Morgunblaðið - 14.02.2019, Qupperneq 2
2 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 14. FEBRÚAR 2019FRÉTTIR
Mesta lækkun Mesta hækkun
VIKAN Á MÖRKUÐUM
AÐALMARKAÐUR ÁLVERÐ ($/tonn)
ICEAIR
-8,30%
7,95
MARL
+1,37%
445
S&P 500 NASDAQ
+2,01%
7.444,643
+1,89%
2.759,15
+1,81%
7.199,27
FTSE 100 NIKKEI 225
14.8.‘18 14.8.‘1813.2.‘19
1.800
90
2.070,15
1.864,0
Unnið í samstarfi við IFS.Hreyfingar frá upphafi viku til kl. 16 í gær.
63,47+1,89%
21.144,48
72,46
50
2.400
13.2.‘19
BRENT OLÍUVERÐ ($/tunnu)
Ísland og íslensk fyrirtæki geta orðið fyr-
irmynd fyrir umheiminn þegar kemur að til-
gangsmiðuðum rekstri fyrirtækja (e. purpose
driven) og sjálfbærni. Þetta er skoðun þeirra
Paul Polman, fyrrverandi forstjóra risafyr-
irtækisins Unilever og núverandi formanns
Alþjóðaviðskiptaráðsins, ICC, og Valerie G.
Keller, forstjóra ráðgjafarfyrirtækisins Ernst
& Young – Beacon Institute, en þau eru að-
alfyrirlesarar á viðskiptaþingi Viðskiptaráðs
Íslands sem fram fer í dag á Hilton Nordica.
Keller segir í samtali við ViðskiptaMogg-
ann að það að vera með tilgangsmiðaðan
rekstur sé í dag ekki bara eitthvað sem þyki
gott og sniðugt, heldur nauðsyn. „Fyrirtæki
hafa alltaf haft tilgang auðvitað, en þetta
snýst um að fyrirtækið horfi inn á við og
velti fyrir sér hvað það er að gera til að bæta
samfélagið. Smærri fyrirtæki velta þessu
gjarnan fyrir sér þegar þau eru að fara af
stað, en þegar fyrirtæki eru orðin stór og al-
þjóðleg geta þau misst sjónar á þessu. Oft
koma upp dæmi um fyrirtæki sem eru
kannski farin að valda meiri skaða en þau
bæta umhverfið sem þau starfa í, og þá þarf
að ýta á þau að endurskoða stefnu sína. Það
að láta sig samfélagið varða, og vera með til-
gang sem þjónar mörgum ólíkum hags-
munaaðilum, skilar sér í betri árangri til
lengri tíma. Fyrirtæki vinna nýja markaði,
efla nýsköpun, og starfsánægja starfsmanna
vex,“ segir Keller og vísar til rannsókna sem
fyrirtæki hennar hefur unnið með bæði Ox-
ford-háskóla og Harvard-háskóla. „Við sjáum
þetta vera að gerast í fyrirtækjum um allan
heim. Auðvitað skipta peningar alltaf máli í
rekstrinum, en tilgangurinn þarf að vera
settur kirfilega í stefnuna.“
Keller segir að til dæmis skipti tilgangur
aldamótakynslóðina ( e. Millenials ) miklu
máli. Hún vilji vinna hjá fyrirtækjum sem
huga að sjálfbærni og umhverfisvernd.
Polman bendir á að þó sé það ekki bara
aldamótakynslóðin sem hugsi svona, heldur
aðrar kynslóðir einnig. „Ímyndaðu þér til
dæmis fyrirtæki á Íslandi, að ef það hugsar
bara um að græða peninga, þá er erfitt fyrir
samfélagið að taka það í sátt. Af hverju ætti
samfélagið að leyfa þér að vera til ef þú ert
ekki að bæta það?“
Virði hluthafa jókst um 300%
Polman segir að í starfi sínu hjá Unilever
hafi hann ætíð haft sjálfbærni og tilgang að
leiðarljósi, en þannig auki maður virði hlut-
hafa að lokum. „Á síðustu 10 árum hefur
virði hluthafa félagsins aukist um 300%.“
Polman segir að tvær milljónir manna
sæki um vinnu hjá Unilever á ári hverju og
75% af þeim sem ráðnir eru komi til félags-
ins vegna hinnar tilgangsmiðuðu við-
skiptaáætlunar.
Hann segir að öll 400 vörumerki Unilever
fyrirfinnist til að gera veröldina betri, og á
móti gangi salan betur. „Við notum til dæmis
Dove-sápuna til að berjast fyrir sjálfsstyrk-
ingu kvenna. Við notum Ben & Jerry-ísinn til
að berjast fyrir loftslagsmálum og réttindum
LGBT-samfélagsins.“
Polman eru umhverfismálin mjög kær og
segir hann að ef fram vindur sem horfir
verði árið 2050 meira plast í sjónum en fisk-
ar, og því þurfi að grípa til aðgerða strax. Ís-
lendingar þurfi líka að láta sig þetta varða,
enda snúist þetta um vöxt og viðhald eins
helsta úflutningsatvinnuvegar þjóðarinnar.
