Morgunblaðið - 15.02.2019, Page 23

Morgunblaðið - 15.02.2019, Page 23
Við systurnar og Karólína vor- um frænkur og ólumst upp á Hagamel 10 sem feður okkar höfðu látið byggja. Þeir voru við- skiptafélagar í um 20 ár og fetuðu þá í fótspor feðra sinna sem ráku ásamt bróður sínum Skóverslun Lárusar G. Lúðvígssonar, verslun sem faðir þeirra stofnaði. Áberandi var í Lárusarættinni hversu margir voru búnir listræn- um hæfileikum og áttu létt með að læra tungumál. Þessum hæfileik- um var Karólína ríkulega gædd. Áhugi hennar á myndlist kom snemma í ljós. Móðir okkar hafði orð á því að Karólína hefði alltaf haft blað og blýant meðferðis þeg- ar hún kom upp til okkar, alveg frá því hún var lítil stelpa. Eitt sinn þegar Karólína og Anna voru saman í Hamborg, þá unglingar, sá Karólína í lystigarði tré sem hún varð að teikna þótt hún þyrfti að notast við blað úr lít- illi minnisbók og augabrúna- blýant. Á árunum sem hún var gift Clive og börnin voru ung fluttu þau oft og þá kom í ljós að fjarri fór því að hæfileikar hennar væru bundnir við myndlistina heldur var hún snillingur í að búa fjöl- skyldunni fallegt heimili og taldi þá ekki eftir sér að ganga í störf hinna ýmsu iðnaðarmanna. Hún var líka listakokkur og var gaman að sitja í eldhúsinu hjá henni þeg- ar hún matbjó. Hún hélt uppi skemmtilegum samræðum á með- an hún skutlaði steikinni í ofninn og meðlætinu í pottana og fyrr en varði var komin dýrindis máltíð á borðið. Þrátt fyrir að hafa búið í Eng- landi stóran hluta af starfsævi sinni sótti hún myndefni sitt aðal- lega til Íslands, bæði í íslenska náttúru og mannlífið, eins og á Hótel Borg, þar sem hún hljóp upp alla stigana þegar hún heim- sótti ömmu sína. Kom hún þá auga á ýmislegt á þessu stóra hót- eli sem þeir sáu ekki sem fóru í lyftunni. Karólína hlaut margs konar verðlaun og viðurkenningar er- lendis. Því vakti það furðu margra hvað listastofnanir á Íslandi sýndu henni mikið fálæti. Meðal þeirra sem undruðust var H.N. Eccleston OBE, fyrrverandi for- seti Royal Society of Painter – Printmakers, sem í bréfi til Lista- safns Íslands vakti athygli á þeirri einkennilegu yfirsjón að hafa ekki keypt grafíkverk eftir íslenskar listakonur sem þá höfðu skömmu áður hlotið virt verðlaun á alþjóð- legum sýningum, Ingunn Eydal í Rússlandi og Karólína á Ítalíu. Greinilegt er að íslenskir listunn- endur deildu ekki þessu fálæti heldur kunnu vel að meta list hennar og prýða verk hennar fjöldamörg heimili á Íslandi. Glaðværð og fjör voru eigin- leikar sem einkenndu Karólínu alla tíð. Hún var örlát og þeir eru ófáir sem nutu gistivináttu henn- ar og gestrisni enda átti hún marga trygga vini. Eftir að Karólína missti Fred kom hún alkomin heim til Íslands. Þegar hún veiktist og fluttist á hjúkrunarheimilið Sóltún héldu vinir hennar áfram að njóta glettni hennar og fundu að hún fylgdist vel með því sem gerðist í lífi þeirra. Starfsfólkið á Sóltúni annaðist hana af stakri um- hyggjusemi og eignaðist vináttu hennar. Við systurnar og fjölskyldur okkar vottum Stephen og Sam- önthu og þeirra fjölskyldum okk- ar dýpstu samúð. Blessuð sé minning Karólínu Lárusdóttur. Sigríður og Anna.  