Morgunblaðið - 15.02.2019, Side 8

Morgunblaðið - 15.02.2019, Side 8
8 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 15. FEBRÚAR 2019 Andrés Magnússon, fjölmiðla-rýnir Viðskiptablaðsins, furðar sig í nýjasta pistli sínum á því hve litla athygli það vakti þegar varaþingmaður Pírata veittist að blaðamanni Viljans um liðna helgi. Pír- atinn segist ekki ætla að taka aftur sæti á Alþingi vegna atviksins, en það breytir því ekki að Andrés telur að atvikið hefði átt að kalla á meiri viðbrögð.    Hann nefnir sérstaklega aðþað sé „fullkomlega óskilj- anlegt að Blaðamannafélag Ís- lands hefur ekki svo mikið sem ræskt sig af þessu tilefni. Auðvitað kallar þessi uppá- koma á umfjöllun félagsins og harðorða fordæmingu. Einfald- lega af því að þarna var stjórn- málamaður með ofstopa við blaðamann. Þar skiptir í sjálfu sér minnstu hverjir áttu í hlut.“    Andrés segir „erfitt að verjastþeirri hugsun að kannski það hafi skipt máli. Dettur ein- hverjum í hug að jafnlítið og jafn- stutt hefði verið um það fjallað ef einhver varaþingmaður Mið- flokksins hefði verið að abbast upp á blaðamann Stundarinnar á barnum?“    Þetta er vissulega umhugs-unarvert. Getur verið að það skipti máli um viðbrögð blaða- manna og annarra hvaða stjórn- málamenn eiga í hlut eða hverjir verða fyrir atlögunum?    Það ætti ekki að skipta máli, enóneitanlega hlýtur sú hugsun að læðast að þeim sem fylgjast með umræðunni að það skipti ein- mitt máli hverjir í hlut eiga. Andrés Magnússon Málefnið eða maðurinn? STAKSTEINAR Frekari rannsókn á örverumengun hjá Ópal Sjávarfangi gefur tilefni til að ætla að ekki hafi tekist að upp- ræta listeríumengun í fyrirtækinu og að fleiri afurðir kunni að vera mengaðar af bakteríunni. Fyrir- tækið hefur innkallað allar reyktar afurðir sínar úr verslunum, í samráði við Matvælastofnun. Er greint frá þessu á vef stofnunarinnar. Þá hefur Ópal Sjávarfang jafn- framt stöðvað alla framleiðslu og dreifingu á meðan unnið er að úrbót- um. Er það gert undir eftirliti Mat- vælastofnunar. Bjóða fólki endurgreiðslu Innköllunin nær til allra lotunúm- era á reyktum afurðum, þ.e. birki- reyktum, hangireyktum og heit- reyktum afurðum, frá Ópal Sjávarfangi sem eru á markaði. Síð- ustu notkunardagar þessara mat- væla eru í janúar, febrúar og mars. Átt er við allan kaldreyktan lax, heit- reyktan lax, reykta fjallableikju, reyktan makríl og síld: bita, hálfflök, flök, kubba, hnakka, sneiðar, áleggs- lax, laxakurl. Neytendum sem keypt hafa vör- urnar er bent á að neyta þeira ekki og hafa þess í stað samband við fyr- irtækið um endurgreiðslu í síma 517- 6630 eða a netfangið opal@opal.is Innköllun vegna listeríumengunar  Nær til allra lotunúmera á reyktum afurðum frá Ópal Sjávarfangi Morgunblaðið/Eggert Lax Viðskiptavinir eru hvattir til að hafa samband við fyrirtækið. Aðalmeðferð í máli hjóna sem grunuð eru um gróf kynferðisbrot gegn dóttur sinni og stjúpdóttur hófst í Héraðsdómi Reykjaness í gær. Skýrslutaka yfir hjónunum fór einnig fram auk þess sem sex vitni komu fyrir dóminn. Hjónin komu til héraðsdóms í fylgd nokkurra lögreglumanna en þau hafa undanfarið verið í varð- haldi. Maðurinn hefur verið í varð- haldi frá því málið kom upp í júlí, en konan var á sama tíma hneppt í tveggja vikna varðhald og sleppt að því loknu. Í október var ákæra gefin út á hendur fólkinu og var þá konan aftur hneppt í varðhald, en héraðs- saksóknari taldi að ef brot hennar væru jafn alvarleg og henni væri gefið að sök myndi það valda hneykslun og særa réttar-vitund almennings gengi hún laus. Játuðu brot sín að hluta Við þingfestingu málsins í októ- ber játuðu hjónin brot sín að hluta, en sem fyrr segir eru þau ákærð fyrir gróf kynferðisbrot gegn dóttur sinni og stjúpdóttur. Í ákæru málsins kemur jafnframt fram að þau hafi framið brotin meðan önnur dóttir horfði á. Þá eru þau jafnframt ákærð fyrir að hafa tekið upp brot sín gegn stúlk- unni. Auk þess er ákært fyrir vopna- lagabrot og varðveislu efnis sem sýnir börn á kynferðislegan hátt, en samtals var um að ræða 807 ljósmyndir og 29 myndskeið. Grunuð um gróf kynferðisbrot  Aðalmeðferð hófst í gær í máli hjóna sem brutu gegn dóttur sinni og stjúpdóttur Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Héraðsdómur Lögreglumenn koma með annan sakborninginn. DRAUMAEIGN Á SPÁNI Nánar á www.spanareignir.is ÞÚ ERT Í ÖRUGGUMHÖNDUMHJÁ OKKUR Aðalheiður Karlsdóttir Löggiltur fasteignasali adalheidur@spanareignir.is Sími 893 2495 Ármúla 4-6, Reykjavík Karl Bernburg Viðskiptafræðingur karl@spanareignir.is Sími 777 4277 Ármúla 4-6, Reykjavík Flott hönnun, vandaður frágangur Stórar lóðir Frábært útsýni Með eða án bílskúrs Tilbúin hús fullbúin húsgögnum eða Hús í byggingu Einkaklúbbur á strönd Frítt golf í 2-5 ár Eign fyrir þá sem vilja það besta Verð frá 74.700.000 Ikr. (545.000 evrur, gengi 1evra/137Ikr.) Við höfum selt fasteignir á Spáni síðan 2001 GLÆSILEG EINBÝLISHÚS Las Colinas margverðlaunað sem eitt besta golfsvæðið á Spáni Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://mbl.is/mogginn/leidarar/

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.