Morgunblaðið - 15.02.2019, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 15.02.2019, Blaðsíða 10
10 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 15. FEBRÚAR 2019 Ško verðið! rðið. Hlökkum til að sjá þig! 5 ár a áb yr gð fy lg ir fó lk sb ílu m H E K LU að up pf yl ltu m ák væ ðu m áb yr gð ar sk ilm ál a. Þ á er að fin na á w w w .h ek la .is /a by rg d HEKLA · Laugavegi 170-174 · Reykjavík · Sími 590 5000 · hekla.is Höldur Akureyri · Bílasala Selfoss · Bílás Akranesi · HEKLA Reykjanesbæ · BVA Egilsstöðum Komdu og prófaðu nýjan ŠKODA, þar sem gæðin leyna sér ekki frekar en góða ve Verð nú 4.550.000 kr. Škoda Karoq Ambition / 1.6 TDI / Sjálfskiptur Listaver 300.0 Afsláttu ð: 4.850.000 kr. 00 kr. r Verð 4 980000 Škoda Superb Combi Ambition / 2.0 TDI / Sjálfsk. / 17” álfelgur / Xenon/LED aðalljós Listav 420 Afslá nú . . kr. erð: 5.400.000 kr. .000 kr. ttur Baldur Arnarson baldura@mbl.is Árslaun framkvæmdastjóra bank- anna þriggja í fyrra voru frá 33,3 milljónum. Þau voru hæst í Íslands- banka eða tæplega 42 milljónir. Þetta má ráða af ársskýrslum bankanna. Fulltrúar Landsbankans og Arion banka yfirfóru tölurnar en starfsmaður Íslandsbanka hafði ekki tök á að yfirfara tölurnar. Var hver beðinn um að skoða sinn banka. Tölurnar benda til að meðalmán- aðarlaun framkvæmdastjóra hafi verið lægst í Landsbankanum síð- ustu ár. Þá eru laun bankastjóra af- gerandi hærri í Íslandsbanka og Arion banka en í Landsbankanum, þrátt fyrir launahækkanir banka- stjóra Landsbankans. Breytingar hafa orðið á fjölda framkvæmdastjóra hjá bönkunum. Greiddur uppsagnarfrestur og aðrar starfslokagreiðslur kunna að ýkja launatölur þegar slíkar breytingar verða. Þá kunna skipti á fram- kvæmdastjórum að hafa slík áhrif. Sérfræðingur á fjármálamarkaði sagði launaþróun innan bankanna vitna um að grunnlaun hefðu verið hækkuð eftir að kaupaukar voru af- lagðir. Launahækkanir bankastjóra Landsbankans kynnu að skapa við- mið fyrir framkvæmdastjóra bank- ans. Launabilið hafi enda breikkað. Fram kom í Morgunblaðinu í gær að launahækkun Lilju Bjarkar Ein- arsdóttur, bankastjóra Landsbank- ans, sumarið 2017 hefði verið hluti af ráðningarsamningi hennar. Hún var ráðin til bankans í mars 2017. Lögum breytt fyrir ráðningu Bankaráð Landsbankans auglýsti eftir nýjum bankastjóra 10. desem- ber 2016. Síðar í sama mánuði sam- þykkti Alþingi breytingar á lögum um kjararáð (2016/130) sem skyldu taka gildi 1. júlí 2017. Með því varð ljóst að það yrði bankaráðs að ákvarða launin frá miðju ári 2017. Sú varð og raunin með því að bankaráð hækkaði launin í 3,25 milljónir 1. júlí 2017 og í 3,8 milljónir 1. apríl 2018. Bankasýsla ríkisins óskaði á þriðjudaginn var eftir upplýsingum frá Íslandsbanka og Landsbanka um launamál bankastjóra. Ekki náðist í Jón Gunnar Jónsson, forstjóra Bankasýslu ríkisins, í gær. Stofnun- in fer með 98,2% eignarhlut í Lands- bankanum og 100% hlut í Íslands- banka fyrir hönd ríkissjóðs. Lækkuðu með sparnaði Fulltrúi Íslandsbanka greindi frá því á mánudag að laun Birnu Einars- dóttur, bankastjóra Íslandsbanka, hefðu lækkað í 4,2 milljónir, eða um 14,1% milli ára. Lækkunin væri að frumkvæði bankastjóra. Þá fékkst upplýst í gær að launin hefðu lækkað úr 4,89 milljónum í 4,2 milljónir, eða um umrædd 14,1%. Samkvæmt lögum um tekjuskatt má vinnuveitandi greiða allt að tvær milljónir króna á ári í lífeyrissjóð, sem mótframlag umfram umsamdar prósentur. Bankastjóri Íslands- banka mun hafa nýtt sér þann möguleika með því að lækka laun sín að hluta og fá þá lækkun í séreign innan áðurnefnda marka. Birna var með 4,89 millj. í föst mánaðarlaun í fyrra en flutti af því 142.450 kr. á mánuði í séreign sem skýrir lægri föst árslaun í ársreikningi, en þar eru mótframlög tilgreind í heild. Með milljón meira á mánuði Við þau bætast kaupauki og bif- reiðahlunnindi. Með áðurnefndum breytingum fara heildarstarfskjör bankastjórans úr 63,5 milljónum 