Fleiri minningargreinar um Karólínu Lárusdóttur bíða birtingar og munu birtast í blaðinu næstu daga. öðrum. Fyrst og fremst er það þó þakklæti fyrir að hafa átt þig að. Við vitum að nú eruð þið afi í blómabrekkunni og við biðjum fyrir bestu kveðjur til hans. En komin eru leiðarlok og lífsins kerti brunnið og þín er liðin æviönn, á enda skeiðið runnið. Í hugann kemur minning mörg, og myndir horfinna daga, frá liðnum stundum læðist fram mörg ljúf og falleg saga. (Höf. ók.) Tinna Rut, Alex Már og Bryndís Rut. Þegar ég fékk fréttina um að amma væri orðin veik og við urðum að drífa okkur á Sigló vissi ég ekki hvernig mér ætti að líða. Ég vissi að hún myndi fara á betri stað og líða mun betur þar með afa en ég vissi að sjálfur var ég ekki tilbúinn að kveðja hana. Á leiðinni á Sigló hugsað ég með eftirsjá um að hafa ekki farið mun oftar í heimsókn. Ég vildi bara hitta hana einu sinni enn og segja henni hvað mér þætti vænt um hana og hvað ég væri þakklátur fyrir allt sem hún hefði gert fyrir mig. Eftir að við kvöddum hana fórum við í herbergið hennar að pakka niður dótinu hennar og þá upplifði ég tóm- leika. Að hugsa sér að fara framhjá sjúkrahúsinu og stoppa ekki hjá henni og fara í heimsókn fannst mér mjög skrítið og það mun vera þannig í langan tíma. Það eru svo margar minn- ingar um hana ömmu sem ég myndi gera nánast allt til að endurupplifa. Ég veit að það mun því miður aldrei gerast, ég mun þó aldrei gleyma þeim og ég mun segja börnunum mínum frá öllum þessum frábæru minningum í framtíðinni. Síðustu daga eru þessar minn- ingar það eina sem ég er búinn að vera að hugsa um. Ein uppá- haldsminningin mín um hana ömmu er þegar að hún og afi bjuggu enn á Eyrarflötinni og ég, mamma og pabbi ákváðum að fara í helgarferð á Sigló og gistum við hjá þeim. Þetta var um mitt sumar og það var glampandi sól og stafalogn. Ég, afi og pabbi fórum út í garð í fótbolta meðan að amma og mamma horfðu á. Eftir smá tíma fórum við inn og fengum heimsfrægu ástarpungana og kleinurnar hennar ömmu. Svo héldum við aftur af stað í fót- bolta, amma og mamma lágu á meðan í sólbaði alveg fram að kvöldmat. Þá var pöntuð pitsa frá torginu. Eftir það komum við okkur fyrir í sófanum og horfðum öll saman á eitthvað sniðugt í sjónvarpinu. Eftir að afi kvaddi okkur kom amma til okkar um jólin, þau jól verða alltaf í uppáhaldi hjá mér. Þá var spjallað langt fram á nótt, horft saman á sjónvarpið og við eyddum al- veg dásamlegum tíma saman. Eftir að hún fór aftur heim þessi jól var ég tómur, ég saknaði hennar strax og hún fór út um dyrnar. Það var ein- mitt þessi tilfinning sem ég upplifði þegar ég frétti að amma væri veik og ætti ekki mikið eftir, ég gat ekki ímynd- að mér hvernig lífið væri án hennar. Eftir að hún fór frá okkur ákvað ég að reyna að vera betri manneskja og koma vel fram við alla, ég ákvað líka að leggja mig fram í öllu sem ég tek mér fyrir hendur til að gera hana stolta. Orð geta ekki lýst hvað mér þótti vænt um hana. En önnur mjög mikilvæg manneskja sagði mér að þegar fólk félli frá væri það aldrei hinsta kveðja. Þannig að við sjáumst, elsku besta amma. Bogi Sigurbjörnsson.  Fleiri minningargreinar um Sigurhelgu Stefáns- dóttur bíða birtingar og munu birtast í blaðinu næstu daga. MINNINGAR 23 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 15. FEBRÚAR 2019 ✝ Anton HaukurGunnarsson fæddist í Reykja- vík 25. febrúar 1944. Hann lést á hjúkrunarheimil- inu Hrafnistu í Reykjavík 31. jan- úar 2019. Foreldrar hans voru Gunnar Heimir Jónsson, f. 25. september 1923, d. 27. ágúst 1945, og Ragnhildur Daníelsdóttir, f. 17. september 1924, d. 3. mars 2003. Foreldrar Gunnars Heimis voru Jón Björnsson og Dýrleif Tómasdóttir. Foreldrar Ragn- hildar voru Daníel Guðmunds- son og Guðný Guðbrands- dóttir. Stjúpfaðir hans var Sturla Bogason, f. 5. febrúar 1913 d. 17. febrúar 1994. Fósturforeldrar Hauks