Morgunblaðið - 19.02.2019, Blaðsíða 6
6 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 19. FEBRÚAR 2019
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
Tæplega 90% þeirra kúabænda sem
þátt tóku í atkvæðagreiðslu Bænda-
samtaka Íslands vilja halda í kvóta-
kerfi í mjólkurframleiðslu. Aðeins
rúm 10% kjósa að gefa framleiðsl-
una frjálsa.
„Þetta er algerlega í samræmi
við þá umræðu sem ég hef upplifað
meðal bænda á undanförnum mán-
uðum. Niðurstaðan kemur því ekki
á óvart en munurinn er aðeins meiri
en ég átti von á,“ segir Arnar Árna-
son, formaður Landssambands kúa-
bænda.
493 kúabændur kusu af þeim 558
sem rétt áttu til þátttöku eða
88,35%. „Það er mikilvægt að hafa
fengið svona góða þátttöku. Umboð-
ið sem við förum með í samninga-
viðræður við ríkið er alveg skýrt.
Við höfum ekki umboð til að ræða
neitt annað en felst í þessum niður-
stöðum. Það er gott að hafa slíkt
veganesti,“ segir Arnar.
Viðræður að hefjast
Spurður um framhaldið segir
Arnar að Landssamband kúabænda
og Bændasamtök Íslands muni nú
láta gera skoðanakönnun þar sem
afstaða bænda til fyrirkomulags
viðskipta með greiðslumark verður
könnuð. „Svo erum við með við-
semjanda,“ segir Arnar og vísar til
þess að endurskoðun nautgripa-
ræktarsamnings búvörusamninga
ríkis og bænda muni hefjast senn.
Samninganefnd bænda mun hittast
á sínum fyrsta fundi á morgun.
Arnar segir að auk kvótamálsins
verði lögð áhersla á að taka betur á
tollvernd landbúnaðarins í búvöru-
samningum.
Skýrt umboð
í viðræðunum
90% kúabænda vilja kvóta áfram
Morgunblaðið/Eggert
Mýrar Kýrnar úða í sig fersku og
hæfilega röku grasi.
Halldór G. Björnsson, fyrrverandi verkalýðsleiðtogi
til fjölda ára, var jarðsunginn frá Digraneskirkju í
gær. Séra Gunnar Rúnar Matthíasson jarðsöng.
Líkmenn voru þau Grímur Halldórsson, Ketill
Arnar Halldórsson, Kristín María Grímsdóttir, Guð-
rún Eydís Ketilsdóttir, Halldór Guðmundsson, Jó-
hann Guðmundsson, Smári Ríkarðsson og Sindri
Smárason.
Karlakór Fóstbræðra söng við útförina en organ-
isti var Gunnar Gunnarsson.
Morgunblaðið/Hari
Útför Halldórs G. Björnssonar
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Leigufélagið Heimavellir hyggst
hefja sölu nýrra íbúða við Hlíðar-
enda í mars. Salan sætir tíðindum
enda eru íbúðirnar á einum af fjórum
nýjum íbúðareitum á svæðinu, sem
heita C-F. Félagið mun samtímis
auglýsa nýjar íbúðir til leigu.
Guðbrandur Sigurðsson, fram-
kvæmdastjóri Heimavalla, segir fé-
lagið fá fyrri hlutann af svonefndum
E-reit til afhendingar í sumar. Á
honum verði 178 íbúðir. Þær skiptist
þannig að 164 verði í eigu Heima-
valla og 14 í eigu Frostaskjóls ehf.
„Við fáum 164 íbúðir afhentar í
tveimur áföngum. Þann fyrri í sumar
og hinn seinni ári síðar. Húsin eru
byggð eins og tvö L sem tengjast svo
saman. Hlutinn sem verður afhentur
í sumar snýr að Hringbrautinni. Þar
eru um 75 íbúðir af þessum 164. Við
höfum alltaf áformað að selja stærri
íbúðirnar og áætlum nú að selja ríf-
lega 50 af þessum 164. Flestar íbúð-
irnar sem við seljum eru yfir 75 fer-
metrar; þriggja, fjögurra og fimm
herbergja. Fjöldinn getur breyst
þegar líður á árið ef við teljum
ástæðu til með því að auka hlutfall
íbúða sem fer í sölu eða leigu,“ segir
Guðbrandur og vísar til stöðu
Heimavalla. Fyrir liggur tillaga um
afskráningu félagsins sem hluthafar
taka afstöðu til á aðalfundi 15. mars.
