Morgunblaðið - 19.02.2019, Qupperneq 1
Þ R I Ð J U D A G U R 1 9. F E B R Ú A R 2 0 1 9
Stofnað 1913 42. tölublað 107. árgangur
MINN STYRKUR
OG ÁHUGI LIGGUR
Í KLASSÍKINNI
GÆTA ÞARF
AÐ HEILL
BARNANNA
SKILNAÐIR 12 BÍLARBRYNHILDUR LEIKSTÝRIR 30
Rekstraraðilar bílaleigu sem
keypti minnst níu jeppa af bílaleig-
unni Procar árið 2017 ætla að
skoða réttarstöðu sína. Þeir segjast
vera slegnir yfir þeim tíðindum að
búið sé að eiga við kílómetrastöðu
bíla sem skráðir eru í þeirra eigu.
Höfðu mælar tveggja bílanna verið
„skrúfaðir niður“ um u.þ.b. 105.000
km hvor, úr um 170.000 km niður í
um 65.000 km. »10
Svik Öll spjót beinast nú að Procar.
Létu yfir 100.000
km akstur hverfa
ALLT SEM
PRÝÐA MÁ
EINN BÍL
Fallist hefur verið á sjónarmið Minjastofnunar Íslands um verndun
Víkurgarðs í miðbæ Reykjavíkur og hefur stofnunin því dregið til
baka friðlýsingartillögu sína um stækkun friðlýsts svæðis. Kemur
þetta fram í tilkynningu sem mennta- og menningarmálaráðuneytið
sendi frá sér seint í gærkvöldi.
„Ég lít svo á að þessi lausn sé sigur fyrir söguna – fyrir sögu Vík-
urgarðs sem mun öðlast verðugan sess og fyrir okkur sem þjóð sem
vill þekkja uppruna sinn,“ segir Lilja Dögg Alfreðsdóttir, mennta-
og menningarmálaráðherra, um niðurstöðu deilunnar.
og horfið frá því og því er ekki fylgt eftir með friðlýsingunni. Svo ég
tel að það sé slæm niðurstaða,“ segir hann.
Jóhannes Stefánsson, framkvæmdastjóri Lindarvatns, segir að-
alatriðið að byggingaráform raskist ekki frekar. Þá vonast Lind-
arvatn til þess að fyrirhuguð hugmyndasamkeppni um Víkurgarð
verði til þess að gera hann aðlaðandi og vistlegan stað í hjarta
Reykjavíkur, öllum borgarbúum og gestum þeirra til heilla.
Félagið Lindarvatn, sem vinnur að hótelframkvæmdinni, lagði
fram tillögu um að færa hótelinngang nær Aðalstræti. Segir Minja-
stofnun þar með búið að ná fram þeim markmiðum sem stofnunin
lagði upp með í sinni síðari friðlýsingartillögu, sem meðal annars
felast í því „að Víkurgarður fái þann virðingarsess sem honum ber
sem einn merkasti minjastaður þjóðarinnar“.
Helgi Þorláksson, sagnfræðingur og félagi í hópnum Vinum Vík-
urgarðs, segir niðurstöðuna í málinu slæma. „Ég tel að hún sé bara
slæm. Það var lýst yfir skyndifriðun austurhluta Víkurkirkjugarðs
Fallist á sjónarmið um verndun
Morgunblaðið/Hallur Már
Víkurgarður Einhugur er sagður vera um það hjá Minjastofnun Íslands, Lindarvatni, Reykjavíkurborg og mennta- og menningarmálaráðuneyti að marka Víkurgarði meiri virðingarsess.
Tillaga um stækkun á friðlýsingarsvæði Víkurgarðs dregin til baka Inngangur hótelsins færður
MMunu færa inngang hótelsins »2
Leigufélagið Heimavellir hyggst
hefja sölu nýrra íbúða á Hlíðarenda
í mars. Íbúðirnar verða á svo-
nefndum E-reit en alls verða 178
íbúðir á reitnum fullbyggðum.
Heimavellir eiga 164 íbúðanna en
Frostaskjól ehf. 14 íbúðir.
Guðbrandur Sigurðsson, fram-
kvæmdastjóri Heimavalla, segir
um 75 íbúðir af 164 í eigu félagsins
á E-reit koma til afhendingar í
sumar.
Heimavellir hyggist selja ríflega
50 af þessum 164 íbúðum. Fjöldi
seldra íbúða á reitnum muni mögu-
lega breytast á næstunni. Hinar
íbúðirnar fari í útleigu.
Guðbrandur segir íbúðirnar sem
fara í sölu munu verða á betra verði
en gengur og gerist um nýjar íbúðir
miðsvæðis í Reykjavík. Þær verði
allar með bílastæði í kjallara. »6
Heimavellir selja
íbúðir á Hlíðarenda Tvísýnt um lausn
Ómar Friðriksson
omfr@mbl.is
Forystumenn innan Alþýðusam-
bandsins eiga von á því að ríkis-
stjórnin kynni þeim í dag hvaða
skattabreytingum stjórnvöld eru
reiðubúin að beita sér fyrir til að
greiða fyrir lausn yfirstandandi
kjaraviðræðna.
Staðan er mjög tvísýn. Samkvæmt
heimildum innan verkalýðshreyfing-
arinnar er talið að umtalsverð lækk-
un skattbyrði tekjulágra launþega
með nýju lágtekjuskattsþrepi og
krónutöluhækkun af hálfu atvinnu-
rekenda, til viðbótar við tilboðið sem
lagt var fram á dögunum, gæti lagt
grunn að samkomulagi um endur-
nýjun kjarasamninga.
Ef útspil stjórnvalda dugar hins
vegar ekki til mun kjaradeilan
harðna.
Meta síðdegis hvort eigi að vísa
Næsti sáttafundur er boðaður á
fimmtudaginn og þá mun ráðast
hvort útspil stjórnvalda greiðir fyrir
áframhaldandi viðræðum eða hvort
þeim verður þá slitið og verkalýðs-
félögin fjögur, sem vísuðu deilunni
til ríkissáttasemjara fyrir tveimur
mánuðum, hefja undirbúning að boð-
un verkfalla.
Viðræðunefnd Starfsgreinasam-
bandsins metur á fundi síðdegis í dag
hvort vísa eigi deilu 16 aðildarfélaga
til sáttameðferðar.
omfr@mbl.is »4
Morgunblaðið/Eggert
Við störf Skattalækkun og viðbót
við launatilboð gætu leyst deiluna.
Búast við skattatillögum í dag sem greiði úr viðræðunum