Morgunblaðið - 19.02.2019, Síða 4
FRÉTTASKÝRING
Ómar Friðriksson
omfr@mbl.is
Það er að renna upp ögurstund í
kjaraviðræðunum á almenna vinnu-
markaðinum. Í dag er þess vænst að
ríkisstjórnin leggi fyrir forystu ASÍ
tillögur um breytingar í skattamál-
um, sem geta ráðið úrslitum um
hvort samningar nást á næstunni.
Samningstilboði SA og gagntil-
boði verkalýðsfélaganna fjögurra
sem vísuðu kjaradeilunni til ríkis-
sáttasemjara, var hafnað á báða
bóga í seinustu viku. Næsti sátta-
fundur er boðaður á fimmtudaginn
og þá mun ráðast hvort útspil stjórn-
valda dugar til áframhaldandi við-
ræðna eða viðræðunum verður þá
slitið, eins og viðmælandi úr forystu
verkalýðsfélaganna orðaði það í gær.
Næsta skref eftir viðræðuslit yrði
þá að hefja undirbúning þessara fé-
laga að boðun verkfalls.
Mikill og vaxandi óróleiki er líka
meðal verkalýðsfélaganna 16 innan
Starfsgreinasambandsins, sem ekki
hafa vísað kjaradeilunni til ríkis-
sáttasemjara. Þar eru komnar upp
háværar kröfur um að vísa deilunni
þangað fyrir næsta fimmtudag ef að-
koma stjórnvalda nægir ekki til að
koma hreyfingu á kjaraviðræðurnar.
Í gær var svo frá því greint að
samninganefnd SGS hefði veitt við-
ræðunefnd sambandsins umboð til
þess að vísa til sáttasemjara og ætl-
ar viðræðunefndin að ræða það á
fundi síðdegis í dag, eftir að ljóst
gæti verið hverjar tillögur stjórn-
valda væru.
Þó að útlitið sé dökkt í kjaravið-
ræðunum eru reyndir samninga-
menn innan verkalýðshreyfingar-
innar alls ekki úrkula vonar um að
hægt sé að ganga frá kjarasamningi
á tiltölulega stuttum tíma, ef það
meginmarkmiðið næst að auka veru-
lega ráðstöfunartekjur tekjulægstu
launþeganna. Það yrði gert með
blöndu beinna launahækkana og
lækkun skattbyrðinnar sem myndi
skila verulegum ávinningi fyrir
tekjulága, auk aðgerða í húsnæðis-
málum s.s. með aukinni leiguvernd
o.fl.
Lægri skattbyrði og lágmarks-
taxtar hækki strax í 300 þúsund
Það er fyrst og fremst tvennt sem
talið er geta leyst hnútinn. Annars
vegar ef ríkisstjórnin boðar að hún
muni létta skattbyrði tekjulægri
hópa og auka ráðstöfunartekjur
þeirra um a.m.k. 15 til 20 þúsund kr.
á mánuði, að öllum líkindum með
nýju skattþrepi á lægri laun. Því til
viðbótar þyrfti SA að fallast á að
bæta í tilboð samtakanna um krónu-
töluhækkanir, þannig að lægstu
taxtar hækkuðu í 300 þúsund kr. á
mánuði, sem er 14 til 15 þúsund kr.
hækkun til viðbótar við það sem SA
bauð í seinustu viku. Þetta gæti orð-
ið grunnur að nýjum kjarasamning-
um skv. heimildum Morgunblaðsins.
Eins og fram hefur komið buðu
SA í tilboði sínu krónutöluhækkanir
upp á 20 þúsund kr. árlega næstu
þrjú árin á laun undir 600 þúsund kr.
á mánuði og 2,5% hækkun á laun
sem eru þar yfir. Nánar tiltekið mun
tilboðið hafa falið í sér 15 þúsund kr.
árlegar hækkanir launa auk fimm
þúsund kr. uppbótar á taxtalaun.
