Morgunblaðið - 15.02.2019, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 15.02.2019, Blaðsíða 24
24 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 15. FEBRÚAR 2019 ✝ GuðmundurHallgrímsson, bóndi í Grímshús- um í Aðaldal fædd- ist 26. september 1938. Hann lést 7. febrúar 2019 á Heilbrigðisstofnun Norðurlands, Húsa- vík. Guðmundur var sonur hjónanna Hallgríms Óla Guð- mundssonar, bónda í Gríms- húsum, og Kristjönu Árnadótt- ur, húsfreyju þar. Systkini Guðmundar eru: Eysteinn, Sig- urbjörg, Jónína Þórey (lést á fyrsta ári), Jónína Árný og G. Helga. Guðmundur kvæntist eftirlif- andi eiginkonu sinni, Halldóru Jónsdóttur, f. 1948, þann 21. september 1969. Hún er dóttir hjónanna Gerðar Kristjáns- dóttur, húsfreyju í Fremstafelli, og Jóns Kristjánssonar, bónda þar. Guðmundur og Halldóra eignuðust þrjú börn. Þau eru: 1) Anna Gerður Guðmundsdóttir, f. 1969, gift Bjarna Höskuldssyni. Þeirra börn eru Halldóra Kristín, maki Örn Björns- son, dóttir þeirra er Iðunn Embla. Guð- mundur Helgi, maki Tíbrá Marín Bjarmadóttir. Jana Valborg og Þráinn Maríus. 2) Hallgrímur Óli, f. 1972, kvæntur Ingibjörgu Lukku Stef- ánsdóttur. Þeirra börn eru Stef- án Óli, Edda Hrönn og Gyða Dröfn. 3) Kristjana Þórey, f. 1977, gift Húbert Ágústssyni. Þeirra börn eru Ágúst Axel og Katrín Anna. Útför Guðmundar fer fram frá Grenjaðarstaðarkirkju í dag, 15. febrúar 2019, og hefst athöfnin klukkan 15. Ég hitti Guðmund Hallgríms- son svila minn í fyrsta skipti vorið 1988. Hann sat eins og kóngur í ríki sínu sólbrenndur og úfinn innan um afkomendur og gesti í eldhúskróknum í Grímshúsum þar sem hjarta þessa hefðbundna sveitaheimilis sló. Frá þeim degi fór vel á með okkur Guðmundi og við Rósa Sigrún höfum verið tíðir gestir í Grímshúsum og Fellsmúla til þessa dags. Einu sinni vorum við nærri tvær sumarvikur samfleytt á bænum meðan frú Halldóra var í húsmæðraorlofi. Við skiptum verkum þannig að ég sá um eld- húsið en Rósa fór í fjós með Guð- mundi. Þetta voru góðir dagar og aldrei tíðindalausir. Mjólkurbíl- stjórar, sæðingamenn og ná- grannar komu og fóru og hlátra- sköll og hressandi tilsvör bergmáluðu í eldhúskróknum í Grímshúsum. Þegar verkum var lokið í fjósi og eldhúsi gat komið fyrir að menn fengu sér út í kaffið og sögurnar flögruðu yfir bollun- um inn í nóttina. Guðmundur var sveitamaður í húð og hár í bestu merkingu þess orðs, sambland af Bjarti í Sum- arhúsum og Jóni lærða. Hann var vakinn og sofinn yfir búskapnum og sinnti honum af alúð. Hann trúði á landið, moldina og framtíð íslenskrar bændamenningar. Hann hafði lifandi áhuga á sagn- fræði, fornleifafræði og þjóðleg- um fróðleik sem tengja mátti við sögu héraðsins og framvindu þess í átt til nútímans. Guðmundur var afburða víðlesinn á þessu sviði og stálminnugur hafsjór af sögum af mönnum og atvikum úr myrkri fortíðar, ekki síst ef í þeim leynd- ust spaugilegir þræðir. Fyrir vik- ið var alltaf sérlega skemmtilegt að sitja með Guðmundi og hlusta á hann segja frá. Stundum fórum við í lítt skipulagðar ökuferðir um héraðið til að skoða holar hraun- borgir, leita að hlöðnum refagildr- um eða líta eftir heyskap og jarð- vinnu. Síðasta leiðangurinn af því tagi fórum við seint í fyrrasumar og vorum þá sérstaklega á hnot- skóg eftir minnismerkjum. Leik- urinn