sneri sér að henni og þá reyndi hún að taka af honum mynda- vél sem hann var með á sér. „Hún togar í myndavélina mína og vill taka hana. Ég vil það ekki og þá dregur hún upp gulan dúkahníf og setur hann nálægt hálsinum á mér og segist ætla að skera mig ef ég skilji myndavélina ekki eftir,“ segir Björn og bætir við að hann hafi orðið mjög skelkaður. Hann sleppti takinu af myndavélinni og konan hafði sig á brott, með vélina. Konan var hand- tekin í nágrenninu. Kona hótaði að skera mann á háls Milljarður rís, árleg dansbylting UN Women gegn kynbundnu ofbeldi, fór fram í Hörpunni í gær. Viðburðurinn í ár var sérstaklega veglegur í tilefni af 30 ára starfsafmæli UN Women á Ís- landi. Lilja Dögg Alfreðsdóttir menntamálaráðherra hleypti dansbyltingunni af stað áður en úrvalslið íslenskra tónlistarmanna lék fyrir dansi. Dansbylting gegn kynbundnu ofbeldi í Hörpu Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Mikill fjöldi fólks mætti á viðburðinn Milljarður rís Hreiðar Már Sigurðsson og Magnús Guðmundsson, fyrrverandi stjórn- endur Kaupþings banka, voru í gær- sakfelldir fyrir fjárdrátt í Landsrétti í Marple-málinu svokallaða. Hins vegar var refsing yfir þeim í málinu felld niður, en Magnús hafði fengið 18 mánaða dóm í héraði og Hreiðar Már 12 mánuði. Með fyrri dómum hefur Hreiðar hlotið sex ára fangelsi fyrir fjár- málabrot, en það er refsihámark slíkra brota. Til viðbótar var honum dæmdur hegningarauki í dómi hér- aðsdóms í Marple-málinu. Magnús hafði áður hlotið fjögurra ára og sex mánaða dóm og bættist 18 mánaða dómur héraðsdóms þar ofan á. Landsréttur telur í dómi sínum að þótt brot Hreiðars núna varði háa fjárhæð sé málið fjarri því eins yf- irgripsmikið og þau brot sem hann hafi þegar verið fundinn sekur um og sætt refsingu fyrir. Landsréttur vísar í sömu rök varð- andi niðurfellingu á refsingu Magn- úsar, en hann var fundinn sekur um hlutdeild í brotum Hreiðars Más. Sýknuð af öllum ákæruliðum Fjárfestirinn Skúli Þorvaldsson var hins vegar sýknaður af öllum kröfum ákæruvaldsins, en hann hafði verið dæmdur í sex mánaða fangelsi í héraðsdómi. Guðný Arna Sveinsdóttir, fyrrverandi fjármála- stjóri bankans, var sýknuð, líkt og í héraðsdómi. Landsréttur viðurkenn- ir í dóminum skaðabótaskyldu bæði Magnúsar og Hreiðars Más gagn- vart Kaupþingi ehf. vegna tjóns sem gat hlotist af háttsemi þeirra. Skaða- bótaskyldu gegn Skúla og Guðnýju er hins vegar vísað frá dómi þar sem þau eru sýknuð. Í ákæru sérstaks saksóknara voru Hreiðar Már og Guðný Arna sögð hafa skipulagt og framkvæmt fjár- drátt og umboðssvik með því að hafa fært um 8 milljarða úr sjóðum Kaup- þings til félagsins Marple Holding S.A. SPF. Félagið er skráð í Lúx- emborg, en það er í eigu Skúla. Engum gerð refsing  Dómur í Marple-málinu kveðinn upp í Landsrétti Morgunblaðið/Hari Í réttarsal Hreiðar Már og Hörður Felix Harðarson verjandi hans.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.