Lægsti taxti í dag er um 266 þúsund
kr. þannig að hann myndi hækka í
fyrsta skrefi í 286 þúsund. Það dug-
ar hvergi nærri til að mati verka-
lýðsfélaganna, sem höfnuðu þessu
og segja ófrávíkjanlegt að allir taxt-
ar undir 300 þús. kr. verði afnumdir.
Frá 1. maí á seinasta ári hafa lág-
markslaun, svokölluð lágmarks-
tekjutrygging, verið 300 þúsund kr.
Heimildarmenn innan verkalýðs-
hreyfingarinnar benda á að ef at-
vinnurekendur féllust á að hækka
lægstu taxta í 300 þúsund í upphafi
samningstímabilsins yrðu lágmarks-
laun með tekjutryggingu á fyrsta ári
samningsins 334 þúsund og myndu
síðan hækka árlega til loka samn-
ingstímans. Þegar tekið er tillit til
skattalækkana yrði útkoman fyrir
láglaunafólk þegar upp yrði staðið
ekki ýkja langt frá þeirri kröfu sem
verkalýðsfélögin settu fram í upp-
hafi kjaraviðræðna um að lágmarks-
laun verði 425.000 krónur í lok
samningstímans ,,að því gefnu að
ekki komi til umtalsverðra skatt-
kerfisbreytinga, þannig að sköttum
verði létt af lægstu launum og lægri
millilaunum“, eins og það var orðað.
Verkalýðsfélögin í SGS hafa lagt
mikla áherslu á krónutöluhækkanir
launa og eru sumir innan hreyfing-
arinnar þeirrar skoðunar að gera eigi
þá gagnkröfu á SA að krónutölu-
hækkanir gangi upp allan launastig-
ann í stað prósentuhækkunar launa
yfir 600 þús. kr. á mánuði. Óeðlilegt
sé að þeir sem hafa yfir eina til tvær
milljónir á mánuði fái 25 til 50 þúsund
kr. hækkun eins og leiða myndi af til-
boði SA en ekki er ljóst hvort verka-
lýðshreyfingin léti þó brjóta á þessu.
Mikil óformleg fundarhöld voru í
gærdag þar sem farið var yfir stöð-
una á meðan beðið er eftir aðkomu
stjórnvalda. Ráðherrar munu hafa
fundað til að leggja lokahönd á þær
aðgerðir sem þeir ætla svo að kynna
viðsemjendum á vinnumarkaði í dag.
Forsetar ASÍ funduðu í gærmorgun
og því næst kom samninganefnd
ASÍ saman til að fara yfir málin.
Gætu náð góðri lendingu
í styttingu vinnuvikunnar
Viðræður um sérmál hafa haldið
áfram milli iðnaðarmannafélaganna
og Samtaka atvinnulífsins en við-
ræður um stærstu mál væntanlegra
samninga hafa legið niðri á meðan
beðið er eftir upplýsingum frá
stjórnvöldum, að sögn forystu-
manna í röðum iðnaðarmanna, sem
rætt var við.
Breytingar á vinnutíma eru meðal
þeirra sérmála sem rædd hafa verið
reglulega að undanförnu og í pistli á
vefsíðu Samiðnar segir að ennþá sé
unnið að styttingu vinnuvikunnar
„og gerum okkur vonir um að okkur
takist að ná góðri lendingu í því
máli“.
Með tilboði atvinnurekenda til
stéttarfélaganna á dögunum séu
hins vegar að verða vatnaskil í
kjaradeilunni. ,,Það sem hefur verið
að trufla samtölin um endurnýjun
kjarasamninga eru fréttir af gríðar-
legum hækkunum hjá bankastjórum
og æðstu embættismönnum ríkisins.
Það gap sem stjórnvöld bjuggu til
með því að fella niður kjaradóm, og
vera ekki tilbúin með fyrirkomulag
sem á að taka við, hafa þeir sem eru í
efstu lögunum samfélagsins nýtt til
hins ýtrasta,“ segir í pistlinum.
