Morgunblaðið - 15.02.2019, Qupperneq 16
16 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 15. FEBRÚAR 2019
NOKIAN stígvélabúðin | Mjóddinni | Reykjavík I Sími 527 1519 | Nokian Stígvélabúðin
Opið virka daga kl. 10.00-18.00
Loðfóðruð barnastígvél
fyrir veturinn
15. febrúar 2019
Gengi Kaup Sala Mið
Dollari 120.57 121.15 120.86
Sterlingspund 155.39 156.15 155.77
Kanadadalur 91.08 91.62 91.35
Dönsk króna 18.277 18.383 18.33
Norsk króna 13.964 14.046 14.005
Sænsk króna 13.084 13.16 13.122
Svissn. franki 119.83 120.49 120.16
Japanskt jen 1.0886 1.095 1.0918
SDR 167.37 168.37 167.87
Evra 136.42 137.18 136.8
Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 166.6378
Hrávöruverð
Gull 1311.15 ($/únsa)
Ál 1839.0 ($/tonn) LME
Hráolía 62.7 ($/fatið) Brent
Skannaðu kóð-
ann til að sjá
gengið eins og
það er núna á
● Valitor, dóttur-
félag Arion
banka, tapaði 1,9
milljörðum króna
á árinu 2018 í
samanburði við
900 milljóna
króna hagnað árið
2017. Heildarvelta
Valitors nam
21,4 milljörðum
króna árið 2018
og nettótekjur námu 9,4 milljörðum
króna sem er 25% aukning frá árinu á
undan. Þetta kemur fram í tilkynningu.
Þar segir einnig að síðasta ár hafi ein-
kennst af miklum fjárfestingum Valitors
í vöruþróun og markaðssókn en þar ber
hæst alrásarlausn félagsins. Á meðal
nýrra viðskiptavina fyrirtækisins er
t.a.m. danska skófyrirtækið Ecco þar
sem Valitor þjónar 200 skóverslunum
fyrirtækisins í Evrópu þegar innleiðingu
verður lokið, auk tveggja stórra versl-
anakeðja á Írlandi og í Bretlandi.
Tap Valitors nam 1,9
milljörðum króna 2018
Tap Valitor tapaði 1,9
milljörðum króna.
STUTT
Þóroddur Bjarnason
tobj@mbl.is
Ríkislögmaður hefur boðið einstaklingi, sem
sætti símhlerunum eftir skýrslutöku hjá lög-
reglu, fimm hundruð þúsund krónur í miska-
bætur auk greiðslu vegna lögfræðikostnaðar.
Þetta kemur fram nýlegu bréfi frá ríkislög-
manni sem Morgunblaðið hefur undir höndum.
Í bréfinu, þar sem búið er að strika yfir nafn
þess aðila sem um ræðir, auk þess sem ekki
sést um hvaða mál er að ræða, er vísað til ný-
legs bréfs lögmanns viðkomandi. Samkvæmt
heimildum Morgunblaðsins er hér um að ræða
aðila sem tekinn var höndum af lögreglu, og
var talinn tengjast einhverjum af hinum svo-
kölluðu „hrunmálum“.
Hlustun braut á rétti
Í bréfinu er sagt að rétt væri að símtöl við-
komandi úr og í tiltekin símanúmer hafi verið
hlustuð og hljóðrituð á grundvelli dómsúr-
skurðar. Var það vegna rannsókna á nokkrum
málum sem þá höfðu verið kærð til lögreglu.
„Þá er rétt“ að á því tímabili hafi einnig verið
tekin skýrsla af viðkomandi vegna rannsóknar
málanna, segir meðal annars í bréfinu. Þá seg-
ir einnig að Hæstiréttur hafi komist að þeirri
niðurstöðu að framkvæmdin, þ.e. að hlusta á
símtöl manna skömmu eftir að þeir hafi gefið
skýrslu hjá lögreglu sem sakborningar, brjóti
á rétti manna til réttlátrar málsmerðferðar.
Hlutlæg bótaskylda
Einar Karl Hallvarðsson ríkislögmaður seg-
ir í samtali við Morgunblaðið að í sakamála-
rannsóknum sé ákveðinn flokkur sem kallast
þvingunarráðstafanir, en þar er um að ræða
aðgerðir eins og handtöku, gæsluvarðhald,
húsleit, farbann og hlerun. „Frá árinu 2008
hefur reglan verið skýr, að bótaskylda vegna
svona mála er hlutlæg ef viðkomandi hefur
ekki stuðlað að aðgerðum gegn sér,“ segir Ein-
ar Karl.
