Morgunblaðið - 14.02.2019, Page 8

Morgunblaðið - 14.02.2019, Page 8
styrkist. Ferðamaðurinn er búinn að ákveða hverju hann er tilbúinn til að eyða í ferðalagið og þegar stærri hluti útgjaldanna en áður fer í flug og gistingu út af genginu þá er minna um kaup á afþreyingu. Ferðamaður sem fór áður bæði í jöklagöngu og vélsleðaferð velur nú á milli,“ segir Hrönn. Þá nefnir hún launaskrið í ferðaþjónustunni sem hækkaði rekstrarkostnað ferðaþjónustufyrirtækja umtalsvert á sama tíma. „Við viljum auðvitað eðlileg laun í ferða- þjónustunni en launaliðurinn er orðinn mjög hár og þetta er mannfrek atvinnugrein,“ segir Hrönn og nefnir þessu til viðbótar háar þókn- anir til sölu- og bókunarfyrirtækja. „Milliliðir eru mjög margir að taka þóknun langt fram úr hófi. Þegar þú ert kominn upp í 30 til 35 pró- senta þóknun og launakostnaður er 50 prósent þá er afkoman orðin afar lág og stendur hvorki undir fjármagnskostnaði, afskriftum né eðli- legri endurnýjun,“ segir Hrönn. Loks nefnir Hrönn breytta kauphegðun en ferðamaðurinn í dag er sjálfstæðari, sækist eftir upplifun og vill ekki láta teyma sig áfram í stórum hópum. Langtímamarkmið Eldeyjar er að þjappa fé- lögum í sinni eigu saman og skapa þannig eitt stórt félag í afþreyingartengdri ferðaþjónustu á Íslandi. „Það er þegar komin heilmikil sam- vinna á milli félaganna sem Eldey er hluthafi í. Við erum nýbúin að sameina Íslenska fjalla- leiðsögumenn og Arcanum. Saga Travel er bú- ið að flytja í sama húsnæði og Íslenskir fjalla- leiðsögumenn og það er orðin heilmikil samvinna þarna á milli,“ segir Hrönn. „Búðarborðið er orðið nokkuð breitt. Við er- um með jöklaferðir, vélsleðaferðir, skipulagðar dagsferðir, göngu- og ævintýraferðir, hvala- skoðunarferðir og köfunarferðir,“ segir Hrönn. „Til hliðar við þetta erum við hluthafar í Ís- lenskum heilsulindum og Logakór sem er ný- stofnað viðskipta- og þróunarfélag sem heldur utan um eignarhlut og viðskiptaþróun á landi og nýtingu fasteigna sem við keyptum í Mýr- dalnum bæði við Sólheimajökul og á Ytri- Sólheimum í tengslum við kaup á Arcanum. Þar erum við að skoða alls konar tækifæri og fjárfestingar.“ Hraður vöxtur ruglaði kompásinn „Við erum alls ekki ánægð með afkomu félaganna, sérstaklega árin 2017 og 2018 sem voru slök rekstrarár. En í öllum félögunum höfum við farið í miklar aðgerðir. Það er kost- urinn við að fá fjárfesti eins og Eldey inn í félögin, þar er tekið öðruvísi á málum,“ segir Hrönn. Hún segir að því miður hafi þurft að grípa til uppsagna á síðasta ári og sú rekstrar- hagræðing sé enn að koma fram. „Niður- skurðurinn skilar sér ekki að fullu fyrr en á öðrum fjórðungi þessa árs,“ segir hún. Hrönn segir flest félögin þó hafa verið rekin með jákvæðri EBITDA þessi ár. „Við urðum fyrir stóru höggi með Fjallaleiðsögumenn og þar var gripið til stórtækra aðgerða en það er nú búið að sameina þá við Arcanum. Þar sjáum við nú stórt og sterkt fyrirtæki eftir að hafa tekið stóran snúning í öllu mannahaldi og rekstri,“ segir hún. Hrönn segir að eftir hraðan vöxt ferðaþjón- ustunnar hafi mörg fyrirtækin farið í lítt út- hugsaðar fjárfestingar og í mörgum tilfellum misst sjónar á kjarnastarfsemi sinni. „Flestöll ferðaþjónustufyrirtæki hafa undanfarið ár ver- ið að draga saman seglin og kjarna sig meira. Það var búið að ráða allt of mikið af starfsfólki og allir miðuðu við árið þar sem vöxturinn var Stefnt er að tveggja til þriggja milljarða króna hlutafjáraukningu í fjárfestingarfélaginu Eldey TLH hf. á næstunni. Eldey hefur undanfarin ár fjárfest í afþreyingartengdum ferðaþjón- ustufyrirtækjum og nema fjárfestingar félags- ins tæplega þremur milljörðum króna frá árinu 2015. Eldey er í stýringu hjá Íslandssjóðum sem er dótturfélag Íslandsbanka og segir Hrönn Greipsdóttir, framkvæmdastjóri Eldeyjar mörg tækifæri fram undan fyrir félagið, bæði með áframhaldandi uppbyggingu þeirra fyrir- tækja sem félagið hefur þegar fjárfest í, en einnig með fjárfestingum í nýjum félögum. Eldey TLH hf. var formlega stofnað í des- ember 2015 og var stærð félagsins við stofnun rúmlega þrír milljarðar króna en frá upphafi var gert ráð fyrir hlutafjáraukningu um tvo