Morgunblaðið/Eggert
Sáttafundur Tveir mánuðir eru liðnir frá því að fjögur verkalýðsfélög vísuðu til ríkissáttasemjara og sjö vikur frá því að kjarasamningar losnuðu.
Skattaspilið ræður úrslitum
Verkalýðsfélög eiga von á tillögum ríkisstjórnarinnar til aðila vinnumarkaðarins í dag
Nýtt lágtekjuskattþrep og viðbót við krónutölutilboð SA er talið geta lagt grunn að samkomulagi
Óvissa í kjaramálum
» Viðræðunefnd Starfsgreina-
sambands Íslands metur síð-
degis í dag hvort vísa eigi
kjaradeilu 16 aðildarfélaga og
Samtaka atvinnulífsins til
ríkissáttasemjara.
» Næsti sáttafundur SA og
fjögurra verkalýðsfélaga er
boðaður á fimmtudaginn.
4 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 19. FEBRÚAR 2019
Veður víða um heim 18.2., kl. 18.00
Reykjavík -1 léttskýjað
Hólar í Dýrafirði -1 skýjað
Akureyri 0 snjókoma
Egilsstaðir -1 alskýjað
Vatnsskarðshólar 4 léttskýjað
Nuuk -1 léttskýjað
Þórshöfn 5 skúrir
Ósló 3 þoka
Kaupmannahöfn 7 þoka
Stokkhólmur 4 skýjað
Helsinki 2 skýjað
Lúxemborg 11 heiðskírt
Brussel 14 skýjað
Dublin 9 skúrir
Glasgow 7 rigning
London 8 skúrir
París 14 heiðskírt
Amsterdam 11 léttskýjað
Hamborg 13 heiðskírt
Berlín 13 heiðskírt
Vín 10 heiðskírt
Moskva -3 heiðskírt
Algarve 15 skýjað
Madríd 14 heiðskírt
Barcelona 14 léttskýjað
Mallorca 17 léttskýjað
Róm 12 skýjað
Aþena 14 léttskýjað
Winnipeg -24 skýjað
Montreal -12 skýjað
New York 2 þoka
Chicago -3 snjókoma
Orlando 24 þoka
19. febrúar Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 9:10 18:14
ÍSAFJÖRÐUR 9:24 18:10
SIGLUFJÖRÐUR 9:07 17:52
DJÚPIVOGUR 8:42 17:41
VEÐUR KL. 12 Í DAG
Á miðvikudag Austan 18-23 m/s og rigning eða
slydda, snjókoma eða slydda norðan- og austantil.
Á fimmtudag Sunnan 13-20 m/s, hvassast vestast
á landinu. Þurrt að kalla á Norður- og Austurlandi.
Fremur hæg austlæg átt á norðanverðu landinu, bjartviðri og frost að 7 stigum. Austan 8-15
sunnan til með stöku skúrum eða éljum, hiti um og yfir frostmarki. Hvessir sunnanlands í kvöld.
Níu störf hafa verið lögð niður vegna
skipulagsbreytinga hjá Alcoa
Fjarðaáli frá áramótum. Þar af var
sex starfsmönnum sagt upp í lok
janúar, eins og komið hefur fram.
Samkvæmt upplýsingum fyrir-
tækisins hefur fjórum af þessum níu
starfsmönnum verið boðið að fara í
önnur störf hjá fyrirtækinu. Það mál
er enn í ferli, samkvæmt upplýs-
ingum upplýsingafulltrúa. Ef allir
þiggja þessi störf hætta aðeins fimm
af þeim níu starfsmönnum sem feng-
ið hafa uppsagnarbréf. helgi@mbl.is
Níu starfsmönnum
sagt upp á árinu
Morgunblaðið/ÞÖK
Fjarðaál Um 550 starfsmenn eru
hjá Alcoa Fjarðaáli á Reyðarfirði.
Fjórum þeirra
boðið að ganga í
önnur störf