2018 í 57,5 milljónir í ár, eða úr 5,3 milljónum á mánuði í 4,8 milljónir. Það er 9,4% lækkun milli ára. Með því hefur bankastjóri Ís- landsbanka um einni milljón króna meira í heildarlaun á mánuði en bankastjóri Landsbankans. Þannig fær bankastjóri Landsbankans 3,8 milljónir á mánuði að meðtöldum bifreiðahlunnindum. Kaupaukar eru ekki greiddir bankastjóranum. Birna fékk 22,7 milljónir í kaup- aukagreiðslur árin 2016-2018 en þá var bankinn kominn í ríkiseigu. Birna fær 4,7 milljónir til viðbótar í kaupauka í ár en það eru eftir- stöðvar fyrri samninga. Segir í ársreikningi 2018 að kaup- auki var aflagður frá og með 1. jan- úar 2017 að beiðni Bankasýslu ríkis- ins. Því séu „kaupaukagreiðslur fyrir árin 2017, 2018 og 2019 eftir- stöðvar af áunnum kaupauka fyrir þann tíma, þ.e. fyrir árið 2017, í sam- ræmi við reglur Fjármálaeftirlitsins um frestun greiðslu á 40% kaupauka um að lágmarki þrjú ár. Lægstu launin í Landsbankanum  Landsbanki Íslands hefur greitt stjórnendum lægri laun en hinir bankarnir  Framkvæmda- stjórar Arion banka og Íslandsbanka höfðu lengi hærri laun en bankastjóri Landsbankans Laun stjórnenda bankanna 2009 til 2018 Meðal-mánaðarlaun fram- kvæmdastjóra og bankastjóra Íslandsbanki: Framkvæmdastjóri Bankastjóri Arion banki: Framkvæmdastjóri Bankastjóri Landsbankinn: Framkvæmdastjóri Bankastjóri 2016 2017 2018 2019 Íslandsbanki 2009 2010 2011 2012 2013 2014 2015 2016 2017 2018 Laun til framkvæmdastjóra 114,0 147,1 145,2 171,7 198,9 221,1 250,4 284,6 331,5 250,3 Fjöldi framkvæmdastjóra 6 7 7 7 7 8 8 8 8 6 Meðallaun framkvæmdastjóra 19,0 21,0 20,7 24,5 28,4 27,6 31,3 35,6 41,4 41,7 Meðal-mánaðarlaun framkvæmdastjóra 1,583 1,751 1,729 2,044 2,368 2,303 2,608 2,965 3,453 3,476 Laun bankastjóra* 24,1 31,6 29,7 31,5 40,0 43,4 50,9 60,7 58,0 63,5 Mánaðarlaun bankastjóra 2,008 2,633 2,475 2,625 3,333 3,617 4,242 5,058 4,833 5,292 *Bifreiðahlunnindi eru meðtalin í launum bankastjóra 2016-2018. Arion banki 2009 2010 2011 2012 2013 2014 2015 2016 2017 2018 Laun til framkvæmdastjóra 80,1 109,9 210,2 227,6 219,9 251,5 281,1 292,9 329,8 312,4 Fjöldi framkvæmdastjóra 5 5 9 9 9 9 9 9 9 8 Meðallaun framkvæmdastjóra 16,0 22,0 23,4 25,3 24,4 27,9 31,2 32,6 36,6 39,8 Meðal-mánaðarlaun framkvæmdastjóra 1,335 1,832 1,946 2,107 2,036 2,329 2,603 2,713 3,054 3,315 Laun bankastjóra** 21,0 20,0 37,1 44,5 50,7 58,5 63,1 65,4 71,2 74,7 Mánaðarlaun bankastjóra 1,750 2,857 3,092 3,708 4,225 4,875 5,258 5,442 5,933 6,225 **Leiðrétt er fyrir 10m kr eingreiðslu. Laun 2010 eru fyrir 7 mánaða tímabil. Nýr bankastjóri tekur við um mitt ár. Landsbankinn 2009 2010 2011 2012 2013 2014 2015 2016 2017 2018 Laun til framkvæmdastjóra 102,1 144,0 168,0 134,6 191,0 212,9 190,9 183,6 205,5 199,6 Fjöldi framkvæmdastjóra 7 8 8 7 7 7 7 6 7 6 Meðallaun framkvæmdastjóra 14,6 18,0 21,0 19,2 27,3 30,4 27,3 30,6 29,4 33,3 Meðal-mánaðarlaun framkvæmdastjóra 1,215 1,500 1,750 1,602 2,274 2,535 2,273 2,550 2,446 2,772 Laun bankastjóra*** 17,5 7,9 13,9 14,2 22,2 20,6 19,0 24,5 34,1 44,0 Mánaðarlaun bankastjóra 1,462 1,129 1,158 1,183 1,850 1,717 1,583 2,042 2,842 3,667 ***Laun 2010 eru fyrir 7 mánaða tímabil. 7 6 5 4 3 2 1 0 2009 2010 2011 2012 2013 2014 2015 2016 2017 2018 Meðal-mánaðarlaun, m. kr. Heildar-mánaðarlaun, m. kr. Upphæðir eru í m. kr. (tölur eru rúnaðar af) 2016 2017 2018 2019 (áætlun) Breyting 2016-2018 Breyting 2016-2019 Árslaun 49.149.100 46.315.600 56.970.600 50.400.000 15,91% 2,55% Bifreiðahlunnindi 2.429.241 2.027.138 2.659.617 2.415.276 9,48% -0,57% Kaupauki 9.057.204 9.709.352 3.924.764 4.700.000 -56,67% -48,11% Samtals 60.635.545 58.052.090 63.554.981 57.515.276 4,81% -5,15% Mánaðarlaun 5.052.962 4.837.674 5.296.248 4.792.940 Heildarlaun bankastjóra Íslandsbanka 2016-2019 5,1 4,8 5,3 4,8 Heimild: ársskýrslur bankanna Heimild: ársskýrslur bankanna Heimild: Íslandsbanki

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.