Meiri áhugi á stærri íbúðum
Guðbrandur segir reynslu Heima-
valla af fyrri verkefnum benda til
meiri áhuga á stærri íbúðum en
minni þegar fermetraverð er yfir
meðallagi. Ekki sé búið að ákveða
söluverð. „Þetta verður hóflega
verðlagt miðað við það sem er í gangi
í dag,“ segir Guðbrandur.
Hann bendir svo á að allar íbúð-
irnar á Hlíðarenda verði með bíla-
stæði og rúmgóða geymslu í kjallara.
Ásamt E-reit verða reitir C (162
íbúðir), D (142 íbúðir) og F (191) með
samtals nærri 500 íbúðir. Uppbygg-
ing þeirra er misjafnlega langt á veg
komin. Fyrsta fjölbýlishúsið á
Hlíðarendasvæðinu, Arnarhlíð 1, er
á svonefndum B-reit. Húsið var af-
hent í fyrrasumar. Þar eru 40 íbúðir.
Enn eru óseldar íbúðir í húsinu.
Mikill áhugi á svæðinu
Guðbrandur segir marga bíða eftir
íbúðum á Hlíðarenda. Þar sé nátt-
úra, miðborgin og stærstu háskól-
arnir í göngufæri. Veðursæld sé á
svæðinu. Mikið sé lagt í hönnun húsa
og einsleitni brotin upp með ólíkum
framhliðum. „Það hafa margir haft
samband við okkur, ekki síst eldra
fólk sem hefur búið lengi miðsvæðis,
og spurt um íbúðirnar,“ segir Guð-
brandur um áhugann á svæðinu.
Hefja sölu íbúða á Hlíðarenda í mars
Heimavellir hyggjast selja 50 af 164 íbúðum á E-reit á Hlíðarenda Hinar fara að óbreyttu í útleigu
Framkvæmdastjóri Heimavalla segir íbúðirnar munu verða á hagstæðara verði en gengur og gerist
Morgunblaðið/RAX
Hlíðarendi Fyrstu íbúðirnar á reitum C-F verða afhentar í sumar.
verkefnið sem fyrirtækið hefur tek-
ið að sér.
Í tilkynningu Vodafone kemur
fram að Aqua Comms sem á og rek-
ur ljósleiðaranet á milli Bandaríkj-
anna, Írlands, Bretlands og Dan-
merkur hafi sýnt verkefninu áhuga
og stuðning. Félagið rekur einnig
ljósleiðarakerfi í eigu annarra. Það
selur eingöngu tengingar í heild-
sölu.
Páll Jóhann segir að sú vinna
sem Fjarskiptasjóður setti af stað
hafi verið ætluð til að flýta undir-
búningi að lagningu fjarskiptasæ-
strengs. Vonast hann til að umræð-
an leiði til þess að þriðji strengurinn
verði lagður til Evrópu. Allir séu
sammála um að það þurfi að gerast.
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
„Það er gott að vita að eitthvað er
að gerast í þessum málum. Við höf-
um haft meiri áhyggjur af því að lít-
ið væri að gerast. Svo verður að
koma í ljós hvað verður í framhald-
inu,“ segir Páll Jóhann Pálsson, for-
maður Fjarskiptasjóðs, um samning
Vodafone á Íslandi við norska aðila
um að skoða samlegð við lagningu á
nýjum fjarskiptasæstreng frá Nor-
egi og Íslandi til Írlands.
Vodafone á Íslandi (SÝN) til-
kynnti þennan samning við norska
fyrirtækið Nordavind í gær. Áform-
að er að leggja Íslandsstrenginn frá
Reykjanesi til vesturstrandar Ír-
lands og Noregsstrenginn frá
Þrándheimi til sama lendingar-
staðar. Strengirnir gætu legið sam-
an síðasta spölinn.
Rannsóknir í sumar
Farice, sem rekur strengina
sem tengja Ísland við Evrópu, Fa-
rice-1 og Danice, er að undirbúa
kortlagningu sjávarbotnsins og aðr-
ar forrannsóknir við lagningu nýs
fjarskiptastrengs á þessari sömu
leið. Tók fyrirtækið verkið að sér
fyrir Fjarskiptasjóð sem leggur í
það um 260 milljónir króna.
Örn Orrason, yfirmaður sölu og
viðskiptaþróunar Farice, segir að
samningar Vodafone við Norðmenn
breyti engu. Haldið verði áfram við
Kanna samlegð með streng frá Noregi
Vodafone stefnir að lagningu sæstrengs til Írlands
Farice rannsakar sömu leið fyrir Fjarskiptasjóð
Heimild: Sýn hf.
Ljósleiðari milli Íslands, Noregs og Írlands
ÍRLAND
Killala
NOREGUR
Þrándheimur
ÍSLAND
Reykjanes