Morgunblaðið - 14.02.2019, Qupperneq 6
nammi
Öskudags
2019
Sjáðu úrvalið á goa.is
Áttu von á
smáfólki í fyrirtækið
á öskudaginn?
6 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 14. FEBRÚAR 2019
Bátar Trefja eru allt frá 9,5 til 15
metrar að lengd og því tekur smíði
hvers báts mislangan tíma, eftir
stærðinni.
„Einn af þessum stærstu er
kannski á við eins og sex af þessum
minnstu,“ segir
Högni í samtali
við 200 mílur og
bætir við að á
undanförnum
misserum hafi
Trefjar gengið frá
smíðum á um það
bil einum báti í
hverjum mánuði.
Engin smíði er
í gangi fyrir innanlandsmarkað en
þeim mun fleiri verkefni eru sótt út
fyrir landsteinana að sögn Högna,
þar sem Trefjar hafa komið ár sinni
vel fyrir borð á undanförnum árum.
Gott orðspor skili verkefnum
„Staðan er góð víða erlendis, þar
sem við höfum reynt að markaðs-
setja okkur í gegnum árin. Við erum
aðallega að selja báta til Bretlands-
eyja, Noregs og Frakklands. Svo er
einstaka bátur sem fer til Græn-
lands. Við höfum enda lagt áherslu á
löndin sem eru okkur næst.“
Spurður hvernig litlar útgerðir í
þessum löndum komist í kynni við
bátasmíðastöð í Hafnarfirði segir
hann að langan tíma hafi tekið að
byggja upp viðskiptasambönd og
gott orðspor utan Íslands, sem sé að
skila árangri núna.
„Við höfum kynnt okkur og tekið
þátt í vörusýningum, og eftir atvik-
um sótt beint á útgerðirnar líka þar
sem við höfum komist í tæri við þær.
En ekki síður held ég að orðsporið
okkar sé mjög gott – sem sést til
dæmis þegar við seljum bát á eitt
svæði og fáum í kjölfarið fyrirspurnir
þaðan um smíði á fleiri bátum. Kaup-
endur bátanna okkar hafa þannig ýtt
undir að aðrir hafi samband við okk-
ur og kaupi af okkur báta.“
Hann tekur fram að fyrirtækið
hafi lagt mikið upp úr að þjónusta
vel þá sem kaupi bátana. „Ég hugsa
að það sé lykilþáttur í þessu öllu
saman, þó að auglýsingar í blöðum
og fagtímaritum skili auðvitað sínu
sömuleiðis.“
Um sextíu starfsmenn starfa í dag
hjá Trefjum, á tveimur stöðum í
Hafnarfirði, en fyrirhugað er að sam-
eina starfsemina á einum stað í bæn-
um.
Söluna segir hann mismunandi
eftir árferði í hverju landi fyrir sig.
„Veiðin sveiflast til og frá og það er
misjafnt hversu mikið svigrúm út-
gerðir hafa til kaupa á nýjum bátum,
eins og gengur. Þetta er því enda-
laus slagur og við siglum sjaldan
lygnan sjó, en þetta er alltaf jafn
spennandi.“
Árið skipulagt fram í tímann
Sum þeirra smíðaverkefna sem nú
eru í vinnslu munu ekki taka enda
fyrr en árið 2020 og því má segja að
verkefnastaðan sé góð. „Við erum
með mjög góð verkefni fram undan
og erum í raun með næsta árið
skipulagt fram í tímann,“ segir
Högni. „En við tökum alveg við pönt-
unum enn þá.“
Tíu bátar á leiðinni frá Trefjum
Skúli Halldórsson
sh@mbl.is
Skipasmíðastöðin Trefjar í
Hafnarfirði hefur afhent
kaupendum tvo nýja báta
frá áramótum. Fór annar til
Noregs og hinn til Skot-
lands. Alls eru tíu bátar í
smíðum hjá skipasmíða-
stöðinni núna, segir Högni
Bergþórsson, tækni- og
markaðsstjóri Trefja.
Nýi báturinn sem seldur var til Skotlands hefur hlotið nafnið Soph-Ash-Jay-3. Báturinn hefur þegar hafið veiðar.
Högni
Bergþórsson
Miðhrauni 13 - Garðabæ - Sími 555-6444 - www.maras.is
Við óskum áhöfn og útgerð Keilis til
hamingju með nýtt og glæsilegt skip
Í keili er eftirfarandi búnaður frá Marás:
2x YANMAR 6AYM-WST aðalvélar
2x REINTJES WAF 264 niðurfærslugírar
Trefjar afhentu fyrr á árinu nýjan
bát til Vogstranda í Mæri og
Raumsdal í Noregi. Kaupendur
bátsins voru feðgarnir Johan og
Tobias Solgård, en Tobias er skip-
stjóri á bátnum.
Báturinn hefur hlotið nafnið Ba-
jas og mælist ellefu brúttótonn, af
gerðinni Cleopatra 33. Báturinn
mun vera útbúinn fullkomnum
siglingatækjum af gerðinni JRC
og Furuno, og einnig með vökva-
drifna hliðarskrúfu sem tengd er
sjálfstýringu bátsins.
Báturinn er sérstaklega útbúinn
til gildruveiða á humri og er spil-
búnaður og gildruborð útfært af
Trefjum. Í lestinni er úðunarkerfi
til að halda humri lifandi, sem
sagt er auka verðmæti aflans til
muna.
Kaupa fjórða bátinn
Trefjar afhentu einnig nýverið
nýjan bát til útgerðar í Burnmouth
á austurströnd Skotlands. Að út-
gerðinni stendur John Affleck
sem jafnframt er skipstjóri á bátn-
um.
Hefur báturinn hlotið nafnið
Soph-Ash-Jay-3 og mælist fimm-
tán brúttótonn, af gerðinni Cleo-
patra 40. Báturinn sá fjórði sem
Trefjar afhenda útgerðinni en
hann mun leysa af hólmi eldri
Cleopatra 38 bát frá 2008.
Báturinn er útbúinn til gildru-
veiða á humri og töskukrabba og
er reiknað með að hann muni
draga þúsund gildrur á dag.
Bátar til
Mæris og
Burnmouth