voru Magnús Amlín Ingibjartsson, f. 29. nóvember 1904, d. 13. september 1986, og Ingunn Angan- týsdóttir, f. 20. nóvember 1909, d. 4.febrúar 2006. Systkini hans eru Kolbrún Gunn- arsdóttir, f. 16. mars 1941, Hreið- ar Þorsteinn Gunnarsson, f. 27. janúar 1942, d. 7. desember 2004, og Gunnar Heimir Gunn- arsson, f. 1945 d. 1945. Systkini sammæðra eru Daníel Guðmundsson, f. 6. júlí 1947, Sigríður Sturludóttir, f. 16. júní 1954, Örn Sturluson, f. 21. september 1957, Atli Sturluson, f. 13. nóvember 1962, og Hrönn Sturludóttir, f. 20. júlí 1967. Fóstursystur hans eru Nanna Magnúsdóttir, f. 4. jan- úar 1930, og Halldóra Magnús- dóttir, f. 7. febrúar 1950. Sambýliskona Hauks var Hulda Sassoon, f. 8. október 1943, d. 10. desember 2010. Haukur var á öðru ári þegar hann kom til Þingeyrar með systkinum sínum, móður og föðurömmu. Faðir hans fórst í slysi við flugnám í Bandaríkj- unum og Ingunn frænka hans og Magnús tóku hann að sér. Hann ólst því upp á Þingeyri og bjó þar að mestu allt til 1994 er hann flutti til Reykja- víkur. Haukur lék á píanó, harmóniku og orgel án þess að hafa notið mikillar kennslu og einnig söng hann með Karla- kór og Kirkjukór Þingeyrar. Haukur lauk gagnfræðaprófi frá Héraðsskólanum að Núpi 1960 og starfaði síðan lengst af hjá Kaupfélagi Dýrfirðinga við gæðaeftirlit í frystihúsinu. Þegar Haukur flutti til Reykja- víkur bjó hann í íbúðum Ör- yrkjabandalagsins í Hátúni að undanskildum árunum sem hann bjó með Huldu á Þórðar- sveig 36. Útför Antons Hauks fer fram frá Áskirkju í dag, 15. febrúar 2019, klukkan 13. Í dag kveðjum við kæran frænda okkar, Hauk. Ungur að árum kom hann í fóstur til Ing- unnar ömmu og Magnúsar afa á Þingeyri og bjó lengst af ævi sinnar í faðmi þeirra. Við bræð- ur umgengumst Hauk mikið og var hann okkur frekar sem bróðir en frændi. Haukur fæddist hreyfihaml- aður en lét það ekki aftra sér í því sem hann vildi taka sér fyrir hendur. Hann var stoltur, fast- ur fyrir og vildi að litið væri á sig sem jafningja annarra. Lengst af var hann í fullri vinnu og voru þeir fáir dagarnir sem féllu úr. Í gegnum tíðina nutum við bræður góðs af frændskap okk- ar við Hauk. Ef eitthvað bjátaði á var hann alltaf tilbúinn að rétta hjálparhönd. Eitt sinn áskotnaðist okkur bræðrum skekta og þá reddaði Haukur utanborðsmótor. Bros- andi út að eyrum sigldum við bræður um fjörðinn fagra. Bílar voru mikið áhugamál Hauks sem var óspar á að lána okkur bíl ef þess var óskað. Haukur var félagslyndur og góður söngmaður, söng bæði í kirkju- og karlakór á Þingeyri. Hann var músíkalskur með næmt tóneyra og gat leikið eftir flest lög eftir aðeins eina hlustun. Við, ungir drengirnir, göptum af undrun yfir hæfileik- um hans. Tónlistin stytti frænda oft stundirnar og löngum stund- um sat hann og spilaði á harm- onikku sér til ánægju. Fáa þekktum við sem voru jafn víðlesnir og fróðir. Haukur var einnig sögumaður góður og afbragðs eftirherma. Mikið var hlegið þegar frændi lék á als oddi við þessa iðju sína. Gleði og söknuður er í hugum okkar bræðra þegar við lítum til baka og rifjum upp góðu stund- irnar sem við áttum saman á Þingeyri. Margt var brallað, sumt var ekki öllum að skapi þá, en við upprifjun færast bros yfir andlit. Við kveðjum kæran frænda með þakklæti og söknuði. Blessuð sé minning Hauks. Magnús, Angantýr Valur, Kristinn og Steinar Rík- arður Jónassynir. Anton Haukur Gunnarsson ✝ AðalheiðurHulda fæddist 4. desember 1975 í Grindavík. Hún lést 7. febrúar 2019. Foreldrar henn- ar eru Súsanna De- musdóttir frá Grindavík, f. 9. maí 1946, og Jón Guð- mundsson frá Ás- garði, Grindavík, f. 3. febrúar 1945. Systkini Aðalheiðar Huldu eru Guðjón, f. 21.7. 