Morgunblaðið - 14.02.2019, Page 12

Morgunblaðið - 14.02.2019, Page 12
12 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 14. FEBRÚAR 2019SJÓNARHÓLL Framleiðum allar gerðir límmiða af mismunandi stærðum og gerðum Thermal Hvítir miðar Litamiðar Forprentaðir Athyglismiðar Tilboðsmiðar Vogamiðar Lyfsölumiðar Varúðarmiðar Endurskinsmiðar Flöskumiðar Verðmer Selhellu 13 • 221 Hafnarfirði • Sími 554 0500 • bodtaekni.is kimiðar Límmiðar HARI Þegar upp kemur stórt vandamál eða óvenjulegstaða hættir okkur til að skýra margt og jafvelflest óvenjulegt með vísan til þessa eina atriðis. Þannig hættir til dæmis mörgum til þess að skýra flest sem úrskeiðs fer í Bandaríkjunum og jafnvel heiminum öllum á einhvern ótilgreindan hátt með veru Trumps á for- setastóli, en á sama tíma telja aðrir að málum sé þveröfugt farið og að allt sem óvenjuvel gengur sé Trump að þakka. Það sama virðst upp á ten- ingnum varðandi Bretland á tímum Brexit, þar sem iðu- lega er gripið til óljósra tilvís- ana til Brexit sem skýringar á flestu því sem aflaga fer í hagkerfinu. Slíkt er þó í besta falli ofureinföldun á ástand- inu en getur í versta falli leitt til þess að litið sé framhjá öðrum og ekki síður mik- ilvægum vandamálum. Það vakti ekki mikla at- hygli þegar lítil íhlutaverk- smiðja vestan við London að nafni Stonehouse tilkynnti að hún myndi draga úr fram- leiðslu og hætta henni alfarið innan tveggja ára. Þarna hverfa einungis um 200 störf, sem er lítið í samanburði við margar aðrar fréttir sem ber- ast þessi misserin frá Bret- landi. Það vakti þó athygli einhverra að ástæðan sem sænskur eigandi verksmiðj- unnar gaf fyrir lokuninni var að hann stefndi að því að flytja framleiðsluna til tæknivæddari verksmiðja í eigu móðurfélagsins í Frakklandi og á Ítalíu. Lokun Stonehouse-verksmiðjunnar hefur lítið með Brexit að gera en er afleiðing af öðru og djúpstæðara vandamáli sem Bretland glímir við, sem er lítil framleiðni vinnuafls. Sem dæmi þá þarf starfsmaður í Frakklandi að- eins tæpa 4 daga til að framleiða það sem breskur starfs- maður þarf 5 daga til að framleiða, sem skýrist meðal ann- ars af því að sjálfvirkar vélar á hvern starfsmann eru um helmingi færri í Bretlandi en í Frakklandi og ekki nema um einn fjórði af því sem gerist í Þýskalandi. Á meðan starfsfólk Stonehouse-verksmiðjunnar stansar kúlulegur með gömlum og úreltum tækjum er ný framleiðslulína móðurfélagsins í Frakklandi alsjálfvirk og hagstæðara er að flytja alla framleiðsluna þangað en að fjárfesta í sambærilegri tækni í Bretlandi. Framleiðni vinnuafls hefur lítið aukist í Bretlandi síðasta áratuginn á meðan vöxturinn í helstu samkeppn- islöndum hefur verið á milli 1 og 2 prósent og þótt óvissan sem fylgir yf- irvofandi Brexit sé ekki hvetjandi til fjárfestinga fer því fjarri að hún geti alfarið skýrt litla framleiðni vinnu- afls, sem er þróun sem á sér dýpri rætur og lengri sögu. Aðrar mögu- legar skýringar sem tíndar hafa verið til eru veik réttarstaða launafólks samhliða auðveldum aðgangi að ódýru vinnuafli, aðallega frá Austur- Evrópu, of hátt hlutfall lélegra fyr- irtækja, sem lifa fyrst og fremst af vegna lágra vaxta og stuðnings eig- enda eða hins opinbera og síðast en ekki síst hlutfallsleg stærð þjón- ustugeirans sem hefur síðri tækifæri til framleiðniaukningar en til dæmis iðnaður. Í þessu sambandi hefur ver- ið bent á að þrátt fyrir sögulega lítið atvinnuleysi í Bretlandi hefur hátt hlutfall starfa sem þar hafa orðið til eftir 2008 verið láglaunastörf með takmark- aða framleiðni. Það hefur verið ódýrara að ráða fleira fólk en að fjárfesta í tækni. Útlitið er því ekki endilega bjart fyrir breskan iðnað óháð því hvernig Brexit fram vindur og líklega ræður meiru um framhaldið hvernig Bretum tekst til við að auka fjárfestingu í landinu frekar en hvort Brexit verður með eða án samnings, í dag eða á morgun. VINNUMARKAÐUR Hjörtur H. Jónsson forstöðumaður ALM Verðbréfa hf. Breskur vandi er ekki bara Brexit ” Framleiðni vinnuafls hefur lítið aukist í Bret- landi síðasta áratuginn á meðan vöxturinn í helstu samkeppnis- löndum hefur verið á milli 1 og 2 prósent og þótt óvissan sem fylgir yfirvofandi Brexit sé ekki hvetjandi til fjár- festinga fer því fjarri að hún geti alfarið skýrt litla framleiðni vinnuafls, sem er þróun sem á sér dýpri rætur og lengri sögu. FORRITIÐ Þó að ViðskiptaMogginn reyni að fjalla aðallega um forrit sem geta hjálpað fagfólki að ná betri tökum á verkefnum dagsins þá læðast stundum inn í þennan dálk lausnir sem einfaldlega eru svo óvenjulegar og sniðugar að það væri synd að segja ekki frá þeim. PetSelfie (www.petselfie.co) er eitt af þessum forritum – og ætti að vera himnasending fyrir þá sem þykir fátt skemmtilegra en að taka myndir af sjálfum sér með gælu- dýrunum sínum. Þeir sem reynt hafa vita að það er heljarinnar vandi að ætla að fá hund eða kött til að sitja fyrir á sjálfsmynd. Blessaðir ferfætling- arnir hafa jú sáralítinn áhuga á myndatökunni og hlýða seint skip- unum ef þeim er sagt að brosa framan í símann. PetSelfie, leysir vandann á ósköp einfaldan hátt og lætur símann gefa frá sér hljóð sem vekur athygli dýrsins. Notandinn smellir á takka til að taka myndina og bíður ör- stutta stund á meðan forritið bæði gefur frá sér hljóð og tekur mynd. Eins og vera ber má síðan eiga við myndirnar á ýmsa vegu, stilla liti og bæta við skrauti, áður en þeim er deilt með vinum og vanda- mönnum. Eins og stendur er PetSelfie að- eins í boði fyrir síma með iOS stýri- kerfinu og kostar 99 sent í for- ritabúð Apple. ai@mbl.is Til að ná góðri mynd með loðbarninu

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.