barst um Aðaldal, Laxárdal og fram í Kinn. Við litum á gleymd forn minnismerki, glæný undarleg minnismerki og yfirgef- ið minnismerki undir húsvegg úti á Sandi sem aldrei hafði komist á leiðarenda. Það var stórkostlegt ferðalag. Nú verður eitthvað færra um sögur úr fortíðinni næst þegar við komum í Aðaldal en minningarn- ar lifa um góðan dreng, traustan vin og skemmtilegan ferðafélaga. Páll Ásgeir Ásgeirsson. Eftir að ég hóf kennslu við Hafralækjarskóla haustið 1976 kynntist ég Guðmundi Hallgríms- syni og stórfjölskyldunni í Gríms- húsum en með okkur myndaðist traust og ævilöng vinátta. Það var alltaf hressandi og gaman að koma í Grímshús, taka spjall yfir morgunskattinum eða á fjóströðinni um málefni líðandi stundar. Guðmundur var góður húmoristi og fylgdist vel með í héraði og á landsvísu, og því alltaf nóg að spjalla. Þessar heimsóknir urðu til þess að Grímshús urðu minn annar griðastaður. Guð- mundur alltaf tilbúinn að gefa góð ráð og hvetja í verkefnum líðandi stundar, hann var hjálplegur við áhugamál mín, hestamennsku og veiði, tók þátt í þeim. Reyndi ég í staðinn að aðstoða hann. Guðmundur var góður bóndi og vakandi yfir framförum fyrir bú sitt, fjölskyldu og framtíðina. Hafði hann líka mikinn áhuga á sögu. Gott dæmi um það var þemaverkefni í Hafralækjarskóla um eyðibýli í Aðaldal. Var hann áhugasamur og miðlaði fróðleik og gögnum. Grímshúsahjón lögðu mikið upp úr að skoða landið bæði til að fræðast og átta sig á staðháttum og upplifa þær lýsingar sem þau höfðu lesið um en þurftu að átta sig betur á. Við Þórey urðum þeirrar ánægju aðnjótandi að fá að fara í slíkar ferðir með Gumma og Dóru. Þessar ferðir urðu fastur liður í okkar samskiptum meðan við bjuggum í Aðaldal og eins eftir að við fluttum suður en þá bættist Suðurlandið við. Í þessum ferðum naut Guðmundur sín vel enda fróður og vel lesinn. Ég held að ég verði þó að minn- ast á tvær ferðir, önnur var til Vestmannaeyja í ágúst 2017, en þá var blankalogn og mikið gam- an að labba um eyjarnar og þá sérstaklega Stórhöfðann í logni og góðu skyggni. Þá var Guð- mundur sögumaður eins og alltaf og fór yfir helstu staðhætti og sögu eyjanna og eyjaskeggja. Á heimleið milli lands og eyja sáum við hval, var sérstakt að upplifa þá stemningu sem myndaðist meðal ferðamanna. Guðmundi fannst hinsvegar merkilegra að upplifa viðbrögð þeirra við þessari sjón, en sýnina á hvalinn. Hin ferðin var í ágúst 2016 til að skoða að- stæður og staðhætti á slóðum Fjalla-Eyvindar í nágrenni Herðubreiðar og í Hvannalindum í Krepputunguhrauni. Var gaman og fróðlegt að heyra hann fara yf- ir sögu Eyvindar og Höllu og reyna að setja sig í spor þeirra þegar hann skoðaði leifar af þeim mannvirkjum sem þau gerðu til að bjargast. Margar góðar ferðir áttum við Guðmundur um Aðaldalinn og ná- grenni þar sem við ræddum allt milli himins og jarðar, tókum hús á mönnum og hann reyndi að fræða mig um staðhætti og sögu. Þessar ferðir voru okkur báðum að ég tel mikils virði og gefandi. Hafðu þökk fyrir allar þær gæðastundir sem við áttum, minningin um þig mun lengi lifa enda ljúf og björt og það var okk- ur mikill heiður að fá að kynnast þér og fjölskyldu þinni. Þó að kirkjugarðar heimsins séu fullir af ómissandi fólki, eins og segir í góðum texta, þá er það nú