til fjóra milljarða. Hluthafar Eldeyjar eru 26 tals- ins, þar af eru sex lífeyrissjóðir sem eru flestir með um og yfir tíu prósenta hlut hver. Eldey á í dag 62,2 prósenta hlut í Íslenskum fjallaleið- sögumönnum sem hefur verið sameinað ferða- þjónustufyrirtækinu Arcanum, 20 prósent í Ís- lenskum heilsulindum sem er eignarhaldsfélag um uppbyggingu og rekstur náttúrubaðstaða, 43,31 prósents hlut í hvalaskoðunarfyrirtækinu Norðursiglingu á Húsavík og 67,31 prósents hlut í Sögu Travel og GeoIceland. Nýjasta fjár- festingin er 51 prósents hlutur í Sportköfunar- skóla Íslands betur þekktum sem Dive.is sem m.a. gerir út sportköfunarferðir í Silfru á Þing- völlum en lúkning kaupanna mun fara fram um leið og ákvörðun Samkeppniseftirlitsins liggur fyrir. „Það liggja fyrir áform um að stækka Eldey. Við erum á þeim stað í dag að við erum langt komin með fjárfestingargetu okkar. Mörg tækifæri liggja í þeim verkefnum sem við erum þegar í og kauptækifæri á markaði eru allt önnur í dag en þau voru árið 2015,“ segir Hrönn í samtali við ViðskiptaMoggann en blaðamaður fór á fund hennar á skrifstofu Ís- landssjóða í Norðurturni í vikunni. „Við erum búin að fjárfesta fyrir 2,7 til 2,8 milljarða og það sem er eftir er eyrnamerkt til þeirra félaga sem við höfum þegar fjárfest í,“ segir Hrönn. „Til þess að geta farið í nýfjár- festingar þá þurfum við aukið hlutafé, en það er alfarið í höndum hluthafanna að ákveða hvort það verði af slíkri hlutafjáraukningu eða ekki,“ segir Hrönn en hún segir áform um hlutafjáraukninguna skýrast betur síðar á árinu. „Við erum að horfa til þess að það verði komin skýr mynd á þetta á miðju ári.“ „Eldey er hlutafélag, fjárfestingarfélag en ekki sjóður. Iceland Travel Fund er t.a.m. sjóður með takmarkaðan líftíma eins og flestir framtakssjóðir en við erum fjárfestingarfélag á hlutafélagaformi þannig að við getum aukið hlutafé félagsins. Þegar við hófum þessa veg- ferð var skýrt í öllum okkar kynningum að við vildum stækka eftir því sem fram liðu stundir,“ segir Hrönn. Söluþóknanir í ferðaþjónustu of háar Síðustu tvö ár hafa um margt verið erfið fyrirtækjum í eigu Eldeyjar líkt og hjá öðrum ferðaþjónustufyrirtækjum. „Á sama tíma og við höfum séð metfjölda ferðamanna á Íslandi er afkoman í greininni langt frá því að vera nógu góð. Þar má kenna um sterku gengi krónunnar sem hefur hamlað ferðaþjónustu- fyrirtækjum töluvert. Eftirspurn eftir afþrey- ingu hefur dregist saman því kaupgeta ferða- mannsins minnkar eftir því sem krónan svo mikill og innviðir ekki tilbúnir,“ segir Hrönn. „Síðustu tvö ár hafa verið mögur í afkomu. Menn hafa ekki endilega verið að tapa mikið í veltu en afkoman versnaði verulega. Vöxturinn árið 2015 og 2016 var engu líkur og þá ruglast Hlutafjáraukning fyrir Andri Steinn Hilmarsson ash@mbl.is Fjárfestingarfélagið Eldey hefur á undanförnum árum fjárfest í afþreying- artengdum ferðaþjónustufyrirtækjum. Nýjasta fjárfestingin er 51% hlutur í Sportköfunarskóla Íslands, Dive.is. Eldey er í stýringu hjá Íslandssjóðum, dótturfélagi Íslandsbanka og segir Hrönn Greipsdóttir, framkvæmdastjóri Eldeyjar, mörg tækifæri fyrir hendi og félagið stefni á tveggja til þriggja milljarða króna hlutafjáraukningu á næstunni. Eignasafn Eldeyjar 20% 43,31%62,2% Íslenskar Heilsulindir Eignarhluti: 20% Hlutur sem var keyptur í Fontana í júní 2015 notaður til kaupa í íslenskum heilsulindum í júní 2017. Norðursigling Eignarhluti: 43,31% Keypt í september 2015. Tveir baðstaðir í eigu félags- ins, Fontana á Laugarvatni og Jarðböðin við Mývatn. Íslenskir fjallaleiðsögumenn Eignarhluti: 62,2% Keypt í Íslenskum fjallaleið- sögumönnum í júní 2016. Arcanum keypt í janúar 2018. Félögin sameinuð í desember 2018. Útivistarferðir á borð við jöklagöngur, vélsleðaferðir og fjórhjólaferðir. Gert út á Sólheimajökul, Mýrdalsjökul og Öræfajökul út frá Skaftafelli. Dive.is Eignarhluti: 51% Keypt í ársbyrjun 2019. Köfunar Saga Tra GeoIcela Eignarhlu 67,31% Keypt í ág 2017. Ice Horizon k 2018 og s við Saga GeoIcelan 8 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 14. FEBRÚAR 2019VIÐTAL

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.