1963, og Guðmundur, f. 28.8. 1968. Börn Aðalheiðar eru Súsanna Mar- grét Gunnarsdóttir, f. 26.8. 1996, Mar- íus Máni Karlsson, f. 11.4. 2001, og Jón Emil Karlsson, f. 27.9. 2005. Aðalheiður Hulda fæddist í Grindavík og bjó þar allt sitt líf. Útför hennar fer fram frá Grindavíkurkirkju í dag, 15. febrúar 2019, klukkan 14. Elsku hjartans mamma mín, raunveruleikinn er sár og trúi ég ekki að ég sitji hér að skrifa minn- ingarorð um þig, elsku hjartað mitt. Sársaukinn er óbærilegur en ég finn fyrir þér í hjarta mínu og hvernig þú munt leiða mig áfram, þú ert greinilega að hjálpa mér í gegnum þetta, elsku hjartað mitt. Ég vildi að ég hefði getað tekið þéttingsfast utan um þig og lækn- að um leið öll þín sálarsár. Þú hafðir upplifað mikið á ævi þinni og fékkst því mikla lífsreynslu sem reyndist þér ansi erfið á köfl- um. Þú réttir út hjálparhönd með viskuna að veði og veit ég nú hvað þú hjálpaðir í raun og veru mörg- um, elsku mamma mín, en þú gleymdir því mikilvægasta og það varst þú sjálf. Ég ákvað að vera í litlu sam- bandi við þig á síðustu árum því fíkillinn réð oft för og honum vildi ég ekki kynnast meir. Það var vont þegar þú náðir þér í smá tíma og ég ákvað að hleypa þér að mér en svo tók fíkillinn aftur völdin. Ég setti ákveðin takmörk á sam- skipti okkar og vildi sjá þig lengur edrú til að geta hleypt þér aftur inn, nú hef ég ekki þann valmögu- leika og vil ég bara geta haldið ut- an um þig og aldrei sleppt. Ég vona svo innilega að þú vitir að ég reyndi að gera það sem mér og þér var fyrir bestu en ég var bara svo sár út í fíkilinn því ég vildi þig til baka, elsku hjartans mamma mín. Þegar ég hugsa um þig í dag þá hugsa ég aðeins um þig, alvöru þig og heyri hlátur þinn óma fallega. Ég vona að þú vitir hvað ég elskaði þig í raun og veru mikið, meira en allt í þessum heimi og miklu meira en það, elsku hjartað mitt. Við vorum fyrst bara tvær, þú og ég. Þú elskaðir að vera mamma mín og þráðir allt það besta fyrir mig og svo fyrir strákana þína sem komu fimm og níu árum seinna. Það er eins og þú hafir opnað fyrir allar þær góðu minn- ingar sem við áttum saman. Húmorinn og öll hlátursköstin, þú eldaðir svo góðan mat og bakaðir heimsins bestu kökurnar, við syngjandi saman í bílnum og þú að þrífa heima með tónlistina í botni, taka lagið með nokkrum skraut- legum danssporum. Ég vil að þú vitir það mamma mín að við börn- in þín vorum alltaf þín, verðum alltaf þín og þú alltaf okkar. Allir sem fengu að kynnast þér dýrkuðu þig, mamma mín, þú og þín hlýja og fallega sál lifir ætíð áfram í hjarta okkar og kennir okkur að elska eins fallega og þú gerðir. Þú nefnilega tókst öllum opnum örmum og varst dugleg að faðma og segjast elska fólkið þitt, sem verður mér til fyrirmyndar alla mína ævi. Þú fórst alltof fljótt, elsku hjartað mitt. Góðhjartaðasta manneskjan varst þú, ég elska þig og dái meira en allt í þessum heimi, það vona ég að þú vitir. Þú skilur eftir þig stórt fótspor, mamma mín, líf þitt hefur svo stóran tilgang og við tvær í sam- einingu munum sjá til þess að svo verði áfram. Ég ætla að enda þetta á ljóði eftir þig sem þú gerðir aðeins 17 ára gömul um afa þinn Demus, sem þú saknaðir svo en hefur nú hitt aftur á ný. Hann er hér, hann er þar, og frá mér hann aldrei fer, ég var of ung til að missa þig en þú varst þreyttur og ég hugsa um þig. Við sjáumst svo síðar, elsku hjartað