Morgunblaðið - 15.02.2019, Blaðsíða 36

Morgunblaðið - 15.02.2019, Blaðsíða 36
VORIÐ KALLARÁÞIG! PARÍS FRÁ 6.999kr.* Ferðatímabil: febrúar - maí 2019 DUBLIN FRÁ 6.999kr.* Ferðatímabil: febrúar - maí 2019 KAUPMANNAHÖFN FRÁ 4.999kr.* Ferðatímabil: febrúar - maí 2019 AMSTERDAM FRÁ 6.999kr.* Ferðatímabil: febrúar - maí 2019 LONDON FRÁ 4.999kr.* Ferðatímabil: apríl - maí 2019 Vorið er rétt handan við hornið ogWOW air býður betra verð til flottustu borganna. Hvernig hljómar Goethe og gott vín í Frankfurt, skrall og skemmtun í Dublin eða túlípanar og tréklossar í Amsterdam? Vel, ekki satt! Svomá ekki gleyma því að lífið er ljúft í London, elsku París er ávallt á lamode,oui, oui, og það er alltaf hægt að hafa þaðWØW í Köben. *Verðmiðast viðWOWBasicaðra leiðmeðsköttumefgreitt ermeðNetgíróogflugbókað framog til baka. Sýning á verkum myndlistarmanns- ins Tolla verður opnuð á hinum þekkta sýningarstað Bredgade Kunsthandel í Kaupmannahöfn á morgun, laugardag. Sýninguna kall- ar Tolli Storytelling horizon og á henni eru um þrjátíu olíumálverk í ýmsum stærðum. Í tilkynningu frá sýningarstaðnum segir að Tolli sé einn mikilvægasti túlkandi ís- lenskrar náttúru nú um stundir. Stór sýning Tolla opn- uð í Kaupmannahöfn FÖSTUDAGUR 15. FEBRÚAR 46. DAGUR ÁRSINS 2019 Sími: 569 1100 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is Í lausasölu 641 kr. Áskrift 6.960 kr. Helgaráskrift 4.346 kr. PDF á mbl.is 6.173 kr. iPad-áskrift 6.173 kr. Njarðvík og Stjarnan, tvö efstu liðin í Dominos-deild karla í körfu- knattleik, mætast í bikarúrslita- leiknum í Laugardalshöllinni á morgun. Njarðvíkingar lögðu Ís- landsmeistara KR að velli í und- anúrslitunum í gærkvöld og á undan báru Stjörnumenn sigur- orð af ÍR-ingum eftir harðan slag lengst af. »2-3 Njarðvík og Stjarnan mætast í úrslitaleik ÍÞRÓTTIR FÓLK Í FRÉTTUM Rapparinn Floni fagnar útkomu plötu sinnar Floni 2 með tvennum tónleikum í Austurbæ í dag, föstu- dag. Fyrri tónleikarnir, fyrir ung- linga á aldrinum 14 til 17 ára, hefj- ast kl. 18.30 en þeir síðari eru fyrir 18 ára og eldri og hefjast kl. 22. Floni kemur fram „ásamt stór- skotaliði íslensku tónlistarsen- unnar“, eins og segir í tilkynn- ingu. Platan Floni 2 kom á Spotify- streymisveit- una fyrir tveimur vik- um og hefur „nú þegar náð yfir 800.000 spil- unum.“ Floni með tvenna tónleika í Austurbæ Það eru um 430 dagar síðan þessi yf- irlýsing var undirrituð. Þegar þess- ari vinnu verður lokið mun íþrótta- aðstaða KR-inga gerbreytast og félagsaðstaðan batna til mikilla muna. Það er ljóst að þessar breyt- ingar munu styrkja rekstur og starf- semi KR til lengri tíma og þar með talið allra Vesturbæinga.