Þá skipti máli að huga að því að stöðva hlýn-
un jarðar og þar sé lykilatvinnuvegur þjóð-
arinnar undir, ferðamennskan. Ekki megi
eyðileggja framtíð komandi kynslóða. „1,5
milljarðar manna nota 75% af öllum auðlind-
um heimsins. Ímyndaðu þér þegar hinir sex
milljarðarnir eru komnir á sama stað, með
sömu lífskjör. Það verður því að huga að
sjálfbærni og endurnýtingu auðlinda.“
Keller bætir við að Ísland geti þarna tekið
forystu. Landið sé þekkt fyrir útflutning sinn
á bæði vörum og hugmyndum. „Hér eru
tengslin við náttúruna náin og þið eruð þekkt
fyrir kynjajafnrétti. Jafnvel lítil íslensk fyr-
irtæki geta orðið leiðarljós fyrir umheiminn
þegar kemur að þessum málum.“
Íslensk fyrirtæki geta
orðið leiðarljós fyrir heiminn
Þóroddur Bjarnason
tobj@mbl.is
Tilgangur með rekstri fyrirtækja er
þeim Paul Polman og Valerie G.
Keller hugleikinn, en þau halda er-
indi um málið á Viðskiptaþingi Við-
skiptaráðs Íslands í dag.
Valerie Keller er stofnandi Beacon-stofnunarinnar innan EY og meðstofnandi Imagine, sem hjálpar
fyrirtækjum í sjálfbærnimálum. Paul Polman er formaður ICC og fyrrverandi forstjóri Unilever.
FLUGREKSTUR
Flugfélagið Atlanta mun á næstu
dögum ganga frá kaupum á Boeing
747-400 fraktflugvél ef allt fer sem
horfir, en lokaskoðun vélarinnar fer
nú fram í Taívan. Vélin er framleidd
árið 1995 og að sögn forstjóra fyrir-
tækisins, Baldvins M. Hermanns-
sonar, nemur kaupverð á sambæri-
legum flugvélum um 20 milljónum
bandaríkjadala, eða um 2,4 millj-
örðum króna. Sem stendur er félagið
með sjö Boeing 747-400 farþegavélar
í rekstri og fimm 747-400 fraktvélar
sem allar eru á blautleigusamningum
(með áhöfn). Verður nýja þotan því sú
sjötta en því til viðbótar er Atlanta
með eina Airbus 340 í flotanum sem
rekin er fyrir hönd Air Madagascar.
Félagið er um þessar mundir að
þreifa fyrir sér með frekari þróun á
flotanum þar sem einna helst Airbus
330 og Boeing 777 koma til greina.
Rekstrartekjur Atlanta fyrir árið
2017 námu 224 milljónum bandaríkja-
dala og var hagnaðurinn 9,8 milljónir
dala. Var það besta rekstrarár í sögu
félagsins sem hefur skilað hagnaði
samfellt frá árinu 2009. Rekstrartekj-
urnar árið 2018 enda nærri 230 millj-
ónum dala en hagnaðurinn verður
töluvert lægri í ljósi hækkandi kostn-
aðar. „Okkar helstu áskoranir eru
ekkert ólíkar mörgum flugfélögum,“
segir Baldvin og nefnir eldsneytis-
verð sem dæmi. „Við erum að leigja
vélar inn til annarra flugfélaga. Ef af-
koma þeirra er óviðunandi eru fyrstu
vélarnar sem teknar eru út til þess að
hagræða í rekstri leiguvélarnar því
þú reynir að auka nýtinguna á þínum
eigin umfram allt. En þetta getur
einnig haft þær afleiðingar að önnur
flugfélög sjái að þau eru fljúga á
óhagkvæman máta og þ.a.l. leita til
aðila eins og okkar sem hafa ákveðna
stærðarhagkvæmnni, þekkingu og
getu, til þess að reka flotann á hag-
kvæmari máta.“
Bæta við Boeing 747
fraktflugvél í flotann
Atlanta hefur skilað samfelldum
hagnaði frá 2009. 2017 var metár.
Síðumúli 13 - 108 Reykjavík - S. 577 5500 - atvinnueign.is
Um er að ræða tvö
iðnaðarrými 214m2 og
145m2 sem tengjast og
hægt er leigja saman
eða í sitthvoru lagi.
Nánari lýsing:
214 fm iðnaðar/atvinnuhúsnæðis með gönguhurð og innkeysluhurð 3,8 m á hæð og þar af eru 55 fm
steypt milliloft með steyptum stiga sem hægt er að nýta sem skrifstofurými. Hins vegar er 145 fm,
iðnaðar-/atvinnuhúsnæði með innkeysluhurð 3,6 m á hæð. Möguleiki er að opna ámilli hæða og leigja
þá samtals 359 fm. Húsnæðið er staðsett rétt hjá versluninni Bauhaus. Húsnæðið og nær umhverfi er allt
hið snyrtilegasta. Laust strax.
Allar nánari upplýsingar veitir:
HalldórMár Sverrisson lögg. fasteigna,- og skipasali og leigumiðlari,
í síma 898-5599 eða í tölvupósti á halldor@atvinnueign.is
Fasteignamiðlun
TIL LEIGU LAMBHAGAVEGUR 13
Halldór Már Sverrisson
Viðskiptafræðingur
Löggiltur fasteignasali
Löggiltur leigumiðlari
898 5599
halldor@atvinnueign.is
Til leigu allt að 359 fm
nýtt atvinnuhúsnæði
við Lambhagaveg 13