mitt. Þín dóttir, Súsanna Margrét Gunnarsdóttir. Jæja mamma mín, ég ætla að byrja á því að þakka þér fyrir allt sem þú gerðir fyrir mig, alla af- mælisdaga sem þú reyndir eins og þú mögulega gast að hafa full- komna fyrir mig, allar gjafir sem þú gafst mér, bæði hluti og visku, kímnigáfu, dugnað, styrkleika svo eitthvað sé nefnt. Takk fyrir allt það sem þú kenndir mér, takk fyrir að trúa alltaf á mig og takk fyrir að vera alltaf stuðningsmaður númer eitt, studdir mig alltaf langmest í öllu sem ég tók mér fyrir hendur, sama hvað var. Þú ert besta og fallegasta manneskja sem ég veit um, sama hvort þér leið vel eða ekki vildir þú alltaf að ég og allir þínir nánustu væru brosandi. Þegar ég hugsa um þig hugsa ég ekki um fíkilinn sem tók völdin, heldur hina alvöru þig, þessa sem var brosandi, vildi alltaf fara og gera eitthvað skemmtilegt, fara í skemmtigarðinn, keilu, fara í ísbíl- túr, eða bara vera heima að horfa á gamanmynd í hláturskasti, það varst þú. Síðast þegar ég sá þig sá ég hina alvöru mömmu, komst inn heima flissandi og reyndir að þurrka af tattúið sem ég er með á hendinni vegna þess að þú trúðir ekki að litli strákurinn þinn væri kominn með alvöru tattú, við tók- um spjall um allt sem var í gangi, framtíðarplön og hvað það yrði geggjað að fara á rúntinn þegar ég keypti mér nýja bílinn sem ég er búinn að vera að safna fyrir. Ég man eftir sumrinu 2018, þá fór fíkillinn í burtu mestmegnis og þú varst mikið með okkur, Ég fór til útlanda í tvö skipti og þá hringdir þú alla daga í mig. Þú varst að taka stöðuna og vildir fá að vita hvernig mér liði, það var svo gott að heyra röddina þína þegar ég hafði ekki séð þig í dálít- inn tíma. Ég hef engar áhyggjur af þér þarna á himnum, mamma mín, þar sem ég veit að þú ert komin í faðm allra vina og ættingja sem eru þarna uppi með þér. Elska þig meira en allt, elsku mamma, þú ert og verður alltaf stoð mín og stytta í lífinu. Þér verður aldrei nokkurn tímann gleymt. Þinn sonur, Maríus Máni Karlsson. Ég þakka fyrir alla góðar minn- ingarnar og stundirnar sem við áttum saman og allt sem þú gerðir fyrir okkur. Þegar ég hugsa til þín man ég hvað þú varst og munt alltaf verða fyndin, skemmtileg og góðhjörtuð manneskja og það hef- ur verið svo erfitt án þín og mun alltaf verða erfitt. Mér finnst eins og síðustu árin hafi sjúkdómurinn verið upp og niður en síðustu tvö og sérstaklega 2018 hefur hann verið meira til staðar en hann gerði áður. Ég elska hana mest í heiminum og hún var mín uppá- halds manneskja þegar hún var í lagi og ég veit að þú verður alltaf hjá okkur en þetta er svo erfitt að missa þig frá mér, mamma mín, og sérstaklega þegar ég er svona ungur. Til þín, elsku mamma, takk fyr- ir allt. Þinn sonur, Jón Emil Karlsson. Við viljum minnast dóttur okkar. Alla Hulda var yndisleg dóttir, glaðlynd, hjálpsöm og átti stóran vinahóp. Hún á þrjú yndis- leg börn sem syrgja hana sárt. Alla var gleðigjafi alls staðar þar sem hún kom. Þær eru margar góðar minn- ingarnar sem ylja manni um hjartað. Því miður tók fíknin yfir- höndina og var illviðráðanleg síð- ustu árin. Það er sárt að setjast niður og skrifa minningargrein um barnið sitt, um þig elsku Alla okkar. Við hugsum vel um börnin þín, elsku hjartað okkar. Minningin lifir, elsku hjartað okkar. Við elsk- um þig alltaf. Mamma og pabbi. Aðalheiður Hulda Jónsdóttir  Fleiri minningargreinar um Aðalheiði Huldu Jóns- dóttur bíða birtingar og munu birtast í blaðinu næstu daga.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.