svo að gaman hefði verið að eiga þær fleiri saman, en þetta er leiðin okkar allra og verður ekki umflú- in. Dóru og öllum aðstandendum vottum við samúð. Haraldur Þórarinsson og fjölskylda. Það var um miðjan sjöunda áratuginn að ungir menn voru eitt sinn sem oftar á rápi um sveitir Suður-Þingeyjarsýslu. Stóð þá yf- ir héraðsmót HSÞ á Laugum. Veitti ég þar athygli einum kepp- anda. Sá var vel íþróttum búinn, bjartur yfirlitum og vörpulegur. Fundum við félagar þá til smæðar um stund. Ég vissi hver Guð- mundur í Grímshúsum var, en var honum lítt kunnugur. Svo liðu ár- in og leiðir okkar lágu saman á vængjum söngsins í karlakórnum Hreimi, þá löngu fulltíða menn. Hann var söngmaður góður og sómdi sér vel þar sem hann fór. Félagshyggju- og framsóknar- maður frá því fyrsta án þess að klifa á því í tíma og ótíma, því slíkt leiddist honum. Við gerðum okkur dagamun þegar næði gafst og nutum karlakórasöngs hreifir af víni og hrifnæmir nokkuð. Höll- uðust þá efnistök í austurátt. Slík var gæfa okkar. Ég lagði jafnan við hlustir þeg- Guðmundur Hallgrímsson ✝ Gróa JónaBjarnadóttir fæddist á Suður- eyri við Tàlkna- fjörð 12. nóvember 1928. Hún lést á hjúkrunarheim- ilinu Ísafold í Garðabæ 27. jan- úar 2019. Foreldrar henn- ar voru Jóna Þór- dís Jónsdóttir, f. 1900, d. 1973, og Bjarni Eirík- ur Kristjánsson, f. 1900, d. 1945. Systkini Gróu voru Ásdís, nefndinni, maður hennar er Jakob Faaborg Hattesen arki- tekt. Þeirra synir eru Ágúst Ei- ríkur og Ísak Thor. Synir Bjarna og Þórdísar eru Jónas Þór íþróttakennari og Harrý Þór markaðsfræðingur, sam- býliskona hans er Madeleine Hagen Holdal leikskólakenn- ari. 2) Karen Haraldsdóttir, f. 15.11. 1957, leikskólastarfs- maður, hennar maður er Mark- ús Már Árnason, f. 5.10. 1957, húsasmíðameistari. Dóttir þeirra er Katharína Markús- dóttir, blómaskreytir og tann- fræðingur, hennar maður er Steinn Gunnarsson kennari. Dóttir þeirra er Birta Karen háskólanemi, sambýlismaður hennar er Morten Krogh há- skólanemi. Synir Katharínu og Steins eru Markús Breki og Jó- hann Breki. Synir Karenar og Markúsar eru Árni Már bygg- ingarfræðingur og Ívar Már byggingarfræðingur. Gróa ólst upp á bænum Suð- ureyri við Tálknafjörð. Skóla- ganga Gróu hófst í Tálknafirði, hún stundaði einnig nám í Stykkishólmi og í Ingimars- skóla í Reykjavík. Hún var eitt ár í Húsmæðraskólanum á Ísa- firði. Gróa starfaði lengst af við skrifstofustörf hjá Landssíman- um, Eimskipafélagi Íslands, Raunvísindastofnun Háskólans og Rannsóknastofnun bygging- ariðnarins og lauk starfsferli sínum hjá heilbrigðisráðu- neytinu. Útför Gróu fer fram frá Garðakirkju í dag, 15. febrúar 2019, klukkan 13. f. 1926, d. 2013, Þórir, f. 1930, d. 2003, og Sigurður, f.1932, d.1983. Gróa var gift Harrý Wächter, þau skildu. Börn Gróu og Harrý: 1) Bjarni Eiríkur Haraldsson, f. 12.10. 