“ Gylfi segir að KR finni svo sann- arlega fyrir samkeppni við önnur fé- lög í Reykjavík, þegar kemur að að- stöðunni, og mikil uppbygging hafi verið í nágrannasveitarfélögunum. Mikilvægt sé að skoða í heild rekstr- arform íþróttafélaganna í Reykja- vík. „Við sjáum að Reykjavíkurborg er að setja mikla fjármuni í upp- byggingu hjá Fram í Úlfarsárdal og ÍR í Breiðholti og er það vel. Fjölnir býr við það fyrirkomulag að vera með starfsemi þar sem annars vegar mannvirki [Dalhús] eru í eigu Reykjavíkurborgar og hins vegar í eigu fasteignafélags [Egilshöll]. Svo er það íþróttafélag eins og KR, sem á sín mannvirki og sitt landsvæði. Þar virðist stuðningur Reykjavíkur- borgar varðandi uppbyggingu íþróttamannvirkja ganga mjög seint og illa. Styrkja ætti sérstaklega félög sem eru fjölgreinafélög. Það er mun- ur að vera með þrjár deildir eða 14.“ Nokkrir piltar komu saman í verslun Guðmundar Olsen í Aðal- stræti í Reykjavík fyrir um 120 ár- um og stofnuðu félag um kaup á knetti. Hver piltur lagði fram 25 aura, um 150 kr. að núvirði, sem nægði ekki og var knöttur keyptur með afborgunum. „Segja má að úr þessu „25 aura félagi“ hafi verið lagður grunnur að öflugasta og sig- ursælasta íþróttafélagi landsins,“ segir Gylfi. Steinþór Guðbjartsson steinthor@mbl.is Knattspyrnufélag Reykjavíkur var stofnað 1899 og verður 120 ára á morgun, laugardaginn 16. febrúar. „Ekki mörg félög hérlendis eiga sögu sem nær til þriggja alda,“ segir Gylfi Dalmann Aðalsteinsson, for- maður KR, en áfanganum verður fagnað með ýmsum hætti á árinu og byrjað á köku að loknu getrauna- kaffinu í fyrramálið. Gylfi segir að þakka megi öflugu starfi sjálfboðaliða í öllum deildum gróskuna, en um sé að ræða um 20 ársverk á ári. „Góður vitnisburður slíks sjálfboðaliðastarfs er nýaf- staðið þorrablót Vesturbæjar undir forystu KR-kvenna, en allur ágóði rennur til barna- og unglingastarfs KR,“ segir hann. Á þriðja þúsund iðkendur á öllum aldri eru í 14 íþrótta- og félags- deildum KR og fer fjölgandi. „Nýj- asti hópurinn stundar rafleiki,“ segir Gylfi. Hann segir miklar kröfur gerðar til aðstöðu og æfingatíma og brýnt sé að bregðast við. „Kröfur eru stundum gerðar til íþrótta- félaga, sem að langmestum hluta eru rekin af sjálfboðaliðum og sjálfsafla- fé, eins og um leik- og grunnskóla sé að ræða sem eru á forræði sveitarfé- laga. Ekki eru mörg fjölgreinafélög eins og KR í Reykjavík og það segir sig sjálft að þegar félag er með starf- semi í 14 íþrótta- og félagsdeildum er erfitt að verða við óskum allra um æfingatíma og aðstöðu.“ Beðið eftir borginni Undanfarin ár hefur KR átt í sam- starfi við Reykjavíkurborg um upp- byggingu í Frostaskjóli. „Við KR- ingar bindum miklar vonir við sam- starfið en að okkar mati gengur vinnan allt of hægt,“ segir Gylfi. Hann og borgarstjórinn í Reykjavík undirrituðu viljayfirlýsingu 15. des- ember 2017 um að hefja formlegt samstarf milli umhverfis- og skipu- lagssviðs borgarinnar varðandi deili- skipulagsvinnu á KR-svæðinu. „KR er búið með alla sína vinnu og er tilbúið að fara í deiliskipulagskynn- ingu en við bíðum enn eftir borginni. Grunnurinn lagður með 25 aurum á mann  Knattspyrnufélag Reykjavíkur fagnar 120 ára afmæli Morgunblaðið/Hari Dýrgripir Gylfi Dalmann Aðalsteinsson með forna gripi í bikarsafni KR.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.