Hann segir að reynt sé að semja um bætur
þegar það á við, en embættið bregðist þó ein-
ungis við ef bótakrafa er gerð, eins og í tilvik-
inu sem sagt er frá í þessari frétt. Þá segir
Einar að lögbundin gjafsókn sé í málum er
varða þvingunaraðgerðir, og nokkuð sé því um
að slíkum málum sé skotið til dómstóla.
Hann segir að hjá embættinu sé fjöldi mála
í þessum flokki. Leitað sé leiða til að einfalda
málin. „Í Danmörku hafa menn t.d. komið sér
upp eins konar gjaldskrá.“
Hann bætir við að við ákvörðun bóta-
greiðslna hér á landi sé miðað við hliðstæða
hæstaréttardóma m.a., en matið sé alltaf
bundið við einstök tilvik.
Hann segir flesta bregðast vel við boði emb-
ættisins um miskabætur, en ef mikið ber á
milli sé hægt að fara með málið fyrir dóm.
Aðspurður segir Einar að mál vegna hler-
unar í hrunmálum séu ekki mörg. „Grundvall-
aratriði um bætur í þessum málaflokki er að
þær eru háðar því skilyrði að viðkomandi hafi
verið sýknaður fyrir dómi, eða málið fellt nið-
ur.“
Hleruðum boðnar 500 þús-
und krónur í miskabætur
Tengist nokkrum hrunmálum Hlerað í kjölfar handtöku og yfirheyrslu
Hleranir
» Mörg mál er varða bætur vegna þving-
unaraðgerða eru á borði ríkislögmanns.
» Aðilinn í fréttinni var yfirheyrður af lög-
reglu, og hleraður í kjölfarið.
» Hlustun á símtöl manna skömmu eftir að
þeir hafa gefið skýrslu hjá lögreglu sem sak-
borningar, brjóta á rétti manna til réttlátrar
málsmeðferðar.
Morgunblaðið/Golli
Bætur Ríkislögmaður hefur boðið einstaklingi sem sætti hlerunum miskabætur upp á 500 þúsund.
Heildarhagnaður Heimavalla nam
47,8 milljónum króna á árinu 2018 í
samanburði við 2,7 milljarða króna
hagnað árið á undan. Matsbreyting
eignasafnsins nam 111 milljónum
króna á árinu 2018 í samanburði við
3,7 milljarða króna árið 2017. Leigu-
tekjur á árinu 2018 námu 3,7 millj-
örðum króna samanborið við 3,1
milljarð króna árið 2017 og hækka
því um 19%. Heildarfjöldi íbúða fé-
lagsins í árslok 2018 var 1.893 og
fækkar þeim um 76, eða um 4%. Sé
litið til fjórða ársfjórðungs nam
heildarhagnaður félagsins 84 millj-
ónum króna, leigutekjur námu 924,7
milljónum króna og hreinar leigu-
tekjur voru 692,4 milljónir króna.
Eigið fé félagsins nam 18,8 millj-
örðum króna í árslok miðað við 17,6
milljarða króna í árslok 2017. Eign-
irnar námu 56,8 milljörðum króna og
eiginfjárhlutfall félagsins var 33%.
Vaxtaberandi skuldir voru 34,7 millj-
arðar króna. „Við erum að sjá miklar
og góðar breytingar á rekstri félags-
ins á árinu 2018. Tekjur félagsins
vaxa um 19% á milli á ára á sama
tíma og fjöldi íbúða í rekstri fækkar
nokkuð,“ segir Guðbrandur Sigurðs-
son í tilkynningu. „Endurskipulagn-
ing á eignasafni félagsins hefur
gengið töluvert betur en við gerðum
ráð fyrir í upphafi síðasta árs. Sam-
tals seldi félagið 210 íbúðir fyrir 6,2
milljarða króna og það sem af er
árinu 2019 er félagið búið að sam-
þykkja kauptilboð og selja fasteignir
fyrir 2,8 milljarða króna. Þessi
eignasala mun skila félaginu sterkri
lausafjárstöðu þegar líður á árið
2019.“
Morgunblaðið/Eggert
Leigufélag Hagnaður Heimavalla
nam 48 milljónum árið 2018.
48 milljóna hagn-
aður Heimavalla
Leigutekjur á
árinu námu 3,7
milljörðum króna