1956, húsa- smiður, hans kona er Þórdís Jónas- dóttir. Dóttir þeirra er Erla Huld Faaborg Hattesen, ráð- gjafi í Norrænu ráðherra- Elsku mamma. Þú gafst mér líf og nærðir mig með ást. Þú sýndir mér umhyggju og hlýju. Þú kenndir mér að elska og dásama lífið. Þú veittir mér styrk til að trúa á sjálfa mig. Þú sagðir mér frá draumum þínum um betri heim. Þú varst besta mamma í heimi. Takk fyrir allt, elsku mamma mín. Þín Karen. Elsku amma mín, núna ertu komin til himna þar sem þú ert með öllum hinum englunum ef- laust að segja brandara og sögur. Mikið hafði ég gaman að heyra þig tala um Suðureyri og þína upplifun af Vestfjörðum. Það var þinn stað- ur og myndirnar af þér og mömmu þegar þið fóruð saman og heim- sóttuð þínar æskuslóðir munu varðveitast að eilífu. Þú varst alltaf tilbúin að aðstoða alla og þegar maður kom í heim- sókn til þín fór maður ekki í burtu nema vera saddur með bros á vör. Takk fyrir allar góðu stundirn- ar sem við áttum saman, elsku amma mín. Takk fyrir tímann sem við áttum, tímann sem veitti birtu og frið. Ljós þitt mun loga og leiðbeina áfram, lýsa upp leið okkar fram á við. Gefi þér guð og góðar vættir góða tíð eftir kveðjuna hér. Þinn orðstír mun lifa um ókomna daga. Indælar minningar hjarta okkar ber. Ívar Már Markússon. Elsku Gróa, takk fyrir góðar stundir. Hver minning dýrmæt perla að liðnum lífsins degi, hin ljúfu og góðu kynni af alhug þakka hér. Þinn kærleikur í verki var gjöf, sem gleymist eigi, og gæfa var það öllum, er fengu að kynnast þér. (Ingibjörg Sig.) Þín minning lifir. Þinn tengdasonur Markús Már Árnason. Amma Gróa var eftirminnileg kona. Hún var glæsileg kona með ljúfa og virðulega framkomu. Það sem maður minnist helst í fari hennar er húmorinn og þessi ótrú- Gróa Jóna Bjarnadóttir Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og útför ástkærs eiginmanns míns, föður okkar, tengdaföður, afa og langafa, GUNNLAUGS BÚA SVEINSSONAR, fyrrverandi slökkviliðsmanns. Signa H. Hallsdóttir Ólafur Búi Gunnlaugsson Agnes Jónsdóttir Halla S. Gunnlaugsdóttir Haukur Harðarson Helga H. Gunnlaugsdóttir Stefán Birgisson afa- og langafabörn Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, FRIÐNÝ GUÐRÚN PÉTURSDÓTTIR sagnfræðingur frá Oddsstöðum á Melrakkasléttu, lést á hjúkrunarheimilinu Eir fimmtudaginn 7. febrúar. Útförin fer fram frá Áskirkju þriðjudaginn 19. febrúar klukkan 13. Pétur Guðjónsson Snævar Guðjónsson Árni Pétur Guðjónsson Kjartan Guðjónsson Herdís M. Guðjónsdóttir Trausti Jarl Valdimarsson og fjölskyldur Elsku mamma okkar, tengdamamma, amma og langamma, UNNUR MARTEINSDÓTTIR frá Sjónarhóli, Neskaupstað, sem lést miðvikudaginn 6. febrúar, verður jarðsungin frá Norðfjarðarkirkju laugardaginn 16. febrúar klukkan 13. Guðbjörg Haraldsdóttir Laufey Sveinsdóttir Bergvin Haraldsson Helga Sveinsdóttir barnabörn og barnabarnabörn Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og útför ástkærrar móður minnar, STEINUNNAR SIGURÐARDÓTTUR, fv. flugfreyju. Gunnar Þór Sigþórsson Ástkær eiginmaður, faðir, stjúpfaðir, tengdafaðir og afi, ÁSGEIR ÖRN GESTSSON, Hjallavegi 27, Reykjavík, lést á líknardeild Landspítalans, Kópavogi, föstudaginn 8. febrúar. Hildur Björg Hannesdóttir Saga Ásgeirsdóttir Frosti Hallfríðarson Nicole Flanagen Björg Alfa Björnsdóttir Jón Grétar Gissurarson Juniper Ósk Frostadóttir Ástkær móðir mín, tengdamóðir, amma, langamma og langalangamma, STEINUNN HELGA SIGURÐARDÓTTIR, lést á Dalbæ, Dalvík, 11. febrúar. Hún verður jarðsungin frá Dalvíkurkirkju föstudaginn 22. febrúar klukkan 13.30. Þeim sem vilja minnast hennar er bent á minningarsjóð Dalbæjar. Elín Rósa Ragnarsdóttir Guðrún Siglaugsdóttir og fjölskyldur

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.